Heimskringla - 06.07.1938, Page 5
WINNIPEG, 6. JÚLÍ 1938
HEIMSKRINCLA
5. SfÐA
PEARL PÁLMASON FRÁ
WINNIPEG
Hér hefir dvalið undanfarnar
vikur ungfrú Pearl Pálmason frá
Winnipeg. Er hún dóttir frú
Gróu Sveinsdóttur frá Kletti í
Borgarfirði og Sveins Pálmason-
ar, Sigurðssonar fyrrum bónda
á Ysta-Gili.
Ungfrú Pearl Pálmason byrj-
aði 9 ára gömul að læra fiðluleik
hjá bróður sínum Pálma Pálma-
syni og gekk síðan í þrjú ár á
tónlistarskóla í Toronto, sem er
einn stærsti tónlistarksólinn í
Canada. Síðastliðið ár hefir hún
dvalið í Lundúnaborg og stundað
nám hjá hinum þekta fiðluleik-
ara og kennara, Carl Fletsch. —
Þykir hún mjög efnilegur nem-
andi og hefir fengið mjög lof-
samlega dóma þau skifti, sem
hún hefir haldið hljómleika. En
opinberlega lék hún fyrst á fiðlu
er hún var 11 ára gömul.
Nú er ungfrú Pálmason aðeins
22 ára, en er þegar mikið lista-
mannsefni. Um leið og hún dvel-
ur hér í heimsókn hjá ættingj-
um sínum, og kemur hingað í
kynnisför, til þess að sjá landið,
fá Reykvíkingar kost á að heyra
hana leika á fiðlu. Mun hún
halda hér hljómleika þ. 15. júní
n.k., ásamt Árna Kristjánssyni
píanóleikara, en hljómleikarnir
eru á vegum Tónlistarfélagsinfc.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagðist ungfrú Pálmason
mundu dvelja hér þangað til í
haust og ferðast eitthvað um
landið síðar í sumar. Héðan fer
hún aftur til Lundúnaborgar og
heldur áfram námi. Er í ráði, að
hún haldi þar hljómleika að ári.
—Mbl. 11. júní.
HÖFUM VÉR FAST LAND
UNDIR FóTUM?
Mörgum kann að virðast þetta
kynleg spurning. En þó er því
í fullri alvöru haldið fram af
mörgum jarðfræðingum, að heil-
ar heimsálfur séu beinlínis á
“flakki” um yfirborð jarðarinn-
ar. Samkvæmt því er álitið, að
eitt sinn hafði Ameríka, Evrópa
og Afríka verið heillegt land-
flæmi, en svo hafi það brostið í
sundur, Ajneríka gliðnað frá
vestur á bóginn og Atlantshafið
lagst á milli skaranna. Ef vel
er að góð, á landabréfi, er sem
austurströnd Ameríku sé klipt
eftir vesturströnd Evrópu og
Afríku.
Þessi hugmynd um landflutn-
ing er kend við hinn hugmynda-
ríka þýzka vísindamenn, Alfred
Wegener, sem úti varð á Græn-
landsjökli veturinn 1930. Honum
auðnaðist ekki að sanna þessa
hugmynd til fulls, enda getur
reynslan ein skorið þar úr. M. ö.
o.: Er nokkurs staðar hægt að
sanna það með mælingum, að
fjarlægð breytist milli landa eða
er hægt að finna þess dæmi að
jarðskorpan geti tognað og
teygst án þess að bresta.
Það hafa verið gerðar ná-
kvæmar staðarákvarðanir á ís-
landi, Grænlandi og Ameríku síð-
ustu tvo áratugi, til þessa að
prófa, hvort afstaða þessara
landa breytist. Það hefir ekki
tekist að finna merki þess, enn
sem komið er.
Með Dr. AJexandrine komu
hingað til lands í fyrradag 6 vís-
indamenn, 5 þýzkir og einn ís-
lenzkur. Þeir ætla að gera rann-
sóknir norður í Þingeyjarsýslu
í sumar og miða störf þeirra að
því að prófa Wegeners-kenning-
una — en með nokkuð öðrum
hætti en gert hefir verið hingað
til. Þeir velja sem rannsóknar-
svæði móbergsspilduna milli
Vaðlaheiðar og Grímsstaða á
Fjöllum. Vestan að þessari
spildu standa forn blágrýtisfjöll
og- við Grímsstaði á Fjöllum
standa fornir blágrýtishryggir
UPP úr móberginu. Á þessari
spildu hafa þykk lög af nýjum
hraunum og móbergi lagst ofan á
blágrýtið. Þar hafa mörg gos
orðið á síðari öldum og margar
gapandi gjár og sprungur eru
þar sýnilegar. Nú kemur spurn-
ingin. Er þessi spilda föst, eða
er hún á órahægri sígandi hreyf-
ingu? Og verða eldgosin í sam-
bandi við hreyfinguna? — Getur
það hugsast, að þessi nýju hraun
og móbergsmyndanir þrýsti svo
á blágrýtishelluna, sem undir
liggur að hún gliðni eða fljóti
svolítið út til hliðanna? Af-
leiðingin af því myndi verða sú,
að Vaðlaheiði og blágrýtishnúk-
arnir hjá Grímsstöðum fjarlægð-
ust hvort annað. Þessvegna
hugsa hinir þýzku vísindamenn
sér að mæla hárnákvæmt fjar-
lægðina þarna á milli eins og
hún er nú. Þeir bera það svo
saman við mælingar sem þarna
voru gerðar fyrir 30 árum af
herforingjaráðinu. Og svo er
ætlast til, að mælingarnar verði
endurteknar á t. d. 10 ára fresti.
Foringi leiðangursins, prófess-
or Niemczyk, bauð fréttariturum
blaðanna og ríkisútvarpsins til
viðtals kl. 4 í fyrradag og skýrði
þessi viðfangsefni fyrir þeim. —
Auk þess verða gerðar mæling-
ar á þyngdarafli jarðarinnar
víða norðanlands, en slíkar mæl-
ingar hafa aldrei verið gerðar
hér á landi áður. Er þar mikið
verkefni fyrir hendi sem getur
gefið stórmerkar bendingar um
myndun landsins og bergfræði
þess.
í förinni tekur þátt þektur
þýzkur eldfjallafræðingur, próf.
Bernauer og verður Tómas
Tryggvason jarðfræðingur, ætt-
aður úr Bárðardal, honum til að-
stoðar._
Prófessor Niemczyk tók það
fram, að fregn, sem borist hefði
hingað frá Kaupmannahöfn þess
efnis, að einhver leynd hvíldi
yfir fyrirætlun þeirra félaga,
væri algerlega á misskilningi
bygð Hann hefði aðeins verið
ófús að láta mikið yfir fyrirætl-
unum, áður en séð væri hvernig
tækist að framkvæma þær. M.
a. gæti óhagstætt veður gert
hinar nákvæmu landmælingar ó-
framkvæmanlegar.
—N. Dbl. 15. júní.
E I K I N
Hin frjóvga eik hún óx svo skjótt
Frá æsku fyrsta skeiði,
Við lífskjör ýms með orku og
þrótt
f ungri rót og meiði.
Því sólin kysti hana heit
Og hýrum geislum skrýddi,
Svo frjáls og tign í frjógvum reit
Hún foldar svæði prýddi.
f dýrð og hreinleik dafnar þar
Með dýrsta lífsins gildi,
Frá jörðu göfgar greinar bar
Sem grípa himin vildi.
Og þannig æfin langa leið
í ljósi, stormi og kulda,
Frá rótum skaut hún meið af
meið
Með meginstyrkinn dulda.
Og út frá sér um víðan veg
Hún vegsemd bar og heiður
Svo traust og rík og tíguleg
Og trúr hver álmur breiður.
Og þannig eikin óx og var
Sem ímynd styrks og friðar,
Er einskisvirðir aldarfar
En áfram hærra miðar.
En afturfararskeiðið skjótt
Þá skilmálana þylur,
Að líði að hin langa nótt
Og loka fellibylur.
Því þar sem áður eikin bar
Sinn ávöxt lífs til handa,
Hin unga kynslóð er nú þar
Og eikur nýjar standa.
En það sem fremstu fullnun
nær
Og fegrar lífsins vegi,
Það glatast ei, en framhald fær
Að fjærsta lokadegi.
M. Ingimarsson
B R É F j Þá töluðu þeir próf. Ágúst H.
------- ' Bjarnason og Ásm. P. Jóhanns-
Árborg, Man., son, en þjóðsöngvar íslands og
4. júlí 1938 Danmerkur voru sungnir.
Mr. S. Einarsson, J Að loknu borðhaldi var dans
Kæri herra: j stiginn fram eftir nóttu.
Viltu geta þess í Heimskringlu —Vísir, 11. júní.
þessa viku að iðnaðarsýningin sé 9 * *
haldin laugardaginn 9. júlí og sé Eystrasalt sem hitageymir
sérstaklega vandað til hennar Sænskur vísindaleiðangur hef-
þetta ár og ættu því bændur og ir fyrir skömmu varpað ljósi yfir
konur þeirra að styðja að því að vandamál, sem bæði vísindamenn
gera hana sem bezta með því að og leikmenn hafa fengist við ár-
koma með skepnur sínar, bakn- um saman. En þetta er hvers-
inga og hannyrðir. Til skemtana' vegná haustið er mildara við
verður hlaup fyrir börnin, “Steel strendur Eystrasalts, bæði í Dan-
chair ride” og fl. J mörku og Noregi, en öðrum
Dans verður í Árborg Hall, landshultum.
föstudaginn 15. júlí. Spilar Geys-! Eitt sinn hneigðust menn að
ir orchestra bæði modern og old þeirri skoðun, að hlýir straum-
timers.
málefni.
Komið og styðjið gott
Vinsamlegast,
Andrea Johnson
í SL AN DS-FRÉTTIR
nu a-
S jómannadag urinn
Sjómannastéttin hefir
kveðið að gera fyrsta sunnudag
í júnímánuði ár hvert að hátíðis-
degi sínum og nefna daginn sjó-
mannadag. Efndu sjómenn til
mikilla hátíðahalda hér á annan
hvítasunnudag, og er það allra
mál, er viðstaddir voru, að alt
sem fram fór, hafi tekist prýði-
lega. Fylktu sjómenn liði við
Stýrimannaskólann og gengu í
fylkingu upp að Leifsstyttu. —
Hafði þar verið afmarkað svæði
og pöllum komið fyrir svo alt
■?æti farið sem skipulegast oer
bezt fram. Nokkuð á annað þús-
und sjómenn munu hafa tekið
þátt í göngunni, en uppi við
Leifsstyttu er talið að hafi verið
um 10 þúsundir manna. Að há-
tíðahöldunum loknum við Leifs-
styttuna var haldið niður að
höfn og fór þar fram kappróður,
stakkasund o. fl. og síðar á
íþróttavellinum, reipdráttur og
knattspyrna. Um kvöldið var
veizla á “Borginni”, og var
ræðuhöldunum og veizluglaumn-
um útvarpað.
Var dagur þessi sjómönnum
til sóma, og mun aldrei hafa sést
á götum Reykjavíkur jafnstór
og prúð fylking sem sjómann-
anna, og tekst þeim vonandi að
setja upp svip sinn á bæinn í
framtíðinni á sjómannadaginn
jafnvel og glæsilega og í þetta
fyrsta sinni, sem sjómannadag-
ur var haldin.—Alþbl. 13. júní.
* * *
Eldur í Vatnajökli.
Jóhannes Áskelsson jarðfræð-
ingur er nú kominn úr leiðangri
sínum austur á Vatnajökul. —
Telur hann fullsannað að elds-
umbrot hafi átt sér stað í jökl-
inum. Hefir um 30 ferkílómetra
jökulspilda sigið niður um 100—
200 metra í norðvesturhorni
Grímsvatnadals. En ekki sáust
nein merki, þess, að gosið hefði
náð yfirborði jökulsins. Má því
telja víst að Skeiðarárhlaupin
standi í sambandi við eldsumbrot
þessi í jöklinum—Alþbl. 13. júní.
* * *
Reumertshjónin sæmd
heiðursmerkjum
í samsæti því, sem haldið var
í gærkveldi til heiðurs Reumerts-
hjónunum, tilkynti atvinnumála-
ráðherra, Skúli Guðmundsson,
er hélt ræðu fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar, að konungur hefði
samkvæmt tillögu orðunefndar,
sæmt Poul Reumert stórriddara-
krossi Fálkaorðunnar með
stjörnu og frú Önnu Borg-Reu-
mert stóriddarakrossi Fálkaorð-
unnar. Ragnar Kvaran stýrði
samsætinu og ávarpaði heiðurs-
gestina sérstaklega og þakkaði
þeim hingaðkomuna og starf
þeirra fyrir íslenzka leiklist. —
Sigurður Nordal prófessor mælti
fyrir minni frú Reumert og
kvenþj óðarinnar, en Poul Reu-
mert þakkaði góðar móttökur og
góða viðkynningu við íslendinga.
Frú Anna Borg-Reumert lýsti á
nægju sinni yfir að koma hing
að heim til ættlands síns og
bernskustöðva.
ar eða uppsprettur í djúpinu
mundu hér ráða. Þetta er þó alls
ekki ástæðan. Sænsku vísinda-
mennirnir fræða oss nú á því að
þetta stafi einungis af því, að
Eystrasalt endurveiti oss hita
sólargeislanna. Eystrasalt er því
hitageymir fyrir landshluta þá
er að því liggja.
Eftir því sem vísindamennirn-
ir segja, þá móttekur hver fer-
metaer af yfirborði Eystrasalts
hvern sumardag sólarhita sem
svarar til hitamagns í 40—50 kg.
af steinkolum. Þegar haustið
kemur og loftslagið kólnar, þá
miðlar Eystrasalt smátt og
smátt sínum geymda sólarhita
og gerir þannig
mildari og hlýrri í sínu um-
hverfi, en hún er nokkursstaðar
annars staðar á sömu breiddar-
gráðum.—N. Dbl.
verðfræðingar. Og sumar
þeirra geta gert skellihurðir,
sem eru á reglulegum hjörum.
En skordýrin hafa ekki heldur
komist hjá ýmsum löstum, sem
kunnir eru úr mannlífinu. —
Drykkjuskapur þekkist t. d..
meðal þeirra. í^ávöxtum, semj
falla af trjánum niður í skóg- j
svörðinn, myndast sundum á-
fengisgerð. Fflðrildi ^og míl-
flugur þekkja, að hægt er að
“fara á fyllirí” með því að éta
af ávöxtum þessum. Menn hafa
rannsákað þetta nákvænfjega,
og séð að skordýr eru afar sólg-
in í þessa ávexti. Býflugur taka
sér mjög í staupinu þarna og
verða þá herskáar eins og
drykkjusvolar, ráðast á öll kvik-
indi, sem þær geta átt von á að
ráða við.
•
Murarnir hafa, sem kunnugt
er, skipulagðasta félagsstarfsemi
að meðtöldum tremítum, sem
eru skyldir maurunum. Meðal
býflugnanna eru “drotningar”,’
sem í bókstaflegri merkingu eru
mæður þjóðar sinnar. Meðal
mauranna eru það konungur og
drotning, þó drotningin sé þar
mestu ráðandi.
Samfélagi mauranna er skift í
stéttir. Sumir eru varðmenn,
og gæta mauraþúfunnar. Þeir
hafa mikinn bitkjaft, og eru því
á mauravísu ægilegir viðureign-
veðuráttuna' ar.
Stundum fara maurar þessir
beinlínis í herleiðangra, til ann-
ara mauraþúfna. Ganga þeir þá
í skipulegum fylkingum. Ráðast
þeir með kænsku á maurafélög,
sem eru minni máttar, um-
kringja þúfur þeirra, leggja í
skæðar orustur og brjóta alla
mótstöðu á bak aftur, leggja þúf-
Vísindamenn, er hafa sökt sér j una undir sig, ræna þar öllu “fé-
í. að rannsaka líf og eiginleika maetu”, eggjum og matföngum,
og hafa heim með sér. Með her-
deildunum er burðarlið, sem hef-
ir það hlutverk að bera her-
fangið heim.
Fullkomin verkaskifting er
meðal vinnu-mauranna. Sér-
stakir maurar annast alla þjón- 1
ustu konungshjónanna, aðrir
hafa á hendi viðhald og endur-
bætur allra “húsakynna” o. s.
frv.
Það er alkunnugt, að maurarn-
ir hafa blaðlýs sem húsdýr sín.
En síður er það kunnugt, að í
skógum Brazilíu eru maurar,
sem eru slungnir í garðrækt.
Menn tóku eftir því í skógun-
um, að maurar skriðu upp eftir
trjánum og út á blöðin. Skáru
þeir u-myndaða skurði í gegnum
blöðin, svo þar myndaðist lítil
tunga og rifu síðan þenna litla
bleðil lausan og skriðu með hann
niður eftir trénu, niður í holur
sínar. Lengi vel vissu menn
ekkert hvað þeir höfðu með
blaðaflipa þessa að gera. En
ljóst var að þeir átu blöðin ekki.
En seinna kom það upp úr kaf-
inu, að niðri í jarðgöngunum,
þar sem blaðarifrildi þetta rotn-
aði niður, myndaðist hinn besti
gróðurbeður fyrir vissa tegund
af litlum sveppum. En sveppina
notuðu maurarnir til matar. —
Þeir, m. ö. o. rækta sveppi þessa
handa sér. En hvernig maur-
arnir hafa lært þessa ræktunar-
aðferð, verður alt af hulin gáta.
—Lesb. Mbl.
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BirgSlr: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Heory og Argyle
VERO - GÆÐI - ÁNÆGJA
SKORDÝRIN GERA
FLEIRA EN FLESTA
GRUNAR
skordýranna, halda því stund-
um fram, að þessi litlu kvikindi
séu í raun réttri kóróna sköpun-
arverksins. Svo mikil skynsemi
virðist ríkja meðal sumra þeirra,
eða eðlishvöt, svo rík, að hún
gefur lífi þeirra merkilegan
þroskablæ.
Svo mikið er víst, að sum skor-
kvikindi virðast hafa vit og
tækni, sem stendur framar því,
er menn hafa getað komist enn
í dag. Æðri dýr, sem kölluð eru
fuglar og spendýr hafa tileinkað
sér ýmsa eiginleika, sem kom-
ast í námunda eða eru skyldir
eiginleikum manna. T. d. verk-
hygni bifurdýranna, sem hlaða
stífluggarða í lækjum, til þess
að hækka vatnsborð þeirra eftir
geðþótta sínum. Menn þekkja
líka glysgjarna fugla, svo sem
hrafna og krákur, sem tína sam-
an ýmislegt dót, er gljáir á, og
geyma það sem sjáaldur auga
síns. En alt slíkt er auðvirði-
legt samanborið við þann, ef svo
má segja, andlegan þroska, er
lýsir sér í skipulögðum samfé-
lögum maura og annara skor-
dýrategunda, þar sem regla og
fórnfýsi virðist vera á hærra
stigi en þekkist í félagsskap
mannanna.
Áður en menn kunnu nokkuð
til pappírsgerðar var sú list leik-
in meðal geitunga. Þeir tyggja
viðartrefjar og blanda þær með
kirtlavötnum sínum, uns úr
þessu verður efni, sem líkist
grófum pappír. Með þessu fóðra
þeir holur sínar.
Ein tegund geitunga þekkir
deyfilyf, sem vísindamenn hafa
ekki enn getað gert eftir þeim.
Verpa kvendýrin eggjum slnum
í lirfur annara skordýra. En
áður en þau verpa eggjunum,
stinga þau á taug eina í lirfunum
og svæfa þær. Síðan spýta þau
eitri í lirfuna, svo hún helst ó-
rotnuð þangað til hin lirfan
skríður úr sínu eggi, og hefir þá
fæðu fyrsta sprettinn.
Köngulær hafa svo mikla
verkfræðilega þekkingu á því,
hvernig þær eiga að setja upp
vefi sína, að furðu sætir. Það
er engu líkara, en þær geti gert
nákvæma útreikninga á burðar-
afli og styrkleika, eins og bestu
FJÆR OG NÆR
Gefin saman í hjónaband á
prestsheimilinu í Árborg, af
sóknarpresti, þann 3. júlí, Krist-
inn Guðmundsson frá Langruth,
Man., og Hallfríður Sölvason frá
Árborg, Man. Framtíðarheimili
þeirra verður í grend við Lang-
ruth, Man., er Mr. Guðmundsson
bóndi þar.
* * *
fslendingadags prógröm
Eftirfylgjandi íslendingadags
prógröm óskast til kaups, fyrir
árin 1891, 1897, 1900, 1901, 1903,
1904, 1908, 1909, 1914.
Eintökin mega ekki vera rifin
eða mjög óhrein. Sendið þau
ekki en tilkynnið “Hkr.” hvaða
árganga þér hafið, og á hvaða
verði'. Verður yður þá svarað
strax um hæl.
Ennfremur er óskað eftir sög-
unni:
Fastus og Ermena, er gefin
var út á Gimli af Gísla M.
Thompson.
Ráðsmaður Hkr.
* * »
HILLINGALÖND
Fjórtán sögur eftir Guðr. H.
Finnsdóttur er nú nýkomin hing-
að vestur. Bókin er í stóru átta
blaða broti, á þriðja hundrað
blaðsíður, prentuð á góðan þykk-
an pappír. Frumdegin mynd
eftir íslenzkan listamann er á
framhlið kápunnar. Hún er
prentuð í Félagsprentsmiðjunni
í Reykjavík og hin vandaðasta
að öllum frágangi. útsöluna
annast Gísli Johnson, 906 Ban-
ning St., Winnipeg. Ennfrem-
ur tekur Magnús Peterson bók-
sali, 313 Horace St., Norwood,
á móti pöntunum.
Kostar póstfrítt $1.75.
>s>secccccccoðos<scosooccisoc<
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
SUMARIÐ ER KOMIÐ!
Allir sem þurfa að bjarga sér
ættu að eiga
REIÐHJÓL
Vér höfum haft sérstakan við-
búnað til að bæta úr þörfum yðar
í þá átt.
Ný og brúkuð reiðhjól á öllum
stærðum og prísum.
26 ára reynsla við aðgerðir.
Lítið inn eða skrifið til
SARGENT BICYCLE WORKS
675 Sargent Ave., Winnipeg
S. Matthew, eigandi
Fyrir hvern meðlim
fjölskyldunnar er
MODERM
bezt!
MJÖLK RJÓMI SMJÖR
“Þú getur þeytt rjóman okkar en, þú getur
ekki steytt mjólkina okkar!”
SÍMI 201 101
i
«