Heimskringla


Heimskringla - 29.05.1940, Qupperneq 2

Heimskringla - 29.05.1940, Qupperneq 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 29. MAÍ 1940 ABRAHAM LINCOLN Eftir Náttfara Fransh Lincoln þurfti að standast nokkurskonar próf áður honum yrði viðtaka veitt í félagsskap Salem sveina. Þá fýsti mjög að vita hvað byggi í þessari beina- sleggju svo gríðar hárri. Gat hann gert þeim nokkuð til skemt- unar? Hann sagði þeim sögur. Þetta var ein þeirra: “Umferðar prédikari lá úti um nótt en eðla gerir sig heima- komna og skríður inn á guðs- manninn. Hún kunni vel við sig í ylnum og sofnar sér. Daginn eftir syngur hann messu en eðl- an vaknar við gauraganginn og leitar sér útkomu. Hún hittir samt ekik á réttar leiðir; en er klerkurinn verður hennar var vill hann losa sig við kvumleið; an gest. Kastar hann nú af sér frakka og þar næst vesti en fær þó ekki hendur á kvikindinu. Tekur hann nú að losa um brók- linda sinn en þá rýkur ein kon- an á dyr í mesta fússi. Kveðst hún ekki í guðshús ganga til að sjá óskapnaðinn á karlmönnun- um, þvílíkt stáss mætti sjá í heimahúsum.” Sveinunum líkaði sagan svo Abraham stóðst fyrsta prófið með ágætis einkun. Nú vildu þeir vita hvert hann væri jafn sterkur sem stór, og leiddu beljaka mikinn fram og skyldu þeir glíma. Abraham feldi tröllið á augabragði. Þá gengur Jack Armstrong fram á völlinn og kvað orðstýr Salem manna nokkuð ýktan ef engin geti felt risann. Það tók nú að þykna í Abraham og þrífur hann til Jacks og kastar honum nokkuð óþyrmilega niður. Nú var Lin- coln reiður og kvaðst albúinn að mæta þeim öllum, en þeim sýnd- ist ráð að láta svo búið standa. Þar næst var hann fengin til að renna kapphlaup við þann er frástur fanst í þessu nágrenni, en Lincoln varð skjótari á skeið- inu. Mönnum kom nú saman um að Lincoln væri fullkomlega það sem hann sýndist og verð- skuldaði heiðurssæti í þeirra fé- lagsskap. Þetta var nú gott og blessað en verzlunin fór í hundana og Offut á höfuðið. Lincoln keypti nú aðra þrotabús verzlun en alt fór á sömu leið. Lincoln hafði ekki lag á kaupmenskunni. Hann fékk sér leyfi til að selja brenni- vín en vínið gerði hann ekki rík- ann. Félagi hans var mesti drykkjurútur en Lincoln var frá- bitinn víni. “Eg á ekkert hól skilið fyrir hófsemdina. Mér þykir vínið vont og langar ekk- ert í það”, sagði hann. En hann var auðsjáanlega ekkert gefinn fyrir verzlun, og áhugalausir kaupmenn fá oftast litla að- sókn. Hann lá lesandi upp á búðarborðinu, er menn komu í búðina. Stundum gekk hann á akurinn til bændanna ef þeim lá á liðveizlu en félagi hans var tíðum fullur svo ekki mátti á hann stóla við afhendingar. — Menn komu stundum að lokaðri búð — og það er óvíst að þeir hafi ómakað sig þangað aftur. Lincoln græddust vinir en ekki peningar. Afl hans og frækni var aðdáunarefni og brátt fundu menn fleira gott í fari hans. Ráðvendni hans var viðbrugðið og eins og Aþenu búar kölluðu einn stjórnmálaskörung sinn, Aristides, hinn réttláta, svo nefndu Salem búar Lincoln sjaldan annað en “Honest Abe” (Abraham hinn ráðvanda). Það urðu nú margir til að lið- sinna Lincoln, er hann var í sem mestum vandræðum; atvinnu fyrirtæki hans úr sögunni; hann sjálfur eignalaus, stórskuldugur og atvinnulaus. Meðal þeirra, er reyndust honum vinir í raun, voru Armstrong hjónin: Jack og Hannah. Hjá þeim borðaði hann margann málsverðinn og var þó altaf velkominn. Ekki lét Jack Lincoln gjalda þess nú þótt hann feldi hann í glímunni forðum. Armstrong var annars allgott sýnishorn af vestrænum sveitar- ribbalda. Hann var ertinn, ó- fyrirleitinn, pöróttur og svaka- menni við vín — samt greiðugur og góðhjartaður í aðra röndina. Eitt sinn kom hann, með öðrum fleirum, til Redfords kaupmanns og falar brennivín en Redford vill ekki selja — þótti þeir fé- lagar ærið ölvaðir þótt þeir fengu ekki ábætir. Jack brást reiður við og svallararnir brjóta búðina en eyðileggja varning- inn. Redford kom sér undan og sást aldrei í Nýju Salem eftir það. Eitt af því, sem þeir fé- lagar höfðu sér að gamni, var að troða smástrákum í tunnur og velta svo öllu saman ofan brekk- ur. Ike var maður nefndur og þótti grannvitur. Honum þótti sopinn góður, sem mörgum og vildi flest til hans vinna. Fyrir pott af sterku rommi átti hann að ríða eld, þeim til augna yndis. Nú kynda þeir bál á sléttunni en Ike kemur þeysandi og hugðist að láta hestinn stökkva logana en klár- inn var á annari skoðun. Hann snarstansar en riddarinn þeytist fram af hestinum og fellur í eldinn. Brendist hann nokkuð og mundi þó meira hafa af orðið ef Lincoln hefði ekki að borið til að bjarga mann tetrinu. Lincoln ávítaði þá þunglega fyrir tiltæk- ið, enda var hann aldrei viðrið- inn þeirra strákapör. Viðstadd- ur vottar að hann hafi aldrei séð Abraham jafn reiðann, sem þá, samt gat hann ekki stilt sig um að hlægja að útganginum á Ike Þótt Jack væri foringinn strákasolli sveitarinnar var hann engu að síður vinur vina sinna og Lincoln átti ekki betri vin. Lincoln naut vinsældar ekki einungis hjá trantara lýð bygð- arinnar heldur einnig hjá helstu börgurum. Bowling Green frið- dómari var vinur hans. Green var sæmdar karl og mikilsvirt- ur í nágrenninu. Abraham var mjög samrýmdur skólakennar- anum og kom iðulega í skólann til að prófa kunnáttu sína. All- skrítið þótti börnunum að sjá þennan heljar risa streitast við að sitja í hinum þröngu, lágu, skólasætum, allan uppböglaðan svo hnjákollarnir komu nálega jafn hátt höfðinu. En Abraham sat meðan á yfirheyrzlunni stóð því hann vildi vita hvert hann vissi jafnmikið og skólabörnin. — Sá hefði nú kunnað að not- færa sér viðvarpið nú á dögum. — Einn af helstu borgurum ná- búalagsins var James Rutledge. Hann var vín og greiðasali og eigandi kornmillunnar að hálfu — en þá var korn malað í ná- lega hverjum bæ. — Þessi mað- ur var einna helsti menningar- frömuður síns bygðarlags. Hann var forseti og aðal stoð sögu og málafundafélagsins í þorpinu. Engri fjölskyldu kyntist Lincoln meir í New Salem og engin hafði meiri og betri áhrif á hann. Þótt Lincoln ætti marga vini, er vildu gera honum til gagns og sóma, var hagur hans hinn aum- asti. Hann var gersamlega fé- laus, og meir en það, hann var stór skuldugur og þar að auki atvinnulaus. Auðvitað mundi hann geta fengið vinnu við skóg- arhögg, eða sem háseti á ein- hverju fljótaskipi en seint gengi honum að greiða um tvö þúsund dollara skuld með því móti. Þó var nú ekkert sýnna en hann yrði að eyða allri æfinni við illa launuð þrælastörf eða fara skuldafangelsið að öðrum kosti. Anna Rutledge “En þegar fjólan fellur smáa Það fallið enginn heyra má En ilmur horfinn ynnir fyrst Hvað urta bygðin hefir mist. þessari uppreiddu hjónasæng, og sá guð er drottinn þessa heims og heitir Mammon. Hún Venus gægjist nú kannske inn með gluggatjöldunum og hvísl- ar kýmileit, að tunglinu, “þessir ur staðarins. Ekki var það há- launuð staða en með því móti veittist honum tækifæri að lesa dagblöðin. í þeim las hann þing- ræður snillinganna: Websters, Calhouns og Clays og æfði sig í aumingjar vita nú ennþá ekkert! ræðugerð. Auk þessa þaul las ÚTLEND PENINGASKIFTI SÉRSTÖK TILKYNNING Þegar um sérstakar undanþágur er að ræða, er þess krafist í reglugerð um erlend peningaviðskifti, að hver maður búandi í Canada, sem útlenda peninga hafði í fórum sínum, eða umráð erlendra peninga, 1. maí 1940, selji þau, hvort sem upphæðin er há eða lág, til viðurkendra verzlara (löggildra banka), ekki síðar en 31. maí 1940. Nema því aðeins að lengdur hafi verið tíminn af ráðinu, er hver maður, sem ekki hefir breytt eftir þessu 31. maí 1940, sekur við lögin og háður sekt, samkvæmt því er reglur fyrirskipa. Reglurnar krefjast ekki sölu á útlendum eignum. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá útbúr hvaða löggilts banka sem er. FOREIGN EXCHANGE CONTROL BOARD Abraham var ástfanginn en ástin veitti honum enga von og þessvegna heldur enga ham- ingju. Hann elskaði önnu Rut- ledge gagnstætt vilja sínum. — Hann elskaði hana eins og Cam- ille Flamarion elskaði himin- gyðjuna, “Uraníu” án þess að láta sig dreyma um gagnkvæmar tilfinningar frá hennar hálfu. Það stóð ekki til því hún var efn uð en hann átti ekkert nema skuldimar; hún var mentuð, hafði gengið á kvennaskóla; hann hafði engrar mentunar notið nema fimm mánaða barna- skóla fræðslu; hún var af góð- um ættum, hann var umkomu- laus; hún var lagleg, hann yar óhrjálegur ásýndum; hún var öðrum heitin, hann var ófrjáls vegna skuldanna. Hvorki hann né hún létu sér til hugar koma að rjúfa þau heit er hún hafði bundist. Við hjölum um frívilja, þykj- umst svo sem alfrjáls allra gerða, en Eros er glettinn guð. Hann vefur kynlega rósavefi kringum sálimar. Ástin kemur ekki þótt á hana sé kallað en læðist óboðin um læstar dyr. Ekkert dýr er eins ófrjálst í ást- um sínum sem mannskepnan. Hygnir foreldrar telja kúgildin og tíunda eignimar. Þau meta búmannsvit og húsfreyju hæfi- leika og að afloknri rannsókn para þau saman svein og svanna. Þau eru leidd, þau eru tæld og þeim er ýtt upp í hjónasængina með guðsbænum og kirkjuleg- um yfirsigningum. Svo smella landslögin lásnum fyrir brúðar- salinn. Klerkurinn lyftir hönd- um og kallarihimnana til vitnis um að nú séu þau eitt hold en söfnuðurinn svarar: “Það sem guð hefir samtengt má maður- inn ekki sundur skilja”. Jú, auðvitað er það guð, sem sam- tengir þarna hold við hold, í hvað ástin er.” Það líða ár og þeim fæðast börn og ekkert gerist sögulegt, eins og heimshjartað sjálft sé hætt að slá, eins og ástin sé í rauninni ekkert nema lítilshátt- ar kaupskapur. — En bíðum við þegar alt ætlar að fara svto dæmalaust vel bregður fyrir nýrri persónu á lífssviðinu og áður ókendar tilfinningar taka að gera vart við sig í hjörtum saklausra einfeldninga. Það er nú kannske ekki hlaupið á fjöll eða út í fjós með þessar ótíma- bæru ástir, en það ber máske við að hin skírlífa húsfreyja, er hvílir, undirgefningarfylt, í örmum bónda síns andvarpar dálítið í instu leynum sálar sinn- ar og verður hugsað til ljúflings- ins fyrir handan fjöllin. Karl- maðurinn er herskárri að upp- lagi og líklegri að brjóta inn- siglið. Þetta er nú náttúrlega hioldsins vegur og ókristilegleiki. Já, svo er það metið í hinum norðlægari löndum en suður á Frakklandi eða hinu megin við Mundíufjöll þykir það lítill ljóð- ur á ráði manna, sé eiginkon- unni eftir sem áður sómi sýnd- ur. — Ástin vekur máske ennþá fleiri andvörp en bros í mann- heimum. Hún vakti aðeins, sem ósjálfráð, Ijúfsár kend í brjósti hins auðnulausa Abrahams, á þessum dögum. Það virðist mótstætt öllu eðli að Anna Rutledge skyldi fella hug til þessa fátæka atvinnu- leysingja — en hver skilur hjart- að segir Kristján P',jallaskáld? Hver þekkir ástina? Við flýj- um til fræðaranna og lesum Sig- mund Freud og Havelock Ellis, en grunar samt, að loknum lestri, að eitthvað sé ósagt og órýnt hjá vitringunum, að ástin eigi sér djúpar og leyndar rætur. Og almenningurinn, guð komi til! Hann fussar og fælist þá sjaldan hann les um einlægar ástir, eins og hann sjái heilagan anda. Eg minnist þess ofboðs er greip almenning þegar Hall- dór K. Laxness lætur Sölku Völku fórna fé sínu fyrir ástina. Það var óeðlilegt það “passaði” eins og þær gömlu voru vanar að segja. “Þetta þykir mér nú helzt til mikill kristindómur”, sagði karlinn er prestur kvað það skyldu hans að elska ekki einungis náungan heldur einnig hana tengdamóður sína. Þótt ólíklegt væri hneigðist hugur mærinnar til Abrahams. Hún vildi samt ekki bregða eig- inorði við McNamar en hún fór fram á það við hann, að gefa sér upp loforðið. Þessi McNamar var fésýslumaður mikill og þótti harðdrægur í viðskiftum. Þar sem lítið fé var í húfi þótti hon- um ráðlegast að verða við til- mælum stúlkunnar svo nú var Anna laus úr þeim böndum. Nú tók Lincoln að temja kom- ur sínar til Rutledge og virtist húsfaðirinn ekkert því mótfall- inn. Alt bendir til að James Rut- ledge hafi verið óvenjulegur maður. Hann bar fult traust til Lincoln og viðurkendi hæfileika hans, manna fyrstur. Hann vissi að Abraham eyddi aldrei einni stund til ónýtis. Þegar lít- ið var að starfa í búðinni aflaði hann sér fróðleiks, og í atvinnu- eysinu gekk hann á skóla hjá sjálfum sér. Hann tók þátt í umræðum á málfundum og Rut- edge sagði að hinn ungi maður mælti meir af viti en allir aðrir til saman. Þótt mannfélag Vesturlandsins væri frumstætt, að ýmsu, höfðu menn þar meiri áhuga fyrir þjóðmálum en nú gerist og Sögu og Málafundafé- lagið sýnir ljóst að frumbyggj- arnir þráðu fróðleik og andlegar framfarir. Meðan Lincoln var kaupmaður gerðist hann póstafgreiðslumað- hann ýms fræðirit, leikrit Shake- speares og heimspeki þeirra Emersons og Paines. Undarleg- ur maður var þessi Thomas Paine. Margir kölluðu hann guðleysingja en það var hann þó reyndar ekki, þótt hann vé- fengdi ritningarnar. Hann var uppreisnarandi gegn hverskyns kúgun og þessvegna ílla séður af yfirvöldum og kirkju höfðingj- um. Hann ritaði bækling gegn brezka konungsvaldinu meðan Ameríka var ennþá ensk ný- lenda. Hann hlaut allgott em- bætti eftir frelsisstríðið en kom sér ekki við sína yfirboðara og hröklaðist frá. Hann hvarflar nú til Evrópu og átti fyrst heima á Englandi. Þar skrifaði hann bókina “The Right of Man”, og varð frægur fyrir. Eitt og hálf miljón upplög seldust en þá upp- götvuðu yfirvöldin alt í einu að bókin væri stór hættuleg og reyndu að gera hana upptæka. Nokkrir fóru í steininn fyrir að hafa hana í fórum sínum en Paine slapp úr höndum Breta til Frakklands. Þar varð hann þingmaður fyrir “Pas de Calais” kjördæmið og eini Ameríkaninn er nokkru sinni sat á þjóðþingi Frakka. Hann fylti flokk Gird- indina á byltingar árunum. Er Robespierre komst til valda lenti hann í fangelsi ásamt flokksbræðrum sínum. Þangað lá leið þeirra flestra út á högg- stokkinn en James M'Onroe, þá- verandi sendiherra Bandaríkj- anna í París fékk bjargað Paine, en valdsmennirnir í Ameríku, kunnu honum óþökk fyrir því þeir mundi ekki hafa harmað það sáran þótt þessi harðsvírugi byltingarmaður hefði verið gerð- ur höfðinu styttri yfir á Frakk- landi. Hérlendis eyddi hann samt ellidögunum og skrifaði sitt bezta og mesta ritverk “The Age of Reason”. Þessi rök- snjalli vitringur hafði djúptæk áhrif á Lincoln, enda þótt hann fylgdi honum ekki að öllu leiti í skoðunum. Lincoln las Paine í einrúmi, en á kvöldin var hann daglegur gestur í salarkynnum Rutledge fjölskyldunnar, þar sem fólkið skemti sér helst við sálmasöng. Abraham reyndi að komast í róm með önnu en tókst það sjaldan því hún söng vel en hann illa. Hann var ekki söngvinn að upplagi en hafði þó gaman af að hlýða á hlóðfæraslátt þótt aldrei lærði hann eina nótu. Þótt James Rutledge seldi brennivín var hann samt trú- rækinn og kirkjustólpi hinn mesti. Nú á tímum mundi hann löglega rækur úr mörgum söfn- uðum, því þar mega engir vín- salar eiga heima. Já, Kristur sjálfur mundi heldur ekki líðast í ótal kirkjum, bæði af því hann væri ekki nógu lúterskur, kal- vinskur eða kaþólskur og eins af því hann veitti vín til gleðskapar í Kanan. Annars voru skoðanir manna á bindindi nokkuð ein- kennilegar í þá tíð. Ein kirkjan í Salem vék Graham kennara úr söfnuðinum af því hann gekk 1 bindindisfélag og öðrum ná- unga fyrir ofdrykkju. Þetta kom Pat írlendingi til að leggja þessa spurningu fyrir safnaðar- ráðið: “Hvað mikið á kristinn maður að drekka af sterku rommi ?” Lincoln hneigðist talsvert til örlagatrúar enda gerðust margir óvæntir og undarlegir atburðir í lífi hans. Þegar neyð hans var stærst bauðst honum alt í einu vel launuð atvinna. Hann var kjörinn aðstoðar landmælinga- maður sýslunnar með þriggja dollara dagskaupi, sem þótti mikið, í þá tíð. Nú kunni Abra- ham ekkert í mælingafræði, en hann gat lagt á sig feikna erfiði ef þess gerðist þörf. Hann tók nú að lesa stærðfræði og land- mælingar reglur af þvílíku kappi að vinir hans óttuðust um heilsu hans enda léttist hann um þrjá- tíu pund við lesturinn. Eftir undra stuttan tíma stóðst hann próf í rúmfræði, þríhyrninga- fræði, kalkúlus, logariþm og öðrum galdrakúnstum hinnar hærri stærðfræði. Nú tók hann til starfa og fékk sér þá til að- stoðar: Kelso, sem drakk brenni- vín og þuldi Hamlet, Macbeth, stórviðrið, kaupmanninn í Fen- eyjum og fleiri af Shakespeares meistaraverkum, upp úr sér, og Berry hinn sífulla, er áður hafði verið verzlunarfélagi Abrahams í Nýju Salem. Þótti þetta all kátleg þrímenning því aðstoðar mennirnir voru æði oft ölvaðir en Abraham var altf alsgáður og tókst vel sitt verk. Hann mældi fyrir strætum í bæjum, brautum í sveitum og setti landamerki milli nágranna. — Aldrei var fundið að gerðum hans og ekki einu sinni þegar hann gerði bugðu á aðalstrætið í einu þorpi svo fátæk ekkja mætti vera í friði með húsið sitt. Meðan Lincoln var við mæling- arnar gisti hann oft á sveitar- heimilunum og þótti húsfreyj- unum hann aufúsu gestur því hann sagði börnunum sögur en hjálpaði þeim sjálfum við heim- ilisstörfin. Hann klauf brenni, bar þeim vatn, skók strokkinn og róaði börnin í svefn. “Já, sá er nú ekki stór upp á sig”, sögðu þær. Skuldheimtumennirnir eltu hann á röndum og angruðu hann með ýmsu móti. Þeir lögðu fjárhald á hest hans og verkfæri oftar en einu sinni, en þá komu altaf einhverjir til að leysa út eignir hans svo hann gat haldið áfram við starfið. “f dögg hjá Edens aldingrein- um sjást aldrei nema tveggja spor”. (Þ. E.) Og þessar leiðir liggja að síðustu saman í jafn- stígum, taktföstum framgangi lífsins hjá þeim sem unnast af hreinum hvötum. Anna Rut- ledge og Abraham Lincoln voru opinberlega trúlofuð, með fullu samþykki ættingja hennar. Heimurinn breyttist og lífið líka, fyrir augum elskhugans. Blómin voru fleiri og fegri þegar hann stikaði um víðan vang. Aldrei höfðu fuglarnir sungið eins yndislega. Það var sem náttúran hefði bætt nýjum strengjum í hörpu heimslífsins. Mjúkir, ljúfir, lágtónar hljóm- uðu frá jörðinni og endurómuðu í sálu hans. Hann sá lífið með hennar augum, með auðtrúa, hrekklausum átján ára ung- meyjar augum — og sjá, lífið var fagurt og harla gott. Öll þsesi jarðlífs fegurð var endur- speglun frá ásjónu skaparans. Guð faðir lifði og ríkti í veröld- inni, svo alt var í lagi á jörð- unni. Og mennirnir, eins og Anna Rutledge, voru guðsbörn og hlutu þessvegna að vera góð í sínu insta inni. Enginn maður er svo hamingjusamur, sem elskandinn, er nýtur ástar sinn- ar. Hann vex í eigin áliti. úr því hún, einmitt nú, ann honum, treystir honum, getur hann ekki verið óverðugur. Ástin bætir hann því hann skal ekki bregð- ast trausti hennar. Þetta er hin alfrjálsa, ósvikna ást og hið helgasta sakramenti jarðlífsins. Vígslur mannanna geta ekki gert hana helgari því guð sjálf- ur hefir vígt þá saman er saman eiga. Hún þarf ekki á fjötrum laganna að halda því lög náttúr- unnar hafa fléttað þær frumræt- ur saman er finna styrk og full- nægju í samvistinni. Það er trúa mín að mannkyninu lærist einhvertíma að frelsið er fyrsta skilyrði og æðstu lög lífsþrosk- ans. Abraham var sem í draumi en samt hafði hann aldrei verið betur vakandi. Sinaberar, harð- ar karlmanns krumlur luktu um litlar, mjúkar meyjar hendur og frá fíngerðum fingrum lagði hlýja styrkjandi strauma. Hið veika miðlaði hinu sterka af mætti sínum, mætti hins hreina,

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.