Heimskringla - 25.03.1942, Blaðsíða 8

Heimskringla - 25.03.1942, Blaðsíða 8
/ 8. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 25. MARZ 1942 FJÆR OG NÆR MESSUR í ÍSLENZKU SAMBANDSKIRKJUNUM Messur í Winnipeg Við morgunguðsþjónustuna í Sambandskirkjunni n.k. sunnu- dag, tekur presturinn sem um- . ræðuefni sitt, “Out o^Darkness Into Light”, og við kvöldguðs- þjónustuna, “Pálmasunnudags- hugleiðingar”. Fjölmennið við , báðar guðsþjónusturnar. • * • Messað verður í Sambands- kirkjunni í Riverton sunnudag- inn 29. marz n. k., kl. 2 e. h. * * # Kvenfélag Sambandskirkj- unnar -í Riverton efnir til sölu á heimatilbúnum matvog kaffi í samkmuhúsi bygðarinnar, laugardaginn 28. marz; byrjar lcl. 2.30 e. h. • • • Þjóðrækinsfélags deildin í Selkirk hefir samkomu og út- breiðslufund í íslenzka sam- komuhúsinu 31. þ. m. Meðal -annara sem þar verða á skemtiskrá eru þessir menn frá Winnipeg: Mr. S. Thorkelsson með stutta ræðu; Mr. Birgir Halldórsson með einsöngva; Mr. P. S. Pálsson með gaman- söngva. Fólk er beðið að hafa þetta hugfast og fjölmenna á þessa samkomu sem bæði er uppbyggileg og til styrktar góðu málefni. • • • S. I. laugardag, andaðist að heimili Björns Péturssonar, 616 Alverstone St., tengdafaðir íhans, Albert Alexander Fergu- áon, 89 ára að aldri. Útförin fer fram n. k. fimtudag, frá heim- 'ili hans. Séra Philip M. Pét- ursson jarðsyngur. Útfarar- istofa Bardals sér um útförina. • • • Skírnarathöfn S. 1. laugardag, fór fram skírnarathöfn að heimili Mr. og Mrs. Jóhannesar Gottfred, 1215 Windermere Ave., Fort Garry, er dóttir þeirra, Eliene Davine Joy var skírð, að nokkr- um vinum og ættmennum við- stöddum. Guðfeðgin voru Mr. og Mrs. Kernaghan. Séra F. M. Pétursson skírði. • • • í ummælum F. J. um Eim- reiðina í síðasta blaði varð prentvilla; þar stendur Jarð- stjörnufræðisstöðin í stað Jarð- stjórnfræðisstöðin; þetta leið- réttist hér með. ROSE THEATRE ---Sargent at Arlington- Phone 23 569 This Week—Thur., Fri. & Sat. Britain's No. 1 Comedian GEORGE FORMBY in "I SEE ICE" ADDED "The Bride Wore Crutches" Cartoon KIDDIES — Starting this Friday night and Saturday Matinee — Chapter No. 1 of our new serial "THE SPIDER'S WEB" •>!iiiiiuiinc]iiiiiiiiiiiiniiiiiniiiiiniiiiiiiiiiioiiiiiiiiiiiuniiiiiiiiiit<9 — HEYRNARLEYSI — HÉR ER ÞA LOKSINS HIÐ NÝJA UNDRA VERKFÆRI Dregur úr háum hljóðum og öðrum skerandi hávaða, lagar hljóðið sjálfkrafa. Fri reynslu- sýning á laugardaginn og alla næstu viku. Dunlop Prescription Pharmacy Cor. Kennedy and Graham Opin á kveldin til kl. 8 2. marz 1942 lézt á Grace spítalanum í Winnipeg úr inn- vortis meinsemd, Stefán Abra- hamsson, 65 ára gamall. Hann hafði um langt skeið átt heima í Winnipeg en nokkra undan farna vetur hélt hann til hjá kunningja sínum, Thorgrími Ólafsso, Antler, Sask., og arf- leiddi hann tvær dætur hans að öllu er hann lét eftir sig. • • • Gefin saman í hjónaband kirkju Selkirk-safnaðar, þ. 21. marz, af sóknarpresti þar, Wal- ter Hermann Bessason, Selkirk, Man., og Ingibjörg Gilisson, sama staðar. Brúðguminn er sonur Kristjáns Bessasonar Selkirk og fyrri konu hans, Guðrúnar Vigfúsdóttur. Brúð- urin er dóttir Halls Gilssonar, og látinnar konu hans Mar grétar Snorradóttir. Framtíð- arheimili ungu hjónanna verð- ur í Selkirk. • • • Messa i Riverton Næsta sunnudag, 29. marz, verður ensk messa í kirkju Bræðrasafnaðar kl. 8 e. h. B. A. Bjarnason • • • "GRAUTAR"-HALLA- "HATTUR" “Enginn saka ætti þig”. Er það móðins galli: Að menn éta yfir sig, Eins og grautar-HalJi. Jakob J. NormaiT Tilky nning um vinnufólks skrásetning Eftir beiðni Honourable Humphrey Mitchell, verka- mólaróðherra, og eftir skipun stjórnarinnar sam- kvœmt herlögunum, er vinnuleysingja vótrygging- arnefndin að skrósetja alla vinnufœra er koma undir vótryggingar lögin fró 1940. Það er SKIPAÐ að skrósetningar-skírteini þau, er vinnuveitendum hefir verið fengið í hendur, skulu vera fullgerð fyrir alla vinnuþiggjendur. hvort held- ur vátrygða eða óvátrygða, og send til nœstu skrif- stofu nefndarinnar ekki siðar en 31. marz. Þetta er mjög áríðandi stríðs-ráðstöfun Hagleikur og kunnátta hvers verkmanns í Canada verður að vera stjórninni ljós, svo kraftar þeirra og þekking verði að sem beztum notum. Þetta er fyrsta sporið til að skrásetja mannafla. Vinnuleysis vátrygginga-bókum verður að skifta fyrir 1. apríl Til að forðast allan árekstur er ofannefnd skrá- setning sett i samband við endurnýjun atvinnuleys- is vátryggingar bóka. Nýjar bœkur verða sendar tafarlaust með pósti gegn skrásetningarskýrslu og gömlu vátryggingar- bókunum mörkuðum með siðustu borgun i marz. Til fullkomnari skýringar snúið yður til nœsta vátrygginga umboðsmanns í yðar bygðarlagi. UM SAMVINNU ALLRA ER EINLÆGLEGA ÓSKAÐ Unemployment Insurance Commission Ottawa, Canada, 23. marz, 1942. Ljóðmæli Kristjáns Jónssonar Eg hefi verið beðinn að selja nokkur eintök af þessari Ijóðabók. Er þetta útgáfan frá 1907, sem kom út á kostnað séra Björns heitins Jónssonar, og aftan við Ijóðmælin er alHtarleg greinargerð um uppvöxt og skapferli þessa ein- kennilega manns, sem byrjaði að yrkja vísur á barnsaldri, eða 8 ára að aldri. Þessi bók er 165 bls., og vel til hennar vandað, og hún er í prýðilega fallegu skrautbandi. Verðið er $1.50, og er það ekkert meira en það sem bandið hefir kostað. Eg verð að láta þess getið að tvær af þeim bókum sem eg auglýsti nýlega, eru nú uppseldar, en þær eru: “Heiða- harmur” og 1000 íslenzkir málshættir. Af öllum hinum bókunum hefi ég enn nokkrar birgðir. — Þrjú síðustu heftin.... af Dvöl fyrir 1941, eru nýkomin og hefi eg sent þau til kaupenda. MAGNUS PETERSON 313 Horace St. Norwood, Man. Látið kassa í Kœliskápinn WvmoLa M GOOD ANYTIME Junior Icelandic League News Honoring Mr. and Mrs. S. Sigmundsson, the Junior Ice- landic League held a party at the Cave, Tuesday Maroh 24th. Mr. Sigmundsson leaves for Vancouver on Thursday to take up his new duties as Regional Transit Controller for the Pro- vince of British Columbia, where his wife and children will join him shortly. He was presented with a small token of remembrance on behalf of the club, by Paul Thorkelsson, vice-president. Mr. Sigmundsson will be sorely missed by all who know him, yet everyone rejoices that his abilities have thus been recognized by the Government of Canada, and we are confi- dent bhat this step is only one of many which will raise him to greater heights. • * • Laugardagsskólinn Lokasamkoma laugardags- skólans verður haldin laugar- dagskveldið 18. apríl. Kennur- um og forstöðumönnum skól- ans er það áhugamál, að börnin sæki skólann alla þá laugar- daga sem eftir eru. Nú mega þau ekki tapa einni einustu kenslustund. • • • 1 hinu mjög svo óðfleyga kvæði Jónasar Stefánssonar frá Kaldbak, “Manngjöld”, sem birtist í næst síðast blaði Hkr er ein prentvilla, sem leiðrétt- ingar þarf við; það er í fjórðu vísunni, sjöttu ljóðlínu: “Vora iðkum þakkargjörð”, en átti að vera: Vara-iðkum þakkar- gjörð. önnur villa, en ekki eins bagaleg er í fystu vísu: stírð fyrir stríð. • • • Messa I Mikley Föstudaginn langa, 3. apríl, verður væntanlega messa í kirkju Mikleyjar lúterska safn- aðar kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason • • • Matreiðslubók Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5í. • • • Lúterska kirkjan í Selkirk Messur um páskaleytið: — Pálmasunnudag, 29. marz, Sd. skóli kl. 11 f. h. Isl. messa kl. 7, er Mr. Jón Ingjaldsson stjórnar. Miðvikudag, 1. apríl: Föstu- messa á heimili Mrs. R. Hall- dórsson, kl. 7.30 e. h. Föstud. langa: Messa í kirkj- unni kl. 7 e. h. Páskadag: Ensk messa kl. 11 f. h. Isl. hátíðaguðsþjónusta, kl. 7 e. h. Allir boðnir velkomn- ir. S. Ólafsson. renning” heitir. Hið nýja blað á að koma út hálfsmánaðar- lega og kostar $1.25 á ári. — Fyrsta eintak blaðsins, er Hkr. evening, hefir verið sent, lítur vel út; það flytur fréttir úr bygðunum milli Vatnanna og ýmislegt til gagns og gamans. SARGENT TAXl 7241/2 Sargent Ave. SÍMI 34 555 eða 34 557 TRUMP TAXI ST. JAMES B R É F “Interlake Municipal Observ- er” heitir nýtt fréttablað á ensku, sem farið er að gefa út í Ashern, Man. Ritstjóri þess er Gísli P. Magnússon, en ráðs- maður M. J. G. Magnússon, en þeir hafa um skeið gefið út ís- lenzkt rit þar nyrðra, er “Dag- (Bréf það sem hér fer á eftir, var skrifað B. Sveinssyni í Kee- watin af dóttur hans Ingi- björgu hjúkrunarkonu; er það birt hér að óskum þeirra. Ingi- björg á hér marga kunninga, sem lengf hafa engar fréttir af henni haft og vonar að fá bréf frá einhverjum þeirra.) Kingsley Hotel, Bloomsbury Way, London, England, 25. janúar 1942 Elsku pabbi minn: Þið verðið víst meir en hissa að sjá nýju addressuna mína, að eg skuli vera komin til Eng- lands í stað þess að vera á leið heim til ykkar. Eg kom til London í dag, fór frá íslandi 9. þ. m. og komst hingað til lands í gær. . Við vorum tvær og erum búnar að fá atvinnu. Eg er ekki viss um þá nýju add- ressu en mun skrifa þér fljót- lega og láta þig vita hana, það er að segja, ef bréfin komast nokkurntíma í gegn. Það er líklegra að þau komist til ykk- ar frá Englandi en fslandi. Eg býst ekki við að þið hafið feng- ið neitt af mínum bréfum í lengri tíð, og eg hefi ekkert heyrt frá ykkur í sex mánuði. En maður ætti líklega ekki að kvarta, við erum lánsamari, sem komið er, en margur ann- ar. Eg vona, faðir minn, að þú og þið öll verðið ekki áhyggju- fuill út af mér. Eg kem til að hafa það gott og með því að vera varkár, þá er ekki neitt hættulegra að vera hér en ann- arstaðar. Þið spyrjið nú líklega, hvers vegna var hún að fara til Eng- lands? Eg get eiginlega ekki skýrt frá því sjálf. Það er lík- lega þessi óútreiknanlega þrá fyrlr okkur, hjúkrunarkonum, að vera og hjálpa þeim sem mest þarfnast aðstoðar við. — Þetta lengir tíman þar til að eg sé ykkur, en eg vona að guð gefi okkur iíf og heilsu til að geta hitst ennþá. Eg hlakka til að fá bréf frá ykkur; eg vona bara að það verði betri regla á póstflutn- ingi héðan en til íslands. Næst þegar eg skrifa, sem verður fíjótlega, þá verða það líka fréttir frá íslandi. Það er gamanlaust að skrifa löng fréttabréf, þegar maður veit aldrei hvort eftirlitsmennirnir lofa þeim að fara ferða sinna eða senda þau til baka. Þá ætla eg að enda þessar línur, faðir minn, og eg vona að þið hafið það gott. Skilaðu kærri kveðju til mömmu og systkina minna. Eg skrifa mömmu í næstu viku. Þín einlæg dóttir, (Nurse) Ingibjörg Sveinsson ÞJóÐRÆKNISFÉLAG ISLENDINGA v Forseti: Dr. Richard Beck University Station, Grand Forks, North Dakota Allir íslendingar í Ame- ríku ættu að heyra til Þjóðrœknisfélaginu Ársgjald (þar með fylgir Tímarit félagsins ókeypis) $1.00, sendist fjármálarit- ara Guðmann Levy, 251 Furby St., Winnipeg, Man. ■###############################^4 Hljómplata “Draumalandið”, eftir Sigfús Einarsson og “Svanasöngur á heiði”, eftir Sigvalda Kalda- lóns. Sungið af Maríu Markan. Hljómplata þessi er seld á að- eins einn dollar, ($1.00). Alt sem selst af þessari ágætu hljómplötu, gengur til “Rauða- kross íslands”. Pantanir send- ar hvert sem óskað er. Póst- gjald 25^ fyrir eina plötu, 35tf fyrir tvær. Vinsæl lög. — Vin- sæl og fræg söngkona. — Styðjið gott málefni. Björnssons Book Store 702 Sargent Ave., Winnipeg MESSUR og FUNDIR í kirkju Sambandssafnaðcnr Prestur, sr. Philip M. Pétursson 640 Agnes St. Sími 24163 Messur: á hverjum sunnudegi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á íslenzku. Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstudag hvers mánaðar. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Ungmennafélagið: Yngri deild — hvert sunnudagskveld kl. 8.30. Eldri deild — annað hvert mánudagskveld kl. 8.15. Skátaflokkurinn: Hvert fimtu- dagskveld. Söngœfingar: Islenzki söng- flokkurinn á hverju fimtu- dagskveldi. Enski söngflokkurinn á hverju föstudagskveldi. Sunnudagaskólinn: Á hverjum sunnudegi, kl. 11 f. h. EKKI skuluð þið láta óreglu- lega blóðrás, taugaveiklun, kvensjúkdóma eða skinnsjúk- dóma halda yður til baka frá heilbrigðri heilsu. DR. G. J. GUSTAFSON MEDIQAL ELECTROLOGIST 701 Confederation Life Bldg. til viðtals: 10—12 og 2—4 BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleyrnd er goldin skuld LESIÐ HEIMSKRINGLU— bezta íslenzka fréttablaðið INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU I CANADA: Amaranth............................. Antler, Sask.......................,K. J. Abrahamson Arnes...............................Sumarliöi J. Kárdal Árborg..................................G. O. Einarsson Baldur........................................Sigtr. Sigyaldason Beckville............................Björn Þórðarson Belmont..................................G. J. Oleson Bredenbury............................ Brown..............................Thorst. J. Gíslason Churchbridge__________________________ CjTiress River...................................Guðm. Sveinsson Daifoe............................... S. S. Anderson Ebor Station, Man...................K. J. Abrahamson ELfros------------------------------J. H. Goodmundson Eriksdale.....................................Ólafur Hallsson Fishing Lake, Sask..................... Rósm. Ámason Foam Lake............................ H. G. Sigurðsson Gimli...................................K. Kjernested Geysir..........................................Tím. Böðvarsson Glenboro...................................G. J. Oleson Hayland............................. Slg. B. Helgason Hecla.................................Jóhann K. Johnson Hnausa................................Gestur S. Vídal Húsavík.............................. Innisfail.......................... Ófeigur Sigurðsson Kandahar______________________________ S. S. Anderson Keewatin..............................Sigm. Björnsson Langruth.....:.......................Böðvar Jónsson Leslie..............................Th. Guðmundsson Lundar.....................................d. J. Líndal Markerville........................ Ófeigur Sigurðsson Mozart-------------------------------- s. S. Anderson Narrows...........................................s. Sigfússon Oak Point............................ Mrs. L. S. Taylor Oakview—..........................................s. Sigfússon Otto...........................................Björn Hördal Píney...................................s. S. Anderson Red Deer.....................................ófeigur Sigurðsson Reykjavík................................ Riverton............................ Selkirk, Man...........Mrs. David Johnson, 216 Queen St. Silver Bay, Man.......................Hallur Hallson Sinclair, Man..........................K. J. Abrahamson Steep Rock......................................Fred Snædal Stony Hill.....................................Björn Hördal Tantallon.......................... ..Árni S. Árnason ThornhiU.........................Thorst. J. Gíslason Víðir.................................~A.ug. Einarsson Vancouver...........................Mts. Anna Harvey Winnipegosis..............l.................S. Oliver Winnipeg Beach........................ Wynyard.............................. S. S. Anderson í BANDARÍKJUNUM: Bantry..............................E. J. BreiðfjörB Bellingham, Wash.................Mrs. John W. Johnson Blaine, Wash..................................Magnús Thordarson Cavalier and Walsh Co................ Grafton..............................Mrs. E. Eastman Ivanhoe...........................Miss C. V. Dalmann Los Angeles, Calif.... Milton....................................S, Goodman Minneota..........................Miss C. V. Dalmann Mountain............................. Th. Thorfinnsson National Cíty, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St Point Roberts, Wash.....................Ásta Norman Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W. Upham................................. E. J. Breiðfjörð The Viking Press Ltd. Winnipeg Manitoba r

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.