Heimskringla - 31.07.1940, Síða 5
WINNIPEG, 31. JÚLf 1940
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
staklega vekja athygli fulltrú-
anna á helgisiðamálinu, sem
væntanlega verður lagt fram af
nefnd þeirri, sem skipuð var til
að undirbúa það. Það mál þarfn-
ast rækilegrar íhugunar. Eg
býst ekki við að allir verði á eitt
sáttir um það, og eg geri heldur
ekki ráð fyrir, að unt verði að
finna nokkurt form fyrir guðs-
þjónustu-athafnir, sem á alls
staðar við. En flestir munu
sammála um, að það beri að gera
þær athafnir eins hátíðlegar og
framast er unt, án þess að taka
upp nokkuð það, sem er of vand-
farið með, eða sem fólki, sem
vant er einföldum kirkjusiðum,
mundi ekki geðjast að. Náttúr-
lega verður að haga guðsþjón-
ustu-athöfninni þar, sem mjög
litlir söngkraftar eru fyrir hendi,
öðru vísi en þar, sem hægt er að'
hafa stóra og vel æfða söng-
flokka.
Eg drap á það í upphafi þessa
máls, að útlitið væri nú þannig,
að menn horfðu órólegir og
kvíðnir fram í tímann. En minn-
umst þess nú, að aldrei reynir
eins mikið á siðferðisþrek manna
eins og þegar einhverjir óvenju-
legir erfiðleikar eru fyrir hendi.
Það fer ekki hjá því, að alþjóð
manna hér verður í náinni fram-
tíð að leggja meira á sig en nokk-
urn tíma fyr í baráttunni fyrir
frelsi og mannréttindum og við-
haldi þeirra í heiminum. Ef sú
barátta vinst ekki, glatast öll
þau verðmæti, sem hingað til
hafa verið talin hæst meðal sið-
aðs fólks. Engin stofnun mann-
félagsins getur unnið jafn mikið
að því að efla siðferðilegt þrek
á hættutímum, eins og þeim, sem
nú standa yfir, eins og frjáls
kirkja, kirkja, sem er óheft af
venjum og úreltum trúarskoðun-
um. Vor kirkja, þó hún sé smá,
er slík stofnun. Ef vér veitum
henni öflugan stuðning, þá getur
hún haft mikil áhrif til góðs,
I áhrif, sem verða varanleg í hugs-
unarhætti og lífi þjóðarinnar
! langt fram í ókomna tíma.
Að svo mæltu segi eg þetta
átjánda ársþing kirkjufélags
vors sett og bið yður að taka til
starfa.
G. A.
UM SKRÁNINGUNA
Rjóma Framleiðendur!
Sendið rjóma yðar til
NORTH STAR
CO-OPERATIVE CREAMERY
Þar sem þér fáið bezta afgreiðslu
og bezta verðið fyrir rjóma yðar.
VÉR GÆTUM HAGSMUNA YÐAR,
OG SÍÐAN 1907 HÖFUM VÉR
S P A R A Ð FRAMLEIÐENDUM
ÞESSA HÉRAÐS ÞÚSUNDIR
DOLLARA.
HEILLAÓSKIR TIL ALLRA ISLENDINGA
North Star Co-operative
Creamery Ass’n Ltd.
ARBORG MANITOBA
THE
DOMINION
BANK
Stofnsettur 1871
Dálítið af peningum á banka, kemur sér oít vel.
pað er gott ráð til sparnaðar, að opna reikning hjá
þessum banka og byrja í hvað smáum stíl sem er að
leggja inn peninga.
Vér seljum bankaávísanir og fcrðamannaávísanir
og ávísum peningum með símskeyti eða pósti til hvaða
lands sem er, á lægsta verði sem mögulegt er.
Leigið öryggiskassa hjá oss; það kostar mjög lítið.
skrifið oss eða einhverju útbúi voru eða heimsækið.
WINNIPEG ÚTBÚ:
Main Office—Main Street and McDermot Avenue
I
Main St. and Redwood Ave.
North End Branch—Main St. near C.P.R. Station
Notre Dame Ave. and Sherbrook St.
Portage Ave. and Kennedy St.
Portage Ave. and Sherbrook St.
and
SELKIRK, MANITOBA
Frh. frá 1. bls.
hvað það er. Ef fötlunin er ó-
bætandi, hafið þér eftirlaun fyr-
ir: þjónustu í her, frá Work-
men’s Compensation Board; elli-
styrk, blindrastyrk, eða styrk
frá nokkurri annari stofnun.
13. Eðli starfs þíns: (a) Eru
þér vinnuveitandi? í hverju er
starf yðar fólgið? (b) Vinnið
þér aðeins sjálfur án verka-
manna? Takið fram hvert starf-
ið er. (c) Eruð þér verkamaður?
Hafið þér stöðuga atvinnu? Eruð
þér atvinnulaus. (d) Hafið þér
eftirlaun, er fyrir yður séð af
öðrum, eruð þér seztur í helgan
stein, eruð þér efnalega sjálf-
stæður?
14. Störf: Gefið upplýsingar
um hvaða reynslu þér hafið: (a)
f núverandi stöðu; (b) Um hver
stöðug atvinna yðar er; (c)
Hvaða annað starf getið þér gert
vel; (d) Ef verkamaður, hver er
vinnuveitandi yðar; gef nafn
hans og áritun, hver vinnan er og
hvar hún er. (e) Ef þér hafið
góða þekkingu eða æfingu í ein-
hverri iðnaðargrein og eruð á-
gætur verkamaður í henni, segið
hver hún er, hvað þér hafið sér-
staka stund lagt á og í hverju þér
hafið mesta leikni og kunnáttu,
15. Atvinnuleysi: (a) Hve
margar vikur unnuð þér s. 1.
12 mánuði? (b) Ef atvinnulaus
nú, segið hvað margar vikur séu,
síðan þér höfðuð atvinnu aðra en
þá, er áhrærir atvinnubótavinnu
stjórna (relief); (c) Eruð þér
með öllu óhæfur til vinnu?
Fyrir karlmenn einungis.
Þessum spurningum svara ein-
ungis karlmenn:
16. (al) Eruð þér alinn upp á
sveitaheimili? (a2) Þar til hve
gamall? (bl) Hafið þér unnið
hjá bændum? (b2) Hvað lengi?
(b3) f hvaða fylki eða landi?
(cl)Getið þér stjórnað hestum?
(2) Stjórnað dráttvagni? (c3)
Notað búnaðaráhöld? (c4) Getið
þér mjólkað kýr? (c5) Getið þér
unnið önnur störf á búinu?
17. Er nokkur sérstök iðja,
sem yður fýsti áð læra?
18. Herþjónusta:
1. Hafið þér áður verið í land-,
loft- eða sjóher? Ef svo er,
hvar: (a) í hvaða landi, (b) Á
hvaða tíma (gef hér um bil tím-
ann), (c) í hvaða liðsdeild, (d)
f hvaða stöðu.
2. Ef hættur vinnu, gef ástæðu
fyrir því.
3. Hafið þér verið skoðaður
ófær til herþjónustu í þessu
stríði: (a) Hversvegna? (b)
Hvar?
Einungis fyrir konur
Aðeins kvenþjóðin svarar eft-
irfarandi spurningum:
16. Hve lengi og hvaða reynslu
hafið þér í vinnu; (a) Á sveita-
heimili; (b) í að fara með drátt-
vélar; (c) í ávaxtarækt; (d)
Hænsnarækt, (e) Mjólkurbús-
rekstri; (f) viðskiftarekstri?
17. Getið þér (a) Stýrt hestum;
(b) Ekið mótor-vagni; (c)
Stjórnað bíl; (d) Stjórnað drátt-
vél; (e) Farið með búnaðar á-
höld; (f) Mjólkað kýr; (g) Eld-
að algengan mat?
18. Lýsið hér hverju sem ekki
er minst á, en þér hafið hæfileik
eða reynslu í að framkvæma.
19. Eru ástæður yðar þær, að
þér getið veitt þjónustu yðar í
yfirstandandi hættu, óg farið frá
stöðu áðar nú, og tekið aðra, við
yðar hæfi: (a) Þar sem því er
komið við, að þér farið heim á
hverju kvöldi, (b) Eða verðið að
heiman?
Þegar þessum spurningum
hefir verið svarað afhendir
stjórnin, eða fulltrúar hepnar
einum og sérhverjum bréfspjald,
sem ætlast mun til að menn beri
á sér og sýni, ef krafist er, eins
og bílstjórar ökuleyfi sitt, ef um
er beðið.
Á miklu ríður, að hver einasti
maður eða kona láti skrásetja
sig. Stórsekt liggur við, ef út af
því ber, eða vanrækt er.
HEILSAÐ YINUM
AÐ YESTAN
Þið komuð heim um hafið
að heilsa föðurlandi,
sem bíður vori vafið,
sem veit þótt börn þess standi
í frjómold vestra fótum,
við fagurlim og gæðin,
á feðragrund og — grjótum
ei gleymast vöggustæðin.
Við lága burstabæinn
eru bundin æskusporin,
þótt hugur héldi á sæinn
er hækkaði sól á vorin.
Þið gistuð góðar strendur
og grófuð pund úr jörðu
en áttuð óskalendur
í ættarlandi hörðu.
Við heilsum ykkur heilum,
með hugarþökk og gleði.
Við ástum fslands deilum,
af alúð blöndum geði.
f framtíð fast við strengjum
um flæði vinaböndin. —
Heill ykkur ýtru drengjum
sem elskið bæði löndin!
28. maí 1940.
Á. G. Eylands
-Freyr.
RÁÐGÁTUR
Enginn maður þagnar þraut
Þolin — né mun trúa:
Hvernig lokum lagða braut
Leynimálin smjúga.
Misjöfn reynast mörkin á
Margra dygða — vinum —
skáldin jafnan skynja—sjá:
Skynbragðið á hinum.
/. /. N.
-20—-7—40
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og f jölbreyttasta
íslenzka vikublaðið
BLUEN0SE
COTTON AND LINEN
FISHING TWINES & NETS
MADE IN CANADA FOR
CANADIAN WATERS
DRUMMONDVILLE COTTON
COMPANY LIMITED
Head Ofíice—754 Victoria Sq., Montreal
Winnipeg Office—55 Arthur St.—Phone 21 020
Vasabók með mynd, korti af
landnemalendingunni á Gimli,
bréfum og ýmsu fleiru hefir
fundist og getur eigandi hennar
fengið upplýsingar um hvar bók-
in er hjá:
Davíð Bjömsson,
Heimskringlu
Til ALLRA MEÐLIMA og TILVONANDI MEÐLIMA
Lake Manitoba Fish Packers
and Producers Association
ARSFUNDAR TILKYNNING
DAGUR: Þriðjudag 6. ágúst 1940
STUND: Kl. 2 e. h. stundvíslega.
STAÐUR: McLaren Hotel, Rupert and Main, Winnipeg
Allir fiskimenn og fiskiútgerðarmenn eru boðnir og vel-
komnir að koma og gerast félagar á þessum fundi.
Barney Eggertsson, Vogar, Man., forseti
Hugh L. Hannesson, ritari
Vér árnum Islendingum til hamingju með
þennan sinn 51sta hátíðis afmælisdag
NEAL BROS.
Eigendur NEALS STORES
og NEALS heildsöluverzlana
Seljið
framleiðslu
yðar yfir SIMA
FLYTJIÐ Vörurnar-
eftir samtal
við markaðinn
Yður mun finnast það borga sig
vel, að vita hvað daglega gerist
á markaðinum. . . . Sími getur
sparað margar ferðir í bæinn—
kallið fyrst upp markaðinn og
vitið hvort verðið er eins og á að
vera—sendið þá vöruna.
Verið ekki án síma