Heimskringla - 16.11.1938, Page 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. NÓV. 1938
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
fara fram í Sambandskirkj-
unni eins og vanalega kl. 11 f.h.
á ensku og kl. 7 e. h. á íslenzku.
Við morgunguðsþjónustuna, í
stað hinna vanalegu einsöngva,
verður spilað á fíólín af Miss
Madelain Gauvin, sem er með-
limur söngflokksins. Við kvöld-
guðsþjónustuna stýrir Mr. Pét-
ur Magnús söngstjóri. Prestur
safnaðarins prédikar við báðar
messur.
* * *
“YOUNG ICELANDERS”
A general meeting will be
Vatnabygðir sunnud. 20. nóv.
kr. 11 f. h.: Sunnudagaskóli í
Wynyard.
Messa í Leslie á þeim tíma, er
auglýstur verður innan sveitar.
Þessi messudagur er valinn sök-
um þess, að prestur varð veður-
teptur á sunnudaginn var.
Jakob Jónsson
* * *
Jón Reykjalín frá Gimli, Man.,
var staddur í bænum s. 1. mánu-
dag.
* * *
Jón Kernested skáld frá Win-
nipeg Beach, var staddur í bæn-
um í gær; hann var að finna
mentamáladeild fylkisins við-
víkjandi skólamálum nyrðra.
* * *
Sóra Sigurður Ólafsson frá
Árborg, Man., fékk skeyti um
það frá bróður sínum Erlendi
heiman af íslandi 8. nóv., að
bróðir þeirra Guðni hefði farist
á togara. Guðni var 45 ára gam-
all, ókvæntur.
* * * #
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til einnar voldlugustu söl-
unnar sem hér hefir þekst á
heimatilbúnum mat í sal Sam-
bandskirkjunnar' næstkomandi
föstudag. Þar eru matvæli til
sölu á hálfvirði borið saman við
gangverð á þeim annar staðar í
þessum bæ. Af þeim kjörkaup-
um til búsins ættu engir að
missa.
* * *
Hljómboðar, I. og II.
Nýkomið er heiman af fslandi
II. hefti af sönglögum Þórarins
Jónssonar. Bókin er af sömu
stærð o g blaðsíðufjölda og
fyrsta heftið. í þessu hefti eru
26 lög — sum að mun lengri en
í fyrra heftinu. öll eru lögin
frumleg og hljómþýð, og standa
framar flestu, sem nú er út gef-
ið á íslenzku af sama tæi. Bæði
heftin hafa hlotið einróma lof
heima á föðurlandinu.
Aðeins örfá eintök hafa borist
hingað vestur. Þeir sem keyptu
fyrra heftið, geta fengið það
síðara fyrir $1. En þeir, sem
vildu eignast bæði heftinu í einu,
fá þau fyrir $3.00 — alls 66 lög.
held at the J. B. Acadamy,
Thursday, Nov. 22nd, at 8 p.m.
An interesting programme has
been arranged. Come and bring
á friend.
THIS THURS. FRI. & SA'l'.
Ritz Brothers in
“KENTUCKY MOONSHINE”
Jane Withers in
“CHECKERS”
also Cartoon
Next Mon. Tues. & Wed.
» “DEAD END KIDS”
Guðm. dómari Grímsson og
frú frá Rugby, N. D., komu til
bæjarins fyrir helgina. Mr.
Grímson kom til að vera á fundi
stjórnarnefndar Þjóðræknisfé-
lagsins.
* * *
Próf. Richard Beck frá Grand
Forks, N. D. kom til bæjarins
fyrir helgina. Erindið var að
sækja fund stjórnamefndar
Þjóðræknisfélagsins er haldinn
var s. 1. föstudag.
* * *
Líndal Byron lézt 13. nóv. að
heimili sínu, 302 Balmoral St.,
Winnipeg. Hann var 86 ára
gamall, Húnvetningur að ætt.
Jarðarförin fer fram í dag.
Hjálparnefnd Sambandsafnaðar
Utsala á mat og Bridge-spil
Laugardaginn 12. þ. m. voru
þau Wilmar J. Olson og Vil-
helmína T. Ásmundsson, bæði
frá Vita, Man., gefin saman 1
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni að 493 Lipton St. —
Heimili þeirra verður að Vita.
* * *
Jóns Sigurðssonar félagið I.O.
D.E., hefir beðið “Heimskr.” að
minna fólk á, sem ekki hefir enn
eignast bókina “Minningarrit
íslenzkra hermanna”, sem félag-
ið gaf út fyrir mörgum árum
síðan, að enn gefist því kostur á
að eignast bókina, því fáein ein-
tök eru enn eftir óseld hjá for-
seta félagsins, Mrs. J. B. Skapta-
son, 378 Maryland St., Winni-
peg. Bókin kostaði upphaflega
$10.00 í góðu bandi, en er nú
færð niður í þriðjung þess
verðs, auk burðargjalds. Pant-
anir ætti að gera sem fyrst, því
ólíklega endist upplagið lengi úr
þessu. * * *
Hjálparnefnd Sambandssafnaðar hefir útsölu á
heimatilbúnum mat í samkomusal kirkj-
unnar, eins og getið var um í síðasta blaði,
FöSTUDAGINN, 18. Þ. M.
útsalan byrjar upp úr hádegi.
Þar veður allskonar íslenzkur matur á boðstólum svo
sem: kæfa, rúllupylsa, og bakningar af ýmsu tagi. \—
Samkoma þessi og útsala er haldin til arðs fyrir jóla-
glaðningarsjóð nefndarinnar og er því fólk alment beðið
að sýna þessari viðleitni þátttöku sína.
Að kveldinu verður kaffisala og bridge-spil fyrir
þá sem vilja.
Forstöðunefndin.
lilliiiiiilliliiiiiiiiiililliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilliiiiiiiiiiiiiiiiliilillllllllliillllllllllliil
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Bridge Drive
“Bridge” undir umsjón “The Saturday Night Club”
verður haldin í samkomusal Sambandskirkju,
LAUGARDAGSKVELDIÐ þann 10. DESEMBER
í stað þess að gefa verðlaun fyrir hæstu vinninga
Verða gefnir happa drættir, svo allir hafi jafnt tækifæri.
Fyrstu verðlaun er stór Turkey. Einnig fleiri verðmæt
verðlaun. Þetta er árleg skemtun hinna yngri ktenna
safnaðarins, og var húsfyllir síðasta ár, svo fólk er
ámint um að fá aðgöngumiða í nægan tíma.
R. F. Pétursson, verkfræðing-
ur frá Dryden, Ont., var stadd-
ur hér í bæ um síðustu helgi, í
viðskiftaerindum. Hann starfar
við brautagerð í mið-vesturhluta
fylkisins, og rekur það verk á
eigin reikning sem samnings-
vinnu fyrir stjórnina.
# * #
Þegar Jónas var
farinn heimleiðis:
Þú er kominn, þú hefir séð
Þú hefir heyrt og skilið
Þú er farinn, þú hefir léð
Þjóðlegt “tromp” í spilið.
J. J. N.
# * *
Archibald McNab, bóndi við
Piney, Man., var staddur í borg-
inni um síðustu helgi. Hann
sagði alt tíðindalaust úr bygð-
inni og atvinnulíf fremur dauft.
* * *
Kristján Friðfinnsson lézt 10.
nóv. að heimili sínu, 622 Agnes
St., Winnipeg. Hann var 40
ára að aldri og lætur eftir sig
konu og mörg börn. Hinn látni
var sonur Jóns heitins Frið-
finnssonar tónskálds og konu
hans. Jarðarförin fór fram s. 1.
mánudag frá Fyrstu lút. kirkju.
# * *
Sigríður Halldórsson, 225 Ca-
thedral Ave., Winnipeg, lézt 8.
nóv. á sjúkrahúsinu í St. Boni-
face. Hún var 19 ára. Jarðar-
förin fór fram s. 1. laugardag frá
útfararstofu A. S. Bardals.
* # #
Forstöðunefndin.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Vote 1 for
HONEYMAN
For MAYOR
REYNDUR—FÆR—og
SANNGJARN
“Stefnuskrá sem styðst við
reynsluna”
Bératök bæjarnefnd undir forystu
bæjarráðsmanns E. D. Honeymans
eamdi og lagði fram fyrir Rowell
nefndina, sóknarbréf bæjarins er
aélt fram þessum atriðum:
(1) Uækkun skatta á helmilum
og fasteignum;
(2) Umbótum á strætum bæjarins
og fl.;
(3) Afnám kauplækkunarinnar,
og að
(4) Styrkja fjárhagslega tiltrú
bæjarins.
Stefna þessi sem gerð er grein
fyrir í sóknarbréfum hefir verið
viðtekin á Englandi og verður að
vera innleidd hér, ef Winnipeg á
að komast áfram.
Kjósið HONEYMAN sem borg-
arstjóra tU þess að halda þessum
málum áfram.
Þér greiðið atkvæði 25. nóv.
Bridge Drive til arðs fyrir
sjúkrasjóð st. Helku nr. 33, I. O.
G. T. verður haldið í G. T. hús-
inu fimtudagskv. 1. des. n. k.
Nánar auglýst síðar.
* # *
Teppið sem dregið var um á
Sumarheimilis samkomunni,
hlaut Mrs. J. B. Skaptason. —
Númerið var 108. Mrs. Skapta-
son gaf Sumarheimilinu aftur
teppið.
* * *
Stórt og bjart framherbergi
til leigu án húsgagna að 591
Sherburn St. Sími 35 909.
* * #
Bækurnar eru til fróðleiks og
skemtunar. Góðar bækur eru
dýrmæt eign. Látið þær einn-
ig vera til prýðis í bókaskápnum
yðar, með því að senda þær í
band til Ðavíðs Bjömssonar á
“Heimskringlu”. Verkið vel af
hendi leyst.
Er það innan við 5 cent lagið —
sjálfsagt ódýrasta fyrsta útgáfa,
sem nokkursstaðar hefir verið
gefin út.
Söluna hafa með höndum:
E. P. Johnson, ritsjóri Lög-
bergs og Gísli Johnison, 906
Banning St., Winnipeg.
* * *
G. T. stúkan Skuld, sem hefir
fundi sína á hverju miðviku-
dagskvöldi, byrjaði þennan árs-
fjórðupg í síðustu viku, þá um-
boðsmaður stúkunnar Guðm. M.
Bjarnasonar, setti eftirfylgjandi
meðlimi í embætti:
FÆT—Mrs. Halldóra Bjarnason
ÆT—Mr. Jón Halldórsson
Rit—Mr. Gunnl. Jóhannson
AR—Mr. Walter Anderson
F.Rit.—Mr. Ásbj. Eggertson
Gj.—Mrs. Ámý Magnússon
Kap.—Miss Guðrún Eggertson
Dr.—Miss Soffía Goodman.
AD—Miss Sigurrós Anderson
V.—Mrs. Jóhanna Cooney
UV—Mr. Wm. Smith.
Organisti—Mrs. Sigríður Gunn-
laugsson.
Fundir byrja ávalt stundvís-
lega kl.. 8 e.h.
* * #
ÍSLENZKT ÚTVARP
1. DES. 1938
1. Inngangsorð: Séra Valdimar
J. Eylands.
2. Kórsöngur: Karlakór íslend-
inga í Winnipeg. Mr. Ragn-
ar H. Ragnar, söngstjóri,
Mr. Gunnar Erlendsson,
píanist, Mr. Hafsteinn Jón-
asson, sólóisti, Mr. Lárus
Melsted, sólóisti.
3. Ávarp: Dr. Rögnvaldur Pét-
ursson.
4. Ávarp: Dr. Brandur J. Brand-
son.
5. Einsöngur: Mrs. Sigríður 01-
son, Miss Snjólaug Sigurd-
son, accompanisti.
6. Kvæði: Mr. Einar P. Jónsson.
7. Ávarp: Mr. Grettir Leo Jó-
hannson.
8. Kórsöngur: Karlakór fslend-
inga í Winnipeg.
Eftirfarandi útvarpsstöðvar
munu flytja ofangreint prógram
1. des. frá kl. 17.00 til kl. 17.30,
Central Standard Time.
CJRM, Regina, Sask. 540 kilo-
cycles, Long Wave (kl. 4—
4.30 e. h.)
CJRC, Winnipeg, Man., 630 kilo-
cycles, long wave.
CJGX, Yorkton, Sask., 1390 kilo-
cycles, long wave, (kl. 4—
4.30 e. h.)
CJRO, Winnipeg, Man. 6150 kilo-
cycles, short wave.
CJRX, Winnipeg, Man., 11270
kilocycles, short wave.
Svohljóðandi skilgreining á
tízkahöttum kvenna hefir oss
borist í hendur:
“Ef kona hefir eitthvað á
höfðinu, sem þú veizt ekki hvað
er, þá er það hattur samkvæmt
nýjustu tízku.”
# # *
Erfiður viðskiftavinur: Er
verzlunarstjórinn viðlátinn? —
Kannske hann sé skynsamari en
þér.
Afgreiðslumaður: Það er hann
frú mín góð. Hann fór út, er
hann kom auga. á yður.
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Skrautleg og Spáný
ÍSLE N ZK
Jólakort
lOc °g 15c
Hið mikla upplag af ís-
lenzkum bókum, sem vér
buðum á niðursettu verði í
bóksöluskránni nr. 4, hafa
nú enn verið færðar niður
um 25%
Sendið eftir þessari nýju
bóksöluskrá.
THORGEIRSON CO.
674 Sargent Ave. Winnipeg
HITT OG ÞETTA
Skoti einn var staddur í New
York, þegar heimsstyrjöldin
skall á, en konan hans var heima
á Skotlandi.
— Ætlarðu ekki heim til kon-
unnar þinnar? spurði amerískur
vinur hans.
— Ertu vitlaus maður? hróp-
aði Skotinn. Ætti eg að fara að
hætta mér yfir Atlantshafið,
innan um alla þessa strádrepandi
kafbáta? Nei, áreiðanlega ekki.
Eg er búinn að senda konunni
peninga fyrir fargjaldinu hing-
að.
* * #
— Heyrðu, Jón, hvað varð af
páfagauknum, sem þú áttir?
— Þegar eg kvæntist, þá dó
hann úr sorg.
— Afbrýðissemi, trúi eg?
—> Ekki beint, en hann stóðst
ekki samkepnina.
# * *
MESSUR og FUNDIR
í kirkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SajnaOarnejndin: FunöJr 1. íöstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
mánudagskveld I hverjum
mánuði.
KvenjélagiO: Fundir annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldblu.
Söngæfingar: Islenzki sbng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÞJóÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir fslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
ÆTTATÖLUR
fyrir íslendinga semur
GUNNAR ÞORSTEINSSON
P. O. Box 608
Reykjavík, Iceland
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Anton van Dyck var uppi á 17.
öld. Hann var frægur málari,
einkum fyrir mannamyndir sín-
ar.
Einu sinni málaði hann mynd
Henriette Marie Englandsdrotn-
ingar. Sú mynd var ágæta vel
gerð, einkum vakti mikla at-
hygli, hve hendur drotningar-
innar voru óviðjafnanlega fagrar
á málverkinu. Drotningunni lík-
aði myndin hið bezta, og spurði
hún van Dyck, hversvegna hann
sýndi hendur sínar svo fagrar.
— Vegna þess, yðar hátign,
svaraði málarinn og laut drotn-
ingunni, að úr þessum höndum
vænti eg launanna.
Kenslustof a:
522 Furby Street
Phone 31476
0
VIÐ KVIÐSLITI?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stal og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Miljónamæringur í Calcutta
var fyrir skömmu síðan dæmdur
í eins árs fangelsi fyrir stuld á
rafstraumi, m. a. til kvikmynda-
húss, sem hann rak.
Fyrirlestrahöld
Guttorms J. Guttormssonar
Skáldið Guttormur J. Guttormsson dvaldi á íslandi í
sumar, sem gestur íslenzku þjóðarinnar. Hann hefir
Samið erindi um þessa ferð sína og dvöl, sem honum
varð einkar ánægjuleg. Lýsir hann því sem fyrir augu
bar á þessu ferðalagi, og hinum heillandi áhrifum er
hann varð fyrir af viðkynningu sinni við land og lýð.
Fyrirlestraferð þessa fer hann undir umsjón Þjóð-
ræknisfélagsins og verður á þeim stöðum sem hér segir:
WINNIPEG (Góðtemplarahúsið) mánud. 21 þ.m. kl. 8 e.h.
LUNDAR, miðvikudaginn 23. þ.m. kl. 2.30 e.h.
HAYLAND, föstudaginn 25. þ.m. kl. 2.30 e.h.
Guttormur er málsnjall maður og orðhagur. Komið
og hlystið á hann. — Inngangur hvarvetna 25c; fyrir
unglinga innan 14 ára, 15c.
Forstöðunefndin
í
Ný hagsýnisstefna fyrir Winnipeg
Greiðið fyrsta atkvæði með
TRAVERS
SWEATMAN
fyrir
B0RGARSTJÓRA
• Lækka skattana.
• Afnema kauplækkunina.
• Veita atvinnu í stað fátækra styrks.
með
NÝJAR HUGYMNDIR
KOMA NÝJIR MENN
Fáið nábúa yðar til að greiða atkvæði.
ittllilV*