Heimskringla - 01.04.1942, Side 7

Heimskringla - 01.04.1942, Side 7
WINNIPEG, 1. APRIL 1942 HEIMSKRINGLA 7. SÍÐA ' Ferðahugleiðingar Eftir Soffonías Thorkelsson ------ Framh. Eg held að allir pólitísku flokkarnir hafi verið sammála um að kjósa forseta, og gera fullan skilnað við Dani, eftir að þýzki herinn tók Danmörku, og danski konungurinn gat ekki náð til íslands með stjórnar og veldissprota sínum, og var mikið um það rætt hver mundi hljóta þann heiður að verða kosinn fyrsti forseti landsins. Heyrði eg stungið upp á fjórum, sem allir þóttu líklegir til að vera stöðunni vaxnir, og hafa traust þjóðarinnar. Voru þeir Sveinn Björnsson sendiherra, Jónas alþingismaður og formað- ur framsóknarflokksins; Hermann Jónasson forsætisráðherra; Vilhjálmur Stefánsson, doktor í imannfræði, búsettur í New York. Það mun hafa verið einhver undirbúningur með forseta kosninguna veturinn sem eg var heima, því búist var við hún færi fram nœsta sumar, 1941, en ekki var sá undirbúuningur í hámælum hafður. Það var nokkuð talað um það að Sveinn Björnsson sendiherra væri mjög á móti því að skilið yrði við Dani, fyrri en sá tími kæmi er um hafði verið samið, 1943, að íslendingar segði konungi sínum upp stöðunni. Bretinn lét þá til sín heyra. Lagði þann úrskurð á óbeð- inn, að þeir skyldu ekki gera það, að skilja við Dani að svo stöddu en kjósa sér landstjóra til þriggja ára. Kom þetta frá Bretum sem ráðlegging til íslendinga, en sagt var af þeim sem málum þessum voru fullkunnugir, að 'hún hefði verið þeirrar tegundar að ekki gæti það komið til mála að ganga fram hjá henni, því vitanlega réðu Englendingar öllu hjá ís- lendingum sem þeir vildu, því landið var og er algerlega á þeirra valdi, en vissulega hafa þeir farið vel með það vald. En það bar á talsverðri óánægju út af þessu. Það mun mörgum ís- lendingi haf»fundist hann vera búinn að vera full lengi undir Dani gefinn, og þeim vera mál að slíta sambandinu nú, en ekki að bæta við það enn þremur árum; það væri lika óvíst hvernig ástandið yrði að þeim árum liðnum; það gætu þá orðið aðrar og stærri tálmanir en nú. Englendingar héldu því fram, að þeir væru að berjast fyrir frelsi og jafnrétti annara þjóða, og fanst mönnum sem þeir hefðu átt að unna íslandi þess, að fá sjálfstæði sitt, er konung- urþeirra var sama sem fangi þýzku hervaldanna, og gat ekki gengt þeim skyldum við Islendinga er honum bar að inna af bendi. Eg heyrði ekki getið um að Englendingar hefðu fært neinar ástæður fyrir þessu, eða hvað þeim gekk til þess. Þó er ekki ólíklegt að svo hafi verið, því þeir eru ekki þektir að því að vanihugsa stjórnmál sín, nema hafi það verið þegar þeir lögðu út í þetta stríð óundirbúnir. Fyrirmælum Englendinga var fylgt, og landstjóri var kos- inn, Sveinn Björnsson sendiherra, prýðilegur maður, sem eng- inn hafði nema gott eitt um að segja. Mann, sem hafði fengið meiri reynslu í utanríkismálum en nokkur annar núlifandi Is- lendingur. I sendiherra stöðunni hafði hann sannað sig til þjóðarinnar að skyldurækni og góðum hæf-ilegleikum, að sigla í kringuim Skerin, og leiða málin giftusamlega til lykta fyrir Islendinga. Sveinn er ekki þektur að þvi að taka neinn þátt í pólitík, og engum mun vera það full-ljóst hvar hann er með eða móti, og er það líka kostur, og hann ekki lítill á manni í hans stöðu. Eg álít að þjóðin hafi verið heppin í valinu, og eg vona að hún verði líka lánsöm undir hans stjórn, að honum megi auðnast, með lipurð sinni og mannkostum, að firra stjórnendur landsins því ofstækis æði í fram-tíðinni er þeir hafa oft beitt hver annan, er hefir spilt hæfilegleikum og starfskröftum þeirra svo að þeir hafa ekki orðið þjóðinni að hálfum notum og þeirn sjálfum til hinnar mestu vanvirðu, og sannað öllu öðru betur að þeir eru ekki vel þroskaðir stjórnmálamenn, gæfa þjóðarinnar í framtíð- inni hlýtur að hvíla á því að afar miklu leyti, að vitrir og góð- gjarnirmenn fari með völdin. Sveinn Björn-sson landstjóri er einn þeirra manna er eg ber mikið traust til, um góða dóm- greind og stillingu. Eg óska þjóðinni til blessunnar með hann se-m æðsta mann sinn og honum með stöðuna og staðinn sögu- fræga, höfuðbólið Bessastaði, til ábúðar. Það mætti margt um það segja hvernig breska hernum var tekið er hann kom til landsins, öllum að óvörum, en eg vil ekki vera fjölorður um það, aðeins -minnast á nokkur atriði, eins og þau komu mér fyrir sjónir, og getur fólk kanske dregið nokkrar ályktanir af þeim. Hertakan setti alJa hljóða, og munu flestir hafa hugsað líkt þessú. Þetta átti þá gamla íslad eftir, að vera herskildi numið, og frjómold þess og möl verða hermanna fótum troðin. Allir voru hljóðir og stiltir, enginn sýndi æðru, alt var kyrt og hljótt, margir 1-itu hver til annars án þess að segja orð, og héldu ferð sinni á-fram, nokkrir töluðust við í hljóði með áhyggjusvip og gáfu hermönnunum grunsamlegt auga, sem mest virtust vera unglingar, er kunnu víst ekki mikið til hermensku, og ekki hermannalegir á útliti, er gáfu það til kynna strax fyrsta morg- uninn, að þeir höfðu meiri áhuga fyrir fallegu stálkunum en hermenskunni, er voru þar á vaðbergi, og gáfu þeim svo hýrt auga og hlýleg bros að eg fann mjög til afbrýði fyrir íslenzku Piltana. Þessir ungu hermenn höfðu víst aldrei séð eins fallegar stúlkur á Bretlandi, það segir sig sjálft, að það þarf að fara vel nieð kvenfólk, eins og húsdýrin, svo það verði fallegt; og sama er með karlmenn: eigi þeir ilt verða þeir ljótir og rýrir. En Bretar eru ekki þektir að því að fara vel með kvenþjóðina, eitthvað hkt þvi og íslendingar gerðu fyrir mannsaldri síðan; á því sviði hefir þeim vissulega farið fram, og mega þeir og þær þakka Vestur-lslendingum nokkurn hluta þess; að því leyti sem ótal mörgum öðrum gætir meiri menningar hjá Islend- ingum nú en nokkurn gat dreymt um að mundi geta átt sér stað, eftir svo stuttan tíma, sem liðinn er síðan við fluttum af landinu. Mér kom margt til hugar morgunin 10. maí, er eg stóð við gluggan í stofum minum á Hótel Borg. Eg man sumt af því enn, er eg var að yfirlíta brezku hermannahópana í kringum Austurvöll er höfðu komið um nóttina. Hér er hún komin hin hrezka æska, lítil vexti og rýr í útliti — vonandi að stðerð hennar sé hið innra, það hlýtur að vera svo, þvi að á herðum hennar hefir -hvílt og hvilir enn hin mikla ábyrgð og þungi hrezka heimsveldisins. Ekki voru þeir hermannalegir; ólíkir eru þeir islenzku piltunum sem eru gerfilegir og stórir vexti. Fyrir Wlorgunmat... five roses rolled oats five roses EDIBLE BRAN FIVE roses CRACKED WHEAT five roses WHEAT CRANULES hollasta og bezta fœða LAKE OF THE WOODS MILLING WINNIPEG Co. Limited MANITOBA - Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlfstoíusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finna á skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími 33 158 Office Phone 87 293 Res. Phone 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hotms: 12—1 4 P.M.—6 P.M. AND BY APPOINTMENT Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY ST. Beint suður af Banning Talsimi 30 877 Viðtalstími kl. 3—5 e.h. J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg Mér fanst sem þynfti marga þessara brezku unglinga til að jafnast við einn þeirra að líkamsburðum. Sumir þessara her- manna voru varla meira en fimm fet á hæð og grannir eins og skólastúlka. Nokkrir þeirra voru í fötum sem hefðu passað næstum þvi helmingi stærri manni. Ermarnar *náðu fram á fingrgóma, skálmarnar hvíldu á skónum á jörðunni, með stór- um brotum á ristinni, og í sama hlutfalli var víddin óhæfileg. Gat þetta virkilega verið Bretinn? Var það mögulegt að mér hefði bæði misheyrst og missýnst þennan morgun? Nei, það var óhugsandi. Þetta var Bretinn sjálfur, þar kominn með flota sinn og fótgöngulið. 1 huga minn kom ein spurningin af ann- ari: Er sól hans að ganga til viðar? Er staðan orðin honum of stór eins og hermönnum hans fötin, er þeir klæðast — staðan sem hann he-fir skipað i heiminum um aldir með mestu prýði? Sannarlega væri þess óskandi að svo væri ekki, því þrátt fyrir alt hans herbraml -hefir þjóðunum liðið langbest undir hans frjálsmannlegu stjórn. Undir stjórnarvæng hans hefir lýðræðið þroskast -í heiminum. Jafnvel frelsis- og lýðræðisandi Bandaríkjanna er frá Bretum runnin, þótt þó skrítið kunni að þykja. Hann hefir altaf reynst vinum sinum hollur og sigr- uðum þjóðum bróðir-í raun; hefir skilið öllum stórveldum betur meginmátt góðrar samvinnu meðal þjóða. Hann átti lang- mestan þáttinn í því að reisa Evrópu við eftir heimsstríðið 1914-18. Það var hans verk að varna því að Frakkar gengu þýzku þjóðinni -milli bols og ihöfuðs er hún lá í sárum. Það var hann, ásamt Bandaríkjunum, sem gerði alt sem hann gat með stórlánum og margvíslegri annari hjálp, að lyfta þýzku þjóð- inni á fæturna aftur. Það var hann sem gekk lengst í því að létta af -henni herskattinu-m til ý-msra þjóða er hún gat ómögu- lega risið undir. Þeir réttu þýzku þjóðinni bróðurhönd i fullri vináttu og kom þar grein-ilega -í ljós sáttfýsi og manngildi brezku þjóðarinnar. Nú bita Þýzkarar eins og nöðrur þá sömu hendi er rétti þeim hjálpina þegar þeim lá mest á. Þýzka þjóðin var ósköp óheppin. Það þrýsti sér til valda hjá henni maður, sem var og er djöfulóður, en hún sá það ekki fyri en um seinan, vegna þess hermannakulturs er hún hafði verið alin upp við á keisaratímabili hennar á átjándu og nítj- ándu öldinni. 1 reyndinni er þýzka þjóðin góð, vitur, þróttmikil og þrifin, en fyrir augum hennar hvílir enn skýla sú, er keisarar hennar bundu henni og innræti það er þeir gróðursettu með henni, takmarkalausan þorsta til hérmensku og yfirráða í heim- inum. Þetta er kanske ekki óeðlilegt, því þegar þröngt hefir verið orðið um þær heima fyrir þá sýnir veraldarsagan það að þjóðirnar hafa sprengt af sér böndin og breitt sig yfir lönd ná- grannaríkjanna með báli og brandi. Það var orðið þröngt um þýzku þjóðina heima fyrír og hún fékk fyririiðann Hitler, er var ótrauður að myrða til beggja handa. Nei, brezka veldið má ekki falla. Það yrði mannkyninu í heild óbætanlegt tjón. Ennþá eru engar af þjóðunum færar að taka við af Englendingum. Bandaríkin, mundu margir segja, en mér finst þeir ekki geta komið til mála. Menning þeirra, á m-örgum sviðum, er vissulega of sundurlaus og óráðin til þess að þeim sé trúandi til að vera heimsveldi. Dómsvald-ið og löggæsluvaldið sagt að vera í ólagi miklu, sem þó er óneit- anlega grundvöllurinn undir góðri og traustri þjóðfélagsskipun. En marga og góða kosti hafa þeir, því er ekki að neita. Nóg er einstaklingsfrelsið þar og ef til vill um of. Nokkur partur þjóð- arinnar var ekki nógu þroskaður til þess að fara rétt með það og hefir því komist allmikiJl glundroði á ýmislegt í þjóðfélagi þeirra. En hvað er um Rússann, kom í hug minn. Við vitum lítið um hann. Mest sem okkur hefir borist þaðan er einhliða lof eða staðhæful-ítið last, en eitt vitum við þó, að hjá honum er að skapast föst og ákveðin menning, (en því miður undir ein- veld-i), sem er ólík þeirri er við höfum vanist og sem mörgum fellur ekki vel á bragðið, því eftir því sem eg fæ best skilið, er undirstaða hennar jöfnuður og bræðralag. En þessi sérkenni- lega menning Rússa, sem mun hafa náð undursamlega miklum þroska, — þegar tekið er tillit til þess hvað ung hún er, mætti ætla hana enn -barn í reifum, — mun eiga mikla framtíð í vænd- DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Offlce 88 124 Res. 27 702 UM SKATTA Leslie, Sask., 28. marz 1942 Soffonías Þorkelsson, Winnipeg, Man. Kæri vin: Mér datt í hug er þú í n. s. blaði mintist á það, í Ferða- hugleiðingum, að engin stjórn nema á Islandi mundi leggja tolla eða skatta á flutnings- gjöld, að benda þér á Saskat- chewan stjórnarbræðsluskatta- flækjur. Það er ekki aðeins lagður skattur á flutnings- gjöld, heldur einnig skattaðir skattar sambandsstj.. Eg skal taka til dæmis 3<t skatt er sam- bandsstj. lagði á gasolíu s. 1. sumar. Á viðskiftareikningum hér er þessi skattur hafður sér í dálk. En samt er lagður á hann fræðsluskattur (Educa- tion tax) fylkisstjórnarinnar. Þetta sama á sér stað á öllum vörum sem skattaðar eru af sambandsstjórninni. Að það er söluverð, en ekki innkaups- verð, sem skatturinn er lagður á, sýnir að bæði flutningsgj. og álagning er sköttuð. Trúi eg varla að Islendingar séu Pat- terson fremri í skattaprjóni. — Eftirfarandi vísa gufaði upp úr tvískattaðri gasolíu: Að skatta alla skatta er “Pabba” litla prik í “plattformi”. — Það hefði þurft að færa það —, sumir ahafa sagt það væri frumlegt fanta-strik Thorvaldson & Eggertson LögfrœOingar 300 NANTON BLDG. Talsíml 97 024 M. hjaItason, m.d. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úti meðöl í viðlögum VlðtaLstímar: kl. 2—4 e. h. 7—8 að kveldinu Sími 80 857 643 Toronto St. A. S. BARDAL selur líkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone 86 607 WINNIPEG Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave., Phone 27 989 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandic spoken Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 Grenfell Blvd. Phone 62 200 THE WATCH SHOP THORLAKSON & BALDWIN Dlamond and Wedding Rings Agent for Bulova Waitches Marriage Licenses Issued 699 SARGENT AVE en fjandinn sjálfur neitaði að læra það. Að svo mæltu þakka eg þér fyrir það sem komið er af Ferðahugleiðingum og get full- vsisað þig um að þær hafa átt hér vinsældum að fagna. — Skrifa þú, við skulum lesa. Með vinsemd og bestu kveðju, Rósm. Arnason Bœkur til sölu á Heimskriuglu Endurminningar, 1. og n. hefti, alls 608 blaðsíður, eftir | Friðrik Guðmundsson. Verð upphaflega $2.50, báðar bæk- urnar; nú $1.00. Hetjusögur Norðurlanda, um ; 200 blaðsíður að stærð, eftir Jacob A. Riss. Islenzkað hefir Dr. Rögnvaldur Pétursson. — Verð 35c. Minningarrit Þeir, sem eignast vilja 50 ára minningarrit Sambands- safnaðar, geta eignast það með því að senda 50£ til Davíðs Björnssonar, 702 Sargent Ave. Ritið er mjög eigulegt, með myndum og ágripi af sögu kirkjunnar á íslenzku og ensku. um, hvert sem mönnum fellur það betur eða miður. Ekki skildi mig furða á því þó margur mannshugurinn stefndi inn á bræðralagsleiðina, þar sem allir ynnu fyrir einn og einn fyrir alla. Þá losaðist heimurinn við hermenskuna og allar þær höimungar sem henni fylgja. En Rússinn hefir enn ekki náð því hámarki að houm sé treystandi að taka stöðu Bretans sem heimsveldi. Nei, við verðum að treysta Bretaum í samvinnu við bræður okkar og nágranna, hina ómetanlega hjálipfúsu Banda- ríkjaþjóð, sem elskar lýðræði meira en alt annað. Við óskum þess víst öll að brezka heimsveldið sigri og fái stjórnað heim- inum enn lengi unz önnur koma fram er sanna sig þeim betri. Það var ekki Mkamsstærð Bretans sem gerði hann að heims- veldi, heldur hinir andlegu yfirburðir — þeir búa vonandi að þeim enn og fá, með bandamönnum sinum, bjargað heiminum úr þeim hörmungum sem hann er staddur í nú. Þeir hafa marg sannað það að þeir eru lang bestu sátta semjarar, mestu stjórn- mála vitringar, þjóðfélags og fjármálamenn, sem heimurinn hefir þekt. Framh.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.