Heimskringla - 01.11.1939, Blaðsíða 4
4. SíÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 1. NÓV. 1939
lícrmslmmila \
(Stofnuð 1S96)
KemuT út á hverjum míSvikudeffL
Elgendur:
THE VIKING PRESS LTD.
IS3 og 355 Sargent Avenue, Winnipet
Taltimia 36 537
Verð blaðslns er $3.00 trgangurlnn borglst
tyrirfram. Allar borganir sendlst:
THE VIKINa PRESS LTD.
3U vlðskifta bréí blaðlnu aðlútandi sendlrt: jj
Mcnager THE VIKINQ PRESS LTD.
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFÁN EINARSSON
Vtanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINOLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
“Heimskringla” is publisbed
and prlnted by
THE VIKINQ PRESS LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG, 1. NÓV. 1939
KOM HEILL!
Hverjir eru allir þessir “óttalega”
fallegu menn, sögðu sumir, er þeir sáu
Heimskringlu með stóru myndinni á fyrstu
síðu s 1. viku. Þó ekkert væri sérlega
einkennilegt við þá, eins og oft er þó með
hljómlistarmenn, sem nálega altaf eru
grettir í framan, ef ekki beint ljótir, með
úfið hár og pírandi, fuglsleg augu,
voru þessir fallegu menn í einkennisbún-
ingnum á myndinni úr þessum flokki
manna, hljómlistarmanna. Þeir eru “ís-
lenzki karlakórinn frá Dakota.” Það var
ekki von að menn grunaði það um svo
fríðan hóp, snyrtilegan í allan handa máta
og með vel strokið hár. En svo hefir verið
sagt, að Dakota íslendingar væru allra
manna ásjálegustir arfar hins bjarta
norræna kyns hér vestra, svo á þessu er
ekkert að furða, jafnvel þó söngmenn og
listamenn séu. En þess skal líka getið að
þeir búa í einu bezta og frjálsasta landi
undir sólunni, sem eflaust yá sinn þátt í
þessu, enda þótt þeir séu ekki einir Vestur-
ísleninga af gömlum og góðum íslenzkum
höfðingjum komnir.
En það sem mestu skiftir nú um þessa
landa syðra, er það, að þeirra er von til
Winnipeg 6. nóvember. Þeir hafa ákveðið
að syngja í Fyrstu lút. kirkju og láta til
sín heyra. Tekur Karlakór fslendinga í
Winnipeg á móti þeim fyrst og fremst, en
Winnipeg íslendingar yfirleitt bjóða þá
heila koma og bíða með eftirvæntingu eftir
að heyra þá syngja. Vakti fréttin af komu
Dakota-kórsins svo mikla eftirtekt hér og
þótti svo mikilsverð, að einstöku félög,
eins og t. d. stúkan Hekla, sem auglýst
hafði ‘tombólu’ hér sama kvöld, skaut sam-
stundis á skyndifundi til að fresta “tom-
bólu” sinni. Það sagði sig sjálft, að svo
góðir gestir sem hér um ræðir, hefðu alt
vald um skemtanir í félagslífi fslendinga
þennan eina dag og þeim væri helguð
stundin hér nyrðra, svo heimsóknin yrði
þeim sem ánægjulegust. Þannig eru Win-
nipeg-íslendingar stemdir í þessu efni og
er vonandi að gestunum verði ferðin sem
eftirminnilegust.
íslendingar hvar sem eru, ættu að meta
viðleitni Ianda þeirra í Dakota, að koma á
fót kór sem þessum. Við Winnipeg-landar
vitum hve sterkur þáttur Karlakórinn hér
er orðinn í félagslífi voru. Og það fer
ekki hjá'því að Dakota-kórinn verði því í
sínu umhverfi hin sama lyftistöng. Vegna
þess meðal annars hlakka Winnipeg ís-
lendingar til komu kórsins og viðkynn-
ingar hér nyrðra og bjóða hann einlæg-
lega velkominn.
Botnar þú nokkuð í þessu sálnaflakki,
sem þeir eru að tala um nú upp á síð-
kastið?
Eiginlega ekki. En líklega er það helzt
svo að skilja, að sálir flokkaranna geti
ekki felt sig við kyrsetuna í öðru lífi.
TVÖ ÞÝZK HERSKIP
ÚTI Á RÚMSJó
Brezki sjóherinn hefir ýmislegt á hönd-
um sér. Eitt erfiðasta verkefni hans
þessa stundina, er að leita uppi tvö þýzk
herskip, sem úti á rúmsjó eru. Heita
skipin Admiral Scheer og Deutschland.
Þau hafa verið einn mánuð út um höf,
skimandi eftir bráð. En brezka flotann
hafa þau getað forðast til þessa. Þau
hafa sökt þrem skipum alls, 2 brezkum og
1 norsku, hið fjórða tók annað þeirra
(Deutchland) nýlega. Það var bandaríska
skipið “City of Flint”.
Hvort þessara þýzku skipa hefir 6 byss-
ur 11 þumlunga hlaupvíðar. Hraði þeirra
er 26 mílur (knots) á klukkstund. Þau
geta gert sig út með eldsneyti til 20,000
mílna ferðar. Með byssum sínum geta
þessi skip skotið 15 mílur og draga því
miklu lengra en herskip þau, sem vöruskip-
um fylgja er um sjóinn sigla. En Bretar
eiga þrjú skip, sem við þessi þýzku geta
átt. Það eru herskipin Hood, Repulse og
Renown. Hood hefir 8 byssur með 15
þumlunga hlaupvídd og 32 mílna hraða;
hvort hinna skipanna hefir 6 byssur af
sömu stærð; hraði þeirra er 31 míla. En
það er að komast í námunda við þessi
þýzku skip og vita hvar þau eru áður en
þau verða þess vör, sem erfðileikunum
veldur. En að vísu aðstoða nú flugskipin
við það, sem ekki varð gripið til í síðasta
stríði til þessara hluta; eiga Frakkar tvö
herskip, með 13 þumlunga stórum byssum,
sem við þýzku ræingjaskipin geta átt, en
þau geta ekki haft eldsneyti með sér til
lengri ferðar en 7,500 mílna.
Það er talið víst, að eldsneyti sitt hafi
þýzku skipin nú alt notað, er þau lögðu
upp með, en að þau eigi í seli og nái í
forða einhvers staðar, helst í Suður-Ame-
ríku, svo þau geti haldið áfram spell-virki
sínu.
Þegar Deutchland náði bandaríska skip-
inu, City of Flint, lét það nokkra menn
sína taka þar við stjórn og sigla því til
Murmansk á norðanverðu Rússlandi. En
sjálft forðaði það sér burt, enginn veit
hvert.
Þessi þýzku herskip eru því mestu vá-
gestir á sjónum. En það getur samt dreg-
ist, að þeim verði náð.
Maður frá Wales og einn af hinum ó-
trauðu fylgismönnum Lloyd George var í
fyrri daga að hrósa foringja sínum, er
andstæðingur einn greip fram í: “Þetta
getur enginn nema guð, en við vitum það
þó, að Lloyd George er ekki guð.”
“Nei, getur verið,” sagði Wales-maður-
inn, “en hann er ungur enn!”
HLUTLEYSI RÚSSA YAFASAMT
Rússar hafa til þessa lýst sig hlut-
lausa í þessu stríði. Samningur þeirra
við Þjóðverja, vakti að vísu illan bifur í
fyrstu, en síðar litu flestir á hann sem
tækifæris giftingu. Nú ber þó ýmislegt
með sér að góðar ástir hafi tekist með
Stalin og Hitler. Síðast liðna viku bar
Stalin t. d. sakir á Breta fyrir innilokun
Þýzkalands. Kvað hann það brot á al-
þjóðalögum, að kalla allar vörur bann-
vörur. Og ef þeir tækju skip með vörum
til Rússlands, yrði Bretum fært það til
skuldar. Brezkir lögfræðingar litu í al-
þjóðalögin og svöruðu Rússum því, að þeir
hefðu ekki lesið þau til hlítar. Staiin
fjasaði og talsvert um hvaða tjón almenn-
ingi á Þýzkalandi væri með þessu unnið.
En á hitt mintist hann ekki, hvað almenn-
ingur í Póllandi líður fyrir aðgerðir Hitlers
þar, að ekki sé minst á þær 50 þúsundir
varnarlausra borgara, sem lífi týndu í
sprengj u-hernaði hans. Þá fann Stalin
Bandaríkjunum til saka, að þau sendu
bannvörur til Englands. En um kafbáta-
iðju Þjóðverja og eyðileggingu á skipum
hlutlausra þjóða, segir Stalin ekkert. Hún
kemur ekki í bága við alþjóðalög, fremur
en önnur svívirðing í frammi höfð af
Hitler við smærri nágranna þjóðir sínar!
Og kommúnista blöð í Englandi, birtu
áskoranir síðast liðna viku um, að aðhyil-
ast friðartilboð nazista. Það segir til
hvaðan vindurinn blæs.
Alt ber þetta með sér, að Rússar séu
ekki eins hlutlausir og þeir segjast vera.
Að náin viðskifti eigi sér stað milli Rússa
og Þjóðverja, efar nú enginn. Þjóðverjar
senda verkfræðinga hópum saman til Rúss-
lands til að koma iðnaði þar á rekspöl og
Rússar láta Þjóðverja hafa bæði vörur
og gull í staðinn.
Það eru sjáanlega sameiginleg áform
Rússa og Þjóðverja, að þröngva sem flest-
um hlutlausum þjóðum til að verzla við
Rússland eða Þýzkaland, ekki sízt þeim,
er við Bretland skifta. Það er nú talin
ástæðan fyrir því, að Rússar fóru eins að
í Eystrasaltlöndunum og raun varð á og
sem í engu er frábrugðið aðferðum
Hitlers í Austurríki og Tékkóslóvakíu. Og
Rússar hnekkja áreiðanlega viðskiftum
Breta við Norðurlönd, einkum Sviþjóð,
með aðstöðu sinni nú á Austursjónum.
Og þessa stundina er sagt að Stalin hafi
ekki augun af Bessarabíu, sem er hluti af
Rúmaníu, er Bretar og Frakkar hafa heitið
vernd. Stígi Stalin fet inn í Rúmaníu, er
hann kominn í stríð við vestlægu banda-
þjóðirnar, Frakka og Breta. Og þar mun
hann fremur fara af stað en að senda lið
á vesturvígstöðvarnar, ef ástin á Hitler og
athæfi hans er honum orðin ómótstæðileg
og hann hefir gleymt orðunum, sem Hitler
velur Rússum í bók sinni (Mein Kampf)
þar sem hann kallar þá úrhrök mannkyns-
ins og foringjana glæpamenn með blóðug-
ar hendur til axla!
En Hitler hefir verið þrálátur biðill.
Fyrir nokkru er stór nefnd rússneskra iðn-
aðar og viðskiftamanna heimsótti Þýzka-
land, var farið með þá aftur og fram um
alt landið. Þeim var sýnd hver verk-
smiðja, farið með þá í siglingatúr á her-
skipunum þýzku og Siegfried-hervamar-
virkin voru þeim sýnd. Eftir þessa yfir-
skoðun völdu Rússar svo verksmiðjurnar,
er þeir gáfu pantanir sínar. Og Hitler
vonar vissulega að af þessu leiði þá sam-
vinnu, að Þýzkaland finni ekki mikið til
þess, þó Bretar loki viðskiftum þeirra við
aðrar þjóðir. Hann þreytist aldrei á að
benda Stalin á að velferð þessara landa sé
svo sameiginleg, að fyrir því megi ekki
loka augum.
Hitier þykist með Rússum geta lokað
Breta inni, því með þeim sé hægt að
brjótast gegnum Dardanella-sundin til
Miðjarðarhafsins og ná fótfestu í Vestur-
Asíu. Suður-Evrópa falli þá og brátt að
fótum þeirra fóstbræðranna.
Þetta er nú draumur Hitlers. Að Stalin
hætti sér út á ísinn, er enn ekki hægt að
fullyrða neitt um. Verði Þýzkaland yfir-
unnið, sem engin efi er á að bíður þess,
hvað sem fóstbræðurnir taka til bragðs,
getur vörnin orðið erfiðari síðar meir
fyrir Rússlandi einu.
En til þess að lengja stríðið, er eina
vonin fyrir Hitler, að draga Rússa inn 1
það. Og í því skyni hefir hann nú nýlega
sent eina nefndina enn til Moskva. Fáist
Stalin ekki í stríð, verður eflaust farið
fram á, að hann hlutist ennþá til um frið.
Til hvers Stalin liggur góður hugur, er
því ekki að efa. Að hann hafi verið að
leika á Hitler með því að ræna Eystra-
saltslöndunum, eins og sumir ætla, er fá-
sinna mesta. Sá kaupskapur hefir allur
verið áætlaður. Það var ekki til einskis
að vinna, að fá hann til að leggjast á
sveifina með sér. Hitler hefir haldið sinni
eigin þjóð í skefjum fyrir það, að hann
náði vináttu Stalins og heldur henni enn
sem komið er. Með henni ætlaði Hitler
sér fyrst og fremst, að ná hagfeldum friði
fyrir sig. Hvort að hún reynist eins örugg
eftir að í það skjól er fokið, hlýtur bráð-
lega að koma í Ijós.
Nýir tímar:
Vertu blessaður, nú þarf eg að fara
heim, að búa til matinn.
Er konan þín veik?
Nei, en hún er orðin svöng.
KYNÞÁTTA-KENNINGIN
Eins og kunnugt er, hefir kynþátta-
kenningin svonefnda verið í miklu afhaldi
í Evrópu um æði langan tíma. Hún er ein
af meginstoðunum undir allri hugmynda-
smíð Nazistanna þýzku um ágæti og yfir-
burði hins svokallaða aríska kynþáttar og
ýmsum öfgum og algerlega ósönnuðum
hugmyndum um vissa kynþátta eiginleika,
sem hinir og aðrir svokallaðir fræðimenn
hafa haldið mjög á lofti og pólitískir lýð-
skrumarar hafa notað sér til framdráttar.
Kenning þessi byggist á þeirri skoðun,
að það séu til nokkurn vegin hreinir og
óblandaðir kynþættir meðal jarðarbúa. —
Einkum er það hinn svonefndi aríski kyn-
þáttur, sem á að vera hreinn og öllum
öðrum kynþáttum fremri að viti og mann-
kostum. Náttúrlega fylgir slíkri skoðun
sem bein ályktun, að hann eigi að drotna
yfir öðru mannfólki á jörðinni og fara með
hin æðstu völd, þar sem hann sé sérstökum
'hæfileikum gæddur, sem geri hann einkan-
lega hæfan til slíkra starfa.
Tveir nafnkunnir enskir vísindamenn,
Julian Huxley og A. C. Haddon hafa ritað
bók um þetta efni, sem heitir We Euro-
peans. Þeir sýna fram á með óhrekjandi
rökum, að öll þessi kynþátta-kenning sé í
alla staði óvísindaleg og ekkert annað en
heilaspuni ýmsra rithöfunda, sem hafi
haft mjög lítið vit á mannfræði og þjóða-
fræði.
Upphafsmenn kenningarinnar um hinn
aríska kynþátt má telja málfræðinginn
mikla Max Muller, sem var Þjóðverji en ól
mestan sinn aldur á Englandi. Skömmu
eftir miðja nítjándu öldina fór hann að
rita um arísk tungumál og arískan kyn-
flokk. Skoðun hans var í stuttu máli sú,
að hin svonefndu arísku tungumál, pers-
neska og sanskrit, með þeim málum, sem
frá henni eru komin, í Asíu, og flest
Evrópu tungumálin, væru öll komin frá
einu frummáli, sem hefði verið talað af
fólki, sem upprunalega hefði
búið í Mið-Asíu. Hann var ekki
sá fyrsti, sem notaði orðin “ar-
ískur” og “aríanar”, en hann
kom þeim fyrst verulega á gang
með ritum sínum. Orðin eru
lánuð úr sanskrit og er merking
þeirra í því máli: ágætur, heið-
arlegur. t
Skoðun Mullers hefir mjög
mikið verið dregin í efa, og það
hefir verið sýnt fram á, að hún
er að sumu leyti röng. Bæði er
það, að asíönsku málin af aríska
málaflokknum eru ekki eldri en
hin evrópisku, eins og hann héJt
fram, og, það sem er meira um
vert, engin sönnun er til fyrir
því, að það hafi nokkurn tíma
verið til nokkur mannflokkur,
hvorki í Asíu né nokkurs staðar
annars staðar, sem hafi haft
alveg sérstök og ákveðin ættar-
einkenni og hafi talað þetta ar-
íska frummál. Muller tók það
og sjálfur fram, þegar skoðun
hans varð fyrir mótspymu, að
með orðinu aríanar ætti hann
eingöngu við tungumál, en ekki
við nokkur kynflokka einkenni.
En aðrir rithöfundar tóku
upp skoðun Mullers og gerðu
mjög mikið úr henni. Þar á
meðal voru brezkir rithöfundar
efns og Thomas Carlyle, J. A.
Froude og fleiri. Tveir franskir
rithöfundar, Gobineau og La-
pouge, gerðu allra manna mest
til þess að útbreiða hana, og
ýmsir þýzkir rithöfundar tóku
feginsamlega við henni og not-
uðu hana til að ala á óvild til
Gyðinga.
f nánu sambandi við þessa
kenningu um aríanskan kynþátt
stendur hugmyndin um hinn
ar þjóðverjans Gustav Koss-
inna, sem þóttist hafa fundið
sannanir fyrir því með forn-
menja rannsóknum, að allar
framfarir í Evrópu áður en saga
þjóðanna var skráð hefðu verið
að þakka þessum nordisk-ger-
manska-aríanska þjóðabálki. —
Hann hélt fram að hið uppruna-
lega heimkynni hans hefði verið
kringum Eystrasaltið og við
Norðursjóinn. Álíka viturlegar
eru ályktanir annara þýzkra rit-
höfunda, sem hafa reynt að
telja sjálfum sér og öðrum trú
um, að Jesús frá Nazaret og
Dante ha|fli veriið germanskir
eða tevtónskir menn. Og jafn-
vel í Bandaríkjunum hefir þessi
þjóðfræðis speki haft áhrif á
innflytjenda lögin.
Um Gyðingana segir Huxley,
að þeir séu ekki fremur hreinn
og óblandaður þjóðflokkur held-
ur en Englendingar eða Þjóð-
verjar. Gyðingar voru blönduð
þjóð, þegar þeir fyrst komu
fram á sjónarsviðið á Gyðinga-
landi. Og um allar þær aldir,
sem þeir eru búnir að lifa víðs-
vegar um heiminn innan um
annað fólk, hafa þeir blandast
saman við þá, sem þeir hafa
dvalið með. Það, sem heldur
Gyðingum saman er ekki skyld-
leiki eða ættartengsl, heldur
trúarbrögð og félagslegur þjóð-
ararfur. Gyðingar í Afríku, í
Austur-Evrópu, á Spáni og í
Portúgal eru næsta ólíkir í út-
liti. Á Þýzkalandi hafa verið
til Gyðingar síðan á fyrstu öld-
unum eftir Kr., og það er lík-
legt, að það sé enginn núlifandi
Þjóðverji til, sem ekki eigi Gyð-
ing einhvers staðar meðal for-
feðra sinna. Alt tal um hreint
frumnorræna stofn (nordic .
race). Þessi kynstofn er alger- ^yn “* WoS-erfð.r er e.ntomnr
lega ímyndaður og enginn veit i 'nfun- . . enn el a. e 1
... .a ,neitt bloð íra íorfeðrum smum,
neitt um tilveru hans eða upp-1
runa. Það eina, sem menn vita
með nokkurri vissu um þennan
kynstofn er, að á Norðurlönd-
um, á Skotlandi og Norður-Eng-
landi, á Frakklandi og Þýzka-
landi og svo nokkuð víða annars
staðar er til hávaxið, ljóshært og
langhöfðað fólk, sem er í útliti
óll0<t hinu íágvaxnará, idölkk-
hærða og breiðhöfðaða fólki í
Suður-Evrópu, sem heyrir til
Miðjarðarhafs- og Alpa-kyn-
flokkunum, sem svo eru nefndir.
Víðast hvar er þetta fólk orðið
blandað saman við hinn suð-
rænni og dekkri kynstofn og
það er algerlega óvísindaleg
hugmynd, sem er komin frá Ari-
stótelesi, og hefir verið endur-
vakin með öðrum úreltum hug-
myndum, til þess að breiða út
nazistiska þjóðrækni.
Allar nútíma þjóðir eru bland-
aðar, það er enginn hreinn og ó-
mengaður kynflokkur til í heim-
inum, jafnvel japanítar, sem um
langan aldur voru eins afskekt-
ir og nokkur stór þjóð gat verið,
eru blönduð þjóð. Blöndunin er
góð og hefir víða haft þau áhrif,
að sýnilegar framfarir hafa orð-
ið af völdum hennar. En það
finst helzt hvergi óblandið nema'er að mestu leyti að hahha menn-
sums staðar á Norðurlöndum. Iingarlegum áhrifum og örfandi
Það að þessi týpa er svo dreifð, félaSsleSum hreyfingum, þar
og blönduð saman við hina ev- í sem tvelmur slær sam-
rópisku kynflokka bendi til þess!an’ eða >ar sem að útlendingar
að einhverntíma hafi verið mikil falía ser Lóifestii meðal annara
innrás þessa flokks til Vestur-1Þjóða- Sagan sýnir ótvíræðilega
Evrópu. En hvenær hún var|að. þess konar heiUavænleg á-
hrif hafa margoft átt sér stað.
Það, sem því myndar eina
þjóð er ekki sameiginlegur upp-
ið af sléttunum á Suður-Rúss- íruni allra meðlima hennar, ekki
landi. En hvað sem því líður þá,nein kynþáttar-hreinræktun —
er margt, sem bendir til þess að alt slikt er ímyndun — en það
hann sé ekki mjög gamall í ,sem myndar hana er menning,
Vestur-Evrópu, t. d. benda forn j1ÖS- trúarbrögð, hagsmunir,
hættir og siðir og ótal margt
fleira, sem gefur hverri þjóðar-
heild sín einkenni og meðvitund
um að hún sé stjórnarfarsleg og
menningarleg heild.
G. Á.
eða hvaðan flokkurinn koip veit
enginn, sumir fræðimenn hafa
getið þess til, að hann hafi kom
mannvirki eins og Stonehenge á
Englandi á suður-evrópiskan
uppruna.
Kenningin um þennan frum-
norræna kynstofn eða nordiska
mannflokk hefir verið notuð
þannig, að það hefir verið gert
ráð fyrir, að hann hafi risið upn | Bretland og Bandaríkin eru
hreinn og óblandaður einhvers j £éð lönd að búa í fyrir hvern
staðar í Norður-Evrópu endur ;mann sem fýsir að hafa ofan af
fyrir löngu, og að hann hafi
verið gæddur frábærum hæfi-
leikum, einkum að því er snertir
forustu og áræði til nýrra at-
hafna. Og hvar sem að svo
þessir hæfileikar finnast meðal
hinna blönduðu þjóða Evrópu
þar á það að vera að þakka
norræna hlutanum af þjóðinni.
Hvað mikil firra þetta er sézt
bezt af því að ýmsir mestu
menn á Englandi, Frakklandi og
Þýzkalandi hafa alls ekki til-
heyrt langhöfðunum, heldur ver-
ið af breiðhöfða kyninu.
Sem dæmi þess út í hvaða
öfgar talsmenn hinnar nordisk-
aríönsku kynþátta hugmyndar
hafa lent, má benda á kenning-
fyrir sér með vinnu, áhættuspili
eða prettum. Einstaklingurinn
er hvergi, ekki einu sinni í lönd-
um sem skipulagðara eða vís-
indalegra stjórnfyrirkomulag
hafa, frjálsari en þar.
James Birdie
Við ættum að reyna að hafa
ekki áhyggjur af nema einu í
einu. Sumir hafa áhyggjur af
þrennu samtímis: fortíðinni, nú-
tíðinni og framtíðinni.
Edward Everett Hale
Margir menn senda eftir lækni
þegar þá langar til, að einhver
taki þátt í mæðu þeirra.
C. Price.