Heimskringla - 03.01.1940, Blaðsíða 4

Heimskringla - 03.01.1940, Blaðsíða 4
4. SíÐA HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 3. JANÚAR 1940 UicimskriniUci f (StotnríO 1886) Kemur út á hverjum miBvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 oq 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimis 86 537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borglst g fyrirfram. Allar borganlr sendist: THE VIKING PRESS LTD. 011 vlSskifta bréf blaðlnu aðlútandl sendist: | K-nager THE VIKING PRESS LTD 853 Sargent Ave., Winnipeg RiUtjÓri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: ÉDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg "Helmskringla" ls pubilshed and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man Telephone: 86 537 WINNIPEG, 3. JANÚAR 1940 ÁRAMÓTA-HUGLEIÐING (Ræða flutt á aftansöng á gamlárskvöld 1939 í Sambandskirkju af séra Philip M. Péturssyni) í bæninni sem Jesúis kendi lærisveinum sínum, standa orðin: “Tilkomi ]>itt ríki”. Á tímamótum sem þeim er við nú stöndum á, ætlum vér enga bæn túlka betur hugs- anir vorar en þá, er í þeim orðum felst. Um leið og við kveðjum gamla árið heils- um við með von og fögnuði hinu nýja. Eins og nú horfir við, getur verið, að mörg- um af oss finnist von sú veik og á litlu bygð. En þrátt fyrir það stendur henni að baki djúp siðgæðisþrá. Og það bezta og fegursta sem mennina dreymir um, hlýtur einhverntíma að rætast. Það er sem við komu hvers nýs árs, eflist æ vonin og styrkist um þetta. Og koma nýs árs er ef til vill mikilsverðust fyrir þetta. Við komum saman á þessari stundu til þesis að biðjá þess, að friður og kærleiki einstaklinga og þjóða á meðal, og alt það sem háleitast er og fegurst, eflist á kom- andi ári, en að draumurinn illi endi, um það sem andstætt er þessu, svo sem hatur og ofsóknir, stríð, böl og fár. Þrátt fyrir hörmungarnar sem yfir heiminn var steypt á árinu sem er að líða, biðjurn við, einis örugg og nokkru sinni áður í trúnni á það að guði sé ekkert ómögulegt, bænar- innar nú við komu nýs árs sem við höfum ávalt beðið: “Tilkomi þitt ríki.” Liðna árið sem við erum að kveðja, hefir verið ár ömurleika og erfiðleika yfirleitt. Því hefir fylgt mikið böl og óhamingja. Það hefir margt átt sér stað, sem við hefð- um af öllu hjarba óskað að aldrei hefði komið fram. Þjóða á milli hefir margt gerst, sem er í beinni andstöðu við guðs- ríkishugsjónina eða þ'að sem við nefnum réttlæti, sanngirni, kærleika, góðvild og bræðralag. Og isek um þetta, er í víðtæk- um skilningi ekki ein þjóð annari fremur; við gætum þar ekki hvað vel sem við vild- um undanskilið vora engin þjóð, þjóð þessa lands. Oss mun flestum koma saman um það, að betra land getum við ekki hugsað oss að búa í, en Canada. En þrátt fyrir það verðum við að viðurkenna hitt, að ýmis- legt sé hér að, sem ekki þyrfti að vera og margs sé umbóta vant. Til dæmis er hér . ennþá um alvarlegt atvinnuleysi að ræða. Ennþá ríkir ójöfnuður mikill í mannfélag- inu. Ennþá á sér ranglætið hefðarsæti og frelsið þó mikið sé, er enn takmiarkað og ófullkomið eins og kærleikur vor, um- burðarlyndi, samúð réttlæti og bróðerni, í bezta og fegursta skilningi. Vér getum vel tekið undir með Matthíasi Jochums- syni, er í jólasálmi einum kveður svo að orði: Ennþá vantar ást og grið, Ennþá ró og sálarfrið: _ Enn isem fyrri, himinn hár, Hrópar til þín synd og fár, Ánauð, blindni, — ógn og blóð. — Ennþá hærri friðarljóð! Ennþá er mörgu ábótavant í heiminum — og það er vonin ein um bjartari og betri framtíð, sem gerir oSs mögulegt að líta með fögnuði fram á nýja árið og með bæn á vörum til guðs um það, að það sem hjarta vort þráir mest, rætist á komandi tíð, að guðsríki verði á jörðu. Vér kveðjum ávalt gamla árið glaðir í bragði og fögnum eins komu hins nýja — hinu ókomna! Við áraskifti, verðum við fyrir einkennilegum áhrifum. Við erum sem snert töfra sprota, og árið liðna blasir við huganum, í fjarlægð að vísu, en nógu nærri til þeisis, að geta vegið og metið það sem gerst hefir. Og við sjáum og skiljum að sumt af því hefir ekki það ævarandi gildi, sem við æsktum; En þá kemur nýja árið með von að minsta kosti um, að betur takist næst. Það fer varla hjá því, að ný- árshugsunin er í því fólgin. Það er sem þá byrji nýtt líf, hvað sem því liðna líður. Richard Byrd, aðmíráll og heimskauta- farinn nafnkunni, hefir ef til vill orðið fyrir svipuðum áhrifum, er hann dvaldi einn um nokkra vikna skeið í tjaldi sínu á ísbreiðum Suðurheimskautsins. Hann hafði með höndum ýmsar rannsóknir, en i tómstundum hans hvarflaði hugur hans að mörgu öðru, en einna mest þó, að mann- félagsmálum þjóðanna. Hann skoðaði alt úr f jarlægð, eða eins og hann sjálfur isagði, að nokkru leyti eins og maður sem á heima á öðrum hnetti. Hann var nú ekki lengur hluti af því mannfélagi eða neinu, sem þar var að gerast. Honum flanst að ekkert af því gæti nú náð til sín eða haft nokkur áhrif á sig. Er hann skrifaði um þau áhrif, sem hann varð fyrir iog þær hugsanir, sem komu honum í huga, sagðist hann hafa undrað sig mest á því, hve lítilfjörlegt og yfirborðislegt margt sýndist vera í lífinu, sem bæði einstaklingar og þjóðir gerðu mest veður úr, og hve honum fanst þjóð- irnar verða oft fyrir æsingaráhrifum í málum sínum og að þær stjórnuðust sjald- an af beinni skynsemi eða viti. Er hann hugsaði um þessa hluti, aleinn í tjaldi sínu um hávetur á ísnum í suður íshiafinu, margar mílur frá hinum leiðangursmönn- unum og enn fleiri mílur frá skipinu, sem þeir sigldu með suður, — er hann hugsaði um þessa hluti, ákvað hann með isjálfum sér, að gera sitt ítrasta, er heim væri komið aftur til að vinna að þeim málum, sem honum fundust mestu varða, og að gera það, sem hann gæti sem einstaklingur til að skapa betri heim. En það sem hon- um fanst vera mikilvægast allra mála, er hann hugsaði um þettla alt, á meðan að vetrar istormar geysuðu og nístandi kuldi og frost tóku alt á sitt vald, var friðarmál- ið þjóða á milli. Hann skrifaði greinar um þetta, og niðurstöður sínar. Og fyrir- stöðulaust gerði hann það, sem hann g&t, til að sannfæra aðra um það, sem hann var þegar sannfærður um sjálfur. En að lokum fanst honum að verk sitt bera engan eða lítinn árangur. Réðist hann því aftur í aðra rannsóknarferð isiuð- ur til íshafsins við, Suðurheimsskaut, er hann þar nú, og gerir rannsóknir, sem bera ef til vill meiri árangur en friðartil- raunir hans virðast hafa borið! Nú stöndum vér eins og segja mætti á þröskuldi nýs tímabils. Vér istöndum við áramót, — og er vér komum hér saman, um miðnætti, verðum vér ekki einnig að einhverju örlitlu leyti fyrir líkum áhrifum og Byrd aðmíráll sagðist hafa orðið fyrir? Læsa ekki einhver áhrif sig um huga vorn, og lyfta oss upp yfir alt hið tímanlega >og leiða oss fyrir sjónir alt, sem varanlegt er og eilífðareðlis ? Og er vér verðum fyrir þesisium áhrifum, getum vér ekki ákvarðað með sjálfum oss að leggja mesta rækt við það, sem varanlegt er, en að veita hinu 'aðeins það athygli eða þá eftirtekt sem það verðskuldar, en ekki meira! Það getur verið, að oss finnist eins og Byrd aðmírál, að það sem vér viljum að taki framförum komi alt of seint, — að vér sjáum lítinn eða engan árangur! Eða eins og einn maður hefir s'agt er rætt var um áþekka hluti: “Þetta á alt harla langt í land og er ekki fyrir höndum á nálægum tíma.” En svo getum vér svarað: “Já, það er sannleikur, fullkomnun mannkyns- ins á vissulega langt í land. Það er eðli hins góða, að spretta seint og fara hægt. Það sem alt af sprettur fljótast, er illgres- ið, eins og vér vitum. En fyrst mann- kynið á von á þvílíkum gæðum, þá ríður á nú þegar að beina öllu, sem bezt í áttina. Nú þegar ríður á að ástunda sann- leik og frelsi, réttlæti, kærleik og alt ann- að gott, einmitt af því að þessir hlutir færa mann óyggjandi áfram í rétta átt.” Og vér getum stigið inn í nýárið með þessa vissu. Hver maður leggur sinn skerf til byggingar guðsríkis til þess að það komi, þó að iseint gangi. Það nálgast með fullkomnun mannkynsins, og mann- kynið fullkomniast með nálgun þess. Þetta er vissan sem fylgir oss fram á nýárið. Árið sem liðið er, bar með sér marga blessun, en einnig marga dimma og kvíðafulla daga, og vér sjáum lítið eftir því, og stefnum því nú fram, með von um bjartari framtíð og blessunarríkara ár. Guð gefi, að vér getum eitthvað unnið þar að, á því ári sem í hönd fer. Byrjum það, með því að segja af öllum hug og hjarta: “Til vor komi þitt ríki.” Að sönnu er eitt ár ekki nema dropi í hafi tímans, en margir dropar hola steininn. ' Eins verður þetta ár eitt af þeim mörgu, sem miða til að leiða guðsríki fram. Biðjum þá hinn lalvalda föður, að það verði oss og öllu mannkyninu farsælt og gott ár. Biðj- um einnig, að það bæti úr líkamlegum þörfum vorum. Biðjum um gott ár fyrir hvern einstakling sem þjóðir. Biðjum um framfarir og frið innan landis1 og utan. Himneski faðir, heyr bæn vora, og vertu oss náðugur. SÍÐASTA BóK BERTRAND RUSSELS Bertrand Russell er einn af nafnkend- ustu og bezt þektu brezkum rithöfundum, þeirra er rita um heimspeki og félags- fræði. Hann hefir ritað margar bækur, sem eru lesnar af mjög mörgum, og fjalla þær um ýms efni _alt frá stærðfræði og metafýsiskum hugleiðingum til uppéldis- mála. Síðastliðið ár (1938) kom út bók eftir hann, sem heitir “Vald” (Power, A New Soc. Anal.). f henni gerir hann grein fyrir skoðunum sínum á hinum meiri hátt- ar hreyfingum í félagslífi mannanna og orsökum þeirra. Bókin er hin fróðlegasta og full af frumlegum og skarplegum at- hugunum á helztu félagslegum staðreynd- um, og viðhorfið er alt annað'en hið venju- lega. Auk þess er hún prýðilega rituð, eins og alt annað, sem frá hans hendi kemur, og skemtileg aflestrar. Eftirfar- andi ritgerð drepur aðeins á það helzta, sem hann hefir að isegja í bók þessari. Féliagsfræðingarnir og hagfræðingarnir hafa of mikið haldið fram hinni hags- munalegu útskýringu á hinum stærri og þýðingarmeiri hreyfingum í þjóðfélögun- um og mannfélagsheildinni. Fylgjendur Jeremy Benthams og Karls Marxs hafa reynt að útskýra þær á þann hátt, að það sem einkum lægi til grundvallar fyrir þeim væri löngun mannanna til þess að hafa nóg til að bíta og brenna, þ. e. a. s., löngunin til að ná yfirráðum yfir auðæfum og auðs- uppsprettum jarðarinnar. Þeasi skoðun er einhliða og ónóg. Þráin eftir valdi —- yfirráðum yfir öðrum mönnum og dauðum hlutum, til þess að hafa vald yfir þeim, er sterkasta aflið í framvindu hinna féliags- legu staðreynda, og hún birtist í ótal myndum. Eitt af því mikilsverðasta, sem aðskilur menn og dýr, er það, að dýrin eru ánægð, þegar þeirra líkamlegu þarfir eru upp- fyltiar. Kyrkislangan er ánægð, þegar hún hefir gleypt bráð sína, og liggur og sefur þangað til hungrið rekur hana af stað aft- ur til að leita að nýrri bráð. Maðurinn er ekki ánægður þó að líkamlegar þarfir hans séu uppfyltar. Xerxes hafði nógan mat og nóg klæði og nógar konur áður en hann fór í hernaðarleiðangurinn á móti Aþenumönnum, og Newton leið vel áður en hann fann þyngdarlögmálið. Þrár manns- ins eiga sér engin takmörk, og eitt af því, sem hann þráir mest, er vald og orðstír. Að vísu eru flestir þannig settir í mann- félaginu, að þeir hafa ekki tíma til þess að leita eftir valdi og orðstír, en allir, sem geta, gera það; aðeins þeir lötustu gera sig ánægða með aJð vera án þess og reyna ekki að ná í neitt vald. Þeir framtaks- sömu, sigurvegararnir, stjórnendurnir og frægir menn af öllu tæi leita stöðugt valdsins og eru ekki ánægðir nema þeir Óðlist það. Valdaþráin er ekki aðeins einkenni leið- toganna, hún birtist líka hjá fylgjendum þeirr.a Jafnvel í trúarbragðahreyfingum, þar sem hógværð og lítillæti voru aðal dygðirnar, var takmarkið að sigra og eign- ast vald. “Sælir eru hógværir, því að þeir munu landið erfa”. Áhrifamestu leiðtog- arnir hafa komið fram á byltingatímum, þegar flestir hafa fundið til þess, að þá vantaði leiðtoga, til þess að brjóta niður eitthvert vald og eignast vald sjálfír, t. d. Cromwell, Napoleon og Lenin. Aðeins í fáum tilfellum verður mönnum haldið samian án leiðtoga; félagsskapur Kvekara og ættar-samheldnin í Kína eru dæmi þess. Leiðtogar og fylgjendur eru nauðsynlegir í öllum félagsskap og fyrirtækjum. Örugg- asta ráðið til að gera menn að hlýðnum og auðsveipum fylgjendum er að halda þeim hræddum við einhverja hættu, verulega eða ímyndaða. Þegar stríðshætta er í vændum, fylgja allir flokkar stjórninni, hversu mikið sem þeir eru á móti henni endranær. En fylgjendurnir búast ávalt við, að eitthvað af því valdi, sem leiðtog- arnir öðlast, nái til sín. Sumir vilja ekki vera leiðtogar, af því að þeira finna van- mátt hjá sér til að leiða aðra, og enn aðrir eru þannig gerðir, að þeir eru hvorki hæfir flestir siðbótarfrömuðirnir héldu franj algerðri undirgefni þegn- ■anna við þjóðhöfðingjana. Nú- tímaríkjunum stafar mest hætta af innbyrðis sundrung og upp- reisnum að afloknum stríðum, það er að segja þeim, sem ósigur I til að vera leiðtogar né fylgjend- | ur. Það eru þeir sem draga sig út úr mannfélaginu og verða einsetumenn eða munkar eða sérvitringar, sem ekki geta kom- ist af við aðra menn. Það er hægt að ná valdi yfir öðrum bæði með beinum áhrif- bíða. Það isem stendur allri um, einjs og þegar leiðtoginn samvinnu meðal hinna stærri beitir mælsku til þess að sann- ríkja nútímans fyrir þrifum, er færa aðra um að hans stefna sé hin sterka þjóðernismeðvitund, rétt, og með tækjum, sem gera sem ávalt hefir verið einkenni honum mögulegt að hafa líf ann- hinna tevtónsku þjóða og hefir ara í hendi sér, eins og þegar eflst afarmikið hin síðustu ár hann hefir her til taks til að vegna samkepninnar milli þess- skjóta niður andstæðinga sína. ara ríkja á hagsmunasviðinu og Það eru til margar tegundir ’um yfirráðin í heiminum. Ein- valds og það má sundurliða það hverskonar heimsríki eða yfir- á margan hátt. Það má t. d. tala ríki væri ómögulegt, ef að eitt- um erft vald og fengið vald kvert ríkjanna isigraði öll hin, (traditional power and acquired 1 eða ef allar þjóðir væru fáan- power). Erft vald hefir ávalt legar til að aðhyllast einhverja istuðning einhverra hugmynda pólitíska trúarjátningu, sem og skoðana, ,sem lengi hafa verið væri æðri en allar þær póli- til og hafa verið viðteknar af > tísku trúarjátningar, sem nú eru mörgum, en fengið vald verður, til. f þeim nútímaríkjum, sem að réttlæta sig sjálft. Fengið vald verður oft að of- beldi (naked power). Slíkt vald hefir ávalt verið mjög þýðingar- mikið í heiminum. Vald sigur- vegara eins og Alexanders mikla, Júlíusar Cæsars og Gen- gis Kahn var slíkt vald. Vald kaþólsku kirkjunnar yfir villu- trúarmönnum miðaldanna • var ofbeldis-vald, en vald hennar yfir kaþólsku fólki, sem fylgir henni af frjálsum vilja, er erft vald. Tvær tegundir hins erfða lent hiafa undir yfirráð diktatora eru hinar pólitísku játningar eiginlega annars eðlis en í hin- um. Ráðandi flokkarnir þar líkjast, mest leynifélögum, þar sem undirgefni og hlýðni við flokksstjórnina eru ekki aðeins æðstu dygðir, heldur líka óhjá- kvæmilegt skilyrði fyrir því að geta haldið lífi og limum. Þar hafa istjórnirnar stöðug afskifti af öllu því sem þegnarnir gera og neyða þá til að viðtaka hinar fyrirskipuðu skoðanir. Þetta er Ijósasta dæmið um ofbeldisvald- ið í stjórnmálum. Og það getur valds eru einkum eftirtektar-1 0rðið að hefð og þá um leið að verðar: konungsvaldið og presta- erfðavaldi. valdið komst á sitt hæsta stig í Samfélag nokkurn vegin sið- fornríkjunum eins og Babylón þar sem ekkert og Egyptalandi. f Asíu hefir,^.^ yald> engin stjorn, ekkert annað vald orðið mjög yær. tn er óhugsandi. Einhvers oflugt nema vegna utanaðkom- j komir ’stjórn mundi myndast andi áhrifa, að undanteknu með tímanum. Ástandið í Cali- Kína, þar sem kenningrar Kon-1 ^ að gullið famt l>ar fu-tse hofðu m,iog mikil og var- f Evrópu aftur á anleg áhrif. móti meðal tevtónskra þjóða hefir konungsvaldið aldrei náð sömu hefð og í Asíu. Presta- valdið var í byrjun imjög óákveð- j' um miðja nítjándu öldina, var > stjórnleysisástand ,og þegar lagaleysið gekk svo úr hófi að jenginn var óhultur um líf sitt eða eignir, risu upp sjálfkjörn- eftirlitsmenn (vigilantes)> , ir ið og bygðist á þeirri trú, að j .,, * . * , á prestarnir etœðu í beinu sam- se"' toku a? 5" aS, kTa “ bandi við yfirnáttúrleg öfl, en 1 teglu I lama nkjum fyr a tvm , * . * r 4..., 1 um, ems og a Gnkklandi og a þegar prestarmr urðu serstok „ ’ , . ,..e* stétt í þjóðfélaginu, óx vald;ltahu ajniðoldunum, var hof - þeirra afar mikið. Prestavaldið j mgJ.a^ JonV ° ^arC. y S€„ náði hámarki sínu í kaþólsku1 venjulega feH fynr emveldi ein- kirkjunni á dögum Gregoríusar hvers sigurvegara sem solsaði páfa sjöunda. f trúarbrögðum, i vfldlð undlr S1*' 1 auuðvaldl nU' sem hafa átt uppruna sinn í tlmans (Pl»tocracy) hofum ver kenniriguim og starfi einstakra að nokkru sama fynrbrigJ' mannia, eins og í kristindómin- lð> að bvl undanskildu, að au um, Búddha-trúnni* og Múham-1 valdið stjórnar ekki beinlíms, eðstrúnni, var valdið fynst upp- heldur stjórnar það stjórnunum. reisnarvald, en snérist upp í erft j Bæði einveldið og höfðingja- vald, þegar þessi trúarbrögð stjórnin hafa nokkra koisti; en urðu útbreidd og mynduðu vold- stærsta veila alls slíks fyrir- ugar félagsstofnanir. j komulags liggur í því, að stjórn- Hagsmunavald eða auðviald irnar verða fyr eða síðar skeyt- nútímans er afar-sterkt í lönd- ingarlausar um hag þegnanna og um, þar serh iðnaður er á háu óskir þeirra; en það leiðir aftur stigi, eins og t. d. á Bretlandi, til uppreisna, eins og á Frakk- Þýzkalandi og í Bandaríkjunum. landi fyrir stjórnarbyltinguna. Áður fyr var þetta vald nær ein- j Lýðræðið hefir ýmsa mikla göngu bundið við landeignir, en : kosti, þó að á því séu líka miklir nú er það að mestu leyti bundið j gallar. Það er þáð eina stjóm- við framleiðslu í verksmiðjum og yfirráð yfir ýmisium mjög þýðingarmiklum auðsuppsprett- um. Þetta vald er nú að me?tu leyti orðið erfðavald. Alt erfða- vald verður að hafa samþykki þeirra, sem undir því eru, ann- aðhvort þannig að þeir séu sátt- ir með það, eða vegna þess að þeir beygi sig undir það af vana. Án samþykkis þeirra verður það að ofbeldis-valdi. Starf vísindanna í þágu valds- ins hefir verið afarmikið. Nú- tíma-ríkin eru óhultari fyrir innbyrðis isundrung heldur en lin voldugustu ríki voru fyr á tímum, mest vegna þess að vís- indin hafa gert allar samgöngur svo margfalt hraðari og auð- veldari en þær voru áður. Stjórn- ir eiga hægt með að fylgjast með öllu sem gerist jafnvel í neim hlutum ríkjanna, sem eru fjærst stjórnarstöðvunum. Hin miklu þjóðlönd Evrópu efldust stórkoistlega eftir siðbótina að kví er snertir hið verulega vald ríkisstjórnanna, vegna þess að arfyrirkomulag, sem enn hefir verið reynt, sem hefir dugað til þess að vernda hag þegnanna- Lýðræðið felur í sér möguleika fyrir þegnana að hafa áhrif á stjórnarfarið, þó að þátttaka hvensi einstaklings sé smá, og til þess að koma óskum sínum frari1 við þá, sem með völdin fara- Lýðræðið getur líka venjuleí?a komið í veg fyrir borgarastríði vegna þess að stjórninni & kunnugt um vilja meirihluta þegnanna, og er venjulega ekk1 bundin svo fast við nokkra sér- staka stefnu, að hún ekki geti breytt til og tekið nægilegt tillit til vilja allra flokka í landinri- Erfiðleikar lýðveldisins einkuri1 í hinum stærri ríkjum, liggur i hinum margbreyttu og flókriu hagsmunum þegnanna og rekstrum milli þeirra. Höfuð' óvinir lýðveldisins eru auðval^ og stríð. Þar sem það hefi1, verið við lýði um nokkuð langari tíma og menn eru orðnir þ^1 vanir, stafar lýðveldinu lít’1 hætta frá innbyrðis sundrun#'

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.