Heimskringla - 06.03.1940, Blaðsíða 3

Heimskringla - 06.03.1940, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 6. MARZ, 1940 HEIMSKRINGLA 3, SÍÐA Men Marsian and Apulian with a king Who was a Mede! No more th’ undying fire, The shields, the gown, the name remembering Though Rome was safe, and safe the mighty Sire! Against this had the spirit prescient , Of Regulus forewarned; foul terms spurned he And drew disaster from the precedent For days to come, unless unpitied be The captive youth and uncompassioned die. “In Punic fanes hung have I eagles seen, And weapons seized from warriors viewed have I, Won without struggle; hands of men who’d been To freedom born, behind their backs fast bound Have I beheld”, he said, “and every gate Of Carthage wide unflung, and tilled I found The fields our war had rendered desolate. Forsooth the man whom back for gold you buy Returns more mettlesome! To baseness you Are adding loss: the wool, once dipped in dye, Does ne’er again display its native hue. Nor does true worth, when once it takes to flight, E’er care to creatures worsened to return. If from the meshes freed the hart will fight, The name of valour will that warrior earn Who has to faithless foes entrusted him, And he will tread on Carthage overthrown In new war, who, inert, on every limb Has fetter felt, and fear of death has known. This man, not knowing what price should be paid For life, mixed peace with war. What shame it be! O, mighty Carthage, who are loftier made Upon the shameful ruins of Italy!” ’Tis said his chaste wife’s kiss he put from him And children young, as though he were debased In civic worth, and turned his visage grim Unto the ground, and on it sternly gazed. Till he the Fathers falt’ring might make strong With weighty influence, unexampled rede, And till he might his mourning friends among— An exile splendid!—his departure speed. He, knowing what for him the torturer Barbarous was preparing, from his way Put cumbr’ing kinsmen, and the crowds that were Attempting his returning to delay, Just as if, putting tedious business by Of client-throngs, with all the issues cleared, To fields Venafran he were fain to hie Or to Tarentum Lacedaemon reared. VI. PIETY AND CHASTITY You, Roman, guiltless shall for sires’ guilt Atone till you the temples have repaired, And have the falling fanes of gods rebuilt, And purged their statues, by black smoke impaired. You, by obedience to the gods, command; Hence rose your sway, its issue here refer. Ills many on our woeful Western land Bestowed the gods because they slighted were. Monaeses and the band of Pacorus Now twice have crushed our impetus unblest; Their joy that they to torques exiguous Have added booty, their bright brows attest. Out City, by seditions seized and rent, The Dacians and the Ethiops nigh laid low, These for their fleet feared, those more eminent For arrows winging from unerring bow. Early the damsel joys to be taught Ionian dances; moulded by their art, E’en now the youthful lassie dwells in thought On loves adult’rous in her inmost heart. Soon younger paramours seek out will she Amid her consort’s cups; nor does she choose One whom, with lights removed, she hurriedly May for her pleasures unpermitted use; But ordered openly, and not without Her husband’s knowledge, does the matron rise If captain of brig Spanish calls her out, Or broker, who dishonour dearly buys. Warriors, not from these for fathers sprung, Coloured the sea with blood that Carthage bled, And great Antiochus in ruin flung, And Pyrrhus, too, and Hannibal the dread; They, manly sons of yeomen-soldiers were, Who the hard soil had been taught to tum With hoes Sabellian, and trained home to bear The faggot-bundles hewn as mother stern Had bidden when the shadows shifts within The upland-glades the Sun, and gives release From yokes to wearied oxen, ush’ring in, As off his car whirls, hours of kindly peace. What has not worsened Time injurious? Our fathers’ generation, more accurst Than was their fathers’, us more vicious Bore, soon to bear a race of all the wiorst. Allir sem vilja eignast póst- kort af landnema lendingunni að Gimli 1875, geta pantað þau ^já Davíð Bjömsson, 853 Sar- &ent Ave., (Heimskringla) og sent hvort sem þeir vilja heldur frímerki eða peninga. Hvert póstkort kostar 10c og er tekið af málverki eftir Friðrik Sveins- son listmálara, en hann var einn í þessum hóp, sem lenti við Gimli 21. október 1875. ABRAHAM LINCOLN LAND OG LÝÐUR Eftir Náttfara Það sem einkum einkendi þjóðlífið nyrðra var hin foss- andi framrás þess, hin síkvika starfsemd, hin uppihaldslausa leit eftir einhverju nýrra og betra. Árið 1930 voru 544 einka- leyfi veitt fyrir nýjar uppfynd- ingar. Þær komu nálega allar frá Norðurríkjunum. Suður frá leit- uðust menn við að veita öllum straumum í foma ífarvegi, í morðrinu leituðu menn nýrra leiða. Þar lifði eldur vonarinn- ar í ótal brjóstum. Hinn óbrotni háseti þurfti aðeins að sýna framtak og hæfileika til þess að gerast skipstjóri. Fleiri og fleiri skip voru árlega bygð svo tæki- færin gáfust. Duglegir skip- stjórar urðu oftast meðeigendur í skipum sínum og gátu, ef gæf- an var með, gerst voldugir út- gerðarmenn, að lokum. Dugleg- ur verkamaður gerðist tíðum forstjóri verksmiðjanna og loks eigandi þeirra. Einhleypingar keyptu sér smá vöru fyrir fá- eina dali. Þeir lögðu svo land undir fót með malin á baki sér til að selja; nálar, skæri, hnífa, töl- ur o. þ. 1. út í strjálbygðinni. — Þessir menn urðu stundum stór- kaupmenn í borgunum. Bónd- inn, sem byrjaði sem einyrki bætti við sig landi og gerðist stórbóndi og græddi fé á vinnu- liði sínu og leiguliðum. Isaac Funk frá Bloomington átti sex- tíu og fjögra þúsund dollara virði af nautgripum og Ford Sullivant, í Champaign sýslu átti áttatíu þúsund ekrur af landi en Salomon Sturges eitt hundrað þúsund ekrur. “Menn leituðu dollarins með veiði hug”, eins og John Dewey kemst að orði. Með vígreifum ákafa leituðu þeir hans, sem á- arnir er sveimað höfðu um mörk- ina eftir villudýrum. Að bera mikið úr býtum sýndi manndóms merkin. Sumir urðu ríkir án þess að hafa nokkuð fyrir því. Auður þeirra óx af sjálfu sér, með vax- andi verðgildi lands og áhafnar. Þannig var það t. d. með suma afkomendur gömlu Bollending- anna í New York borg. Borgin breiddi sig yfir kúahaga frum- byggjanna. Brevorst erfði 10 ekrur af landi og á þeim voru stórhýsi reist og lóðir komust í voða verð. Brevorst varð mil- jóna mæringur alveg fyrirhafn- arlaust. Sama gilti um Stuy- vesant og Van Renssalaer fjöl-j skyldurnar. Whitney nældi nokkrar miljónir á brennivíni. j Astor snuðaði grávöru út úr Indíánum fyrir púður, byssur og brennivín, þangað til hann þén- aði fjóra dali á hverri einustu mínútu, Lvert sem Astor var sofandi eða vakandi. Aðrir græddu á járnbrautum, bönkum og kauphallar braski o. s. frv. Því fór fjarri að almenningur þátíðar hefði ímugust á þessum fjárafla mönnuð eða skoðuðu þá sem þjóðfélags féndur. Fólkið dáðist þvert á móti að atorku þfeirra og hyggindum. Þeir skoðuðust sem þjóðhetjur og skapmegin hinnar ungu álfu. Þeir veittu fé til framkvæmda, opnuðu auðlindir landsins, lögðu járnbrautir, lífþræði viðskifta lífsins um héruðin. Fyrir þeirra aðgerðir hækkuðu landeignir bændanna í verði. Þeir voru bjargvættir hins nýja landnáms. Þeir veittu gróðrarmagni menn- ingarinnar lengra og lengra inn í landið. Svo það var ekki að undra þótt bændakonurnar blessuðu þá í bænum sínum. Konungs nafnið hlutu þeir hjá almenningi. Hvað gerði það til þótt gullstraumurinn flyti í fjárhirslur þeirra meðan þeir bættu lífskjör almúgans. — Já, konungar voru þeir, í augum almúgans — konungar með kon- unglegar hugsanir. Þarna voru járnbrautar-konungar, kola-kon- ungar, kopar-konungar, kúa- konungar, kinda-konungar, timb- ur-konungur og peninga-konug- ar. Allir þessir konungar vildu auka ríki sitt, eins og Alexander frá Macedóníu. Þeir vildu verða ennþá stærri og voldugri — og peningarnir veittu völd. Þess vegna voru menn á stöðugum þönum eftir þeim kringlóttu, þessvegna stóð eilíf barátta um auðinn og völdin. Sumir sigr- uðu, aðrir féllu í valinn. En ó- sigurinn var ekki svo hættuleg- ur meðan ennþá gafst tækifæri til viðreisnar með nýjum tilraun- um, á nýjum sviðum. Sunnlendingarnir voru ánægð- ir með sitt og lentu í kyrstöðu. Norðlendingarnir voru landvinn- ingamenn í eilífri framsókn. — — Svefnhöfgi aðgerðaleysisins hvíldi yfir sólar landinu. Alt var iðandi af starfi og spriklandi fjöri í veldi vetrarhjarans. Hvað er að fást um það þótt svertingj- arnir beygi bökin undir svip- unni,' “meðan glæsimenska og hofmanna hættir höfðingjanna vara”, sögðu þeir syðra. “Hvað gerir það til þótt öreigarnir svelti, meðan framfarirnar halda áfram,” sögðu þeir nyrðra. Hinn skapandi máttur þess- arar ungu þjóðar birtist ekki einungis í verklegum fram- kvæmdum heldur einnig í sígild- um bókmentum. Þess munu fá 1 dæmi að nokkur þjóð hafi, á ein- um og sama tíma, átt jafn ! marga snillinga, sem Ameríka á ' fyrri hluta hinnar nítjándu ald- i ar. Eg get aðeins minst á þá I allra helstu: skáldsagna höf- 'undana: Hawthorne, Irvlng, Cooper og Melville; ljóðskáldin: Poe, Lowell, Longfellow, Bryant, Whitman og Whittier; speking- jana: Franklin, Paine, Emerson og Thoreau; sagnfræðingana: Bancrof t, Parkman, Prescott; I náttúru-fræðingana: Asa Gray, | Audubon, Burroughs og Le j Conte; ræðugarpana: Clay, Webster, Calhoun, Choate, Sumner, Tooms, Douglas og Lin- | ooln; prestana: Beecher, Parker og Channing. Hvílíkur skari af Ijómandi nöfnum; mönnum, sem mælast vel á alþjóðar mæli- kvarða, á öllum öldum. Það er nærri því gaman að geta slöngv- að þessum nöfnum framan í þröngsýna, þekkingarsnauða menn, er ganga með þá grillu að að Ameríka hafi altaf verið fá- tæk af andlegum verðmætum. Á þessum tímum sérstaklega, er hér um ræður, leggur hún drjúgan skerf til heimsbókment- i anna og áhrifa hennar gætir í víða. I “Hvert sinn er veltandi vestan úr geim að virkjunum bárurnar ríða, . þá braka við hlekkir á þúsund- um þeim, er þegjandi frelsisins bíða.” Skiljanlega er hér ekki staður né stund fyrir bókmenta gagn- jrýni, en eg verð að styðja þessa staðhæfingu með nokkrum stað- ; reyndum. Amerískar bókmentir hafa sin sérkenni, lífsviðhorf Vínlend- ingsins sín einkenni. Stíllinn er léttur, kryddaður góðlátri gletni. Þar kennir hins von- | hreifa unglings viðbragðs, þroskandi þjóðar. Þessi kímni er undirtónninn í sögum Washing- ton Irvings, glitrar eins og fág- aður demant í óði Olivers Wen- dels Holmes og nær hámarki sínu hjá Samuel Clemens (Mark Twain) er vafalaust má telja fjölvitrasta kímnisskáld heims- bókmentanna. Þessi skáld störfuðu í aftan- skini hugsæisstefnunnar (ró- mantíkinnar) en eru langt um raunsærri en samtíðarskáldin í öðrum löndum. Það ber sérstak- lega mikið á sálrænni eftir- grenslan í sögum Nathaniels Hawthorne og margir bókmenta- menn telja “Blóðrauða stafinn” (The Scarlet Letter) beztu skáldsöguna er nokkru sinni hef- ir verið samin. Með því að gerast félagi í þessari stofnun hlotnast þér; SPÍTALA HJÁLP HEILSULEYSIÖ STYRKUR GAMALMENNA STYRKUR STYRKUR TIL FJÖLSYKLDU HINNA FRAM- LIÐNU MEÐLIMA Niðurborgun $8.00 eða $11.00. — Aldurstakmark 60 Takið fram aldur og atvinnu. The CENTRAL CANADA BENEVOLENT Assn. 325 Main Street Winnipeg, Manitoba Umboðsmaður—P. K. Bjarnason 167 Vaughan St., Winnipeg, Man. Mannréttinda hugsjónir hafa aldrei fundið snjallari, ná raun- hæfari málsvara en í stjórnmála skörungunum: Thomas Jeffer- son og Abraham Lincoln, skáld- inu Walt Whitman og amerísku heimspekingunum: Thomas Paine og Henry David Thoreau. Áhrif þeirra náðu til allra jarð- búa. Skáldið Edgar Allan Poe náði ekki einungis heimsfrægð á fáum árum heldur hafði hann stórmikil áhrif á bókmentir um- heimsins, sérstaklega í smá- sagnagerð. Allir íslendingar kannast við kvæðið Hrafninn, sem frónsku skáldin hafa verið að reyna að þýða, þótt misjafn- lega hafi það tekist. Engin lyrikus tekur honum fram þótt ef til vill megi telja þá Shelley og Keats honum jafn snjalla — ja Heine sjálfsagt líka. Auk þess var Poe ágætur smásagna höfundur og ritdómari. ÞjóðskáldSð okkar igóða og göfuga, Matthías Jochumsson, var á æfilöngum gægjum eftir andlegum verðmætum og allra manna fundvísastur á þau. í hópi kennimanna fann hann engan, sem betur kunni að túlka guðsríkis kenningar Krists, en ameríski únítara presturinn Wil- liam Ellery Channing, enda var hann spekingur að viti og Krists vinur i líferni sínu. Ef klerk- arnir ættu samlíðunar tilfinn- ingu Theodores Parkers, sem einnig - var únítara prestur í Ameríku, mundi guðskristninni betur vegna. “Meðan bróðir minn er í fangelsi er eg ekki frjáls, þegar hann hungrar er eg ekki saddur,” var upphrópun hans. Jú, stundum getur mafmi fundist hin ameríska mælska, að minsta kosti í nútíð, vera dá- lítið froðukend. En sannleikur er nú samt sá, að mælsku listin hefir hvergi náð slíkum þroska, síðan á dögum Peraclesar og Demosþenusar, sem í Ameríku. Nægir þar að benda á Gettys- burg ræðu Lincolns og Bunker Hill ræðu Daniels Websters — og hver er það nú, sem jafnast á við Franklin D. Roosevelt eða Borah (nú dáinn), á ræðupalli. Nei, það er aldeilis óþarfi að fyrirverða sig fyrir kjörlandið. Vesturlandið Svo nefndist landflæmið alt fyrir vestan strandfylkin fornu. Lengi vel vissu menn lítið um það; ógnar stærð þess lá ókönn- uð og auðæfi þess dulin. Veiði- menn og loðvöru kaupmenn urðu fyrstir til að hætta sér inn í ör- æfin. Indíánar veittu þeim sjald- an aðfarir því þeir komu ekki til að spilla jörðinni, taka frá þeim landið, heldur til að byrgja þá upp að betri vopnum. Þegar langferða mennirnir komu svo til baka sögðu þeir undarlegar sög- ur af dásamlegum undraheimi. Þeir höfðu séð sitt af hverju. Þeir höfðu verið þar sem “Missi- sippi megin djúp fram brunar, í myrkum skógum vekur strauma nið.” Þeir höfðu séð grasið bylgjast sem hafsjó á gresjun- um. Þeir höfðu séð spegilskygð veiði vötn og elfur, er líktust fjörðum. Þeir höfðu gengið um risa skóga innanum músdýr, elgi, rádýr, hirti, hreindýr, úlfa og birni. Þeir höfðu séð vísunda í þúsunda tali dreifast um slétt- urnar. Þeir höfðu komið í fagra fjalladali, þar sem villuhestarnir vaða grasið upp á miðjar síður. Þeir reyndu að lýsa straumnið stórfljótanna, sífrandi bunublá- um fjallalækjum og hvíslandi laufblænum með skáldlegum orð- um. Það voru undarlegir menn. Mitt í mannlífs klaumnum virt- ust þeir hálf dáleiddir af ein- hverju fjarrænu, hálf dularfullu og seiðmagnandi, eins og manns börn endurheimt úr álfheimum. Árið 1805 komu tveir ferðlún- ir menn til höfuðborgarinnar, Washington. Þeir komu úr tveggja ára ferðalagi til Kyrra- hafsstrandar. Þessir menn, Lewis og Clark urðu fyrstir allra hvítra manna til þess að ferðast þvert yfir landið frá hafi til hafs. Þeir höfðu séð ennþá stærri undur en allir hinir. Þeir höfðu séð sólroðnar jökulhettur Klettafjallanna. Þeir höfðu séð Golumbusar ána þrengja sér í hvítflissandi boðum gegnum dimm og dunandi hamragljúfr- in. Þeir höfðu séð gjósandi hveri þeyta sjóðandi vatnssúlum upp í loftið. Þeir höfðu séð laufprúðar bjarkir teygja sig yfir freyðandi flúðir og þrum- andi fossa. Þeir höfðu gist ó- kenda Indíána, er lifðu friðsam- lega á akuryrkju. Þeir höfðu tínt blóm um hávetur vestur við haf. Þeir höfðu séð iðandi laxa- torfur á blikandi sundum, milli iðgrænna eyja. Þeir höfðu séð ofurlitla rönd af úthafinu, sem aðskilur álfur og látið sig dreyma um hafskipin, er leggja þar að landi hlaðin kryddjurtum frá Austur-Indversku eyjunum og silki frá Japan og Kína. Slíkar frásagnir kveikja bál, brennandi áhuga í brjóstum mannanna. Það er eitthvað að- laðandi við þessi þöglu öræfi, þessa ósnortnu jörð, er býður landnemans eins og mærin manns. Æfintýra áhuginn gríp- ur menn og þeir hleypa heim- draganum, halda í vesturátt.Hún frh. á 7 bls. \ S Byrjið sparisjóðs innlegg við Bankann— Peningarnir eru óhultir og þér getið tekið þá ,út hvenær sem þér viljið. Á 12 mánuðum gerðu viðskiftamenn 10,500,000 innleggingar á The Royal Bank of Canada; vottur um það traust sem almenningur ber til þessarar stofnunar, sem að eignamati fer yfir $800,000,000. THE ROYALBANK O F CANADA --- Eignir yfir $800,000,000-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.