Heimskringla - 25.03.1942, Blaðsíða 1
4----—--------------
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 33 604
i---------------——- ■
ALWAYS ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread”
The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
Phone 33 604
LVI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN,, 25. MARZ 1942
<' HELZTU FRÉTTIR * *
Stríðið
Ástralía: 1 síðustu viku var
sagt frá för Douglas MacArth-
urs til Ástralíu til að takast þar
á 'hendur herstjórn. Síðan hefir
mikið gerst i Ástralíu. Um
miðja s. 1. viku hófu Ástraling-
ar flugárás á iher Japana í Nýju
Guineu og öðrum eyjum. Var
það ein hin mesta sigurför sam-
bandsþjóðanna í strlíðinu. Flug-
förin komu Japönum í opna
skjöldu þar sem þeir voru að
setja lið á land í Nýju-Guineu
og söktu eða eyðilögða fyrir
þeim 23 skip; voru ein 10 eða
!2 af þeim iherskip, tundur-
spillar. Einnig voru 3 flugför
skotin niður. í þessari svaðil-
för mistu Astralingar aðeins
eritt flugfar. Hafa Ástralingar
siðan gert Japönum nokkrar
skráveifur og er nú eftir vik-
una talið að Japanir hafa tap-
að um 40 skipum og nokkuð
fleiri flugskipum. Hefir þessi
skellur vonandi dregið úr sókn
Japana um tíma að minsta
kosti; verði nú Ástralingum
veitt sú aðstoð, sem þessi hern-
aðar-framkoma þeirra verð-
skuldar, gæti svo farið, að
Kyrrahafssigrum Japana fækk-
aði úr þessu. Það er að minsta
kosti það sem almenningur
vonar, að nú verði ekki legið á
liði sínu.
Burma: Á Burma herstöðv-
unum, var sagt í gær, að Jap-
anir hefðu heldur haft betur,
brátt fyrir þó varnarlið sam-
bandsþjóðanna virtist þar dag-
ana áður vera komið í sóknar
aðstöðu; berjcist nú Kínverjar
þar með Bretum. Um stríðið
þarna má þó segja, að hvorki
reki né gangi.
Rússland: Rússar halda enn
uppi sókn á öllu stríðssvæðinu.
f^eir hafa nú slegið skjaldborg
um Kharkov og eru 200,000
Þjóðverjar þar innilokaðir og
eiga sér ekki undankomu von.
Préttir síðustu dagana halda
Kússa að nokkru nú sezta um
Novgorod. Féllu einn daginn
bar 1800 af Þjóðverjum. Tapi
^jóðverjar þeirri borg, er það
hiikill hnekkir sókn þeirra á
Uorður-vígstöðivunum og við
Leningrad.
í gær var S fréttir fært, að
^jóðveja hefðu komið með
bálfa miljón manna af nýju
liði frá öllum löndum Evrópu
°g ætlað að hefja sóknina á
^loskva. En Rússar voru við
bví búnir og lið það hefir ekki
heitt unnið á enn sem komið er.
Er nú sagt, að f jórir fimtu af
öllu liði Hitlers sé í Rússlandi.
Kr ilt til þess að vita, að ekki
skuh vera hægt að draga að
ráði úr þeirri sókn hans á þenn-
an samherja sambandsþjóð-
unna.
Libya: Þar gengur í sama
bófinu og áður; engin breyting
^rá þvi síðustu viku.
Bataan: Á Bataan-skaganum
a Luzon-eyju, sem er það eina,
s®m nú er ekki í höndum Jap-
ana af Philipseyjunum, berst
bð MacArthurs ennþá. Japanir
&afu liði þessu kost á að gefast
UPP um síðustu ihelgi. En liðið
báði ekki boðið. Það berst
er* *nþá, sem það gerði, meðan
MacArthur var þar og hefir
sfaðið af sér einar tvær hrotta
arásir Japana. Það skildi ekki
að því koma, að foringi Jap-
ana> sem þarna sækir nú á,
eftir að fremja hari kari
(sjálfsmorð) sem fyrirrennari
hans, út af því að ná ekki Bat-
aan-skaganum?
' J. S. Woodsworth dáinn
James S. Woodsworth, for-
ingi C. C. F. flokksins 4 Can-
ada, dó s. 1. laugardagskvöld í
Vancouver. Hann var 68 ára.
Woodsworth var fæddur í
Ontario og var prestssonur. —
Eftir að hann útskrifaðist af
Manitoba-háskóla, stundaði
hann nám í tvö ár við Oxford,
varð síðan prestur og þjónaði
söfnuðum í Manitoba, Saskat-
öhewan og Ontario. Hann var
fjögur ár prestur við Grace-
kirkjuna í Winnipeg. En hug-
ur hans beindist þá að hag al-
mennings og þörfin á að bæta
hann á raunverulegan hátt,
varð honum svo xnikið áhuga-
mál, að hann barðist eftir það
bæði utan þings og innan fýrir
því máli.
Hann gaf sig fyrst að störf-
um innan samtajka verka-
manna, en stofnaði síðan nýjan
flokk er hann nefndi Canadian
Commonwealth Federation og
sem svarar mjög til alþýðu-
flokksins á íslandi. Störf hans
voru helguð þessum flokki til
hins síðasta.
Woodsworth var sambands-
þingmaður fyrir Winnipeg
North Centre í 21 ár. Fyrir
einu ári varð hann að láta af
þingstarfi vegna vanheilsu. —
Filutti hann og um það leyti
frá Winnipeg til Vanoouver,
sér til heilsubótar, en sem varð
árangurslaust.
Woodsworth lifa kona hans,
tvær dætur og fjórir synir. Er
ein d.óttir hans Mrs. A. Mac-
Innis fulltrúi á fylkisþinginu í
British Columbia.
Mr. M. J. Coldwell, sam-
bandsþingmaður frá Saskat-
chewan, er liklegastur talinn
til að taka við forustu C. C. F.
folkksins í Canada; ihann hefir
verið leiðtogi flokksins á þingi
síðan striðið hófst; Woods-
worth var svo andstœður striði,
að flokkur hans taldi hann
ekki heppilegan leiðtoga á
þinginu meðan á því stóð. En
hann var foringi C. C. F. flokks-
ins eins fyrir því.
Ný herkvöð
I ræðu sem Mackenize King
forsætisráðherra Canada hélt
á sambandsþinginu í gær, kvað
hann að því myndí koma, að
menn frá 21 til 30 ára aldurs
yrðu kallaðir í stríðið til varn-
ar þessu landi. Hann gat og
þess, að menn, sem sérstaklega
væru hæfir til vissra verka í
þágu stríðsins, yrðu einnig
kallaðir, þó ekki væru í stríð-
inu. En verkveitendur verða
skyldaðir til að taka einlhvern i
þeirra stað, en ekki fækka
starfsmönnum fyrir það.
Eaton’s fél. nærgætið
við vinnufólk sitt
1 þessum mánuði hafði is-
lenzk stúlika, Guðrún Stefáns-
son, 692 Banning St., unnið í
25 ár hjá Eaton’s félaginu í
Winnipeg. Eins og siður er fé-
lagsins, þakkaði það henni hina
löngu og trúu þjónustu með því
að afhenda henni'$100 að gjöf
og veita henni tveggja mán-
aða ihvild frá vinnu á þessu ári,
með fullu kaupi. Aðrir minja-
gripir og góð orð fylgdu þessu. j
KOMIN TIL ENGLANDS
Ingibjörg Sveinsson
Stúlka sú, er mynd þessi er
af, er dóttir Bjarna Sveinsson-
ar og Matthildar konu hans í
Keewatin, Ont. Fór hún til Is-
lands fyrir nokkrum árum að
sjá ættjörðina, en ílengdist þar,
nam hjúkrunarfræði á Lands-
spitalanum í Reykjavík og út-
skrifaðist þaðan 1938 með á-
gætum vitnisburði. Starfaði
hún tvö ár, sem umsjónarkona
við hjúkrunarstofnun á Húsa-
vík og á Seyðisfirði, í stað for-
stöðukvenna þessara stofnana,
er hvorri var veitt árs-hvíld frá
starfi. Að því búnu hugsaði
Ingibjörg sér að halda heim-
leiðis til Canada. En þegar til
Englands kom, bauðst henni
atvinna. Þrátt fyrir þó hugur-
inn drægi hana til skyldfólks
síns hér, afréð hún að taka boð-
inu urn vinnu í London. Hugs-
aði hún sér að ilokinni veru
sinni á Islandi, að halda til
Danmerkur áður en hún kom
vestur. Hafði hún kynst kon-
um þaðan er sama starf og hún
höfðu með höndum og var orð-
in fær í danskri tungu, því
námsgreinar hennar voru á
dönsku kendar. Hitt hafði hún
einmig hugsað sér, að dvelja
eitt ár í Englandi til að kynn-
ast starfi sínu, sem víðast. Það
ætlar Ihún sér nú að efna, þó
stríðið aftraði því að hún kæm-
ist til Danmerkur.
I Morgunblðinu í Reykjavík,
var Ingibjargar minst mjög
hlýlega er hún útskrifaðist
1938 og dáðst að framikomu
hennar og friðleik. Á hún til
þeirra að telja, því móðir henn-
ar og móðursýsturnar, Stefan-
ía, gift Ólafi kaupm. Davíðs-
syni og Jórunn, kona Magnúsar
Jónssonar, voru með mestu
fríðleikskonum sinnar sýslu
taldar.
Guðrún er dóttir Þórarins heit-
ins Stefánssonar og konu hans
Steinunnar, er til Vesturheims
fluttu um síðustu aldamót og
bjuggu lengst af í Fra-mnes-
bygðinni í Nýja-Islandi.
ÚR ÖLLUM ÁTTITM
Nurzynski, pólskur blaða-
maður, var nýlega hálshöggv-
inn af Þjóðverjum. Hann
komst einhvernveginn yfir
fréttir frá Bretum og birti þær
í blaði er hann gaf út á laun.
Tvö hundruð manna, er ein-
hverja samvinnu áttu við hann,
hafa verið fluttir í fangaver
Þjóðverja.
• * *
Þýzk-lúterskir trúboðar á
Nýju-Guinea, gengu í þjónustu
Japana, um leið og her þeirra
kom til eyjunnar, vísuðu Jap-
önum leiðir um landið og á
brýr, sem þeir höfðu fyrir þá
gert yfir ár o.g ófærur; hafði
samvinna þeirra við Japani
lengi átt sér stað.
• • •
Foringja úr sjóliði austur-
strandar Canada, létu það uppi
við fregnrita í gær, að Þjóð-
verjar væru vissir með að
koma kafbátum sínum fyrir í
St. Lawrence-flóanum á kom-
andi sumri. Þeir töldu meira
að segja ekki óhugsandi, að
þeim fylgdi móðurskip. Flug-
þðið hélt þeim nú hættu búna.
Á Norður-Atlantshafinu, hefir
ekki enn orðið þýzks móður-
skips vart. En það sama verð-
ur ekki sagt um Suður- At-
lanzhafið.
• • •
Þjóðverjar hófu árás á Dover
á Englandi s.l. mánudagskvöld.
Árásin var sögð hörð og olli
nokkru manntjóni.
# • *
Dr. H. F. Ward, a'ldraður.
prestur frá New York, sem
staddur er í Winnipeg, flutti
erindi i Grace-kirkjunni í gær-
kvöldi og hélt því fram að
kristnasta þjóðin á þessari jörð
væru Rússsar. Aðrar þjóðir
sem væru að reyna að vera
kristnar, gætu það ekki vegna
auðvaldsins.
• • •
Á borgarafundi sem haldinn
var í Winnipeg s. 1. mánudae
var rætt um þörfina á stjórn í
þessu landi, sem óháð væri
öllum flokkum. Var haldið
fram, að formaður slikrar
stjórnar væri enginn ákjósan-
legri, en Lieut.-General A. G. L.
McNaughton, yfirmaður Can-
ada-ihersins á Englandi. Kváðu
fundir um þetta hafa verið
haldnir víða í Canada og menn
yerið hugmyndinni fylgjandi.
• • •
Af erindi Sir Stafford Cripps
til Indlands eru ekki neinar úr-
slitafréttir enn komnar. Blöðin
virðast vongóð um árangurinn.
• • •
C. N. R. er sagt, að flytja
muni eitthvað af skrifstofum
sínum frá Montreal til Winni-
Peg.
• • •
Nokkur hundruð canadiskra
hermanna og 50 hjúkrunar-
kvenna, kom-u til Bretlands í
gær frá Canada. Ferðin gekk
ágætlega; liðið var aldrei ó-
náðað af óvinunum á hafinu.
• • •
Howard Green, íhaldsmaður
frá Vancouver á sambands-
þinginu, hreyfði því í gær, að
Canada sendi lið til Ástralíu,
hvað látið sem væri; taldi það
ávalt bera vott um samhygð
með hinni fámennu þjóð, er
nú væri í svo mikilli hættu
stödd.
• • *
Rúmanía hefir tapað 115,000
hermönnum í stríðinu yið
Rússa og er skapþungt út af
því.
• • *
Fylkisþinginu í Manitoba er
búist við að verði slitið n. k.
laugardag. Það eru nokkur
mál í höndum nefnda, en þar
sem allir eru sammála um alt á
þinginu, er ekki búist við, að
mikið verði annað gert við þau
mál, en að greiða atkvæði um
þau.
• • * •
I bardaganum á Indlandseyj-
um notuðu Japanir óspart
ensku kunnátta sína til að
gabba her Hollendinganna,
skipa þeim að gera þetta eða
hitt og þóttust vera enskir fyr-
irliðar.
SMÆLKI
Það sem manni má þykja
betur um með öðru í sambandi
við tíðina í vetur, er að gömlu
mennirnir geta ekki komið og
sagt manni montnir, að þeir
hafi einu sinni áður lifað hér
eins góðan vetur.
• • •
Confucius, uppi á 6 öld f. Kr.
sagði: Gerið ekki öðrum það,
sem þér vidjið ekki að þeir geri
yður.
Biblían: Alt sem þér viljið
að mennirnir geri yður, það
skuluð þér og þeim gera.
Hver er munurinn?
• « •
Konur í Bandaríkjunum nota
eins mikinn varalit á einu ári
og þarf til að mála 40,000 hlöð-
ur fagurrauðar.
• • •
Heiðursmerki hefir fólag,
semlítur eftir gætilegum akstri
(National Safety Council) veitt
81 af bíl- og vagnstjórum Win-
nipeg Electric félagsins fyrir
að komast hjá slysum á árinu
1941. Fimtán þessara vagn-
stjóra hafa ekki orðið fyrir
neinum slysum í 10 ár eða
meira.
• • •
“Þessi ávísun er óefað góð,”
sagði bankaþjónninn undur
kurteislega, “en hafið þér ekk-
ert á yður, sem gefur til kynna,
hver þér eruð?”
Stúlkunni félst hugur en
sagði áður en hún vissi af: “Eg
hefi fæðingarblett á vinstra
fæti fyrir ofan hné.”
• * •
Skoðið aldrei neitt það yður
til gæfu eða upphefðar, sem
kemur yður ti/1 að svíkja loforð
yðar eða tapa sjálfsvirðing-
unni. Marcus Aurelius
\ • • •
Eg vil borga gott með góðu;
eg vil einnig borga ílt með
góðu. Laotze
• • •
Skrafið eitt eldar ekki hrís-
grjónirt.—Kínverskur málsh.
• • •
Gef oss trú á mátt réttlætis-
ins. I þeirri trú ættum við
hiklaust að framkvæma skyld-
ur vorar eins og vér skiljum
þær. Abraham Lincoln
• # •
Líklega þarf maður að læra
kristindóminn á óvita aldri.
Laxness.
FJÆR OG NÆR
íslenzkur maður skýtur 9
timburúlfa. 6 leggja ó flótta
Víglundur Guðmundsson frá
Mikley, sem um nokkur ár hef-
ir verið búsettur við Hole Riv-
er, austan Winnipeg-vatns, og
stundað dýraveiðar, mætti í
vetur 15 timburúlfum í einum
hóp á stöðuvatni skamt frá
kofa sínum. Hann skaut 9 af
þeim, en þá loks lögðu 6 á
flótta.
Stuttu áður hafði annar
veiðimaður, Gus Gilbertson,
sem bjó í nágrenni við Víglund,
orðið úlfahópsins var, en varð
að láta undan síga því að hann
var vopnlaus.
Úlfahópur þessi hafði undan-
farið verið á stöðugu flakki þar
um slóðir, og alt af orðið
grimmari og nærgöngulli.
Timburúlfar eru hugaðir og
hlífa engu þegar þeir fara
margir saman. Voru þeir orðnir
hinir mestu vágestir bæði fyrir
menn og dýr. Víglundur er
stiltur maður og yfirlætislaus,
karlmenni að burðurn, fullhugi
NÚMER 26
UMFERÐASTJóRI í B. C
Sigurður Sigmundsson
Fyrir viku síðan barst sú
frétt hingað austan að frá Ot-
tawa, að ungur Islendingur,
Sigurður Sigmundsson, sem
hefir verið “Transportation As-
;sistant” í þjónustu Winnipeg
Electric Railway Co., s. 1. f jög-
I ur ár, hafi verið skipaður “Re-
1 gional Controller for British
I Columbia” í samráði við
“Dominion Transit Controller”
og undir leiðsögn hans. Aðal
verksvið Mr. Sigmundsson
verður það, að koma skipulagi
á öll fólks- og vöruflutnings-
tæki í British Columbia til að
koma í veg fyrir eyðslu á þeim
hlutum sem notaðir eru í sam-
bandi við flutning, og sem á
þarf að halda í stríðs þarfir
þjóðarinnar. Eins og gefur að
skilja er þetta ábyrgðarfull
staða, og er hún viðurkenning
um hæfilegleika, dugnað og
framtakssemi þessa unga
manns.
Mr. Sigmundsson var fæddur
í Reykjavik á Islandi og kom
til þessa lands með foreldrum
sínum á unga aldri, og fékk
alla sína skólamentun hér í
Winnipeg. Á miðskólanum
hlaut hann verðlaun (Governor
General’s Medal) og seinna á
Manitoba háskólanum fékk
hann “scholarship” og þegar
hann útskrifaðist 1930, hlaut
hann verðlaun fyrir að skara
fram úr, og fókk stöðu hjá Win-
nipeg Electric Railway félag-
inu, þar sem hann hefir unnið
síðan og getið sér ágætan orð-
stír, og unnið sig áfram í þá
stöðu sem hann nú heldur.
Mr. Sigmundsson er sonur
þeirra hjóna Jóhanns Sig-
mundssonar og Þórdísar Sig-
urðardótur, sem búa hér í Win-
nipeg. Árið 1935 kvæntist
hann Önnu Rósu, dóttur Ólafs
og Önnu Pétursson. Þau eiga
tvö börn, ólaf Jóhann og Elinu.
Mr. Sigmundsson gerir ráð
fyrir að flytja héðan til Van-
couver, og byrja þar starf sitt
á morgun, fimtudaginn 26. þ.
m. Framtíðar heimili þeirra
hjóna verður fyrst um sinn í
Vancouver. P.
hinn mesti og skytta ágæt. —
Hefir hann með þessu unnið
hið mesta þarfa og hreystiverk,
sem er þess vert að í frásögur
sé fært. (Að mestu þýtt úr
Free Press). J. S. frá Kaldbak
• • •
S. 1. sunnudagskvöld flutti
séra Philip M. Pétursson erindi
á Y. M. C. A. hér í Winnipeg á
hermanna samkomu sem hald-
in er þar á hverju sunnudags-
kvöldd eftir messu. Á fjórða
hundrað manns var þar komið
saman. Veitingar voru undir
umsjón skozkra kvenfélaga, en
samkoman undir umsjón Y. M.
C. A., og stjórnað a-f Mr. Geo.
Douglas.