Heimskringla - 24.01.1940, Síða 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 24. JANÚAR 1940
Heimakrittgla
(StofnuB 1SS«)
Kemur út á hverjum miBvikudegt.
Eigendur:
THE VIKING PRE8S LTD.
153 og 555 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsimie 86 537
VerS blaSslns er $3.00 árgangurlnn borglst
tyrirfram. Allar borganlr sendist:
THE VIKING PRES8 LTD.
OU yiSsklfba bréf blaSlnu aðlútandl sendlst:
Kmager THE VIKINO PRESS LTD.
S53 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEPÁN einarsson
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINOLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
“Helmskringla" is published
and printed by
THE VIKIVG PRESS LTD.
S53-S5S Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 537
ÍUBUUUUUiillllllllHUilHlllllllilllUJlll
WINNIPEG, 24. JANÚAR 1940
SENATOR BORAH DÁINN
Með Senator William E. Borah frá Idaho,
er dó s. 1. viku (16. jan.), er til moldar
hnigið eitt þeirra mikilmenna, er við sögu
Bandaríkjanna hafa í hinum stærri atrið-
um mjög komið á síðari árum.
Um starf hans hefir allmikið verið
ritað í hérlend blöð. Á sama tíma og lofs-
orði er lokið á hæfileika hans, hefir að ein-
angrunar-stefnu hans sitt hvað verið fund-
ið. Þyki ofmikið að því gert, ber þess að
gæta, að afstaða Canada getur þar verið
önnur sem stendur, en manna yfirleitt í
Bandaríkjunum. Grein sú er hér fer á
eftir í lauslegri þýðingu úr blaðinu Winni-
peg Free Press, kastar nokkru ljósi á
þetta, sem og starf Senator Borah í heild
sinni:
“Það hefir óefað haft nokkur áhrif á
rás viðburðanna í heiminum eða að því er
segja mætti á veraldarsöguna, að Banda-
ríkin feldu Versalasamninginn, sem Wil-
son forseti hafði staðfest með undirskrift
sinni. Og ef til vill á Þjóðabandalagið nú
ógæfu sína að talsvert miklu leyti þang-
að að rekja. En einn af ákveðnustu and-
stæðingum samningsins, var óefað Sena-
tor Borah. Frá þeim tíma er mál þetta
var á döfinni og til hins síðasta, var hann
áhrifamestur og ákveðnastur talsmaður
einangrunarstefnu Bandaríkjanna. Hann
var 33 ár þingmaður öldunga deildarinnar
í Washington. Áhrif hans á þjóðlífið er
enginn efi á að voru geysi mikil. Mælska
hans og sannfæringarkrafturinn, sem orð-
um hans fylgdi, voru mikil og ef til vill
óviðjafnanleg, enda var maðurinn heill en
ekki hálfur í allri framkomu sinni, bæði í
prívat lífi og pólitík. Að hann hafi verið
virtur og mikilsmetinn jafnt af andstæð-
ingum sínum sem fylkismönnum, bera
ummælin mörgu við lát hans frá Wash-
ington fylsta vott um.
Það má deila um kosti og ókosti ein-
angrunarstefnunnar. Það má deila um
það, hvort framkvæmdir Þjóðabandalags-
ins hefðu ekki orðið aðrar og affarasælli,
ef Bandaríkin hefðu heyrt því til og starf-
að með því. Og það er mikið vafamál,
hvort að hin bandaríska þjóð á ekki á kom-
andi árum, eða jafnvel á yfirstandandi ári
fyrir höndum að íhuga utanríkisstefnu
sína að nýju. óréttlætið sem í frammi
hefir verið haft í Póllandi, á Finnlandi,
og sem ómögulegt er að segja hvað marg-
ar hlutlausar þjóðir eiga eftir að kenna á,
snertir tilfinningar manna um allan heim,
vestan hafs eigi síður en þó nær hörm-
ungavettvanginum séu.
En að því máli sleptu, er það víst, að
einangrunarstefna Bandaríkjanna, á með
láti Senator Borah á bak að sjá eins öflug-
asta talsmanns isíns. Um það verður ekki
deilt. Og að það kunni að hafa breytingar
í för með sér á utanríkismálstefnu Banda-
ríkjanna í náinni framtíð, er ekki neitt
fyrir að taka.
Senator Borah átti ekki minstan þátt
í því, hvernig um Versala-samningana fór
1919 í þinginu. Þegar atkvæðið var greitt
um þá þar, voru 55 með þeim, en 39 á móti.
En til þess að staðfesta þá, eða lögleiða,
þurfti tvo þriðju allra atkvæða. Um þetta
mikilvæga atriði munaði því minstu þá
hvernig færi.
Aðal-ágreiningsatriðið í þinginu, var X.
grein samningsins, en hún laut að því, að
ef ráðist yrði á einhverja af Bandalags-
þjóðunum, yrðu hinar að koma henni-til
aðstoðar. Andmælendur samningsins vildu
ekki heyra Bandaríkin bundin þessari
skyldu. Og Senator Borah dró ekkert af
því, að hann fýsti hvorki að berjast til að
halda við friði né ófriði.
En fram á margar breytingar var farið
á samningunum í þinginu, sem hér verða
ekki nefndar. Árangur af þeim umræðum,
hefir að líkindum verið samningur sá, er
kendur er við Kellogg, ríkisritara, er flest-
ar þjóðir undirskrifuðu, en sem eigi að
síður var rofinn er á reyndi. Þar var að-
eins farið fram á að jafna allar sakir án
vopna. Canada var mjög með þeirri
stefnu. En hversu ónóg sú stefna gafst,
hefir nú fyrir löngu sýnt sig.
Það eina sem tryggja virðist friðinn, er
að hart mæti hörðu, að árásarþjóðunum
verði ekki í skefjum haldið nema með því
að friðarþjóðirnar myndi öflug samtök á
móti þeim. Og í þá átt stefnir nú í Ev-
rópu. Standa Bandaríkin til eilífðar utan
við það, eða yfirgefa þau að lokum ein-
angrunarstef nuna ?
Borah naut mikillar virðingar fyrir
framkomu sína, fyrir hugrekki sitt, frjáls-
lyndi O'g sjálfstæði. Hann gekk djarflega
að hverju verki, er hann var sannfærður
um að til heilla horfði. Hann ruddi marg
ri framfaralöggjöfinni braut. Hann gekk
ótrauður á hólm við auðvaldssamtök og
iðnaðar-kónga, ef hann sá að hann gat
unnið alþýðu hag með því eða bætt kjör
hennar.
Hann var frá árinu 1924 til 1933 for-
maður nefndar þeirrar í öldungadeildinni,
er um utanríkismálin fjallaði. Þegar lit-
ið er á vald öldungadeildarinnar í þeim
efnum, verður fyrst ljóst, hversu það
starf hans var víðtækt og mikilsvert.
Hann sótti um útnefningu í forseta-
stöðu af hálfu republika árið 1936. En
hann fór fram á mikla rýmkun á stefnu
flokksins og vildi jafnframt að hún yrði að
nokkru í eamræmi við viðreisnarstarf
Roosevelts. En hann kom hvorugu af
þessu til leiðar. Hið gamla varðlið flokks-
ins sá um það.
Á síðast liðnu ári, þrem mánuðum áður
en stríðið bi^ust út, og þegar Roosevelt
forseti og Hull ríkisritari vöruðu þingið
við stríðshættunni, lýsti Borah því yfir, að
upplýsingar er hann hefði um þetta, stað-
festu ekki þessar fréttir forsetans og ríkis-
ritarans.
Stríðið er nú skollið á, svo Senator
Borah yfirsást þar. Og í einangrunar-
stefnu sinni, er bágt að segja, nema hon-
um hafi einnig gert það og að Banda-
ríkin geti ekki í það óendanlega varist
þátttöku í stríði eða taka höndum saman
við lýðræðisþjóðir heimsins til verndar
friði. En um hitt er ekki að villast, að það
var fyllilega sannfæring hans að utanrík-
ismálastefna sín væri þjóðinni öllu öðru
framar -til hags og heilla.
Canada er þriðja stærsta land í heimi.
Flatarmál þess er 3,729,000 fermílur. Einu
stærri löndin eru Rússland og Kína. En
svo mikið er óbygt af þessu mikla landi,
að íbúranir eru lítið fleiri en í London.
HVEITISALAN TIL RÚSSLANDS
Það getur verið í fylsta máta löglegt, að
selja Rússum hveiti. Það getur einnig
verið, að hveiti héðan (frá Canada), sem
sent er til Vladivostok, komist aldrei til
Þýzkalands. Oss getur einnig riðið á
miklu, að losna við hveitibirgðir landsins,
hvenær sem þess er nokkur kostur. Þetta
getur alt satt verið. Rússland er enn-
fremur hlutlaust land í stríðinu ennþá —
að svo miklu leyti sem lögin ákveða — og
það getur meira en verið, að Bretland fýsi
ekki að þröngva Rússlandi til að segja sér
istríð á hendur. En þrátt fyrir alt þetta,
er sanleikurinn sá, að íbúar þessa lands
munu þessa stundina líta á féð sem við
fáum fyrir hveitið frá Rússlandi sem blóð-
peninga og að þeir vilji ekkert með þá
hafa.
Það er margt sem með og móti sölunní
mælir og við höfum heyrt ávæning af því.
Við seljum enn vörur til Japans og pen-
ingarnir fyrir þær eru einnig blóði ataðir.
Hver maður sem nokkra réttlætistii-
finningu hefir, finnur til sektar sinnar út
af verzluninni, sem við rekum við land,
sem er að reyna að tortíma og þurka út af
yfirborði jarðar, saklausa, friðelska ná-
búaþjóð sína. Þeir eru margir hér sem
finst, að sölubann hefði fyrir löngu átt
að vera löggilt gegn Japan.
En ef svo er um Japan, hvað er þá um
Rússland, sem miklu sekara er, en það?
Það mun óhætt að fullyrða, að langmestur
hluti íbúa þessa lands sé algerlega á móti
því, að nokkur viðskifti séu gerð, sem
stendur, við Rússland. Það væri því for-
sjálni, af stjórn Canada, að setja skorður
við því, að meira hveiti sé selt til Rúsis^
lands, í bráðina, eða eins lengi og það
heldur áfram nýupptekinni breytni sinni.
(úr Wpg. blaði).
Athygli útgáfufélags í Cleveland, Ohio,
var dregið að því, að 265 leikrit og sögur,
sem vel seldust, hétu al-kunnum nöfnum
úr biblíunni. The World Syndicate Pub-
lishing Co., en svo hét félagið, fór að gefa
þessu nánari gaum og komst við það að
þeriri niðurstöðu, að nærri hver einasta
setning í bæninni “Faðir vor” hafði verið
notuð fyrir heiti á bókum. Hér eru dæm-
in um þetta:
“Faðir vor á himnum” eftir W. C. Rich-
ards. “Helgist þitt nafn” eftir E. D. Sedd-
ing. “Tilkomi þitt ríki” eftir A. Marrow.
“Verði þinn vilji” eftir A. Murray. “Sem
á himni” eftir L. Larcom. “Gef oss í
dag” eftir L. Zara. “Vort daglegt brauð”
eftir F. Grether. “Fyrirgef oss vorar
skuldir” eftir M. Loyola. “Eins og við
fyrirgefum” eftir L. W. Sheldon. “The
Trespasser” (skuldunautinum) eftir D. H.
Lawrence. “Heldur frelsa oss frá illu”
eftir A. Abdulla. “Þitt er ríkið” eftir E.
D. Sedding. “Mátturinn og dýrðin”, eftir
G. M. Cooke. “Að eilífu” eftir W. C.
Lengel. “Amen” eftir W. Ryno.
i
GANDHI 1 STRÍÐI MEÐ
BRETUM ENN
Gandhi er bardagamaður, en berst að-
eins með andlegum vopnum. Á sjötugasta
aldursári sínu, lítur hann nú heiminn flak-
andi í sárum vegna ofbeldisverka, sem
hann hatar af öllu hjarta. Hans eigin
þjóð er meira að segja í stríði; friðará-
skoranir hans ná nú ekki eyrum manna
fyrir fallbyssudynkjum árásarþjóðanna,
sem hann á auðvitað skoðanalega enga
isamleið með.
En Gandhi er ekki aðeins andvígur á-
rásarstefnu einræðissinna; hann fordæmir
stríð yfirleitt. Að gera upp á milli þeirra,
er í stríði eiga, er honum óljúft, þó stund-
um verði svo að vera.
f þeim vanda er hann nú staddur. í
stríðinu 1914—1918, gat Gandhi einhvem-
veginn komist að þeim skilmálum við frið-
arhugsjón sína, að veita vestlægu banda-
þjóðunum að málum og styðja að því, að
isendir voru 1,338,620 Indverjar á vígvöll.
Nú hefir hann á ný veitt bandaþjóðunum
siðferðislegt fylgi sitt. En áður en ákveð-
ið hefir verið mokkuð um raunverulega
þátttöku í stríðinu, af hálfu Indverja, fýsir
hann nú að fá að vita, hvað Bretar vilji
gera fyrir Indland. Hann hefir beðið um
ákveðið svar við því hvers vænta megi af
stríðinu fyrir þjóð sína. Krafa hans er, að
Indlandi verði veitt fullkomið sjálfstæði.
Þá viðurkenningu telur hann verða til
þess, að trúin á lýðræði vaxi. Hafa Bretar
heitið öllu góðu um að íhuga sjálfstæðis-
málið rækilega eftir stríðið, en telja vafa-
samt, að það yrði nú í byrjun stríðsins álit-
inn sigur fyrir Breta eða vestlægu banda-
þjóðirnar. Þar stendur hnífurinn í kúnni.
Að frádregnum einstöku yfirlýsingum
er Gandhi gerir, fréttir umheimurinn nú
lítið um hann. Sem stendur hefir hann
ekki neina óhlýðnisbaráttu með höndum
við stjórn Breta; heldur á hann ekkert
við föstur. Framkoma hans nú er sú, er
hann álítur hollasta eftir ástæðum; alt
sem mikið ber á, eða vekur víðtækar æs-
ingar heima fyrir hjá fylgjendum hans,
hefir hann lagt á hilluna.
Heimili hans er fremur íburðarlaus kofi
í þorpi því er Segaon heitir í Indlandi
miðju. Það er langt frá járnbraut. Fyrr-
um var þorp þetta talið gott sýníshorn af
sveitalífi Indlands, fáfræði íbúanna, fá-
tækt, óþrifum og plágum. Gandhi og
lærisveinar hans reistu tjöld sín þar fyrir
fáum árum og hafa breytt því og gert
það að fyrirmyndar þorpi. Það má maura-
þúfa heita að starfsemi; þar eru kvöld-
-skólar, sem kenna vefnað og hreinlæti og
vísindalegan búnað ásamt fleiru. f þorpi
þessu er aðal-bækistöð Gandhi og hans
sinna og þar má sjá eins greinilega og unt
er á hvern hátt hann hugsar sér viðreisn
þjóðar isinnar úr álögum fáfræði, vesai-
dóms og villu.
Gandhi fer á fætur klukkan 3 á hverjum
morgni. Ver hann fyrstu klukkustundinni
til að lesa bréf sín. Klukkan fjögur hefir
hann bænahald með söfnuði sínum. Um
kl. 4.30 talar hann við gesti og fregnrita.
Að því búnu tekur hann sér göngutúr og
þykir sporadrjúgur. Ungt fólk og konur
verða að hlaupa við fót sér til þess að
fylgja honum eftir.
Þegar hann kemur heim, étur hann
morgunverð — döðlur og ábristir — hann
étur þrjár máltíðir á dag, einfaldar, sem
meinlætamúnkur væri. Gandhi neytir að-
eins fæðu úr jurtaríkinu og matreiðsluna
annast kona hans, þegar hún er ekki við
kenslustörf eða guðræknisiðkanir annar
staðar. Þá er öllu er til skila haldið, er
sagt að fæðið kosti Gandhi um
$5 á mánuði og verður Mrs.
Gandhi, að leggja fram reikning
yfir hvern eyrir af því sem eytt
er fyrir það.
Eftir þetta byrja fundir með
trúnaðarmönnum Gandhi og er
ástúðlegu framkomu hans.
Hann er iðulega í heimboði
hjá vísiráði Breta í Indlandi og
öðrum brezkum valdsmönnuröi
einungis vegna virðingarinnah
sem þeir bera fyrir pers'ónu
hans, mannkostum og hæfileik-
þá spjallað um alt upphugsan- um.
legt, alt frá umgengni í búri og
eldhúsi og til þess, hver bezta
leiðin muni vera til að losa Ind-
land undan stjórn Breta. Einni
klukkistund fyrir miðnætti, er
gefið til kynna, að dagsverkinu
sé lokið. Gengur Gandhi þá til
hvílu sinnar undir beru lofti. Þó
fult sé oft af flugum, vill hann
ekki flugnanet yfir hvílu sína, af
því að lýður hans notar það ekki.
Það er ávalt mikið um það að
ræða fyrir Gandhi, að semja sig
að háttum almennings. f stað
netsins, smyr hann andlitið i þetta sætti sögðu þeir að fyrir
steinohu. Hann fellur a auga-
bragði í svefn eins og Napóleon.
Þegar hann vaknar, að fjórum
klukkustundum liðnum, er hann
hres® og fjörugur.
Frá þessu tilkomulitla höfuð-
bóli sínu, stjórnar Gandhi allri
þjóð sinni. Vald hans yfir ör-
lögum hennar og landsins, er
meira að þakka persónulegum
eiginleikum hans, en stjórnmála-
stefnu hans. Það er hið ein-
kennilega sambland í eðli hans
af ótrauðum bardagamanni og
mildum messíasi, sem gert hefir
hann að átrúaðargoði lýðsins.
Gandhi er fæddur í Porband-
ar, sveit norður af Bombay. fbú-
arnir þar eru bændur og verzl-
arar og hafa lengi haft orð á sér
fyrir hve friðsamir þeir eru;
hefir sáttfýsi þeirra oft gengið
svo langt, að þeir hafa verið kall-
aðir raggeitur. Faðir Gandhi,
var forsætisráðherra þessa hér-
aðs og sonur hans hafði alt er
hann girntist. Á æskuheimili
hans var mikil trúrækni; þótti
Gandhi iðkun hennar í mörgu
fáránleg; snerist hann þess-
vegna á unga aldri til trúleysis.
Hann át jafnvel két, sem svo
mikil synd var skoðuð, að ófyr-
irgefanleg mátti heita. En
Gandhi gerði þetta eins mikið
til þess að reyna að breyta hugs-
unarhættinum, fá menn til að
leggja niður kreddur og for-
dóma, eins og hitt, að svala isér á
að gera strákapör.
Konuefni var Gandhi valið,
þegar hann var átta ára. Hét
hún Kasturibai og giftist hann
henni þrettán ára gamall, á af-
mælisdaginn sinn. Til London
sigldi hann 18 ára gamall. Var
hann þar við laganám, en las
auk þess Plato, Mazzini, Thor-
eau og Tolstoy. Lagapróf tók
hann 1891 og hélt að því búnu
til Indlands.
í Bombay varð honum ekkert
úr laganámi sínu; honum mis-
hepnaðist svo í starfinu, að hon-
um var í þann veginn að fallast
hugur. En þá bauðst honum
lögfræðisstarf hjá indversku
viðskiftafélagi í Pretoríu í Suð-
ur-Afríku. Þar varð honum
gæfan vinveittari iog græddist
fé. Vinnulaun hans hækkuðu
á stuttum tíma í $20,000 á ári.
Auk lögfræðisstarfsins fór
hann nú að gefa því gaum, hver
agaleg réttindi Indverja væru í
S.-Afríku; komst hann brátt að
jví, að réttlætinu var all mis-
iskift, að því er þennan minni-
hluta íbúanna, landa hans,snerti.
Upp úr því hóf hann 10 ára bar-
áttu við stjórn landsins. Þrisv-
ar var hann dæmdur til fanga-
vistar út af þeim málarekstri iog
tvisvar var hann kallaður heim
til Englands til þess að gera
grein fyrir málstað sínum. Loks
varð Union-stjórnin (í Suður-
Afríku) af hálfu leyti við kröf-
um hans árið 1913. Til Ind-
lands fór hann svo árið 1914 og
var fagnað sem ‘hetju af þjóð-
ernissinnum landsins. Og flokk-
ur sá má nú heita inverska þjóð-
in með Gandhi sem leiðtoga.
Persónuleg áhrif Gandhi eru
Þjóðin hans væri fyrir löngu
búin að gera hann að dýrðlingi
eða guði, nokkurs konar Budd-
ha, ef hann neitaði ekki stöðugi'
að hann væri ekkert annað eða
meira en hver annar einstaklinú
ur þjóðarinnar. Til dæmis var
hann fyrir skömmu á ferð í héf
aði einu. Nokkru síðar saffl'
aðist fjöldi manna heim til hans
úr héraðinu og færði honum á'
vexti, blóm og pyngju fulla af
peningum.
Þegar Gandhi spurði hverju
ALÞINGI TELUR SÉR
MISBOÐIÐ MEÐ ÞING-
SETU KOMMÚNISTA
það að hann hefði stigið fæti 8
jörðina í héraði þeirra, hefð>
vatnslind, er lengi hefði verið
þur, fylst vatni og erfiðleikarH'
ir horfið, sem vatnsleyisinu vai'
samfara. “Meðtak bæn vora!”
Gandhi tók þegar birstur fraU1
í fyrir þeim og isagði þeim að
láta ekki þessa vitleysu út úr
sér; að tilbiðja sig mættu þeiJ'
ekki. Þetta hefði aðeins verið
tilfelli með vatnið. Guð ger$
ekki meira fyrir sig en hverJJ
þeirra. Reyndi hann svo blíð'
ari á manninn að gera þeif1
þetta skiljanlegt, með vatnié'
með svo einföldum dæmum, seU1
honum var unt.
Fylgi sitt á Gandhi eflaust
nokkuð að þakka yfirnáttúrlegf
trú þjóðar sinnar. Og í starfj
hans er það fylgi mikilsvert. Eu
guð hennar þverneitar hann
vera.
Reykjavík, 4. des. 19$
Þegar fundur hafði verið setb
ur í sameinuðu þingi kl. 2 í da?>
las forseti sameinaðs þings upP
eftirfarandi yfirlýsingu frá 45 aj
þeim 49 þingmönnum, sem
eiga á alþingi, þ. e. öllum þing'
mönnunum að hinum 4 þing'
mönnum kommúnista undaU'
skildum:
Vegna þeirrar afstöðu, eí
kommúnistaflokkurinn, er héf
starfar undir nafninu Sameifl'
ingarflokur alþýðu — sósíalista-
flokkurinn, þingmenn þeS®
flokks og málgögn hafa markað
sér til frelsis, réttinda og lýð'
ræðis smáþjóðanna síðustu vik'
urnar og alveg sérstaklega vi^
víkjandi málefnum FinnlandS>
lýsa undirritaðir alþingismeriP
yfir því, að þeir telja virðin£u
alþingis misboðið með þingsetP
fulltrúa slíks flokks.
Haraldur Guðmundsson, þfl1,
Seyðf. Árni Jónsson, 9 landsk
þm. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V-'
ísf. Bergur Jónsson, þm. Barð-
Berharð Stefánsson, 1. þm. Eýf-
Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr’
Bjarni Bjarnason, 2 þm. Árfl'
Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafh-
Einar Árnason, 2 þm. Eyf. Eirík
ur Einarsson, 8. landsk. þh1,
Emil Jónsson, 6. lansk. þm. Erl-
Þorsteinsson, 10. lansk. þm. Eý'
steinn Jónsson, 1. þm. S.-^í-
Finnur Jónsson, þm. fsaf. Gar^
ar Þorsteinsson, 7. landsk. þih'
Gísli Guðmundsson, þm. N.-P-
Gísli Sveinsson, þm. V.-Sh‘
Helgi Jónasson, 2. þm. Rang'
Hermann Jónasson, þm. Str-
Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-l^
Jakob Möller, 2. þm. Reykv. Jó'
hann Jósefsson, þm. Vestm. JóP
ívarsson, þm. A.-Sk. Jón Pálma'
son, þm. A.-Húnv. Jónas JónS'
son, þm. S.-Þ. Jörundur Brynj'
ólfsson, 1. þm. Reykv. ólaf^
Thors, þm. G.-K. Páll Her
mannsson, 2. þm. N.-M. Pál'
Zóphóníasson, 1. þm. N.-M'
Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf-
Pétur Halldórsson, 4. þm. Reyk^
mjög mikill. Andstæðingar hans, (Pétur Ottesen, þm. Borgf. Si£'
sem fylgismenn dáðst að hinni urður Á. ólafsson, 2. landsk. W