Heimskringla - 29.05.1940, Qupperneq 5
WINNIPEG, 29. MAÍ 1940
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
bréfum um æfina, oft. 50 á dag,
og fjallaði hann þar af skarp-
skygni um nýjar skáldsögur,
leikrit og kvæðasöfn. Hann hóf
að semja tvær skáldsögur, en
lauk hvorugri. Er hann átti
skamt eftir ólifað, samdi hann
leikrit, sem heillaði hug hans
gersamlega. Er það í frásögur
fært, að Nobel gekk með hand-
ritið að þessu leikriti í vasa
sínum og hóf jafnvel að lesa
kafla úr því upphátt, er hann sat
á mikilvægum verzlunarráð-
stefnum með ókunnugum mönn-
um. útgáfa leikritsins var fyr-
irhuguð, er Nobel andaðist, og
var það þá fullprentað. En ráð-
legast þótti að brenna upplagið,
að þrem eintökum undanskild-
um.
Til þess að forðast hina þjak-
andi einveru, hugðist Alfred
Nobel að staðfesta ráð sitt. Hann
talaði að vísu með kaldhæðni um
kvenfólk, en gladdist þó engu
að síður, ef kona gaf honum hýrt
auga. Oft lét hann þess getið,
að kvenfólkið mundi fremur
gangast fyrir fjármunum hans
en honum sjálfum.
Árið 1876 réð hann sér einka-
ritara. Fyrir valinu varð glæsi-
leg stúlka, þrítug að aldri. Hún
var greifadóttir frá Bæheimi og
hét Bertha Kinsky. Þau Nobel
og hún feldu hugi saman, en
áður en varði giftist Bertha ung-
um manni, baróni von Suttner.
Þau Suttner-hjónin störfuðu á
vegum Rauða krossins að hjúkr-
un særðra hermanna í styrjöld-
inni milli Rússa og Tyrkja. Þeg-
ar Bertha von Suttner kom heim
úr þessari styrjöld, var hún
gagntekin af þeim hörmungum,
sem hún hafði séð og skrifaði
fræga skáldsögu, þar sem hún
barðist eindregið gegn stríði.
Brátt varð hún heimskunn fyrir
áróður sinn í þágu friðarmál-
anna. Þau Nobel voru jafnan
bestu vinir, og leitaði frúin nú
liðsinnis hans til eflingar friði í
veröldinni. Nobel brosti og lét
þau orð falla, að gasið og morð-
tólin mundu reynast drýgri vopn
í friðarbaráttunni en rit og ræð-
ur barónsfrúarinnar og fylgis-
manna hennar. Hann leit svo á,
að hin ægilegu hernaðartæki
mundu skapa ótta við styrjaldir
og aftra stjórnmálamönnunum
frá því að siga fólki út á víg-
vellina. Hins vegar mun Nobel
hafa orðið snortinn af eldmóði
Berthu von Suttner, og er það
eignað áhrifum frá henni, að
hann ákvað að verja eignum
sínum, er námu nál. 9 miljónum
dollara, til friðarverðlauna. —
Seinna bætti hann inn í erfða-
skrána ákvæðum um stofnun vís-
inda- og bókmentaverðlauna. En
öll eru þessi verðlaun fræg orð-
in fyrir löngu, og þykir það ekki
einungis hinn mesti búhnykkur
heldur og mikill heiður að hljóta
þau.
Nobel hvarf frá París, er
Frakkar lögðu fæð á hann fyrir
það, að hann hafði selt ftölum
reyklaust púður, sem hann hafði
fundið upp. Voru samtímis sett-
ar skorður við starfsemi hans í
Frakklandi. Það, sem eftir var
æfinnar, dvaldist hann í San
Remo á ítalíu. Er Lúðvík, bróð-
ir hans, sem einnig var auðmað-
ur, lézt, héldu frakkneskir blaða-
menn, að Alfred Nobel væri lát-
inn og mintust hans alt annað en
vinsamlega. Henti Alfred hið
mesta gaman að ummælum
þeirra.
í San Remo fékst Alfred Nobel
einkum við að búa til gervi-
gúmmí og gervisilki. En brátt
tók hjarta hans að bila. Leitaði
hann þá til sérfræðinga í hjarta-
sjúkdómum. Sagt er, að Nobel
hafi hlegið dátt, er þeir ráðlögðu
honum nitroglycerin við hjarta-
sjúkdómi hans.
Alfred Nobel andaðist lö.
des. 1896. Með honum hné í val-
inn einn hinn mesti athafnamað-
ur, sem Norðurlönd hafa alið, og
einn af merkustu uppfyndinga-
wönnum 19. aldarinnar.
—Samtíðin.
FJÆR OG NÆR
Kiricjuþing
hins Sameinaða Kirkjufélags
íslendinga í Vesturheimi verður
haldið dagana 28. júní til 1. júlí
n. k. í Wynyard, Sask., sam-
kvæmt fundarsamþykt stjórnar-
hefndar kirkj ufélagsins, og eru
söfnuðir sem eru í kirkjufélag-
inu kvaddir til að senda fulltrúa1
á þingið, einn fyrir hverja fimtíu
safnaðarfélaga eða brot af þeirri
tölu. Einnig heldur Samband
íslenzkra frjálstrúar kvenfélaga
sitt þing á sama tíma og sama
stað. Auk þess mæta einnig á
þinginu fulltrúar fyrir hönd ung-
mennafélaga og sunnudaga-
skóla. Þingið verður nánar aug-
lýst síðar.
* * *
Stjórnarnefnd Sumarheimilis-
ins á Hnausum biður þess getið,
að fyrstu vikuna í júlí n. k. verð-
ur byrjað að starfrækja heimil-
ið. Þeir, sem hafa í hyggju að
færa sér það í nyt eru hér með
beðnir að snúa sér sem fyrst til
nefndarinnar, fyrir 20. júní.
Ennfremur æskir nefndin þess
ef svo stæði á, að einhver ís-
lenzk hjúkrunarkona eða kenn-
ari hefði tíma til að hjálpa til við
heimilið, þó ekki væri nema í
nokkra daga, að nefndin fengi þá
að vita um það sem fyrst.
í nefndinni eru undirrituð:
Mrs. P. S. Pálsson,
796 Banning St., Ph. 89 407
Mrs. B. E. Johnson,
1016 Dominion St., Ph. 38 515
Mrs. E. J. Melan,
Riverton, Man.
Mrs. S. E. Bjömsson,
Árborg, Man.
Rev. P. M. Pétursson,
640 Agnes St., Ph. 24163.
* * *
Lúterska prestakallið
í Vatnabygðum
Séra Carl J. Olson, B.A., B.D.
prestur.
Talsími: Central.
Heimili: Wynyard, Sask.
Guðsþjónustur 2. júní 1940:
Edfield, kl. 11 f. h.
Foam Lake, kl. 3. e. h.
Leslie, kl. 7.30 e. h. Ferming
og altarisganga.
Allir eru boðnir og velkomnir.
* * *
Við uppsögn sunnudagaskól-
ans í Fyrstu lútersku kirkjunni
sd. 19. þ. m. var góður gestur
staddur, Dr. Harriet G. McGraw
(Hrefna Finnbogadóttir) frá
North Platte, Neb. Hélt hún
stutta ræðu og óskaði sunnu-
dagaskólabörnunum til hamingju
Aðal ræðumaðurinn var Clifford
Dick, forstjóri Elim Chapel
sunnudagaskólans hér í borg-
inni.
Prestur safnaðarins, séra V. J.
Eylands, ávarpaði samkomuna.
Þar næst voru afhent skír-
teini og verðlaun til nemenda er
hafa sótt sunnudagaskólann for-
fallalaust á umliðnu skólaárþ
Sérstök verðlaun voru veitt
þremur nemendum er sótt hafa
skólann forfallalaust í síðast
liðin tíu ár, og verðlaunin voru
þrjú gull-úr. Eru nöfn þeirra
er verðlaunin hlutu sem hér
segir: Shirley Thordarson, Ruby
Westman, Theodósía ólafsson.
Samkomunni stjómaði Oliver
Björnsson, ráðsmaður Nesbitt-
Thompson Ltd., og afhenti hann
skírteinin og verðlaunin við
þetta tækifæri.
Mr. Björnsson er einn af okk-
ar yngri mönnum, vel þektur og
vinsæll athafna- og atorkumaður
í viðskifta og félagslífi okkar
fslendinga.
GULLBRÚÐKAUP 1
WYNARD
Amerískur prófessor, H. H.
Ninninger að nafni, hefir reikn-
að út, að daglega falli 50,000
smálestir af ryki til jarðar ofan
úr loftinu.
Ef ekkert rykfall væri, mundi
lífið afmást af jörðunni, vegna
þess að þá mundi aldrei rigna,
og alt vatn mundi þar af leiðandi
ganga til þurðar. Raki þéttist
utan um rykkorn í loftinu og
fellur til jarðar sem regh. f
hverjum regndropa er talsvert
ryk.
Gullbrúðkaup var haldið í
samkomusal íslenzku kírkjunn-
ar í Wynyard á hvítasunnudag
12. maí, — þann 10. maí höfðu
þau hjónin Jóhann Óli Björnsson
og Halldóra Guðjónsdóttir átt
fimtíu ára hjúskaparafmæli.
Vinir þeirra og sveitungar af-
réðu því að halda þeim samsæti
sem næst sjálfum brúðkaupsdeg"
inum. Mannfjöldi mikill var við-
staddur, og gömlu hjónin sómdu
sér vel 1 öndveginu. Bak við
sæti þeirra var smekklegur
blómabogi og að öðru leyti var
salurinn fagurlega prýddur. —
Þegar brúðhjónin höfðu verið
leidd til sætis, setti séra Jakob
Jónsson samkomuna og mintist
þess, að þau Halldóra og Óli
hefðu verið gefin saman af séral
Jóni Arasyni, er þá var prestur
að Þóroddsstöðum í Köldukinn í
Þingeyjarsýslu, en hjónavígslan
hefði fram farið í Ljósavatns-
kirkju. Var ein kona viðstödd
þá athöfn, af þeim, sem nú tóku
þátt í gullbrúðkaupinu, Mrs.
Kristrún Hall.
Ræðuna, sem séra Jón flutti
við hjónavígsluna fyrir fimtíu
árum, flutti séra Jakob nú aftur
yfir brúðhjónunum, ásamt bæn,
sem henni fylgdi. Var ræðan
falleg að efni og viturleg að
hugsun.
Að lestrinum loknum fóru til
skiftis fram söngur og ræðu-
höld, og voru allar ræðurnar
stuttar, en þeim fylgdi sá hlýi
andi, sem margra ára viðkynn-
ing við brúðhjónin hafði vakið
hjá sveitungum og samferða-
mönnum.
ólafur Ó. Magnússon mælti
fyrir minni brúðgumans, þakk-
aði honum meðal annars fyrir
alt það óeigingjarna erfiði, sem
hann hefði í mörg ár lagt á sig
fyrir Quill Lake-söfnuð, en for-
seti hans hefir Óli verið í mörg
ár.
Mrs. Sigurður Jónsson tal-
aði fyrir minni brúðarinnar. —
Fanst henni vel viðeigandi að
hafa samsæti henni til heiðurs á
mæðradaginn, því að hún ^hefði
þá skapgerð og það viðmót, sem
flestar mæður mundu kjósa sér
að hafa. Og á þeim tímum, sem
hugum manna væri svo mjög
beint að ófriði og æsingum, væri
það léttir og raunabót að vera í
námunda við fólk eins og Hall-
dóru, sem friður og ljúfmenska
stafaði frá öllum stundum.
Sigurður Jónsson afhenti
brúðhjónunum nokkra peninga-
upphæð að gjöf frá bygðarmönn-
um með nokkrum vel völdum
orðum.
Auk hinna fyrirfram ákveðnu
ræðumanna töluðu þeir Jóhannes
Einarssion frá Calder, Sask.,
frændi brúðgumans, Jón Jó-
hannsson og Gunnar Jóhanns-
son, sem allir mintust brúðhjón-
anna með hlýleik og virðingu.
Sönginn annaðist söngflokkur
íslenzku kirkjunnar. Auk brúð-
kaupssálmsins, sem sunginn var
í upphafi samsætisins, voru
sungin nokkur alkunn og vinsæl
vísnalög. Mrs. Sigríður Thor-
steinsson söng einsöng og Miss
Emily Axdal lék einleik á fiðlu,
með undirspili kennara síns,
Miss Russel.
Að loknum meginhluta skemti-
skrárinnar voru veitingar fram
bornar og kunnu menn vel við
sig við borðin. Spjallaði þá hver
við sinn sessunaut og var glatt
á hjalla.
Enn er þess ógetið, að tvær
litlar stúlkur færðu “afa og
ömmu” blóm í fagurri silfurskál,
fyrir hönd barna og barnabarna.
Kveðjur og heillaskeyti komu
frá fjarverandi börnum, tengda-
börnum og fleiri frændum og
vinum. Voru þær kveðjur lesnar
yfir borðum.
Þegar veizlunni hafði fram
farið um hríð, talaði gullbrúð-
guminn fyrir hönd þeirra hjóna
og þakkaði þá virðingu, sem
þeim hafði verið veitt. Var
ræða hans fram borin af hvort-
tveggj u í senn, fjöri og virðu-
leik. Munu þeir, sem á hlýddu,
hafa fundið, að þrátt fyrir ald-
ur sinn, ætti óli Björnsson enn
mikinn andlegan þrótt, og eru
menn jafnan auðugri af að hafa
heyrt orð manna, þó að fá séu,
flutt í þeim anda.
Það er ekki ætlun þess, sem
þessar línuri ritar, að skrífa
sögu þeirra óla og Halldóru. Þó
vildi eg láta í ljósi þá skoðun
mína, að sú saga mundi óefað
verða, ef rétt væri rituð, hin
merkilegasta saga. Ef til vill
hafa hinir ytri atburðir ekki
verið stórbrotnari en gengur og
gerist, þau hafa heldur ekki
verið meðal þeirra, sem hafa
safnað auði og metorðum. En
þau hafa átt það, sem betra er,
traust sveitunga sinna og virð-
ingu, skapgerð og viðmót, sem
á skilið aðdáun allra, og svo
opinn huga fyrir menningarleg-
um verðmætum, að þau eru við-
búnari vandamálum hinna nýrri
tíma, en margur, sem er yngri
að árum. Traust almennings
hefir meðal annars komið fram
í því, að í mörg ár var Óli kjör-
inn til þess að eiga sæti í sveit-
arráði bygðarinnar, og frá því
að Sambandssöfnuðurinn í Wyn-
yrad var stofnaður, hefir óli
verið einn af forystumönnum
hans, lengst af forseti, og hefir
verið látið svo um mælt af kunn-
ugum mönnum, að fáir eða engir
hafi unnið ósleitilegar að þeim
samtökum en hann. — Halldóra
kona hans hefir lítið látið á sér
bera út á við, en hún hefir yfir
sér þann tignarblæ rólyndis,
festu og prúðmensku, sem svo
oft 'hefir verið aðalsmerki ís-
lenzkra bændakvenna. Allir
sveitungar og vinir, nær og
fjær, óska þeim allra heilla og
hamingju í framtíðinni.
J. J.
hana þá bíll, sem var á vestur-
leið. Ætlaði bílstjórinn að Tara
fyrir aftan konuna, en hún sneri
skyndilega við, lenti hægra meg-
in á bifreiðinni og féll á götuna.
Var Guðbjörg flutt í Lands-
spítalann og kom þá í ljós, að
hryggurinn var brotinn. Mæn-
an mun þó ekki hafa skaddast.
—27. apríl.
* * *
Tveir bílar velta
utan við bæinn
Síðdegis í gær ultu tvær bif-
reiðar, vörubifreið og fólksbif-
reið, á veginum fyrir utan bæ-
inn. Skemdust þær báðar, sér-
staklega vörubifreiðin, en
meiðsli á farþegum urðu furðan-
lega lítil.
Vörubifreiðin valt á veginum
hjá Lágafelli. Voru tveir full-
orðnir í þessari bifreið og eitt
barn, 6—7 ára gamalt. Bifreið-
in fór alveg heila veltu á vegin-
um og stóð á hjólunum, er hún
staðnæmdist. Stýrishúsið möl-
brotnaði á bílnum, en fólkið, sem
í því var, slapp með furðanlega
lítil meiðsli.
Mun bílstjórinn skyndilega
hafa mist stjórn á bifreiðinni.
Þá valt fólksflutningabifreið
út af veginum milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavíkur. Mun þetta
hafa orðið í Kópavogi. — Bíllinn
varð fyrir allmiklum skemdum,
en meiðsli urðu engin.—27. apr.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
eftir Vísi
Vetrarvertíðin í Vestmanna-
eyjum hefir alveg brugðist
Afli er mjög tregur í Vest-
mannaeyjum, og eru menn að
verða úrkula vonar um að úr
rætist það sem eftir er vertíðar.
Gæftir hafa verið slæmar, og
er þar allhvast í dag og landlega,
en þó myndu bátar hafa róið, ef
einhver aflavon hefði verið.
Sumir bátar eru þegar hættir
við línu og net og teknir að und-
irbúa dragnótavéiðar. Hefir
þetta að öllu samanlögðu verið
einhver lélegasta vertíð, sem
komið hefir í Vestmannaeyjum
um langt skeið.—24. apr.
* * *
ólafur próf. Lárusson skipaður í
dómnefnd við háskólann í Oslo
Vísi barst sú fregn í gærkveldi
að lagadeild Oslóarháskóla hefði
nýlega snúið sér til Ólafs pró
fessors Lárussonar, og borið
fram við hann þá ósk, að hann
tæki sæti í dómnefnd, er dæma
skal við veitingu prófessors
embættis í germanskri og
norskri réttarsögu við Oslóárhá-
skóla.
Dómnefndina munu ennfrem
ur skipa prófessor frá Kaup-
mannahafnarháskóla, tveir pró-
fessorar norskir og einn norskur
hæ star éttar dómar i.
Er það háskóla vorum mikill
sómi að eiga fulltrúa í dómnefnd
þessari, og Ólafur prófessor
Lárusson er vel að heiðrinum
kominn, með því að hann er allra
manna fróðastur hér á landi í
germanskri og norskri réttar-
sögu. Réttarsögu vora hefir
hann ritað, og er það mikið vís-
indarit, unnið með hinni mestu
nákvæmni, og þá réttarsögu
kennir ólafur prófessor hér við
háskólann.—25. apríl
* * *
Bílslys
í gærmorgun um kl. 9 varð
bílslys innarlega á Laugavegi
og hryggbrotnaði kona ein, Guð-
björg ólafsdóttir, til heimilis á
Mjölnisvegi 44.
Slysið varð með þeim hætti,
að Guðbjörg var á leið yfir
Laugaveginn móts við nr. 139,
verzlunina Ásbyrgi, og nálgaðist
AMERICAN UNION OF
SWEDISH SINGERS
HOLD CONVENTION
IN WINNIPEG JUNE
15 AND 16
►4r notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO, LTD.
MrgSlr: Henry Av». Int
Síml 95 351—96 562
SkrUatofa:
Eknry Argyto
VERÐ - CLÆÐI . ÁNÆGJA
Sökum tímaleysis var ekki unt
að þýða þessa grein, af því hún
barst ‘oss svo seint í hendur.
Ritstj.
Fbr the first time in fís
history the northwestern branch
of the American Union of Swed-
ish singers will hold their con
vention outside of the bound-
aries of the United States, when
about 250 singers meet in Win-
nipeg with the local Swedish
Male Voice Choir as hosts.
The director-in-chief is the
well known musician and singer,
Mr. Ture W. Fredrickson of
Minneapolis choirmaster of the
Hennepin Ave. Methodist Epis-
copal Church in Minneapolis and
conductor of the Swedish Insti-
tute Chioir and the United
Choirs of the Twin Cities.
A splendid selection of songs
will be presented at the concert
to be held at the Auditorium on
Sunday, June 16th, at 3 p.m.
Among songs listed in the pro-
gramme are “Hear us, Svea,”
by G. Wennerberg, “March of
the Dalecarlians”, by I. Wideen,
“As the Torrent Wildly Roars”,
“King and Lord of All Creation”
by Otto Lindblad, “Our Land,
Our Land”, by J. A. Josephson,
“Sweden’s Flag” by Hugo Alf-
ven etc., and last but not least
the famous “A Peasant Wed-
ding”, by Aug Soderman, a song
cycle in four parts, “Wedding
March”, “In the Church”,
“Wishing Song”, “At the Bride’s
Home’* describing an old time
country wedding, and seldom
heard in all its four parts on
this side of the water. Miss
Elsie Sikkerbol, well known
Winnipeg pianist, will be the ac-
companist.
Among assisting artists at the
concert will be Miss Freda Sim-
onson, local concert pianist, oft-
en heard over the CBC network,
as well as other well known
artists.
At the banquet to be held at
the Marlborough Hotel Satur-
day night, June 15, at 5.30 p.m.
the choirs will sing individually
and the local Icelandic Male
Voice Choir as well as the Nor-
wegian Glee Club have been in-
vited to attend as guest ángers.
Over 350 visitors are expected
from the large Minnesota centres
who will arrive by special train
Saturday morning, and many
outside visitors from Canada as
well as adjacent points in Minne-
sota and North Dakota are ex-
pected.
The programme for the fes-
tivities will be as follows:
Saturday, June 15:
8.20 a.m.: Arrival at Union
Depot.
8.00 to 10.00 a.m.: Registra-
tion and breakfast.
10.00 to 1.00 p.m.: Shopping
tour.
11.00 a.m.: Convention.
3.00 p.m.: Entertainment for
visiting ladies.
3.00 p.m.: General Rehearsal
6.oo p.m.: Banquet.
Sunday, June 16:
8.00 a.m.: Veterans breakfast.
8.00 to 10.00 a.m.: Breakfast.
10.00 to 12.00: Drive through
City with visit at Assiniboine
Park.
3.00 p.m.: Concert at the Civic
Auditoruim.
6.45 p.m.: Departure of U. S.
visitors.
Our Icelandic friends are cor-
dially invited to take part in the
celebrations. In reference to the
Concert, being held on a Sunday,
no admission fee will be charged,
although a collection will be tak-
en up.
Information as to the various
details of the schedule of activi-
ties can be obtained through
Arthur A. Anderson, Phone
24 266, address rooms 16, 17
Home Investment Bldg.
fslendingar!
Þér sem eruð bókamenn og
bókavinir! Munið eftir því, að
þér aukið þægindi yðar, og
prýðið alt í kring um yður, með
því, að láta binda og gylla bækur
yðar. Þá þurfið þér ekki annað,
en að renna augunum yfir kjöl-
inn á bókunum, til þess að finna
bókina, sem þér þurfið á að
halda. Sendið því bækur yðar,
sem fyrst, í band eða viðgerð,
til Davíðs Björnssonar að
“Heimskringlu”. — Stafirnir
þryktir í gull eða silfur á kjöl-
inn, eftir því sem óskað er. —
Miklu efni úr að velja í mörgum
litum. Verkið vel af hendi leyst.
With Shampoo
& Finger Wave
Complete
AMAZING VALUE
--Greatest Advertising Offer Ever Made-
A GUARANTEED SCIENTIFIC PUSH UP
Permanent <
wave 95 ____
This Offer Is Made by the Scientific as an Advertislng Special.
N’ever Before Such Values. Beautiful, Lasting, Permanent Waves.
Phone 24 862
SCIENTIFIC BEAUTY CULTURE
612 PoWer Bldg., Portage Ave. & Vaughan St., Winnipeg
Winnipeg’s Largest, Most Keliable, Best Equlpped Beauty Salon