Heimskringla - 25.06.1941, Blaðsíða 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD
yy
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On” j
Wedding Cakes Made to Order j
PHONE 33 604
ALWAYS ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread”
The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
Phone 33 604
LV. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 25. JÚNÍ 1941
NÚMER 39.
Þjóðverjar komnir í stríð við Rússa
Þjóðverjar og Rússar eru
komnir í stríð. Það hófst s. 1.
sunnudag (22.. júní) kl. 4 að
morgni.
Þjóðverjar hófu sóknina á
öllu svæðinu sunnan frá
Svartahafi og norður að
Eystrasalti.
Víglína þessi mun vera 1700
mílur á lengd.
Ekki gerði Werner von der
Schulenberg, ræðismaður Þjóð-
verja í Rússlandi, neitt aðvart
um þetta fyr en IV2 klukku-
stund, eftir að Þjóðverjar
höfðu sent herinn af stað.
Herirnir sem þarna mætast,
eru fjölmennir. Her Rússa er
af Þjóðverjum áætlaður 160
hersveitir eða um 2 miljónir
manna. Þjóðverjar er ætlað
að hafi 132 hersveitir á þessum
landamærum.
Finnar er búist við að verði
reknirait í stríðið á móti Rúss-
um og Rúmenar eru þegar farn-
ir með Þjóðverjum af stað.
Fyrstu fréttir frá Rússum á
mánudags-morgun, hermdu,
að á móti Þjóðverjum hefði
hraustlega verið tekið alls
staðar. Þeir fullyrtu, að á-
hlaup nazista hefðu verið
stöðvuð óg þeir hraktir til
baka, nema á svæði i Póllandi
fyrir sunnan Lithuaníu. Þar
hefði meginher nazista komist
10 milur áfram og tekið þrjá
smábæi eða þorp.
Áður en Þjóðverjar lýstu yfir
stríði, höfðu þeir gert flugárás-
ir á rússnesku borgirnar Kiev
í Ukraine, Kaunas, höfuðborg
Lithuaníu og Sebastopol á
Krím. Biðu um 200 manns
bana af þessu.
Rússar kváðust hafa skotið
niður 65 flugskip fyrir Þjóð-
verjum fyrsta daginn. Þjóð-
verjar segjast einnig hafa skot-
ið noður 118 rússnesk flugskip
fyrsta dag stríðsins.
Molotov, utanríkisritari
Rússa, hélt harðorða ræðu um
nazista. Hann kvað árás þessa
á Rússland svona leynt og
að þessu leyti með því að ná í
hveiti og olíu frá Rússlandi.
En skildi honum reynast það
eins auðvelt og hann heldur?
Molotov minnir á stundina,
sem Hitler velur til innrásar-
innar. Það er á 129 afmælis-
degi Napoleons ferðarinnar til
Moskva, 1812, með hálfa miljón
hermanna, en komst lifandi
þaðan með nokkur hundruð
manna. Það var í Moskva, er
gæfa Napoleons snerist við. —
Skildi hún eiga þar einnig eftir
að snúast gegn Hitler? Róður-
inn léttist vissulega ekki með
þrjú stórveldin, Breta, Rússa
og Bandaríkin á móti sér.
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI
Séra Guðm. Árnason
Hapsborgarinn
Af konungafólki frá Evrópu
Séra Guðmundur Árnason
forseti hins Sameinaða Kirkju-
félags Islendinga í Vestur-
er nú fjöldi vestan hafs. En j heimi, hefir verið skipaður út-
það ber furðu lítið á því. 1 breiðslustjóri hér nyrðra mál-
rigningunni fyrir helgina var'efna American Unitarian As-
Otto erkihertogi af Austurríki sociation í Boston. Starfið er í
í fólksþyrpingunni á Portage hinu sama fólgið og dr. Rögn-
Ave. í þessum bæ, að hlaupa í valdur Pétursson áður hafði.
skjól sem aðrir. Hann var yfir- iHeimskringla og vinir séra
hafnarlaus, klæddur búningi! Guðmundar fagna því verð-
réttra og sléttra borgara. Eng-1 skuldaða áliti og trausti, sem
inn þekti hann. Hann er 28iþetta ber vott um að til hans er
ára, hinn kurteisasti og lipr- \ borið, af fremstu mönnum Úní-
asti í viðmóti. Að þar væri
sonur Karls síðasta Austur-
ríkiskeisara á ferð, mun engan
hafa grunað.
tarafélagsins og árna honum
heilla með heiðurinn. Þeir sem
séra Guðmund þekkja, vita og
að hæfari og heppilegri mann
Hingað kom Hapsborgarinn ' þessa stöðu, er ekki hægt að
frá Minneapolis í bíl og var hugsa sér; val hans í hana er
sjálfur við stýrið alla leið. og í raun og veru viðurkenn
Hann hafði hér litla viðdvöl, en inS á hinu mikla starfi hans í
hélt vestur í land, til Ester- Þágu málefna kirkjunnar.
hazy, Stockholm og Hamburg
í Saskatchewan. Ætlar hann
að finna landa sína þar að máli
um að bindast samtökum, sem
syðra, um að losa Evrópu við
Hitler. Hann fer suður aftur
26. júní.
Daginn sem Bretar eignast
öflugri lofther, en Þjóðverjar,
kvað hann þeim sigur vísan.
Hertoginn er ógiftur. María
prinsessa af Savoy, dóttir Vic-
Skozkur vísindamaður, Ro-
bert Alexander Watson Watt,
er maðurinn, sem áhaldið upp-
götvaði. Er svo mælt, að það
muni koma að miklu haldi í
hernaði.
Herútboð í Finnlandi
var einu sinni sögð kærastan,
þrátt fyirr nýlega endurnýjað-jen otto segir það skáldskap,
an 10 ára friðarsamning, vera kvaðst ekki hafa séð hana fyr
Stjórn Finnlands hefir sent
öllu varaliði landsins strengi-
leg boð um að skrásetja sig hið
tors Emmanuels Itala-konungs j fyrsta í hernum og vera á
hverri stundu við því búinn að
grípa til vopna. Herútboð
svo svívirðilega, að Hitler ætti
ekki sinn líka í mannkynssög-
unni.
Mussolini, sem Churchill
en hún var gift.
Faðir hans dó 1923. Ekki gat
Austurríki þá tekið Otto fyrir
konung, því nýju ríkin um-
kallar rakka Hitlers, lýsti stiíði ^verfis það voru því mótfallin.
samstundis Þjóðverjum á hend-^ andstöðu var Otto kominn
ur Rússum. Hvar hann ætlar ag þvj ag sigra> þegar Hitler
sér að berjast, er óvíst. Mið- tók landið>
jarðarhafið, eða að varna því,
að Rússar eða Bretar færu um
Dardanella sundin, va?ri það
einasta, sem hann gæti gert
sem nokkurs vert væri fyrir
Hitler. En skip hans liggja og
fela sig á höfnum inni.
1 ræðu sinni heldur Hitler
fram, að það hafi verið vegna
landagræðgi (!) Rússa, sem
hann hefði nú orðið að fara á
móti þeim. Rússinn ætlaði sér
Rúmaníu og Balkanríkin, sem
Hitler varð að frelsa frá horn-
grítis kommúnistunum. Til
þess að koma í veg fyrir að
Evrópa yrði öll eitt kommún-
ista ríki, væri nú stríðið háð
móti Rússum. Finst honum
málstaður sinn svo góður fyrir
þessu stríði, að hann skiluí
ekki í þeim sem eru á móti sér
i því. 1 lok ræðu sinnar, biður
hann guð að hjálpa sér einkum
og sérsetaklega í þessu stríði,
sem svo mikið sé komið undir.
Hitler óttast langt stríð. —
Hann veit, að Bretann verður
erfitt að yfirstíga á þessu
sumri. En birgðir Þýzkalands
orðnar litlar.
' Hann stendur betur að vigi
Móðir hertogans, Zita keis-
arafrú, á nú ásamt þremur
dætrum og tveimur sonum sín-
um, heima í Ville St. Joseph í
nánd við borgina Quebec í Can-
ada.
Nýtt hervarnar-áhald
Bretar hafa fundið upp nýtt
áhald til varnar loftárásum. Á-
haldið er að vísu ekki nýtt, það
hefir um langt skeið verið not-
að, en frá því hefir ekki fyr
verði sagt. Tæki þetta er í
því fólgið, að það segir til flug-
skipa tugi mílna í burtu. Það
er með radio-bylgjum gert. —
Lýsing er engin af uppgötvun
þessari gefin. En munurinn er
þessi, að fyrir þetta tæki, geta
flugskip Breta farið af stað og
háð flugorustuna við skip Þjóð-
verja löngu áður en þau eru
komin cil Bretlands.
1 flugárásunum á s. 1. hausti,
er mælt að Bretar hafi verið
byrjaðir að nota þetta áhald.
Að Þjóðverjum varð ekki meira
ágengt í þeim en raun varð á,
er talið þessari uppgötvun að
þakka.
þetta nær til þeirra sem fæddir
eru 1897 og á því við 43 til 44
ára gamla, eigi síður en þá
sem yngri eru. Með þessu er
það aðeins eitt, sem getur
vakað fyrir og það er að búa
sig á ný undir stríð við Rússa,
en nú undir stjórn Þjóðverja.
Finna, er sagt að fýsi ekki aft-
ur í stríð, en nazistar hafa sent
nokkurt lið inn í landið, er reka
mun þá, hvað sem þeir segja,
af stað.
Þvzku stjórninni
til fróðleiks
Roosevelt forseti sagði þing-
inu s. 1. föstudag, að árás Þjóð-
verja á skipið Robin Moor,
bæri með sér, að nazistar ætl-
uðu að banna bandarískum
skipum siglingar um höfin*. —
Það væri og eflaust í samræmi
við alveldisdrauma Hitlers, að
Bandaríkin sæktu um leyfi til
að ferðast um höfin til Þýzka-
lands. Hann kvaðst vilja fræða
þýzku stjórnina á því, að
Bandaríkin ætluðu sér, að sigla
um höfin og án hennar leyfis
hér eftir sem hingað til. Naz-
ista kallaði Roosevelt alþjóða
stigamenn.
Ein í sprengjuflugvél
austur um haf
Eins og kúnnugt er, hafa
Bandaríkjamenn hert talsvert
á flugskipasmíðinni síðustu
mánuðina. Senda þeir nú
: Bretum orðið um 1000 sprengju
flugvélar á mánuði hverjum.
En stundum kemur fyrir, að
menn skortir til að stjórna
þeim, eða taka vélarnar austur
yfir haf. Eru því konur að
byrja að gefa sig við þessu. Sú
fyrsta er þetta reyndi, heitir
Jacqueline Cochran. Flaug
hún einni vélinni austur yfir
haf s. 1. föstudag. Var henni
jfagnað með kostum og kynjum
Jí Englandi. Jacqueline segir
þetta ekkert sérlegt þrekvirki
verið hafa og er til með að
gera þetta að atvinnu sinni.
Hún lét hrifni í ljósi yfir því, er
konur á Bretlandi ynnu í þágu
stríðsins.
Skaðar af stormi
Óhemjulegt stormveður, með
steypirigningu og eldingum
geisaði s. 1. miðvikudag í
Manitoba. Stormurinn var 62
mílur á klukkustund, sem er
ekki langt frá að vera fellibyls-
hraði, enda hlutust nokkrir
skaðar af honum. 1 Neepawa,
Brandon og fleiri þorpum í
Manitoba, fuku þök af hlöðum
og fjósum, símastaurar brotn-
uðu og hús með skepnum í,
fuku um koll og skepnur dráp-
ust. Það var nú samt óvíða.
Þök skemdust á tveimur kirkj-
um í Neepawa, þar sem storm-
urinn var verstur. Brandon-
bær varð ljóslaus um tíma. 1
Shilo skemdust hermanna-búð-
ir eitthvað.
Lántaka stjórnarinnar
Það virðist stórt á stað farið,
er þjóð þessa lands var beðin
um að veita lán til stríðsþarfa,
er nam 600 miljón dölum. —
Spáðu margir að það mundi
ekki fást. En s. 1. laugardag
(21. júní), ekki fullum þremur
vikum frá því að lántakan
hófst, höfðu menn skrifað sig
fyrir 631 miljón dala og því
nokkuð meiru en fram á var
farið. Á mánudaginn var sagt
að lánið væri komið yfir 800
miljónir.
Hluti Manitoba-fylkis af lán-
jnu var 43 miljón dalir. S. 1.
laugardag höfðu fylkisbúar
skrifað sig fyrir rúmlega 51
miljón eða 21% meira ep farið
var fram á, og verðbréfa kaup-
in halda enn áfram. Þessi lán-
taka stjórnarinnar hefir því
gengið betur en margur bjóst
við og er ánægjulegt tákn þess,
að borgararnir eru nokkurs
megandi, og að lántraust lands-
ins er örugt, enda eru og hafa
verðbréf sambandsstjórnarinn-
ar ávalt verið gulls í gildi.
hafa bæði slíkan samning við
Breta og Rússa. Það mun og
áhugamálið mesta nú fyrir
Tyrkjum, að gera ekki á hluta
nokkurrar þjóðar.
Það sem að öllum líkindum
verður erfiðast fyrir þeim, eru
yfirráð Dardanella sundanna.
Það er ekkert líklegra en að
Hitler heimti þeim nú lokað
fyrir Rússum og öllum nema
sér. En þar sem bæði Bretar
og Rússar munu þar styðja
Tyrki, ætti það ekki að vera
neitt auðvelt fyrir Hitler að
ráða þessu.
Síðustu stríðsfréttir
1 gær, á öðrum degi stríðs-
ins, milli Rússa og Þjóðverja,
segja Rússar söguna þessa:
herteknir 5000 Þjóðverjar, 300
skriðdrekar og 127 þýzk flug-
skip eyðilögð. Saga Þjóðverja
er sú, að þeir hafi drepið
hundruðir Rússa og hertekið
þúsundir. Þrjár borgir teknar
af Rússum, sem Rússar kann-
ast og við, en segja smábæi.
Einn þeirra var þó Brest-Lit-
ovsk í Póllandi með um 45,000
íbúa og flugstöðvum. Enn-
fremur segja Þjóðverjar upp-
reist hafna í Lithuaniu og
Eystrasalts-löndunum á móti
Rússum. Rússar segjast hafa
flogið 400 mílur inn í Þýzka-
land og gert skaða í ýmsum
bæjum. Molotov segir Þjóð-
verja ekki skuli inn í Rússland
komast nema að ganga á búk-
um hermanna sinna, eða með
öðrum orðum, ekki án hroða-
legrar fórnfærslu eða mann-
falls.
King forsætisráðherra
segir:
“Hver dagur, sem Rússar
geta varist árásum Hitlers, er
mikilsverður í baráttu fyrir
frelsi, hvernig sem stríðið fer;
það gefur Bretum og Banda-
ríkjamönnum tíma til að bæta
við sig þeim vopnum, er með
þurfa í viðureigninni vð naz-
ista.”
Þjóðverjar hreyknir
Þjóðverjar eru hreyknir út
af því, að hafa þröngvað Tyrkj-
um til að gera vináttu-samning
við sig. Ekki skal því neita
að afreksverk er það, að fá
samvinnuþjóð óvinar síns til
sátts og friðar eða hlutleysis
við sig. Bretar hafa þar óefað
tapað nokkru. En eins og á
stendur virðist ekki ástæða til
að gera ofmikið úr þessum á-
minsta samningi, því Tyrkir
Bretar hafa uppihaldslaust í
þrjá daga háð öflugar flugá-
rásir á Þýzkaland. Hafa þeir
skotið niður 77 flugför af Þjóð-
verjum á þremur dögum, en
sjálfir tapað 9. Nazistar koma
sjáanlega lítilli vörn við í vestr-
inu, síðan stríðið við Rússa
hófst.
▲
Spaugileg saga er höfð eftir
Hess. Hann sagði í gær, að
hann hefði komið til Skotlands
á fund brezku stjórnarinnar til
að þinga við hana um, að slá í
félag við Hitler um að uppræta
Rússa. Churchill á að hafa
neitað og verra en það — til-
kynti Rússum hvað Hitler
hefði næst í sigti. Hitler narr-
aði því sjálfan sig út í þetta
stríð við Rússa.
A
Útvarp Þjóðverja flytur nú
óslítandi áróðursstarf til Rússa
hinna hvítu, í Suður-Rússlandi
og segir þeim að stjórnarstörf
bíði þeirra. Hitler ætli að setja
til valda í Rússlandi Vladimar
Romanov, er sé náfrændi Nik-
ulásar II, síðasta Rússa keis-
ara. En Hvítu-Rússar vilja
heldur hafa Stalin og hafa í
útvarpinu sent nazistum það
svar sitt. Hitler hefir tekið i
skóla til sín nokkra Rússa, sem
í Frakklandi eru, til að búa þá
undir að stjórna með þessum
Vladimir. Hitler hefir svo mán-
uðum skiftir verið að undirbúa
þetta. Hann hefir því verið
búinn að ákveða stríðið við
Rússa, þegar hann endurnýjaði
eða gerði síðasta hlutleysis-
samninginn við þá.
▲
Bandaríkin hafa tilkynt
Rússum, að gull þeirra eða fé,
sem stjórnin tók til umráða, sé
nú fáanlegt og Rússar geti
keypt vopn fyrir það í Banda-
rikjunum eða hvar annar stað-
ar sem sé.
RIKISSTJóRI ISLANDS
Sveinn Björnsson
Eins og áður hefir verið get-
ið, hefir Sveinn Björnsson ver-
ið kosinn af stjórn Islands, rík-
isstjóri landsins. Er hann son-
ur Björns Jónssonar ritstjóra
og forsætisráðherra Islands.
Sveinn Björnsson var áður ræð-
ismaður fslands í Danmörku.
Ávarp frá honum, eftir að hann
tók við embættinu, hefir Thor
Thors góðfúslega látið Hkr. í
té og er birt á fimtu síðu þessa
blaðs.
Spánn vill óður segja Rúss-
um stríð á hendur. En hann
hefir engin efni á því, svo hann
verður líklegast að sýna Hitler
góðvild sína, með því að láta
)etta vitast.
A
Her Sir Henry M. Wilson í
Sýrlandi fékk skipun um það
frá London í gær, að taka Sýr-
land hið bráðasta. Bretar og
Frakkar er fylgja de Gaulle,
hafa verið að hlífast við ægi-
verkum. En úr því Frakkar
geta fengið af sér að berjast á
móti Bretum, segir Churchill
að þetta verk verði að skoðast
frá hernaðarlegu sjónarmiði
einu.
▲
Það er fullyrt, að Þjóðverjar
hafi lagt sprengjur í Bosphor-
us-sundin frá Svartahafinu og
hafi með því heft umferð þar.
Hann gat þetta aðeins gert
með því að þröngva Tyrkjum
til að leyfa það.
k
Mr. Duranty, bandarískur
fregnriti, sem fyrir 2 árum er
kominn frá Rússlandi og hafði
þá verið þar fleiri ár, veðjar 5
á móti einum, um að Þjóðverj-
ar vinni Rússa.
Tuttugu og fimm konur í
Jóns Sigurðssonar félaginu
luku nýlega námi í “First Aid”
hjá St. John’s Ambulance As-
sociation. Voru þær í tilefni af
því í heimboði hjá Mrs. E. A.
Isfeld s. 1. miðvikudag. Forseti
félagsins, Mrs. J. B. Skaptason,
óskaði nemendunum til lukku.
Mrs. H. F. Daníelsson talaði
nokkur hlýleg orð til Mrs. E. A.
ísfeld er stjórn þessa starfs
hefir annast; voru henni í við-
urkenningarksyni gefin blóm
og silfurbikar til að standa á
borði. Mrs. Daníelsson, sem
starfað hefir með Mrs. ísfeld,
voru einnið færð blóm. Mrs.
Wathne las upr til skemtunar
og Miss Gloria Sivertson spil-
aði á piano og söng einsöng. Þá
las Mrs. DaníelSson kvæði,
frumort, er hún nefndi: The
Ballad of the Brave First Aid-
ers. Þessari skemtun fylgdu
veitingar. Mrs. Skaptason
skenkti kaffið.