Heimskringla - 25.06.1941, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 25. JONÍ 1941
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
semi vora, sem meta ber að
verðleikum. Slíkar sýningar
eiga bæði menningargildi og
stuðla að varðveizlu íslenzks
máls hérlendis.
En jafnframt því sem marg-
háttuð þjóðræknisstarfsemi
þessa safnaðar er þökkuð að
makleikum, skal áhersla lögð
á það, sem hugsandi mönnum
og konum, er þeim málum
unna, hlýtur að vera augljóst,
sem sé þetta: að aldrei hefir í
sögu vorri verið meiri þörf
vakandi og markvissrar þjóð-
ræknisviðleitni en einmitt á
þessum tímum; aldrei brýnni
þröf á sem almennustum skiln-
ingi vor á meðal á þeim sann-
leika, að því aðeins verðum vér
sem bestir borgarar í landi hér,
að vér varðveitum íslenzkar
menningarerfðir og íslenzka
manndómslund, frelsisást og
framsóknarhug, sem verið
hafa prýði hinna bestu og sönn-
ustu íslendinga. En öll eigum
vér, sem íslenzkt blóð rennur í
æðum, þegnrétt í hinu íslenzka
ríki andans; óhögguð standa
orð skáldsins:
Eitt er landið, ein vor þjóð,
auðnan sama beggja;
eina tungu, anda, blóð,
aldir spunnu tveggja:
Saga þín er saga vor,
sómi þinn vor æra,
tár þín líka tárin vor
tignarlandið kæra.
Þjóðræknisfélagið hefir það
sem eitt af aðalhlutverkum sín-
um, að byggja brú yfir hið
breiða djúp, sem, landfræði-
lega, skilur Islendinga austan
hafs og vestan. Það hefir einn-
ig unnið að því og vinnur sífelt
að því, að brúa það flokkslega
djúp, sem staðfest hefir verið
milli Islendinga í landi hér, en
sem, góðu heilli, er áreiðanlega
stöðugt að mjókka og grynnka.
En í félagsmálum vorum og
þjóðræknismálum hefir aldrei
sannarF reynst en nú, að
“sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér”. Því
segi eg á ný með hinu spaka
og sann-þjóðrækna skáldi:
Græðum saman mein og mein,
metumst ei við grannann,
fellum saman stein við stein,
styðjum hverjir annan,
plöntum, vökvum rein við rein,
ræktin skapar framann.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman!
Höggmynd af íslenzkri stúlku
UM SVEIN BJÖRNSSON,
RÍKISSTJÓRA ÍSLANDS
Fyrir nokkru barst sú fregn!
hingað að brjóstmynd, sem
danskur myndhöggvari Christ-
ian Warthoe gerði af íslenzkri
stúlku, er hann nefnir “Noel”,
hafi víða í Bandaríkjunum hlot-
ið lof og aðdáun, sem framúr-
skarandi listaverk. Og þar
sem að stúlkan, sem sat fyrir
myndinni, er ein úr okkar ís-
lenzka hóp hér í Winnipeg, er
okkur það skylt að taka tillit
til þess, sem annara þjóða
menn segja um myndina og um
stúlkuna sem sat fyrir henni.
Við getum ekki annað en bætt
viðurkenningu okkar við hitt
alt, sem sagt hefir verið, og
þakkað henni og myndhöggv-
aranum fyrir það, sem unnið
hefir verið með þessu til að
fræða menn um ísland og fs-
lendinga. Mr. Warthoe segir í
bréfi að fólk sé ætíð að spyrja
sig hvort hann sé fslendingur
vegna hrifningar þess af mynd-
inni sem hann gerði.
Með þessari mynd hefir Mr.
Warthoe náð hámarki í list
sinni. Hún hefir verið sýnd á
sýningu í Barbazon Plaza Art
Gallery, á American Scandi-
navian Center, og í stærstu
silfurverzlun Dana í New York,
George Jensen’s Silver Store.
Mynd af líkneskinu kom í
norska blaðinu Nordisk Tid-
í þeim anda hefi eg viljað
flytja kveðjur Þjóðræknisfé-
lagsins við þetta söguríka tæki-
færi; í þeim anda skal þjóð-
ræknisbarátta vor háð; ef vér
gerum það, munum vér enn
ganga sigrandi af hólmi.
Awarded
The Gold Championshiþ Medal
Silver and Bronze Medals
London, England
1937
PHONE
57241
Inde
ependently
Owned
and
Operated
The Riedle Brewery Limited
Winnipeg, Manitoba
This aaverttsmeni is not tnsertea 0y the (Jovernment Liquor Control CommtssUm. The
Commission is not responsible /or statements made as to quality ol products advertised
ende, og grein var rituð um
það í mörgum dagblöðum í
New York auk dönsku blað-
anna Dannevirke og Nordlyset.
Einnig hefir grein uni það
komið í Minneapolis Tribune. j
Fyrir nokkrum mánuðum gaf
Mr. Warthoe Grand View Col-
lege, dönskum háskóla í Des
Moines, Iowa, myndina, og þá
fór fram stór og vegleg athöfn
er skólinn tók á móti henni. I
Forseti skólans, Dr. Alfred C.
Nielsen, flutti stutta ræðu og
fór mörgum lofsamlegum orð-
um um Mr. Warthoe og hina
tignarlegu mynd, sem skólinn
hafði eignast. Hann sagði með-
al annars að “Noel”, (nafnið
sem þeir gefa styttunni), tákni
kvenlegt eðli norrænu þjóð-
anna, sem er hreint, fagurt og
sterkt. Hann hafði orð eins
vinar Warthoes eftir honum og
sagði: “Hun er stærk og fin.
Hun ser langt ind í framtiden;
men hendes röst er mild og
hendes haand ligger varmt i
Nutiden”. (Hún er sterk og
fín. Hún sér langt inn í fram-
tiðina; en rödd hennar er mjúk
og hlýja hönd hennar liggur í
nútíðinni).
Hátt á fjórða hundrað manns
var við þessa athöfn, er háskól-
anum var afhent brjóstmynd
þessi og var einróma í því að
láta þakklæti sitt í ljósi bæði
við myndhöggvarann og hana,
sem sat fyrir myndinni, þó að
enginn þar vissi hver hún var,
nema myndasmiðurinn sjálfur.
En þessi unga stúlka er dótt-
ir þeirra hjóna Guðmundail
Anderson og Matthildar Júlí-
önu Fjelsted konu hans, 800
Lipton St., hér í Winnipeg, og
heitir Mildred. Hún var ein af
stúlkunum héðan, sem var í ís-
lenzka skálanum á heimssýn-
ingunni í New York 1939, og
það var þar, sem myndasmið-
urinn Christian Warthoe kynt-
ist henni. Hún var kosin af
Norðmönnum til að sýna “Sil-
ver fox furs” sem þeir höfðu
þar til sýnis og voru mörg þús-
und dollara virði. Þeir nefndu
hana “The Fairest of the Fair”.
Warthoe varð einnig snortinn
af henni og fékk hana til að
sitja fyrir. Nú þakkar hann
henni það, að hún hafi hjálpað
sér að ná hámarki í list sinni,
og hljóta almenna viðurkenn-
ingu. Hann sendi henni, 1
þakklætisskyni, brjóstmynd,
sem var mótuð eftir þeirri, sem
hann gerði, og gaf Grand View
College, og er þessi mynd nú
hjá foreldrum hennar, og hrif-
ur hvern sem sér hana.
Þannig hefir Islenzk stúlka
óbeinlínis átt þátt í því að auka
frægð fslendinga og íslenzku
þjóðarinnar, og kynna mönn-
um hana, sem lítið eða ekkert
vissu um hana áður. Þetta er
þjóðræknisstarf, eigi síður en
margt annað, og það er mikil
ánægja að þaka Miss Mildred
Anderson fyrir þann þátt sem
hún hefir átt í þessu máli.
P. M. P.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og fjölbreyttasta
íslenzka vikublaðið
New York City,
'21. júní 1941
Editor Heimskringla,
853 Sargent Ave.,
Winnipeg, Canada.
Kæri vinur:
Mér hefir borist svohljóðandi
símskeyti frá ríkisstjórn fs-
lands:
Kosning ríkisstjóra og inn-
setning í embættið fór fram 17.
júní með miklum hátíðleik. At-
höfninni var útvarpað. Við-
staddir voru fulltrúar erlendra
ríkja ásamt fleira stórmenni.
Ríkisstjóri Sveinn Björnsson
var strax innsettur í embættið
og gaf drengskaparheit um að
halda stjórnarskrána. Síðan af-
henti forsætisráðherra honum í
nafni ríkisstjórnarinnar með-
ferð æðsta valdsins, sem ráðu-
neytið hafði farið með frá 10.
apríl 1940, en forseti samein-
aðs alþingis árnaði honum
allra heilla í starfinu þjóðinni
til gæfu. Ríkisstjórinn flutti
þvínæst ávarp og var þvínæst
hyltur á svölum Alþingishúss-
ins af miklum mannfjölda.
Aðalatriði ávarpsins, sem út
á við beinast eru eftirfarandi:
Um leið og eg tek við þessu
virðulega starfi er mér skylt
að minnast Hans Hátignar
Kristjáns X, sem til 10. apríl
1940 fór með æðsta vald fs-
lands, sem mér nú er trúað fyr-
ir í eitt ár. Hann staðfesti
með undirskrift sinni 1918 að
ísland skyldi vera fullvalda
ríki. Hann tók ályktun Al-
þingis 10. apríl 1940 með virðu-
legri stillingu, fullkomnum
skilningi og samsinti skilyrðis-
laust réttmæti og nauðsyn
þeirrar ákvörðunar. Konungur
má nú teljast einingarmerki og
næstum því þjóðhetja dönsku
þjóðarinnar á reynslutfma
hennar.
Oss ber að minnast sérstak-
lega dönsku þjóðarinnar í erf-
iðleikum hennar. Þótt þeir
væru ekki væri sami hlýhugur
og virðing til hennar nú meðal
allra íslendinga hvað sem for-
tíðinni líður. Skilningur á-
byrgra Dana á sjálfsfor-
ræðisþörf íslendinga fer vax-
andi ár frá ári. Forustumenn
Dana hafa látið hana í ljósi
opinberlega við mörg tækifæri.
Við óskum þess að danska
þjóðin fái sem fljótast aftur
fullkomið og óskorað frelsi og
fullveldi.
Með samskonar hug ber oss
að minnast hinna frændþjóð-
anna á Norðurlöndum, finsku
þjóðarinnar, sem er í sárum
eftir vopnaárás voldugs ná-!
granna stórveldis, en varðist;
af ógleymanlegri hetjudáð;
norsku þjóðarinnar, sem varði (
land sitt með ógleymanlegri
hreysti og verst enn. Við ósk-
um þess öll að norska þjóðin
fái sem fyrst aftur umráð yfir
föðurlandi sínu, að það fái fult
frelsi og fullveldi; sænsku þjóð-
arinnar sem vegna kjarks, I
dugnaðar, komst hjá hernámi
þótt hún væri aðþrengd af,
styrjaldarviðburðum. Það er
ósk mín og von að við íslend-
ingar eigum eftir að eiga sem ;
mest mök við allar þessar þjóð-
ir á sviðum menningar og öðr-
um sviðum, enda fáum við Is-
lendingar bezt notið vor í þeim
frænda og vina hópi.
Eg tel mér heimilt að full-
yrða, að nú sem fyrr er það
eindreginn vilji og ósk Islend-
inga, að vér megum einnig eiga
heima í hópi þeirra annara
lýðræðisþjóða, sem vilja,
byggja líf sitt og framtíð á
grundvelli réttarins og orð-
heldni. Við verðum að standa
einhuga saman og halda fast á
því, sem sannfæring vor segir
að sé réttur vor. Við munum
einnig virða rétt annara, en
aldrei máttinn án réttar.
Vegna hernáms erlends ríkis
! njótum vér ekki sem stendur
ifylsta frelsis í athöfnum vor-
um. Við reyndum og reynum
enn að vera hlutlausir. Við
höfum viljað og viljum enn
eiga frið við allar þjóðir. Við
höfum ekki einu sinni viljað
bera vopn oss til varnar.
Hér í landinu er nú á móti
vilja vorum setulið frá öðrum
ófriðaraðiljanum, en hinn hefir
lýst leiðir að og frá landinu ó-
friðarsvæði og beitt hernaðar-
aðgerðum gegn íslenzkum rik-
isborgurum. Þetta hefir sama
sem dregið oss inn í ófriðinn
gegn vilja vorum. Hlutverk
vort er nú það að bjarga og
varðveita þa“ð sem þjóðinni er
dýrmætast, að tryggja frelsi
og þjóðerni vort í framtíðinni
og varðveita virðinguna fyrir
sjálfum oss. Slíkt hefir reynst
kleift undir sömu kringum-
stæðum þjóðum, sem öllu vilja
fórna heldur en missa frelsi og
fullveldi sitt.
Með beztu kveðjum,
Thor Thors
UM MARÍU MARKAN
New York City,
21. júní 1941
Editor Heimskringla,
853 Sargent Ave.,
Winnipeg, Canada.
Mér er það mikið gleðiefni að
geta skýrt frá því, að María
Markan hefir verið ráðin við
Metropolitan operuna hér í
New York frá 1. september
næstkomandi. Óperan byrjar
ekki starfsemi sína opinberlega
fyr en í lok nóvember mánað-
ar, en María byrjar æfingar og
annan undirbúning þegar 1.
september. Samningur Maríu
gildir í eitt til þrjú ár og er
eftir atvikum mjög hagstæður.
Henni mun þegar á næsta
söngári verða fengin stórkost-
leg og vandamikil aðalhlutverk
í nokkrum heimsfrægum óper-
um.
Þetta er glæsilegur sigur
fyrir Maríu Markan og það lík-
ist æfintýri hversu greiðlega
hefir sótst fyrir henni að kom-
ast inn í þetta aðalmusteri
sönglistarinnar í heiminum. —
María söng tvívegis fyrir
stjórnendur óperunnar hinn 4.
júní og síðan 11. júní. Er hún
hafði sungið í seinna sinnið
ýms vandasöm lög er forstjóri
óperunnar Mr. Edward John-
son óskaði að heyra var fundur
settur á skrifstofu hans og eft-
ir nokkrar mjög vingjarnlegar
umræður var samningurinn
gerður. Gildir hann til alt að
þremur árum með stöðugt
bættum kjörum fyrir Maríu.
Mr. Edward Johnson og aðrir
helstu forráðamenn óperunnar
hafa komið mjög vingjarnlega
fram í garð Maríu og látið í
ljósi mikið álit á hæfileikum
hennar.
Þessi sigur er þeim mun eft-
irtektarverðari, er það er at-
hugað, að um 720 söngmenn og
söngkonur víðsvegar úr heim-
inum hafa síðastliðinn vetur
þreytt söngraun í áheyrn
stjórnenda óperunnar og af
þessum fjölda hafa aðeins þrír
hlotið stöður við óperuna.
María Markan er nú á beinni
leið til mikillar frægðar og
munu allir íslendingar óska
þess að gæfa og gengi fylgi
henni á braut hennar.
Með beztu kveðjum
Þinn einlægur,
Thor Thors
FJÆR OG NÆR
Þakkarcrvarp
Hr. ritstj. Hkr.:
Við undirrituð viljum hér
með biðja þig svo vel að gera
að ljá eftirfylgjandi línum rúm
í blaði þinu:
Því okkur hjónunum er bæði
ljúft og skylt að votta kvenfé-
laginu “Undína” hér í bygð
okkar innilegast þakklæti fyrir
þann heiður er þær hafa sýnt
okkur með því að heimsækja
okkur tvívegis — seinna skift-
ið þ. 11. þ. m. með gjafir og
góðvild, á afmælisdag annars
okkar — Mrs. G. B. Kjartans-
son, sem nú er 77 ára að aldri.
Við höfum átt heima hér í
bygð í 40 ár; og þegar svo er
tekið að líða á æfina, er manni
það sannarlegt gleðiefni þegar
látin eru í ljósi ótvíræð merki
þess,.að enn blómgist og dafni
vinátta og velvild samferða-
mannanna til manns, óháð
breytingum tímans.
Mr. og Mrs. B. Kjartansson
—Hecla, P. O., 14. júní 1941.
* * *
Messur við Winnipegosis o. v.
Við Winnipegosis 29. þ. m.
kl. 3 e. h. I Concordia kirkju
6. júlí og sunnud.skóli. 1 Lög-
bergs kirkju þ. 13. s. m. kl. 2
e. h. S. S. C.
# * *
Messuboð
Messað verður í Bræðrasöfn-
uði í Riverton, Man. sunnud. 6.
júlí, kl. 2 e. h. Ferming ung-
menna og altarisganga fer þar
fram þann dag. S. Ólafsson
Dominion Business College
Student Wins International
Typewriting Contest
In the third Annual International Artistic
Typewriting Contest recently conducted, the
second place winner was Miss Lorraine Young,
of St. James, Manitoba, a student of the
Dominion Business College.
Miss Young secured second place out of some
thirty-six hundred contestants from the United
States and Canada, receiving a Silver Trophy
together with two special awards.
In addition her class teacher, Miss M. Walker,
received a special award.
IT PAYS TO ATTEND
A GOOD SCHOOL
Enquire Today—NOW!
DOMINION
Business College
The Mall, Winnipeg—37 181
St. James—61 767 Elmwood—501 923
‘A BETTER SCHOOL FOR THIRTY YEARS’