Heimskringla - 17.12.1941, Page 2

Heimskringla - 17.12.1941, Page 2
2. SlÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 17. DES. 1941 BOÐIN UM SÆLU Rœða eftir séra Guðm. Arnason Aðalefnið í kenningum Jesú frá Nazaret er að finna í hinni svo nefndu fjallræðu, sem er í fimta til sjöunda kapítulanum í Mattheusar guðspjalli. Ræða þessi er kölluð fjallræðan af því, að Jesús á að hafa gengið upp á fjall, er hann flutti hana, og talað þaðan til mannfjöld- ans. Náttúrlega ber ekki að skilja það svo, að hann hafi staðið uppi á einhverju fjalli en áheyrendur hans fyrir neð- an, því vitanlega gæti enginn talað þannig til annara; það sem við er átt, er eflaust það, að bæði -hann og áheyrendur hans hafi verið staddir í fjalls- hlíð og að hann hafi staðið hærra en þeir. Ræða þessi hefir verið synd- urliðuð, og menn hafa komist að þeirri niðurstöðu, að það sé mjög ólíklegt, að hún hafi upp- runalega verið flutt öll í einu, efni hennar er of sundurleitt til þess. Það er mjög líklegt, að þegar farið var að rita guð- spjallið, fimtíu til sextíu árum eftir dauða Jesú, hafi verið teknir kaflar úr ýmsum ræð- um, sem hann flutti, og skeytt- ir saman; og það voru auðvitað þeir kaflarnir, sem bezt og lengst höfðu geymst í minnum manna. En það raskar ekki því, að ræðan hafi inni að halda meginatriðin úr kenning- um hans. Jesús hefir eflaust oft flutt ræður, öðru visi gat hann ekki boðað fólki skoðanir sínar og kenningar. Þess er líka iðulega getið, að hann hafi talað í samkunduhúsunum og úti á víðavangi, hvar sem hann gat fengið tilheyrendur. Og dæmisögurnar, sem svo mikið er af í nýja testamentinu, eru eflaust brot úr ræðum; hann hefir notað þær til að gera kenningar sínar sem skiljanleg- astar alþýðu manna, sem hann talaði til. Það segir sig sjálft, að án ræðuhalda hefði hann ekki getað kent. Eg ætla ekki að tala um f jall- ræðuna í heild sinni að þessu sinni, heldur aðeins um nokkr- ar fyrstu setningarnar i henni .... sæluboðin, sem svo eru nefnd. Þessi sæluboð eru átta eða níu að tölu, tvö þau síðustu eru svo lík að efni, að það má i rauninni telja þau eitt. Þau eru nefnd sæluboð af því að þau boða sælu þeim mönnum, sem eru í vissu sálarástandi eða með vissu hugarfari. Þau segja ekkert um það, að allir aðrir séu eða verði vansælir, þó að það sé ekki fjarri sanni að segja, að þau gefi það í skyn, að sálarástandið og hugarfar- ið, sem þau lýsa, séu skilyrði fyrir því að menn geti orðið sælir. Vér verðum þá fyrst að leit- ast við að gera oss grein fyrir, við hvað Jesús muni hafa átt með þessum orðum “sælir eru þeir.” Fyr en vér höfum gert það, getum vér ekki lagt neinn dóm á skilyrðin fyrir sælunni, sem hann talar um. í venjulegu íslenziku máli þýðir orðið sæla velliðun á hæsta stigi. Það getur átt við Um leið og eg óska öllum mínum mörgu viðskiftavinum GLEÐILEGRA JÓLA og FARSÆLT NÝTT AR G. FINNBOGASON Umboðsmaður vil eg votta mitt innilegasta þakk- lœti fyrir þœr góðu viðtökur og alla þó gestrisni sem eg hefi orðið aðnjótandi hjá íslend- ingum víðsvegar um fylkið. G. FINNBOGASON, umboðsmaður The Monarch Life Assurance Company WINNIPEG. MAN. eintóma líkamlega vellíðun og það getur líka átt við ástand, sem er sálarlegs eða andlegs eðlis, t. d. innri fögnuð yfir einhverju. Vér segjum, að maður, sem líður hungur eða er þjáður af einhverjum §júk- dómi, sé vansæll, en að sá, sem hefir nóga fæðu og er heil- brigður, sé sæll, í samanburði við hinn. En þetta er líkamleg vansæla eða sæla. Vér segjum, að maður, sem ber þunga sorg huga sér, eða er mjög óánægð- ur með kjör sín, s£ vansæll, en sá aftur sæll, sem er glaður og ánægður með sín kjör. En hrygð, gleði og ánægja eru það, sem kalla má innra ástand. Vitanlega getur það verið sprottið af einhverjum ytri ástæðum. Vér getum aldrei aðskilið hið ytra og hið innra, en venjulega eigum vér við eitthvað, sem er annaðhvort líkamlega eða sálarlegt, þegar vér notum þau orð. Sá maður getur þá kallast sæll, sem finn- ur til vellíðunar á mjög háu stigi, sem er fyllilega ánægður með kjör sín og æskir ekki eft- ir breytingum á þeim. Var nú þetta sú sæla, sem Jesús átti við? Nýjatestamentið var upp- runalega ritað á grísku máli. Og orðið, sem er þýtt með “sæla” og “sælir”, hafði tvens konar merkingu, það þýddi bæði ástand, sem dauðlégir menn gátu ekki komist í í þessu lífi, og það þýddi blátt áfram þægileg og góð lífskjör. Grikkir sögðu, að guðirnir væru sælir, og að menn yrðu sælir eftir dauðann, af því að þeir yrðu þá lausir við sárs- auka og böl jarðlífsins. Þetta var önnur merkingin. Hin var sú. að þeir, sem væru ham- ingiusamir, hefðu auðæfi op hefðu ekkert af illri liðan að segja, væru sælir. Hvorir tveggia voru “makaríoi”, það er: sæiir, og nafnorðið makar- ía” býðir þessa tvenns konar sælu. f ensku máli eru bess’ orð þýdd með tveimur orðum. sem hafa mismunandi merk- ingar: “blessed” og “happy”, eða “blessedness” og “happi- ness”. Sæluboðin í ensku biblí- unni byrja með orðunum “blessed are they.” Það er þá auðsætt, að orðin “sæla” og “sælir eru þeir”, í þeirri merk- ingu, sem þau eru notuð í fjall- * . ' <- é J Miótið Jólanna við rAFORK^’ Sneiðið hjá því erfiði og striti sem fylgir viðbúnaði hátíðanna! Það má létta af sér þeirri önn sem jólin og nýárs veizlum er samfara, sömu- leiðis elda betri mat, með því að nota raforkuna. Vélar til suðu og bakst- urs, smáar og stórar, vöflu járn, glóðar grindur til að steikja á brauð- snei.ðar, áhöld til að búa til kaffi o. s. frv., eru til þjónustu reiðubúin þeg- ar straumkrana er snúið. Látið ekki gesti tefja fyrir heimilisverkum. Rafknúin ryksuga er bezta ráðið og áhaldið til að halda heimilinu tandur hreinu, frá gólfi til mænis. Nýtízku þvottavél þvær fljótt og vel allan heimilisþvottinn, og rafknúið áhald til að strjúka þvott skilar jafnvel háls og erma líni gljáandi og sléttu! Eflið gleði jólanna með því að hengja litfögur ljós og geislandi bauga bæði úti og inni. Bætið við borðlömpum eða þríljósa lömpum svo hvergi beri á skugga. í Winnipeg kostar raforka svo lítið, getur samt gert svo mikið til að prýða heimili og létta undir verkin. Til gleðilegra jóla skuluð þér nota yðar eigið i 55 PRINCESS STREET og BOYD BUILDING ræðunni tákna ekki vellíðun í venjulegum skilningi þess orðs, heldur innra ástand friðar og rósemi, meðvitund um fullkom- leik, sem á næsta lítið skylt við þá ánægju og vellíðun, sem ein- göngu er sprottin af hagstæð- um og þægilegum ytri kjörum. Sæluhugtakið í kenningum Jesú verður ekki skilið nema það sé sett í samband við kenningu hans um guðsríkið. Það má endalaust um það deila, við hvað hann hafi átt með orðunum “guðsríki” og “ríki himnanna”. Hann talar stund- um um “ríkið”, að því er virð- ist, sem komandi ástand i öðru og sælla lífi, en stundum talar hann um það sem eigandi sér stað nú þegar í hugskoti mann- anna; það vex eins og jurtin, sem sprettur upp af smáu fræi o. s. frv. En hver sem er hinn rétti skilningur á þessum orð- um, er enginn vafi á því, að samþkvæmt skoðun hans, varð sælunni og fullkomnuninni fyrst náð í þessu “ríki” fram- tíðarinnar, hvort sem hann hugsaði sér það hér á jörð eða í einhverjum öðrum heimi. Látum oss íhuga sjálft inni- hald þessara sæluboða, það sem í þeim felst. Sælir eru þeir, sem fátækir eru í andanum, því að þeirra er ríki himnanna. Þannig hljóð- ar hið fyrsta. Hér aftur rekur maður sig á, hvað orð geta verið villandi, af því að merking þeirra get- ur verið tvíræð. 1 íslenzku máli þýðir andlega fátækur hér um bil það sama og einfaldur eða heimskur. Og áður var þetta þýtt: “sælir eru einfaldir” og “sælir eru and- lega volaðir”. En lætur nokk- ur maður sér detta í hug, að Jesús hafi kallað heimska menn sæla, sökum einfeldni þeirra? Rétta merkingin hér er auðvitað sú, að þeir séu sæl- ir, sem finni til þess, að þeir séu andlega ófullkomnir. Og þá ber auðvitað að skoða þá í mótsetningu vð hina, sem ekki vildu kannast við, að þeir væru ófullkomnir, sem voru of drambsamir til þess að játa ó- fullkomleik sinn. Öll hin sæluboðin eru Ijós. . . Sæir eru syrgjendur, því að þeir munu huggaðir verða. — Sælir eru hógværir, því að þeir mun landið erfa. Sælir eru þeir, sem hungrar, og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeii1 munu saddir verða. Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. Sælir eru frið- semjendur, því að þeir munu guðs börn kallaðir verða. Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyr- ir réttlætis sakir, því að þeirra er ríki himnanna. Það má segja, að þeir, sem Jesús telur sæla, skiftust í tvo flokka. 1 öðrum flokknum eru þeir, sem finna til ófullkom- leika síns, þeir, sem syrgja, þeir, sem eru hógværir, og þeir, sem verða fyrir ranglát- um ofsóknum. Þeir, sem eru i þessum flokki, eru þolendurn- ir, þeir sem eru sér meðvit- andi vanmáttar síns eða verða fyrir órétti. Dygðir þeirra eru fremur neikvæðar en jákvæð- ar. Þessir menn eru ekki sælir vegna þess að þeir finni til van- máttar eða verði fyrir órétt- læti, heldur vegna þess, að þeir fá sín laun, þeir eiga í vændum betra hlutskifti. . . . í öllum kenningum Jesú er svo mikið af samúð og vorkunnsemi með öllum þeim, sem hafa farið halloka í lífinu, að sumir hafa jafnvel ekki getað séð neitt annað í þeim, þeir hafa lagt fremur einstrengingslega á- herslu á boðskap kærleikans og samúðarinnar í þeim. Og af þeirri skoðun er það sprottið, að þeir, sem hata samúð og vorkunnsemi og telja það merki veikleika og kveifarskapar, IMPERIAL BANK OFCANADA AÐALSKRIFSTOFA TORONTO, ONT. Vér tökum þetta tækifæri til að flytja árnaðaróskir gleðilegra jóla og velgengni á þessu nýbyrjaða ári. GIMLI OG RIVERTON ÚTIBÖ L. E. Mayne, ráðsmaður • Winnipeg útibú eru:— MAIN og BANNATYNE SELKIRK og MAIN ARLINGTON og WESTMINSTER ST. VITAL eins og t. d. þýzku leiðtogarnir nú á síðari tímum, hata kristin- dóminn og vilja eyðileggja hann, þeir sjá, að meðlíðunar- semi og mannkærleikur eru í algerðu ósamræmi við stefnu þeirra, sem byggist á ofbeldi og drotnunargirni. Og hér má líka benda á þann sannleika, að þegar kristin trú, að vísu í mjög afbakaðri mynd, barst til for- feðra vorra, sem þrátt fyrir drenglyndi og fleiri mikilsverð- ar dygðir, voru ófriðsamir menn og harðir í viðskiftum, þá skildu þeir hana ekki, Krist- ur var í augum þeirra aðeins annar guð, sem betra gat verið að fylgja heldur en eldri guð- unum. En í hinum flokknum, sem sæluboðin eiga við, eru menn með jákvæðari dygðum. Það eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu; þeir sem eru miskunnsamir; þeir sem eru hjartahreinir; og þeir, sem semja frið. Þessir menn eru gjörendur fremur en þol- endur, það eru þeir, sem gera heiminn betri. Vér getum ekki hugsað oss mann, sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti öðru vísi en sem mjög ákveðinn þeir, sem leitast við að jafna deilur, greiða úr misskilningi og fá menn til að líta skyn- samlega á alla málavöxtu. Vér getum sagt, að dómarar og lög- regla séu friðsemjendur, því þeirra hlutverk er ekki aðeins það, að leita uppi þá menn, sem hafa gerst brotlegir við lögin, og refsa þeim, heldur líka, að sjá um, að lögum sé þannig framfylgt, að sem stærstur hluti þjóðfélagsins geti lifað í friði og óhultur fyrir ójafnaði. Og þrátt fyrir allan ófrið í heiminum og öll stríð, þrá flest- ir menn varanlegan frið. En sá friður fæst aldrei fyr en all- ar þjóðir, smáar og stórar, veikar og voldugar, verða að lúta einhvers konar allsherjar lögum og rétti. Hér eru þá tvær hliðar á kenningum Jesú. Annars veg- ar er kenningin um kærleika, vorkunnsemi, hógværð og mildi, en hins vegar kenning- in um réttlætið, hreinleika hugarfarsins og ákveðnar, já- kvæðar skyldur í lífinu. Báðar þessar hliðar eru jafn mikils- verðar. Sumir menn hafa vilj- að halda því fram, að kenning- ar hans séu einhliða og ónógar mann, mann, sem berst hik-1 og eigi ekki við nútímann. En laust á móti óréttlæti, hvar sem það er misskilningur. Vita- hann finnur það. Orðið hjarta- skuld höfum vér nú á tímum hreinn þýðir hreinskilni, sann- ótal mörg vandamál, sem voru 'eiksást og falsleysi; og sá, óbekt í því mannfélagi, sem sem er hreinskilinn, fyrirlítur hann lifði í. En trúar- og sið- fals og lýgi og sýnir enga miðl- ferðishugsjónir hans eru ekki marsemi við þá lesti. Frið- bundnar við neina staði eða semjendur eru ekki þeir, sem tima. Þær eru sígildar, af því vinna það til friðarins, að að þær geta verið meginreglur beygja sig fyrir hvers kyns ó- fvrir breytni manna á öllum afnaði og ranglæti, heldur timum. RIEDLE “Sendir Jólakveðjur,, Þegar þér takið heim stokk m e ð RIEDLE’S "GREEN LABEL", þá komist þér að raun um hversu góður bjór getur verið! This advertisment is not inserted by the Government Liquor Control Commission. The Commission is not responsible /or statements made as to quality of products advertised

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.