Heimskringla - 29.01.1941, Qupperneq 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
‘The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 39 017
Í ALWAYS ASK FOR—
| “Butter-Nut
! Bread”
; The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
1
LV. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 29. JANÚAR 1941
NÚMER 18.
4' HELZTU FRETTIR - -
^rá Rúmaníu
Byltingin í Rúmaniu hefir
hú, eftir fráttum að dæma,
verið stöðvuð. Að hún hafi
Verið meiri og alvarlegri en úr
hefir verið gert, er ekki vafi á.
í Búkarest einni, höfuðborg-
mni, hafa verið husluð full
2000 lík eftir uppþotið. Það
hiun um skeið hafa litið svo út,
Sem byltingamenn ætluðu að
sigra. Þeir voru ein 30,000 að
tölu og höfðu margar borgir í
ftúmaníu orðið á valdi sínu. En
her nazista, sem þarna er ann-
aðhvort að bíða eftir því að
stökkva á Grikki, eða til að fá
sér að éta, kom stjórn Anton-
eseu til bjargar. Fyrir honum
hrukku uppreistarmenn og eru
pú annað hvort úr sögunni eða
i felum uppi í fjöllum.
Á byltingu þessari stóð þann-
að rúmenski herinn (The
Iron Guards), þoldi ekki yfir-
S&ng nazista hersins í Rúman-
lu- Almenningi hefir auðvitað
einnig verið ofboðið með þv. En
stjórn Ion Antonescu reyndi að
^hiðla málum til að afstýra
stríði. Fyrir þetta reis hans
eigin her upp á móti honum.
Byrjun þessarar sögu er
skrítin. Þjóðverjar mynda á
laun þennan landvarnarflokk
Búmaniu, í því einu skyni að
steypa Carol konungi og stjórn
hans. Það var gert til þess að
únaga úr áhrifum Breta í land-
lnu. Þetta hepnast nazistum
með þessum landvarnarflokki,
rUmensku nazistunum. Og þá
kusu þeir Antonescu til að
stjórna. En nú rísa þesir ná-
Ungar upp á móti sinni stjórn
°S þýzkum nazisma, sem þeir
Unnu áður að, að gróðursetja í
^úmaníu. Nazisminn er ekki
1 raun og veru það sem hann
Var sagður að vera. Það sáu
heir nú og voru búnir að kenna
u og ætluðu að bylta honum af
Ser- En það var nú um seinan;
sJálfra þeirra býður nú öxin
e^a að flýja land. Að baki upp-
reistarflokkinum er sagt að
staðið hafi Horia Sima, aðstoð-
arforsætisráðherra í Rúmaníu.
■^tla menn hann hafast við á
laun uppi í fjöllum, með leifar
úppreistar-hersins. Það hefir
úla borgað sig fyrir þessa
menn að svíkja land sitt og
hjóð og gerast sprautur Hitlers.
Tyrkir hvergi smeykir
Um miðja síðast liðna viku,
:Gt stjórnarformaður Tyrkja,
úönu, það mjög ákveðið í ljós
1 útvarpsræðu, að ef Hitler
héldi ijneð her sinn inn í Búl-
fúnu, yrði Tyrkjum að mæta.
Áyað hann mikið af her Tyrk-
junds nú kominn til Þrakíu og
íða þar átekta.
Menn hafa lengi óttast, að
Bitler mundi á þennan hátt
feyna að koma Mussolini til
íargar í Grikklandi. Það hefir
ekki verið sjáanlegt, hvað hann
meinar annað með því að hrúga
Sv° miklu herliði til Rúmaníu
Sem raun er á.
Stígi Hitler fæti inn í Búl-
fariu, munu öll Balkan-löndin
efjast handa og standa á móti
j • (Balkan-löndin eru Tyrk-
únd, Grikkland, Júgóslavía og
úlgaría). Til samans hefðu
á að skipa. Hann verður að
hafa nokkurt lið í Rúmaníu til
að halda öllu þar í skefjum.
Og reyni Hitler að ná í Bret-
ann með því að fara yfir Tyrk-
land, getur hann reitt sig á að
við berjumst. Tyrkir missa
ekki móðinn við að frétta um
að Hitler og Mussolini eigi
fundi með sér á ónefndum stöð-
um upp í Alpafjöllum. Þeir
verða að koma nær oss en það.
Við börðumst á 8 vígvöllum í
síðasta stríði. Á einum yrði
það ekki erfiðara. Annars er-
um vér ekki farnir að sjá það,
að Hitler fýsi að draga Tyrk-
land og Júgóslavíu inn í þetta
stríð. Það væri óðs manns æði
af honum. En hann um það.
Við erum að auka mikið út-
flutning á nautpeningi og
hveiti til Grikklands, auk ann-
ars, sem þá vanhagar mest
um.”
ToÍiruk fallin
hau
úm 100 hersveitir, segir
S0etisráðherrann, og í ofan-
fluglið Breta.
^ann bætir við:
t apríl getur Hitler í mesta
agi haft þarna 16 herdeildum
Tobruk, næsta stórborgin við
Bardía, í Libyu, gafst upp s. 1.
miðvikudag. Um 30,000 manns
var í borginni. Voru 14,000
teknir fangar. Er ætlað að
110,000 ítalskir hermenn hafi
nú alls verið herteknir í Afríku.
Einar 200 byssur af öllum teg-
undum og urmul skriðdreka,
mótorhjóla og vagna komust
Bretar þarna yfir.
Er þvi nú spáð, að í Afriku
fari að þverra mótstaða ítala,
nema því að eins að Hitler
reyni að koma flugher sínum
suður. En ekki virðast Bretar
mjög bángnir út af því; þeir
segja það dreifa flugher Hitl-
ers. Egyptar fagna þessum
sigri Breta og telja víst að í
apríl í vor verði borgirnar
Derna og Bengasi komnar í
hendur Breta og með því öll
Libya.
1 Eritrea eru Bretar komnir
lum 80 mílur inn í landið að
J vestan. ítalir eru einnig þar á
i flótta.
I
Hepburn vill láta prenta
480 miljón dollara
Eitt af því sem Hepburn, for-
sætisráðherra Canada hreyfði
á ráðherra fundinum í Ottawa,
var að stjórnin gæfi sjálf út 480
miljón dollara í peningum í við-
bót við það sem nú er gert.
Kvað hann ekkert betra ráð til
að bæta hag landsins. Hann
sagði auðsuppsprettur nægar
til að vinna, mannafla nógan,
en féð skorti, vegna þess að
lánfélög og bankar settu ofháa
vexti á lánin. Þessvegna stæði
nú hnífurinn í kúnni fyrir sam-
bandsstjórn með alt hennar
herstarf, að hún vildi ekki gera
það peningavaldinu á móti, að
hafa þennan gróða af því.
Út af þessu standa nú öðru
hvoru napuryrði í blöðunum
milli Hepburns og Mr. Usley,
fjármálaráðherra sambands-
stjórnar. Telur Mr. Usley þetta
verðfall á peningum í Canada
sem af þessu leiði, verða vatn
á myllu óvinaþjóðanna, en Mr.
Hepburn svarar með því að
ekkert hafi fært óvinunum
meiri sálarfrið en að King-
stjórnin skyldi vera við völd er
stríðið skall á og sé það enn!
Að öðru leyti styður Hep-
burn mál sitt með því, að verð-
fall verði ekki á peningum fyr-
ir þetta, því nýjar athafnir hafi
skapast með stríðinu, er meira
en bæti upp viðbót þessa veltu-
fjár landsins.
Hitler giftur Júðakvinnu?
I British Calumbia er maður,
George Kluck að nafni, er held-
ur því fastlega fram, að Hitler
hafi eitt sinn verið giftur konu
af Gyðingaættum. Hann segir
konuna hafa verið frá Wos-
ciska í Galizíu. — Kluck er
Úkraini og æfði Hitler, er hann
var kallaður í herþjónustu
1905. j
Hitler segir hann hafa verið
skapillan og seinan að nema.
Samt hefði hann orðið korpór-
al. Audre Kluck, frændi
George, er á skóla gekk með
Hitler, sagðist hafa með eigin
augum séð 1924, konu Hitlers
á lífi. Hann heldur og fram,
að Hitler sjálfur sé af Gyðing-
um kominn og þurfi ekki langt
að rekja ætt hans til hreinna
Gyðinga.
Þessi Kluck kom til Canada
eftir stríðið, var um skeið tré-
smiður í Winnipeg, en stjórnar
nú verkstæði, er þakspón fram-
leiðir.
Bandaríkin hafa afnumið
bannið á sölu á flugvélum til
Rúslands. Það var löggilt, er
Rússar börðust móti Finnum.
Þetta er talið vináttuvottur
meira en nokkuð annað, því
flugför þau er Bandaríkin geta
framleitt og verið án, eru pönt-
uð af Bretum. Hitt er vís£, að
bæði Bretar og Bandaríkja-
menn hafa verið að reyna að
vinna vináttu Rússa um langt
skeið.
* * *
Það er nú enginn draumur,
að Hitler er búinn að senda
nokkurt fluglið til Italíu og Al-
baníu til aðstoðar Mussolini.
En betur má ef duga skal segja
Bretar, því þeir segjast geta
haft nægan flugflota að taka á
móti Hitler á Miðjarðarhafinu,
án þess að saki vörnina heima
fyrir. Öxul-fóstbræðurnir gerðu
harðar árásir á eyjuna Malta,
við suðurodda ítalíu í þrjá
daga nýlega, en unnu sama og
ekkert á. En 39 flugskip þeirra
voru skotin niður. Menn efast
um að Hitler hafist mikið að
fyrri en með vorinu.
* * *
Wendell L. Willkie lagði af
stað í flugvél frá New York til
Englands s. 1. miðvikudag. —
Hann fór að sjá sig um á Eng-
landi og finna Churchill, að
sagt er og í fullu umboði Roose-
velts forseta. Willkie hefir
lýst yfir fullu fylgi við her-
málastefnu Roosevelts og er
með aðstoðinni til Breta. Hann
hefir lagt ágreiningsmálin í
kosningunum síðustu á hilluna,
sem er ærlegt og sýnir vel ein-
kenni vestræns frelsis. 1 blöð-
um s. 1. mánudag, sagði það af
ferð Willkies, að hann ætlaði
að heimsækja Eire. Geta menn
sér til að hann hafi ætlað að
tala við DeValera um stríðs-
málin og þörf Breta á flugstóð
á Suður-frlandi.
* * *
Morgenthau, fjármálaritari
Bandaríkjanna, sagði í efrimál-
stofu þingsins í gær, að Bret-
land, Grikkland og Kina gætu
ekki haldið áfram að berjast,
ef þau fengju ekki vopn frá
Bandarikjunum. Hann mintist
á að 2000 flugvélar, sem Bret-
um hefðu verið ætlaðar, væru
ekki sendar af því peningarnir
kæmu ekki fyrst fyrir þær.
Einn senatorinn (Conally,
demókrat frá Texas) spurði,
hvort satt væri, að Bandaríkin
hefðu ekkert enn gert fyrir
stríðið og hvort Bretar hefðu
greitt í peningum fyrir alt sem
þeir hefðu fengið til þessa
dags. Morenthau svaraði ekki
spurningunni. Hélt þá Connally
áfram: “Sannleikurinn er, að
Bandaríkin eru ekki að veita
Bretum neina hjálp í stríðinu.
Verksmiðjuhöldar vorir selja
Bretum alt sem þeim er sent
með fullum hagnaði eða
gróða.”
“Þetta er hið sanna”, sagði
Morgenthau.
Eg veit það,” sagði Connal-
ly. “Þeir eru margir, sem álíta
aðstoð til Breta fólgna í þessu
einu en ekki öðru.
* * *
Rodolfo Graziani, yfirhers-
höfðingi ítala í Libyu, kvað
hafa verið rekinn frá stöðu
sinni. Eftir fyrstu ófarir Itala
við Sidi Barrani, kvartaði
Graziani undan því við ítölsku
stjórnina, að herinn hefði engin
nútíðar vopn og hermennirnir
hefðu ekki einu sinni stál húf-
ur á höfðinu. Stjórnin reiddist
þessu ofan á ófarirnar. Því er
Graziani nú léttvægur fundinn.
* * *
í Albaníu hafa veður dálítið
skánað og er meira hafst að í
stríðinu vegna þess en áður.
ítalir hafa þar nú orðið mikið
af skriðdrekum og flugliði, er
flýgur með jörðu og gerir
Grikkjum óskunda. Samt er
heldur um sókn að ræða af
Grikkja hálfu. En Italir eru að
gera hvert varnarvirkið fyrir
aftan annað og ætla sjáanlega
ekki að láta hrekja sig lengra.
Segja þeir öftustu virkin bezt
og þaðan verði sótt að Grikkj-
um, er timar líði.
Þórhallur Ásgeirsson
tlR SUÐRINU
(Fréttamolar)
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Frézt hefir að Þórhallur Ás-
geirsson, sonur Ásgeirs Ás-
geirssonar fyrverandi forsætis-
ráðherra íslands, hafi verið
ráðinn til að halda ræðu á
Frónsmótinu 25. febrúar í Win-
nipeg. Hann er í Minneapolis
í vetur við nám. Ræðu hélt
hann þar á ensku um ísland og
þótti mönnum mikið til hennar
koma. Hann hlakkar til að
sjá Winnipeg-lslendinga og
mun dvelja fjóra daga hér
nyrðra.
Þá hefir heyrst, að Chicago-
íslendingar haldi goðablót sitt
föstudaginn 7. febrúar. Höfum
vér fyrir satt, að Thor Thors
frá New York flytji þar ræðu.
Þetta mun vera árs-samkoma
Vísis. Hún er haldin í norska
klúbbnum vlð Kedzie Boule-
vard í Chicago.
Eitt sem lesendum Heims-
kringlu kann að þykja einhver
frétt í, er að Vilhjálmur Stef-
ánsson, sem nú er á fyrirlestra-
ferð um landið, flytur ræðu á
samkomu í Minnesota-háskóla
fimtudaginn 6. febrúar, kl.
11.30 f. h. Klukkustundin er
tekin fram af því, að ræðum
við þetta tækifæri verður út-
varpað yfir WLB stöðina;
bylgjulengd er 760. Þó stöð
þessi sé ekki nema 5000 vatta,
er mér kunnugt um að heyrst
hefir vel frá henni til Winni-
peg. Svo var t. d. um söng
kvennakórsins hér 4. des. er
söng undir stjórn Hjartar Lár-
usson. Þessi stöð er oft tengd
KSTP stöðinni, sem Valdimar
Björnsson flytur fréttir frá^kl.
9.30 á hverjum morgni. Þessa
er hér getið ef Islendingar
skyldu vilja reyna að ná í þess-
ar fréttir.
Vilhjálmur Stefánsson skrif-
aði forsætisráðherra Macken-
zie King út af greininni í
“Time” um íslendinga um leið
og hún birtist. Hann benti á
hve mikið væri undir því kom-
ið á þessum tímum, að vinátta
væri góð milli Canada og ís-
lands og taldi rétt, að krafist
væri, að Canada-menn væru
ekki bornir fyrir óhróðri í
Bandaríkjablöðum um Island.
Hann benti og á að forsætis-
ráðherra gæti fengið fullkomn-
ar upplýsingar um fsland frá
íslenzka þingmanninum Joseph
Thorson. “Time’L skrifaði
hann einnig. Það hafa einnig
gert, auk þeirra, sem áður hefir
verið getið um Valdimar
Björnsson í Minneapolis og
Thor Thors í New York. Bréf
Mr. Thors var 5 vélritaðar síð-
ur og fróðlegt fyrir ritstjóra
“Time” um ísland og íslend-
inga. Hann svaraði og bréf-
inu, er “Time” reit honum og
hélt sér við kröfu sína um birt-
ingu einhverra leiðréttinganna,
serrv ritinu hefði borist út af
greininni um fsland. “Time”
fer að verða þetta minnisstætt.
Þetta atvik
kom fyrir í strætisvagni ný-
lega: Brezkur hermaður var að
fara út úr vagninum við eitt af
íbúðarþorpum hersins. Um leið
og hann steig út úr vagninum
sagði hann brosandi til þeirra
er í vagninum voru, en hann
var þéttsetinn fólki: “Góða nót
aller skrokkar.” Þessi kveðja
kom mönnum mjög á óvart, en
er þeir skyldu að hermaðurinn
var að bjóða góða nótt, tóku
þeir brosandi undir. (Englend-
ingar segja “Good night every-
body.” —: Góða nótt allir;
every: allir — body: líkami, og
þá líka kroppur, skrokkur!)
—Alþbl. 19. nóv.
* * *
Á 15. hundrað manns við
vígslu Akureyrarkirkju
Hin nýja kirkja á Akureyri
var vígð síðastliðinn sunnudag
með mikilli viðhöfn. Biskup
landsins, herra Sigurgeir Sig-
urðsson, framkvæmdi vígsluna.
Auk biskukpanna tveggja
voru viðstaddir vígsluna 10
prestar og á fimtánda hundrað
manns.
Hófst athöfnin kl. 12.30 í
gömlu kirkjunni. Var gengið
þaðan í skrúðgöngu til nýju
kirkjunnar. Biskup flutti
vígsluræðuna, en Friðrik J.
Rafnar flutti prédikun. Kan-
tötukór Akureyrar söng.
Um kvöldið var samsæti að
Hótel Gullfoss fyrir forgöngu
sóknarnefndar og Kvenfélaga
Akureyrar. Sátu hófið um 70
manns.—Alþbl. 19. nóv.
* * *
Bandalag ísl. skáta fœr
jörðina Úlfljótsvatn
Samþykt var á bæjarstjórn-
arfundi í gær, að heimila raf
magnsstjóra að leigja Banda
lagi ísl. skáta jörðina Úlfljóts-
vatn, í samræði við borgar-
stjóra.
Var ekki minst á það í tillög-
unni, að skátar þyrftu að greiða
neina leigu fyrir jörðina. Vildi
Haraldur Guðmundsson að
þeim yrðu einhver skilyrði sett
um jarðabætur, er samsvöruðu
leigunni. En ekki bar hann
fram beina tillögu um það.
En að Skátar hafa hug á að
leigja þessa jörð, er í sambandi
við það, að þeir ætla að reka
þar búskap, með þeim hætti,
að félagsmenn skátafélaganna
geti þar kynst sveitavinnu, um
styttri eða lengri tima, lært al-
geng ræktunarstörf og fengið
af því bæði andlega og líkam-
lega hollustu. Er hér um
merkilegt uppeldismál að ræða.
—Mbl. 6. des.
* * *
Fangabúðir í Noregi
Norska fréttastofan í London
skýrði frá því í gær, að Ruge
yfirhershöfðingi Norðmanna
hefði verið settur í fangabúðir
í Þýzkalandi.
í fregn frá London er skýrt
frá því, að það hafi nú verið
opinberlega viðurkent í Oslo,
að fangabúðir hefðu verið sett-
ar upp í Noregi.—Mbl. 13. des.
* * *
Hafsteinn'* bjargar 6000
tonna ensku skipi
Fregnir hafa borist um það,
að togarinn “Hafsteinn” hafi
bjargað 6000 tonna vöruflutn-
ingaskipi ensku, fyrir norðan
Skotlandsstrendur.
Þessar fregnir hafa borist
með togurum, sem hingað hafa
komið frá Englandi. Þessi
björgun átti sér stað á föstu-
daginn í hinni vikunni. Haf-
steinn var á leið til Englands
með fisk, og heyrðu skipsmenn
þá neyðarkall frá skipi, sem
var í sjávarháska. Þetta var
enskt vöruflutningaskip, 6000
tonn að stærð og mun hafa
verið hlaðið vörum. Skipið var
neyð, rak stjórnlaust fyrir sjó
og vindi; það hafði mist stýrið.
Hafsteinn mun hafa bjargað
skipinu, en nánari fregnir eru-
ekki komnar um það, hversu
víðtæk sú björgun hefir verið.
Sennilegt er, að Hafsteinn hafi
dregið skipið til hafnar og er
lá hér um fullkomna björgun
að ræða. Bæði skipin eru kom-
in til hafnar.
Eigandi Hafsteins er h.f.
Mars í Hafnarfirði; útgerðar-
stjóri Loftur Bjarnason. Stýri-
maðurinn Oddur Kristinsson,
var með Hafstein þessa ferð.
—Mbl. 13. des.
* * *
Lifandi Örn til sýnis i Rvík.
Undanfarna daga hefir lif-
andi örn verið til sýnis á
Laugavegi 18 í Reykjavík.
Fundu gangnamenn úr Bisk-
upstungum örninn í haust í
þriðju göngum uppi í Kjal-
hrauni. Lá örninn þar upp í
loft í klettaskoru, skorðaður,
og kominn að dauða. Var ó-
mögulegt að sjá, hvernig hann
hafði komist í þessa sjálfheldu.
Vöfðu leitarmenn örninn í
flíkur, reiddu hann til bygða og
hréstu hann við.
—Alþbl. 25. nóv.
* * *
Bókin um Winston
Churchill komin út
Nýlega kom bók á markað-
inn, sem líklegt er að veki
mikla athygli, en það er æfi-
saga Winston Churchills eftir
Lewis Broad.
Vafalaust mun mörgum leika
forvitni á að kynna sér æfi-
sögu þess manns, sem hefir
verið trúað fyrir því að halda
um stjórnartauma brezka
Frh. á 5. bls.