Heimskringla - 04.10.1939, Page 5
WINNIPEG, 4. OKTÓBER 1930
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
iseinkenni, sem sagt er að einkenni marga
beztu menn af brezkum aðli. Hann var
einmitt þess konar maður sjálfur, göfug-
lyndur, nokkuð stórbrotinn, en um leið
fullur samúðar og vorkunnsemi með öllum
líðandi mönftum. Þannig hygg eg að hann
hafi komið fyrir sjónir flestum þeim, sem
höfðu nokkur náin kynni af honum.
Hér meðal vor verður ávalt bjart yfir
minningu hans. Fregnin um andlát hans
var oss öllum mikil sorgarfregn, og vér
hugsuðum til fjölskyldu hans og hans
nánustu ástvina, sem svo mikið höfðu
mist. En vér þökkum að hafa átt hann
fyrir vin og starfsbróður nokkur beztu
starfsárin af lífi hans.
Ræða Dr. M. B. Halldórsonar
fyrv. forseta Sambandssafn. í Winnipeg
Þegar vér minnumst séra Ragnars Kvar-
an höfum vér margt að syrgja:
Ræðuskörunginn og rithöfundinn með
svo oddhvöss orð og setningar að þau bitu
sig djúpt inn í minningar vorar og sitja
þar enn; söngmanninn með svo fögur hljóð
að vér þurfum enn ekki annað en loka aug-
unum til þess aftur að heyra rödd hans,
röddina sem hvað eftir annað söng sig inn
í hug og hjarta bráð ókunnugra manna og
kvenna; foringjann sem flestum mönnum
betur fór öll stjórn vel úr hendi; liðs-
manninn sem vér ætíð vissum hvar vér
mundum heima hitta og hvernig mundi
snúast við hverju máli sem var; lærdóms-
manninn með víða og breiða þekkingu;
vitmanninn sem oft sá lengra og dýpra en
við sem eldri vorum og gleðimanninn sem
ætíð var ánægja að í hverjum mannfagn-
aði. Alt þetta var að finna í einni per-
sónu séra Ragnars, og eg sem var forseti
safnaðar hans flest ef ekki öll árin er hann
var prestur hér í Winnipeg, hefi sérstaka
ástæðu til að syrgja þessa miklu og góðu
hæfileika.
Orðið heiðsær, sem þýðir bláeygur, kem-
ur aðeins einu sinni fyrií" í íslenzkum
ritum í hinni gullfögru vísu Jökuls Bárðar-
sonar sem hann kvað meðan honum var að
blæða til ólífis, og sem á sér engan jafn-
ingja í nokkrum bókmentum, var það haft
um ólaf konung helga. Mér finst það lýs-
ingarorð eiga afar vel við séra Ragnar
Kvaran. Aldrei sáust tvískinnungs ský
yfir enni hans. Yfir hans heiðbláu augum
var ætíð að íinna hina sömu heiðríkju
hreinskilninnar og trúmenskunnar sem
aldrei leitaði samninga né sló af á nokkurn
hátt, en hreint og hiklaust hélt fram rök-
um og rétti í hvaða máli sem var. Fleiri
slíka menn höfum vér haft og eigum enn,
en þeirra er rétt að minnast hvenær sem
er og hvar sem er.
Þegar vér kvöddum séra Ragnar í þess-
ari byggingu í síðasta sinn sagði eg í
ávarpi mínu til hans að gáfum hans og
gæfu sómdi aðeins eitt embætti á íslandi
— biskupsembættið. — Gáfum hans og
gæfu — gáfurnar tók hann með sér þegar
hann héðan fór, en gæfa hans var vernd-
arvættur þessa meginlands og þverneitaði
að fylgjá honum til íslands. Þverneitaði
svo gersamlega að hann átti ekki aftur-
kvæmt til Ameríku. Hún átti hér heima í
þeim bæ þar sem hann var fæddur, og
hvergi breiddi hún faðminn móti honum
sem einmitt [ þessum ræðustól þar sem eg
nú stend. Með öllum sínum miklu og
margvíslegu gáfum var hann þó framar
öllu öðru prédikari — kennimaður, til þess
fæddur og í heiminn borinn að flytja hið
guðdómlega erindi Krists, eins og hann
flutti það sjálfur, ekki eins og síðari alda
menn fluttu það eftir að þeir fóru að trúa
á hann en neita að trúa honum. Það er
af þessari oftrú á hann en vantrú á það
sem hann kendi, samfara afneitun á öllu
góðu og fögru, sem heimurinn sýpur af
þann dag í dag.
Og verksvið séra Ragnar var í Vestur-
heimi. Aðrir menn hafa komið og farið
og hefir mér ekki fundist mikið til um
það, þar hafa jafnan staðist á skaði og
ábati, en þegar hann fór, sá eg sama skað-
ann á báðar hendur, og svo hefir það
reynst.
Ekki er öll gæfa í því innifalin aldraður
að verða. Engar minningar geymir ver-
aldarsagan betur en sumra þeirra er ungir
önduðust. Þetta er jafnsatt frá elztu tíð
til vorra daga. Frá Alexander mikla og
Jesú frá Nazaret til Eggerts ólafssonar og
Jónasar Hallgrímssonar. “Konung skal
hafa til frægðar en ekki langlífis,” sagði
Magnús konungur berfætti. Sumir menn
eru þannig gerðir að þeim sýnist bein-
línis eðlilegt að andast tiltölulega ungir.
Einn þeirra var séra Ragnar Kvaran. Nú
þegar hann er allur tek eg eftir því að eg
gæti hreint ekki hugsað mér hann sem
aldraðan mann; og eg held þið gætuð það
ekki heldur. En áhrif mannsins hætta
ekki þó hann úr heiminum hverfi ef í hon-
um er nóg manntak, því er það að
aldursins gætir svo lítið þegar til lengdar
lætur. Höfundur kristninnar var aðeins
rúmlega þrítugur þegar hann andaðist, þó
halda áhrif hans áfram enn eftir nítján
aldir. ólafur helgi var ekki fertugur þeg-
ar hann féll á Stiklastöðum, þó hefir hann
verið talinn að nokkru leyti andlegur kon-
ungur Noregs í níu aldir og níu ár; þannig
mætti lengi telja. Og það er trú mín og
sannfæring að enn haldi þessi kirkja á-
fram að njóta áhrifa séra Ragnar Kvaran,
þó oss sé hann ekki lengur sýnilegur.
Annað sem kom fyrir er vér kvöddum
hann hér síðast, var það að söngflokkur-
inn að endingu söng lagið og sálminn:
“Góða nótt”. Lagið eftir Björgvin Guð-
mundsson. Ekki veit eg hver réði þessu
en svona var nú það. Á eftir sagði ein-
hver við okkur Pál Pálsson, þar sem við
stóðum saman: “Því syngið þið líksöngs-
lag yfir séra Ragnari, þið eruð þó ekki að
jarða hann.” Við Páll horfðum hver á
annan en sögðum ekkert. Vissum ekki
hvað við ættum að segja. Vissum ekki
það sem nú er fram komið að við höfðum
byrjað sorgarathöfn þá sem við erum nú
að Ijúka, að við höfðum boðið séra Ragnari
Kvaran góða nótt í síðasta sinni.
Ekki hefir þetta lag verið sungið hér
síðan og nú syngjum við það ekki. Nú
býð eg séra Ragnari góðan dag! — og —
hittumst heilir!
Ræða séra Philip M. Péturssonar,
prests Sambandssafnaðar í Winnipeg
Kæru vinir:
Sem eftirmaður séra Ragnars heitins
Kvarans, sem prestur þessa safnaðar er
það mér mjög ljúft að minnast hans við
þetta tækifæri með nokkrum orðum, og
að endurtaka í anda alt sem þegar hefir
verið mælt í minningu um hann.
Og er eg flyt þessi fáu orð, — og hugsa
til hans sem prest hér — get eg ekki annað
en fundið til þess, hve viðkynning mín við
hann var stutt, eða lítil. Því þó að eg
væri safnaðarmeðlimur hér þegar hann
tók að sér að þjóna söfnuðinum, og þó að
hann væri hér þjónandi prestur samfleytt
í sex ár, og aftur eitt ár nokkrum árum
seinna, þá starfaði eg í söfnuðinum ekki
nema aðeins þrjá vetur af þeim tíma,
vegna fjarveru, fyrst við skólakenslu og
seinna við skólanám suður í Chicago.
En á þeim stutta tíma sem eg átti því
að fagna að starfa undir leiðsögn og for-
stöðu hans, í söngflokknum, í leikmanna-
félaginu, í ungmennafélaginu, sem sunnu-
dagaskólakennari og um stutt skeið í leik-
félaginu, varð eg þess var að hæfileikar
hans voru þannig úr garði gerðir að verk-
svið hans varð að vera rúmgott og víð-
tækt til þess að þeir fengu að njóta sín
til fulls. En samt fengum vér að njóta
þeirra, að svo miklu leyti að vér urðum
þess vör, að hér væri um mikilmenni að
ræða, sem byggi yfir miklum andlegum
gáfum og hæfileikum, sem aðeins einstök-
um manni er gefið að ráða yfir.
Þess vegna hefir mér stundum fundist
að það vera til mikils ætlast að eg eða
aðrir prestar, hverjir sem þeir kunna að
vera, geti fetað í fótspor hans, sem var
svo vel hæfur til alls, sem hann tók sér
fyrir hendur að gera. Vér erum því eigi
vaxnir, og getum aðeins gert tilraun til að
fylgja honum í anda.
En það var aðeins vegna þess, að hann
bjó yfir svo miklum hæfileikum, að hans
er nú svo mikils saknað, og að oss finst að
viðkynningin hafi verið alt of stutt, að
samveran hér hafi orðið of fljótt á enda,
og að þau andlegu tengsli sem binda oss
við alla vini í þessum heimi hafi slitnað
of fljótt.
En þetta er saga lífsins, sem endur-
tekst sí og æ. Vér erum ætíð að mætast
og að kveðja. Vinir koma og vinir fara.
Eða eins og skáldið vort kvað: “Altaf er
einhver að kveðja, og annar sem verður
kyr.” Vér getum öll tekið undir með hon-
um í þessari hugsun, nú við þetta tæki-
færi og einnig í orðunum í sama kvæðinu,
sem lýsa nákvæmlega tilfinningu flestra
hér staddra, þar sem svo er kveðið:
“Tveir vinir voru hér áðan
í viðræðum glaðir á brá.
Nú annar-er horfinn á hafið,
en hinn—bíður ströndinni á.”
(P. S. P.)
En menn hafa oft hugsað sér dauðan,
eins og gefið er í skyn í þessu kvæði, sem
sjóferð. Og þessi hugmynd er svo rík í
hugum manna, að iðulega er talað um
dauðamóðuna eða dauðadjúpið, og faðir
séra Ragnars heitins, Einar H. Kvaran,
eitt af miklu skáldum vorum hefir notað
þessa sömu hugmynd eftir nýlátinn vin
sinn, og komist svo að orði:
“Nú ertu þá sigldur á ókunnan sæ
—Þú ægilegt djúpið þráðir æ.
En hér sit eg eftir hljóður.
Og grátskyld viðkvæmni grípur mig
um glaumlausa nótt, er eg hugsa’ um þig
sem breyskan, en hjartfólginn bróður.”
Og vér, sem kyntumst séra Ragnari að-
eins þau fáu ár sem hann dvaldi hér, og
þá ef til vill alt of lítið, því þau voru ekki
mörg árin sem hann var hér vestra, get-
um ekki annað en einnig hugsað oss sam-
veruna hér, ímynd kvæðis sem lýsir lífinu
sem hafi og mönnunum sem fljótandi með
straumi í hafinu. Þeir rótast til og frá,
sumir koma saman, og fylgjast um tíma
á lífsleiðinni en skiljast aftur og hittast
ef til vill aldrei framar. Viðkynningin er
stutt í lífsins straumi. Menn hittast og
menn kveðja. Samveran verður aldrei til
lengdar.
Og einu sinni enn hefir þetta sannast.
En þó að svo sé, þá eru minningarnar um
samveruna ætíð eftir, fagrar og fagnað-
arríkar minningar. Hversu úfinn sem
sjórinn kann að vera, og hversu miklar
hættur sem vér erum stödd í í hafi lífsins,
getur ekkert raskað þeim né svift oss
þeim. Og nú, er vér komum saman hér til
að minnast séra Ragnars E. Kvaran, sem
var þessi fáu ár hér meðal vor, og starfaði
með oss í svo mörgu, og sýndi svo mikinn
áhuga fyrir hinum sömu málum, sem
vér vinnum að, rísa minningarnar í huga
vorum hver á fætur annari, um dvöl hans
hér og starf á mörgum sviðum, og vér
finnum hversu mikið vér söknum hans,
og hversu mikil þörf er á öðrum eins
manni og honum, með hans gáfum og hans
hæfileikum til að vinna í þjónustu þeirra
mála sem vér fylgjum. Og þessi tilfinn-
ing getur ekki annað en hvatt oss til starfs
í þjónustu þeirra mála sem hann hafði
áhuga fyrir.
Hann var einlægur í trú sinni. Frelsis-
þráin var sterk. Hann aumkvaðist yfir
þeim sem bágt áttu, hann hataði fátækt
og eymd, eins og eg heyrði hann oftar en
einu sinni segja, og hann leitaði ætíð
sannleikans í öllum hlutum. Hann vildi
ætíð leita að meiri þekkingu og meiri
sannindum, og engu síður í trúmálum en
á öðrum sviðum lífsins. Og af öllum þeim
prestum sem komið hafa hingað frá fs-
landi, hefir enginn þeirra gert meira en
hann, til að efla og útbreiða réttan skiln-
ing meðal manna, hér vestra um þýðingu
skynsemisstefnunnar í trúmálum.
Hann leitaði sannleikans, og því mætti
segja um hann, eins og sagt hefir verið
um annan mann: “Hann leitaði og kafaði
og kom með perlur að landi.”
Hann hélt áfram alla æfina að vera
stúdent, að vera maður í sannleiksleit, í
anda frelsisins sem hann elskaði. Og nú
er hann kominn frá skólanum hérna, sem
var honum altaf háskóli, og inn í nýtt
musteri sannleiksleitarinnar, er bíður
allra þeirra, sem elskað hafa sannleikann
og hafa leitað hans.
“Ein er þar kirkja undra há,
sem öllum býður rúm
kærleiks að hlýða kenning á
komnum af ýmsum trúm;
frá hverri tíð og úr hverjum stað,
hver sem hann vera kann,
engum er þaðan útskúfað
elski hann sannleikann.”
Vér vitum öll sem þektu hann, hvort
sem það var langt eða skamt, að hann var
trúmaður mikill, kreddulaus í samræmi
við beztu nútíma trúarþekkingu, í sam-
ræmi við stefnuna sem gerir meira og
meira vart við sig í þjóðkirkju íslands, og
hann var einlægur, hann vildi vera sam-
kvæmur sjálfum sér. Hann unni kenn-
ingu kærleikans og elskaði sannleikann.
Þessvegna var hann guðstrúarmaður í
bezta og fegursta skilningi.
Hann er horfin úr þessu lífi. En þessar
minningar lifa allar hjá oss. Það er oss
nú, er vér minnumst hans, mikið fagn-
aðarefn^ að hafa haft þessa viðkynningu
við hann, og að hafa haft hann hér sem
prest í þessari kirkju. Það er mér per-
sónulega mikill heiður að vera eftirmaður
hans þó að eg viti að eg geti aldrei fetað í
fótspor hans, né jafnast á við hann að
nokkru leyti. Vér þökkum guði fyrir
góða og fagnaðarríka viðkynningu, og
lofum hann fyrir margar fagrar og hug-
næmar endurminningar, sem hrærast nú í
hugum vorum. Heimurinn hefir mist mik-
ils, en eilífðin er rík orðin við komu hans.
Sál hans var tímabundin hér í þessu lífi,
en nú hefir hún hlotið lausnina sem hún
þráði.
BRUNAR í CANADA
í Canada verður eldur einum
manni að bana og veldur eigna-
tjóni er nemur $100,000 á dag til
jafnaðar á ári.
Þetta mann- og eignatjón er
þeim mun viðurlitameira, sem
það er að mestu leyti, eða sem
næst 80%, skeytingarleysi einu
að kenna.
Til þess að vekja athygli á
þessu og reyna að koma mönn-
um í skilning um hvað af þess-
ari óvarkárni leiði, hefir stjórn
Canada skipað svo fyrir, að
helga eina viku því starfi, er
nefnd skuli “brunaverndarvika.”
Hefir hún á þessu ári verið lög-
skipuð frá 8. til 14. október,
eða öll næstkomandi vika.
Það fyrsta sem stjórnin vill
draga athygli að, er að öll eld-
færi, hitunarofnar, rör og reyk-
háfar séu í lagi, séu nógu traust
og örugg og næst því að eldfær-
unum sé haldið hreinum. Ösku
skal geyma í ílátum úr járni, svo
neistar úr henni geri ekki neinn
skaða.
Þessu eru allir húsráðendur
hvattir til að gefa fylsta gaum.
Og til þess að líta eftir hvernig
það sé gert, er gert ráð fyrir
að sem flest heimili verði heim-
sótt af eftirlitsmönnum frá
stjórninni. Að svara fyrir það,
sem ógert er látið, verður þá
hver og einn að gera. Húsaeig-
endur hafa mikið fyrir að svara,
ef eldvörn er ekki rækt, sem
skyldi.
Næst þessu er eldvörn fólgin ?
því, að bréfa — eða annað rusl
sé hvergi látið safnast fyrir í
húsinu. Að halda húsi hreinu
frá öllu þessháttar, er mikil
hjálp. Eldspítur eiga að vera á
þeim stað er börn ná ekki til
þeirra. Fyrir óvarkárni í því
efni, hefir mikið tjón hlotist. Á
árinu 1938, dóu 118 börn í Can-
ada af þessum völdum. Börnin
náðu í eldspítur og kveiktu í
fötum sínum og oft í húsinu
sjálfu. Eldspítur eru mesti
barnavoði. Að skilja börn ein
og eftirlitslaus eftir í húsum,
eins og margar húsfreyjur gera,
meðan þær skreppa í búð eða
eru á myndasýningu eða eru í
heimsóknum, er mjög áminning-
arvert.
En svo eru það sígarettu-
reykingarnar, sem lang var-
hugaverðastar eru af öllu. Þær
hafa mjög aukist síðari árin,
sem kunnugt er, meðal annars
fyrir það að kvenþjóðin tók
einnig upp þann sið, og tjónið
hefir að sama skapi vaxið. Brun-
ar af þeim völdum að sígarettur
hálfreyktar eru skildar eftir hér
og þar og að í stúfunum er ekki
drepið þegar sígarettan er út-
reykt, eru nú orðnir svo tíðir að
þeir orsaka meiri húsbruna en
nokkuð annað. Sem sýnishorn i
af þessu má geta þess, að á síð- j
ast liðnu ári, urðu 13,719 brunar!
af völdum þessa í Canada og!
eignatjónið sem af því hlaust,
nam 2V& miljón dollara. Skeyt-
ingarleysið um það hvað við
sígaréttur er gert, sem lifandi
er í, fer svo í vöxt, að fyrir svo
sem 10 árum voru brunar af því
hirðuleysi ekki yfir 3000 á ári.
Kæruleysið í þessu efni hefir
því vaxið um 430% og hér er
orðið um númer eitt óvin þjóð-
félagsins að ræða í þessu efni.
Haldi slíkt áfram og fari sí-
vaxandi, eins og það gerir nú,
kemur brátt að því, að strangari
skorður verður við þessu hirðu-
leysi að reisa.
Nokkur dæmi eru þess, að
brunar hafi enn hlotist af því,
að kveikt var upp í eldfærinu
með steinolíu eða jafnvel gas-
olíu. Afleiðingarnar oft af því
ættu flestum að vera orðnar svo
Ijósar, að ætla mætti að því væri
með öllu hætt.
Á straujárnum sínum skyldu
konur hafa gætur. Það hefir
orðið orsök nokkurra bruna, að
frá þeim var gengið heitum á
klæðinu á strauborðinu.
Með varkárni er hægt að
draga mikið úr þessu hryllilega
manntjóni og mikla eignatapi af
völdum bruna, ef ekki að taka
fyrir það að mestu eða öllu. Þar
sem illum vana er mest um
þetta að kenna, ætti það og að
vera hverjum skylt, að uppræta
hann.
ISLANDS-FRÉTTIR
Þrjú þýzk skip komin hingað
Hingað eru komin þrjú þýzk
skip, en þýzk skip leita nú óðum
hlutlausra hafna, þau sem ekki
hafa komist heim. Hið fyrsta,
sem kom, heitir Sardinien og er
8000 smálestir. Annað heitir
Erika Hendrik Fisher og er 4000
t. Á því eru 17 Hollendingar og
vilja þeir ekki vera lengur á
skipinu. Tveir þerira sem fyrst-
ir komust í land fengu leyfi til
þess að fara héðan í vikunni sem
leið á skipinu Susanne Mærsk til
Canada, en það skip er danskt.
Nutu þeir aðstoðar hollenska
ræðismannsins hér, herra Ar-
ents Classen. Hann hefir ekki
enn tekið við hinum Hollending-
unum.
Bæði skipin eru á leið frá
Hollandi til Canada. Þau eru
tóm og áttu að taka þar timbur-
farm.
Þá er hér lítil skemtisnekkja
þýzk, með 6 manna áhöfn, frá
Bremen.—Vísir, 5. sept.
* * *
Þrjú Eimskipafélagsskip
kvrsett
Þrjú af skipum Eimskipafélags-
ins hafa um stundarsakir verið
kyrsett erlendis vegna ófriðar-
ins og þeirrar hættu, sem skip-
um er búin á siglingaleiðum af
þessum sökum. Þessi skip eru
Brúarfoss, sem er í Kaupmanna-
höfn, Dettifoss, sem er í Grims-
by, og Selfoss, sem er í Leith.
Hin skipin þrjú eru hérlendis,'
Gullfoss og Goðafoss í Reykja-
vík og Lagarfoss í Fáskrúðs-
firði.—Tíminn, 5. sept.
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BlrgSlr: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
RMHERST
D.STIUUERS U.M.-.SD
-T-
This advertisement is not published or displayed by the Liquor
Control Board or by the Government of Manitoba.