Heimskringla - 26.03.1941, Side 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 26. MARZ 1941
FJÆR OG NÆR
MESSUR 1 ÍSLENZKU
SAMBANBSKIRKJUNUM
Messur i Winnipeg
Útvarpsmessa fer fram í
Sambandskirkjunni n.k. sunnu-
dagskvöld, 30. þ. m. kl. 7 e. h.
undir umsjón hins Sameinaða
Kirkjufélags íslendinga. Séra
Guðmundur Árnason messar.
Söngurinn verður undir stjórn
Péturs Magnús, sem syngur
einnig. Sólóistinn verður Miss
Lóa Davidson, og Gunnar Er-
lendsson spilar á orgelið. Út-
varpað verður yfir CKY út-
varpsstöð og eru menn beðnir
sérstaklega að muna það, að
sveifluhraða og bylgjulengd
þeirrar stöðvar verður breytt
næstu helgi og verður 990 kilo-
cycles samkvæmt lögum skrif-
að undir í Havana fyrir þremur
árum, af öllum Vesturheims
þjóðum.
Við morgunguðsþjónustuna
messar prestur safnaðarins, og
tekur sem umræðuefni: “Look-
ing to the Future”. Fjölmennið
við báðar guðsþjónustur.
* * t
Við undirskrifuð viljum hér
með láta vini og kunningja for-
eldra okkar vita, að það sé inni-
leg ósk okkar, að þeir láti sjá
sig og fagni með okkur 50 ára
giftingarafmælis foreldra okk-
ar, Mr. og Mrs. Kristján Hann-
esson, 716 Lipton St., laugar-
daginn 5. apríl — frá kl. 2 til 5
e. h. og frá 7 til 9 að kvöldinu
Börn Hannesson’s hjónanna
* * ♦
Jakob Vopnfjörð og kona
hans, frá Blaine, komu til bæj-
arins s. 1. föstudagskv. Verða
þau hér mánaðartíma í kynn-
isför. Þau dvelja meðan hér er
staðið við hjá Mrs. Ásu Jónas-
son, dóttur sinni, 215 Kensing-
ton St., St. James.
* * *
Junior Icelandic League News
A general meeting of the
Junior Icelandic League will be
held in the Antique Tea Rooms,
210 Enderton Bldg., on Sunday
evening, March 30th, commenc-
ing at 8.30 p.m.
Rev. V. J. Eylands will be the
guest speaker. Anyone who
has not as yet procured a mem-
bership card for 1941 is re-
minded that these can be had
from any member of the ex-
ecutive, the annual fee being
$1.00.
Skírnarathöfn
S. 1. sunnudag fór fram skírn-
arathöfn að heimili Mr. og Mrs.
Roger Johnson, 878 Sherburn
St., er séra Philip M. Pétursson
skírði son Mr. og Mrs. Roy Mc-
Neill, sem var skírður nafninu
Roger Alexander. Mr. McNeill
er sonur Mrs. Johnson. Guð-
feðgin voru Mr. og Mrs. Kline.
* • •
Ársfundur The Lake Mani-
toba Fish Packers and Fish
Producers félagsins var hald-
inn undir stjórn Björns Eg-
gertssonar, Vogar, föstudaginn
21. marz í McLaren Hotel í
Winnipeg. Viðstaddir félags-
menn voru 81. Er fundurinn
einn sá bezti og heillavænleg-
asti, sem félagið hefir haldið.
1 stjórnarnefnd voru þessir
kosnir: Björn Eggertsson, Vog-
ar, endurkosinn forseti. F. E.
Snidal, Steep Rock, endurkosin
vara-forseti. Nýir nefndarmenn
kosnir: Kári Byron, Lundar; L.
H. Olson, Oak Point; Steve
Johnson, Langruth.
Mörg mikilsverð mál voru
rædd og samþykt; á meðal
þeirra voru þessi: um möskva-
stærð neta; um leyfi fiskikaup-
manna; um flokkun fiskjar eft-
ir gæðum; um vernd og viðhald
fiskjarins; eyðileggingu eggja
hrafns-anda; um umsjónar-
manns eftirlit á Manitoba-vatni
árið um kring.
* * *
Þorsteinn G. Isdal frá White
Rock, B. C., lagði af stað heim
til sín s. 1. fimtudag. Hann
hafði verið hér eystra um
þriggja mánaða skeið að heim-
sækja frændur og gamla kunn-
ingja. Ferðaðist hann bæði
norður til Nýja-fslands og
bygðanna við Manitoba-vatn.
Bað hann Hkr. er hann kvaddi,
að færa vinunum hlýjar kveðj-
ur. Hann dvaldi meðan staðið
var við í Winnipeg hjá sr. Phil-
ip M. Péturssyni.
Endurfundanna munu kunn-
íngjar Þorsteins hér minnast
sem hinna ánægjulegustu, því
hann er maður viðkunnanleg-
ur, skýr og skemtinn.
Karl A. Kórsson brýnir raustina fyrir 16. april
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir fslendingar í Ame-
riku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
1 '♦'♦'♦l*'#'*'#'#^'#'#'*'#'#'#^#'#'#S#'##'#^#S##'#v#y##>##
Richard Beck
vinnur pianosamkepni
Richard sonur Mr. og Mrs. J.
T. Beck á Ingersoll St., hér í bæ
varð hlutskarpasti keppandinn
í Intermediate Piano er fram
fór í morgun í sambandi við
Manitoba Music Festival. —
Heimskringla óskar hinum
unga sigurvegara til hamingju
með heiðurinn og kennara hans
R. H. Ragnar.
McCURDY
SUPPLY CO., LTD.
COAL & WOOD
Hafa kolin og viðin sem
þú hefir verið að óska eftir
•
"Winneco" Coke
“Semet Solvay" Coke
Foothills
Pocahontas
•
Þeir hafa reynsluna fyrir
sér, og eru áreiðanlegir í
öllum sínum viðskiftum
og þeir þekkja eldiviðinn
sem þið þarfnist.
Símið 23 811—23 812
Guðm. H. Bárðarson frá
Hnausa og Evelyn Björg John-
son, einnig frá Hnausa, voru
gefin saman í Winnipeg á heim-
ili sr. Valdemar J. Eylands, 776
Victor St., 17. marz s. 1.
Þessi mynd var tekin af Karl
A. Kórssyni seint að kveldi, þar
sem húsfreyja hans, Ragna, var
að kenna honum hið undur-
þýða lag: “Eg vagga þér barn
mitt, blessaða barn”. Litli
hnokkinn er sérlega hrifinn af
þessu lagi, og syngur það af
mikilli raust, og svo hátt, að
allir í nágrenninu “Vakna og
spyrja sem fyr” “Hvaðan ber
að þessi hressandi hljómur” og
jdfnskjótt eru þeir á staðinn
komnir. En Gunna, aðstoðar
húsfreyjan, heyrir skurk fyrir
utan dyrnar og hugsar með
sjálfri sér, að nú séu grannarn-
ir mikið reiðir, og hafa risið úr
rekkjum í ekki neinum góðum
tilgangi. Hún stefnir á móti
þeim, ein á móti hundrað, til að
friðmæjast við þá, og þess
vegna er hún ekki á myndinni.
En svona getur misskilningur-
inn oft verið og hvernig gat
Gunna vitað að þessir góðu
menn og konur voru komnir
til að dást að söngnum. K. A. K.
söng mörg fleiri lög fyrir gest-
ina og glaðnaði mikið yfir
Rögnu þegar hún sá hvað hrifn-
ing gestanna var mikil. “Já,
og það var meir en kurteisis
bros, sem lék á vörum þeirra”
sagði hún við Gunnu þegar
Kalli litli var sofnaður. “Því
þeir trygðu sér allir sæti í
Auditorium söngsalnum þann
16. apríl, þar sem hann verður i
“S”-inu sínu. Við skulum
snyrta hann vel til fyrir það
kvöld, því margra hluta vegna,
getur það orðið sú mesta sig-
ursför, sem hann hefir nokkru
sinni farið á æfinni.” “Heyrðu
Gunna mín”, hélt hún áfram,
“heldurðu að hann yrði feim-
inn ef við segðum honum, að
heimsfræga söngkonan, María
Markan, ætlaði að syngja á
samkomu hans?”
"Anon"
Jón Sigurðsson (I.O.D.E.)
Jóns Sigurðssonar félagið
heldur fund n. k. þriðjudagskv.
1. apríl kl. 8 e. h. að heimili
Mrs. B. S. Benson, 757 Home St.
* * *
Karlakórs hljómleikar
Ssem undanfarin ár efnir
Karlakór Islendinga í Winni-
peg til hljómleika í Auditorium
Concert Hall. Verður sú sam-
koma miðvikud. 16. apríl n. k.
og þá fá íslendingar síðasta
tækifæri að hlusta á hina
besta. Aðgöngumiðar kosta
aðeins $1.25 í fyrirfram trygð-
um sætum, önnur sæti $1.00.
Aðgöngumiðar eru nú til sölu
hjá öllum Karlakórs mönnum
og Björnson’s Book Store að
702 Sargent Ave., og ætti utan-
bæjarfólk að skrifa sem fyrst
til D. Björnson, Björnson’s
Book Store, 702 Sargent Ave.,
og sendir hann aðgöngumiða
gegn borgun út í hönd eða gegn
póstkröfu.
* * *
Tímatal Lögbergs
Ruglaður í ríminu,
Reynist Lögbergs ritstjórinn,
Átta vikum er hann seinn
Að hann Þorra leiða inn.
—8—
• * *
58. ársþing stórstúku Mani-
toba og N. W. verður haldið í
Good templara húsinu, Sargent
frægu söngkonu Maríu Mark-1 Ave., mánud. og Þriðjudagskv
an. Þessir árlegu hljómleikar 21. og 22. april n. k. Utanbæjar
kórsins hafa ætíð verið ágæt-
lega sóttir seinni árin og margt
ágætt listafólk aðstoðað kór-
inn með hljóðfæraslætti og ein-
söng við þau tækifæri, en þetta
er í fyrsta sinn er kórinn hefir
ráðist í að fá sér til aðstoðar
eina af núlifandi ágætustu
söngkonum. Karlakórinn hefir
æft í vetur mörg ágæt lög og
mun vanda þessa samkomu hið
LEIKFÉLAG SAMBANDSSAFNAÐAR
symr
0LDUR
Leik í 3 þáttum eftir séra Jakob Jónsson
í Samkomusal Sambandskirkju
MANUDAGSKVÖLD 31. MARZ og
ÞRIÐJUDAGSKVÖLD 1. APRIL
Leikstjóri: Ámi Sigurðsson
Byrjar kl. 8.30 Inngangur 50tf
wSW*WSW»W»W *w áWmi
stúkur eru beðnar að athuga
þetta.
• * *
Lúterska kirkjan í Selkirk
30. marz, 5. sd. í föstu. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f.h. íslenzk
messa, kl. 7 e. h. Messur á
heimilum safnaðarfólks í mis-
munandi hverfum bæjarins, á
miðvikudagskvöldum, um föst-
una, byrja kl. 7.30 e. h.
S. Ólafsson
* * *
Förumenn — 3. bindi
Eg hefi nú fengið allgóða
sendingu af þessu þriðja og
síðasta bindi af Förumenn, eft-
ir frú Elinborgu Lárusdóttir. Er
það 330 bls., og þrjú bindin alls
936 bls. Má slíkt heita mikið
afrek fyrir önnum kafna hús-
móðir. Þetta síðasta bindi kost-
ar $2.50. Allar bækurnar eru
í fallegu bandi. Yfir höfuð hef-
ir þessu skáldverki verið mjög
vel tekið, og hlotið bestu með-
mæli frá þeim er hafa lagt á
það dómsorð.
Magnús Peterson
—Horace St., Norwood, Man.
Bœkur til sölu á Heimskringlu
Endurminningar, 1. og II.
hefti, alls 608 blaðsiður, eftir
Friðrik Guðmundsson. Verð
upphaflega $2.50, báðar bæk-
urnar; nú $1.00.
Hetjusögur Norðurlanda, um
200 blaðsíður að stærð, eftir
Jacob A. Riss. Islenzkað hefir
Dr. Rögnvaldur Pétursson. —
Verð 35c.
Upplag þessara bóka er lítið.
Þeir sem eignast vilja þær,
ættu því að snúa sér sem fyrst
til ráðsmanns Hkr.
*
íslenzk guðsþjónusta
Það verður messað á feðra-
tungunni ylhýru og kæru í
Westside skólahúsinu næsta
sunnudag kl. 2 (M.T.). Allir
íslendingar fyrir austan Elfros
eru beðnir að koma. Allir eru
boðnir og velkomnir.
Vinsamlegast,
Carl J. Olson i
Að snæðingi. — Það er ekki
kurteislegt af þér að taka
stærra stykkið, þegar þér er
boðið fyrst.
i — Hefðir þú tekið það
minna?
— Já, auðvitað!
— Jæja, þá kemur það í
sama stað niður!
* * *
Skraddarinn: Hvenær má eg
senda reikninginn?
Viðskiftamaðurinn: Á hverj-
um miðvikudegi.
• * *
— Hafið þér vit á hljóðfæra-
slætti?
— Já.
— Hvað var leikið núna?
— Á pianó.
* * *
— Hvar eigum við að hitt-
ast?
— Hvar sem þú vilt!
— Og hvenær?
— Hvenær sem þú vilt!
— Jæja, það er þá ákveðið
mál!
• • *
Forstjórinn: Hvað er faðir
yðar?
Umsækjandi: Hann er dáinn.
Forstjórinn: En hvað var
hann, áður en hann dó?
Umsækjandi: Lifandi!
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Söngœfingar: islenzkri söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eða 34 557
7241/2 Sargent Ave.
Contracts Solicited
JUMBO KALHÖFUÐ {
þau stœrstu 30-40 pd.'
JUMBO KÁLHÖFUÐ
Stœrsta kálhöfðategund sem til er,
vegur 30 til 40 pund. Óviðjafnanleg
í súrgraut og neyzlu. Það er ánœgju-
legt að sjá þessa risa vaxa. Árið sem
leið seldum vér meira af Jumbo kál-
höfðum en öllum öðrurr^káltegund-
um. Skýrsla viðskiftavina sýna vigt
ált að 44 pundum. Pakkinn 12c,
únza 40c, póstgjald 3c.
FRI—Vor stóra útsœðisbók fyrir 1941
Betri en nokkru sinni fyr
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
Móðirin: Ef þú verður góður
drengur, kemstu í himnaríki.
Sonurinn: En hvað þarf eg að
gera til þess að komast í bíó?
* * *
Pabbi! Hvað hafði fólk áður
fyr, þegar það hafði ekki radio?
— Ró og næði, drengur minn!
HITT OG ÞETTA
Margar sögur eru sagðar um
rósemi og dugnað Viktoríu
Englandsdrotningar, þegar
vanda bar að höndum.
í byrjun Búastríðsins, er
Bretum vegnaði illa fyrst í
stað, kom Balfour dag einn á
fund drotningarinnar, sorg-
mæddur á svip og ætlaði að
byrja langa raunarollu. Þá tók
drotningin fram í fyrir honum
og sagði þurlega: “Skiljið, að
hér í þessu húsi er enginn
hryggur yfir hrakförum. Ósigur
kemur auðvitað ekki til mála.
• • *
A: — Hvernig finst þér hún
syngja?
B: — Stundum syngur hún
alveg ægilega hreint, og stund-1
um alveg hreint ægilega!
* * *
—Tannlæknirinn sagði, að
tönnin, sem hann dró úr mér,
væri einskis virði, og þó tók
hann tíu krónur fyrir hana!
SAMKOMA
HNAUSA, Man. - - - 4. apríl 1941
Samkoma sett kl. 9 e. h.
Forseti—James H. Page
1. Minni landnemanna—Ræða..Sveinn Thorvaldson
2. Sýndir þrír mismunandi skóladagar:
1. Séra R. Marteinsson og börn
Ávarp frá séra R. Marteinsson
2. Mrs. Guðný Pálson og börn
Ávarp Mrs. Valgerður-Sigurðson
3. Skólabörnin—skólakennari
J. Magnús Bjarnason
Marteinn M. Jónasson les ávarp frá
J. Magnús Bjarnason
Þessa 3 skóladaga skýrir Gísli Sigmundson
Skólabörnin syngja nokkra söngva
Jóhannes og Lilja Pálson stýra alþýðusöngvum
OLD TIME DANCE
Hannes Kristjánson and His Orchestra
Veitingar seldar á staðnum
Inngangur fyrir fullorðna 35?! — fyrir börn 15?!
NEFNDIN.
r ll say ;
Já, herra, “KAR-EAL fyrir Kaffi"
gerir kaffið bragðbetra og drýgra—
konan min segir það einnig ódýrara.
KAR-EAL fyrir kaffi er frægt um
100 ár—kaupið pakka í dag
og hafið betra kaffi á morg
un.