Heimskringla - 11.02.1942, Page 7

Heimskringla - 11.02.1942, Page 7
WINNIPEG, 11. FEBR. 1942 HEIMSKRINGLA 7. SIÐA Ferðahugleiðingar Eftir Soffonías Thorkelsson Framh. Enn xim hótel Borg: Á fyrsta gólfi er skrifstofan og setustofa góð með þægi- legum stólum og setubekkjum; er þaðan útsýni yfir austurvöll, hann er prýddur grassléttum, gangstígum og blómum. En i miðjum vellinum er myndastytta Jóns Sigurðssonar, á góðum fótstalli og vel frá gengið, með stéttum í kring og beðum fyrir blóm og í það heila hinn snotrasti. Þar er umferð mikil af gangandi fólki; fanst mér það gaman og lærdómsrikt að veita því eftirtekt, sem var þar á ferðinni allan daginn en þó lang- mest á kveldin. Reykví'kingar hafa meiri mætur á útigöngum þegar veður er gott en hér þekkist, og eins fyrir það þótt gang- stéttir séu lélegar og viða hreint engar. Á fyrsta gólfi eru einnig veitingasalir tveir rúmgóðir auk annara smærri.'ágæt- lega lagaðir trl veizluhalda og skemtana, alsettir borðum og stólum, hinir viðkunnanlegustu að öllu leyti; umgengni er þar góð og hreinlœti í betra lagi. Þó má geta þess að veggir og loft hótelsins uppi og niðri eru í því ástandi, að maður mætti halda að þeir hefðu ekki verið hreinsaðir eða málaðir fyrir ómuna tíð. Salir þessir rúma fjölda manns, um eða ýfir fimm hundruð (ágiskun min) þegar þeir eru fullskipaðir, og það voru þeir öll kvöldin sem eg kom þar inn, sem var nokkuð oft; þar borðuðu gestir hótelsins, og þar komu menn oft saman fyrir miðdags kaffi, mæltu sér þar mót til erinda og ráðagerða; þar sátu saman, sem bræður væru, pólitískir andstæðingar brosandi út að eyra, Og ræddu áhugamál sín, sögðu sögur og gerðu að gamni sínu. Oft stóð þessi eftirmiðdags kafifidrykkja yfir heil- an klukkutíma eða lengur og fanst mér sem lítið mundi vera eftir af deginum til starfa og framkvæmda þegar upp var staðið, enda heyrði eg oft menn segja það, að það væri orðið svo framorðið, að það tæki því ekki að fara á skrifstofuna héðan af; þar með var dagsverki þeirra lokið þann daginn. Flestir af mönnum þessum voru starfsmenn ríkisins, eða for- stjórar ýmsra fyrirtækja og firma; verkafólk og almenningur höfðu vissulega ekki efni eða tíma til að gæða sér á Borginni í vinnutíma sínum. Það er tilfinnanlega mikill munur á því að vera yfirmaður eða undirmaður í ihöfuðstað landsins. Veitingar sem fram eru bornar eru góðar og vel fram- reiddar og ekki dýrari en á sér stað á hótelum í Ameríku. Og þegar þess er gætt að dýrtíð var í landinu, þá fanst mér sem verðið væri sanngjamt. En svo verða gestir að gera nokkra bragarbót og borga borðþjóninum allra minst 10 af hundraði í ómakslaun og mun þeim ekki veita af því; mér var sagt þeir fengu engin önnur laun. Mun þessi venja vera komin frá Evrópu, og kalla eg þetta ósið öl'lu verri fyrir þann, sem þiggur en hinn sem veitir, að reita inn laun sín á þennan hátt; finst mér það heldur niðurlægjandi, en vel að merkja, það virðist sem fólk er vinnur við veitingastaði, finni ekki til þess. Sjálf- stæðis meðvitund þeirra er druknuð í vananum, enda er það algengt að minna sé farið eftir imálsrökum en venjum. Það þykir hreint ekki svo lítill heiður að búa á Borginni, en hvert það er í raun og veru, læt eg ódæmt, en víst er það, að þangað sækja menn úr valdastétt og efnastéttinni, og vilja ógjarnan láta mæta sér á öðrum veitingarstöðum, enda eru veitingar betur fram bornar þar en annarstaðar og 'húsakostur langsamlega beztur, en verð ekki mikið hærra á veitingum þar en annarstaðar í Reykjavík. Sem dæmi hvað það kostar að bjóða kunningjum sínum inn þangað fyrir miðdags kaffi er þetta: Fjórir við borð, veitingar: kaffi eða súkkulaði 10 krónur. En af því verður ékki eftir nema ein króna fyrir borðþjóninn sem þó er heldur lítið, en oftast látið duga. Hverjum þessara gesta eru bornar sénstakar könnur með tveimur og hálfum bolla í. Því fylgir nægur sykur og rjómi og ágætt sætabrauð (þrjú stykki). Það getur verið að ykkur hér finnist þetta dýrt, en það er ekki þegar að þess er gætt að í landinu er stríðs- tima dýrtíð. Að kvöldinu eru veitingasalirnir full settir bæjarbúum og öðrum gestum; þar mæla kunningjar sér mót. Að kveldinu um kl. átta og þrjátíu voru veizlusalir hótels- ins opnaðir ti'l kvöldskemtana er stóðu yfir til kl. ellefu og þrjátíu, þá urðu allir að rýma. Mér fanst þar vera ágætur samkomustaður, menn keyptu sér léttar veitingar og nutu kvöldsins hið besta. Venjulega voru veitingar kakó kaffi, súkkulaði, heit mjólk, límonaði, gos- drykkir, óáfengt öl; rvin fékst þar líka; eg sá það sjaldan veitt á almennum kvöldskemtunum; hefir víst þótt nokkuð dýrt í staupatali á Borginni. En eg varð hins oft var, að menn voru að pukra með vín, sem þeir höfðu komið með og virtist ekki vera amast við því. Þar var eitt og annað haft til skemtana. Einsögur, ágæt hljómsveit lék fyrir dansi, en plássið sem haft var fyrir dans var heldur lítið og hefði viðvaningum verið gott að æfa list sína þar, þvi þrengslin vor uþað mikil, að einstakl- ingur eða eitt par gátu ékki dottið nema að allur hópurinn ylti umkoll; skokkaði þar hver sem hann stóð og skil eg ekki hvaða skemtun menn gátu haft að þeim dansi; sennilega hefir það verið nálægð persónanna, sem dró fólkið saman, fremur en danssporið. Mér hafði borist það til eyrna 4 Reykjavík og einnig vestur um haf að á hótel Borg væri óregla mikil. En eg verð að segja það, að þetta eru tilhæfulaus ósannindi. Allan þann tíma sem eg var þar, sá eg þess engin merki. Við inngang á veizlusölun- um stendur maður, er leyfir þeim einum að fara inn er honum virðast boðlegir gestir fyrir góðan félagsskap, verða þeir allir að vera snyrtilega til fara og ekki undir áhrifum víns. Einnig Sa eg bæði piltum og stúlkum neitað um inngang er þekt voru aÖ því að hegða sér miður vel; bæri á verulegri háreisti hjá þeim sem inni voru, urðu þeir að hafa sig til dyra; sá eg í uokkrum tilfellum að kendir menn og hávaðasamir voru leiddir út með valdi, fanst mér sá partur hótels stjórnarinnar vera fyrirmynd. Hann heitir Halilgrlmur (man ekki seinna nafnið) er hefir stjórn á veizlusölum hótelsinis, prúðmannlegur og viðfeldin, er 'lætur það ekki ná til geðsmuna sinna, þótt hann verði að henda óláta seggjum á dyr. Hann er Hágur vexti en þrekinn, afburða uiaður að knöftum, þaulvanur leikfimi og hnefaleik; kysi eg ‘heldur að halda bljóðum rmnum í skef jum en lenda í járngreip- COMPANYv MA** \ MOUTIMO 1 ^rirNlorgunmat- \ r*lVÍ?. ROSE8 I w FlVE rolled oats boUasta og LAKE OF THEWOODS MILLINC Co. Limited WINNIPEG MANITOBA um Hallgrims; munu fáir bíða þess að hann leiði þá til dyra í annað sinn. Það hefir farið mikið orð af því að alt væri rándýrt á Borginni. Þessi orðrómur hefir heldur ekki við rök að styðjast; eg varð þess ekki var að þar væri neitt selt óeðlilega dýrt. Það verður að takast til greina hver staðurinn er, og hvað miklu hefir verið til hans kostað, hvernig veitingar eru framreiddar; menn njóta þeirra iíka margfalt betur á skemtilegum stað, við fegurð og þægindi, en í þriðja flokks kompu við búðarborðið. Eg veit ekki af hverju þetta mishermi um Borgina er sprottið um óreglu og dýrsölu, en eg vil geta þess til að meiru hafi þar ráðið misskilningur og öfund, en ástæður og rök, en hinu, þó kanske mest að hótelslhaldarinn, herra Jóhannes Jósepsson er maður ekki við alþýðu skap. Eg hefi gerst langorður um hótel Borg, til þess að menn fengju réttari ihugmynd um hana en verið hefir; þrátt fyrir margt sem mér fanst ábótavant mun eg fyrst leita gistinga þar verði eg staddur í höfuðstað landsins. Framh. - HAFNSPJÖLD - Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finna á skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsimi 33158 Thorvaldson & Eggertson LögfrceBingar 300 NANTON BLDG. Talsimi 97 024 Office Phone Res. Phone 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hotrns: 12—1 4 P.M. 6 P.M. AND BY APPOINTMENT M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lsetur úti meðöl i viðlögum Viðtalstimar: kl. 2—4 e. h. 7—8 að kveldinu Slmi 80 857 643 Toronto St. Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY ST. Beint suður af Banning Talsimi 30 877 Viðtalstími kl. 3—5 e.h. A. S. BARDAL selur lfkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone 86 607 WINNIPEG J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnlpeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave., Phone 27 989 Presh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandic spoken DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Offlce 88 124 Res. 27 702 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 Greníell Blvd. Pihone 62 200 BRÉF TIL HEIMSKRIN GLU Legation of Iceland Washington, D. C. 2. febrúar 1942 Hr. Stefán Einarsson, Ritstjóri Heimskringlu, Winnipeg, Oanada. Kæri Stefán: Mér þykir rétt að tilkynna þér þá breytingu, sem varð á ríkisstjórn Islands um 8. f. m., enda þótt mér hafi ennþá að- eins borist óljósar fregnir af því í símskeytum. Eg tel rétt að láta birta orðrétt simskeyti þau sem mér bárust frá Utan- ríkisráðuneytinu um þessa stjórnarbreytingu. Fara þau hér á eftir: Símskeyti frá Utanríkisráðu- neytinu, dags. 10. janúar: “Félags og utanríkisráðherra Stefán Jöhann Stefánsson í dag beðist lausnar eftir ein- fóma samþykt tillögu hans hér að útandi af miðstjórn og þing- flokki Alþýðuflokksins stop Lausnarbeiðni rökstudd tilvitn- un bráðabirgðalaga gerðardóm kaupgjalds og verðlagsmálum 8/1 1942 þar sem gerðardómur ákveðinn öllum kaupgjaldsmál- um miðað við það að kaup og kjör launþega skuli yfirleitt ekki breytast frá því var í árs- lok 1941 og feldir úr gildi launasamningar gerðir eftir 1/1 1942 til kjarabóta einnig vegna starfsaðferða við setningu bráðabirgðalaganna meðal annars sambandi við greinar- glerð níkisútvarpi þar sem fé- lagsmálaráðherra taldi sig beittan misrétti stop Alþýðu- flokkurinn mun því nú hreinni andstöðu núverandi ríkis- stjórn.” Símskeyti frá Utanríkisráðu- neytinu, dags. 10. janúar: “Aðalefni bráðabirgðalaga 8/1 1942 kaupgjalds verðlags- mála gerðardóm: Tilgangur sporna móti aukinni dýrtíð bæði með því takmarka rétt til hækkunnar grunnkaupi og með því gera víðtækar ráðstafanir til þess 'halda verðlagi nauð- synjum skefjum stop Meginefni lagagreinanna fimm manna stjórnskipaður gerðardómur stop allar brieytingar kaupi kjörum hlutaskiftum þóknun- um gildandi árið 1941 úrskur- ast gerðardómi eftir megin reglunni eigi má greiða hærra grunnkaup samskonar verð en árið 1941 heimild þó breytingar samræmingar lagfæringar ef sérstaklega á stendur stop verkföll verkbönn til breyting- ar kaupi kjörum óheimil einnig þegar hafin verkföll stop Rík- isstjórnin birtir skrá nauð- synjavörum sem óheimilt selja hærra verði heildsölu smásölu en ráslok 1941 ennfremur skrá vörur sem óheimilt áleggja meira heildsölu smásölu en gert árslok 1941 þó undanþága /arðandi innlendar framleiðslu- vörur samræmi breytingar til- kostnaði framLeiðslu þeirra éftir tillögu hlutaðeigandi verð- laganefndar sama gildir áiagn- ingarákvæðin stop óheimilt hækka farmgjöld viðmiðað árs- lok 1941 án samþykkis gerðar dóms stop gerðardómi heimilt ákveða verðlag innlendum iðn- aðarvörum svo og taxta vinnu sambandi álagningu efni vörur vinnulaun stop sektarákvæði 100 til 100000 krónur ná einnig til stjórnenda félaga eða fé- lagssamtaka full stop gerðar- dómsmenn skipaðir Sveinbjörn Jónsson hæstaréttarmálaflutn- Thoroddsen, Hilmar Stefáns- son, Pétur Magnússon, Vil- hjálmur Þór full stop verkfalli aflýst iðnaðarfélögunum vinna þó óhafin sennilegt svo áfram.” Símskeyti frá Utanríkisráðu- neytinu, dags. 20. janúar: “Ríkisstjóri dagveitt Stefáni Jóhanni Stefánssyni lausn stop Ólafur Thors viðtekur utanrík- isráðherraembætti stop jafn- framt “gerð nokkur breyting verkaskiftingu ráðherranna.” Samkvæmt þessu standa nú að ríkisstjórninni Framsóknar- flokkurinn, sem hefir 19 þing- menn, og Sjálfstæðisflokkur- inn, sfem hefir 17 þingmenn. Alls eiga sæti á Alþingi 49 al- þingismenn. — Verkaskifting ráðherranna er nú þessi: Hermann Jónasson er forsæt- isráðherra, dóms- og kirkju- málaráðherra og landbúnaðar- ráðherra. Ólafs Thors er at- vinnumála- og utanríkismála- ráðherra. Eysteinn Jónsson viðskiftamálaráðherra hefir við nýskipun stjórnarinnar einnig tekið að sér póst- og simamál og síldarútvegsmálin. Jakob Möller er fjármála- og félagsmálaráðherra. Fulltrúi Alþýðuflokksins hafði með höndum utanrikis- málin og félagsmálin. Alþingi mun koma saman 15. febrúar næstkomandi, og er bú- ist við að a'lmennar kosningar til Alþingis verði látnar fara fram á komandi sumri. Með bestu kveðjum, þinn einlægur, Thor Thors THE WATCH SHOP THORLAKSON & BALDWIN Dlamond and Wedding Bings Agent for Bulova Waitcbes Marriage Licenses Issued 699 SARGENT AVE ÍSLENZK STÚLKA RIT- ARI HJÁ CORDELL HULL firði. Hún er fædd í bænum Ivanhoe (Ivar hlújárn) í Min- nesota. Foreldrar hennar eru bæði islenzk og þó hún hafi aldrei til Islands komið, skilur hún vel islenzka tungu, og talar hana sæmilega, þó nokkuð gæti amerísks hreims í röddinna, þegar hún talar íslenzku. Mildred Ásbjörnsson er skrif- ari hjá Cordell Huil utanríkis- málaráðherra og var hún ein þeirra skrifara sinna, sem ráð- herrann tók með sér til Lima í Perú, þegar hann fór þangað til að sitja al-amerísku ráðstefn- una, sem þar var haldin. Systir Midred Ásbjörnsson, sem heimildarmaður blaðsins man ekki hvað heitir að for- nafni, er ritari hjá Sumner Wells, aðstoðarútanríkismála- ráðherra Bandaríkjanna. Tvær systur, af íslenzku bergi brotnar, eru þannig rit- arar hjá tveimur af áhrifa- mestu mönnum Bandaríkj- anna. Sami heimildarmaður blaðs- ins, sem sagði frá systrunum Ásbjörnsson, skýrir svo frá, að í Washington sé þriðji Islend- ingurinn, sem gegni störfum fyrir hið opinbera. Hann heit- ir Leifur Magnússon, og vinn- ur sem bókavörður í bókasafni fulltrúadeildar þjóðþingsins. Leifur er fæddur á Islandi, en fkittist til Vesturheims fyr- ir um 40 árum.—Mbl. 22. okt. Cordell Hull, utanríkismála- ráðherra Bandaríkjanna hefir íslenzka stúlku í þjónustu sinni. Hún heitir Mildred Ás- björnsson og er faðir hennar ættaður úr Vopnafirði. Þetta er haft eftir amerísk- um hlaðamanni, sem staddur er hér í bænum um þessar mundir og sem þekkir Mildred. Hann segir svo frá, að faðir ingsmaður formaður, Gunnar Mildred sé ættaður úr Vopna- Hún: — Hundspottið þitt, mig vantar orð til þess að út- mála, hvað eg hata þig. Hann: Guði sé lof. • • • “Er gott að nota húsdýraá- burð á jarðarber?” “ Nei — rjómi er betri.” • • • — Haldið þér að hjónaband- ið sé einsikonar happdrætti? — Nei, alls ekki. 1 happ- drætti getur maður unnið.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.