Heimskringla - 24.03.1943, Side 4

Heimskringla - 24.03.1943, Side 4
4. SiÐA HEIMSERINGLA WINNIPEG, 24. MARZ 1943 Heiutskringla (StofnuB 18S6) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86 537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram. Allar borganir sendlst: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskifta bréf blaðinu aðlútandl sendist: Manager J. B. SKAPTASON 853 Sargent Ave., Winntpeg Rltstjóri STEFAN EINARSSON Uitanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg “Heimskringla” is published and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537 WINNIPEG, 24. MARZ 1943 EFTIR HVERJU SÆKIR RÚSSLAND? (Eítir Demaree Bess) (Grein þessi er úr hinu víðlesna riti Satur- day Evening Post; hún er all víðfe0mt yfirlit yfir viðhorfið í heimsmálunum er svo margir hafa nú skemtun af að lesa um.—Ritstj. Hkr.) Þegar Joseph Stalin neitaði allri þátt- töku í Casablanca fundi Roosevelts og Churchills nýlega, var það mörgum í Bandarí/kjunum vonbrigði. Höfðu ýmsir á orði að ávalt væri Rússland sama ráð- gátan.-* í reyndinni fer þessu þó mjög fjarri; við Rússland er ekkert leyndar- dómsfult. Það var engin þörf á, að Stalin færi til Afríku; hann hafði áður sagt Churchill forsætisráðherra og Roosevelt forseta, hvernig Rússland byggist við að heyja þetta stríð og hvernig frðar það æskti. Stríðs og friðaráform þessa samherja vors, eru ekki neitt leyndarmál; það er þessvegna ekkert því til fyrirstöðu, að þau séu rædd í heyranda hljóði. Þörfin á þessu er því meiri, sem vitanlegt er, að margir Bandaríkjamenn, jafnvel í stjórn- arstöðum, eru þeirrar skoðunar, að Rúss- land sé og verði okkur eilíf gáta. Sam- vinna vor við hið mikla land er nú sú, að við verðum að gera okkur sem ljós- asta grein fyrir henni. Gerum við það ekki, ef við ekki skiljum til hlítar stefnu Rússa, getur svo farið, að stríðsráðstaf- anir vorar verði ekkert annað en tómur misreikningur og hann af alvarlegra tæi og friðaráformin jafnvel enn hættulegri og fjær marki. Til þess að skilja Rússland og sam- bandið milli stefnu vorrar og þess, verð- ur að líta til baka til sumarsins áður en ráðist var á Pearl Harbor; það duldist engum þá, að við vorum bandaþjóð Rússa, þó utan við stríðið stæðum Og nokkrir mánuðir liðu áður en við lýstum yfir stríði á hendur nokkurri þjóð. .1 ágúst mánuði 1941, sem var nokkru eftir að Hitler réðist á Rússland, hvatti stjórn vor í ræðu og riti Rússa til að veita Þjóð- verjum viðnám, og stóð við þau orð sín, með því að senda þeim í snatri talsverð- an vopnastyrk. Það var áður en Hitler lýsti yfir striði á hendur Bandaríkjunum, að við höfðum lofað Rússum aðstoð í stríðinu við Þýzka- land. I loforðunum gengum vér nærri eins langt og Bretland, sem þá var þó i stríðið komið. Við gerðum þetta ekki í neinni blindni. Aðstoðin studdist við skýrslur Harry Hopkins og annara sendi- herra í Rússlandi, er hiklaust héldu fram, að Sovétstjórnin hefði bæði ein- dreginn yilja til og efni á að heyja og halda áfram stríði við Þjóðverja í það óendanlega. Þessar athafnir stjórnarinnar, sem ráðist var í áður en við vorum formlega komnir í stríð, voru sjáanlega að vilja mikils meirihluta þjóðarinnar gerðar. Hugur almennings var þá svo bundinn við stríðið í Evrópu, að Kyrrahafsmál- unum var mjög lítill gaumur gefinn. Það var þá ekki óalgengt, að Mta á Japa, sem trúður, sem ekkert væri að vísu á móti, að setja ofan í við, svo hægt væri að gefa sig óskiftur við stríðinu í Evrópu, en sem samt sem áður fórst fyrir. Flugförin og skriðdrekarnir, sem við sendum til Rússlands fyrir árásina á Pearl Harbor, áttu sinn þátt í viðnám- inu, sem Rússar fengu veitt, og þegar þeir hrundu sókn Þjóðverja á Moskva í desember 1941, varð það Ijóst, að Rússar voru gæddir miklum kostum sem hei^- menn og vierðskulduðu fyllilega það traust, sem brezkir og bandarískirktjórn- málamenn höfðu til þeirra borið. Það var þetta traust á Rússlandi, meira en nokkuð annað, sem kom Roosevelt for- seta og nokkrum af meðstjórnendum hans til að taka þá stefnu, að tefla á þá tvísýnu, sem einna mesta má telja i öll- um stríðsrekstrinum. 1 hverju var þetta tafl fólgið? 1 þeirri ákvörðun stjórnarinnar, að láta skeika að sköpuðu með alt á Kyrrahafinu, en beina aðal hernaðartilraununum til Ev- rópu. Það sem bæði Bretland og Banda- ríkin komu sér saman um, var að halda áfram að víggirða Rússland fyrir Hitler og þessi ákvörðun var endurnýjuð eftir að báðar enskumælandi þjóðirnar voru sjálfar komnar í stríð við Þjóðverja og Japa — og jafnvel eftir að flota vorum hafði mestum verið sökt við Pearl Har- bor. Það hefir verið tilkynt af stjórn- unum, að Bandaríkin og Bretland hafi árin 1941 og 1942, sent Rússlandi 4600 flugvélar, 5,800 skriðdreka og ikynstrin öll af öðrum hernaðarvörum. Til þess að koma vörunum til Rússlands, þurfti mik- inn skipaflota. En það versta var, að fleiri tugum skipanna var oft sökt með öllu á, einmitt á þeim tíma, sem vér vor- um hættulega illa útbúnir að skipum, skrlðdrekum og flugförum. Til þess að takast þetta á hendur, þurfti meira en litla dirfsku, en árangur- inn hefir nú réttlætt hvernig teflt var. Rússneski herinn hefir notað skriðdrek- ana og flugförin eins vel og ákosið var; hann gerði ekki einungis það, sem af honum var vænst, heldur meira. Ef þetta er eini hagurinn sem við gerðum okkur von um af þessum viðskiftum, má vel við það una. En Bandarákjamenn margir búast við meiru en þessu. Eitt af þvi er það, að Rússland hjálpi þeim til að sigrast á Japan. Annað er, að þeir búast við að Rússar verði hjartanlega sáttir og sam- mála um landaskiftinguna, eins og Bandaríkin vilja að hún verði, að loknu stríði. Þetta er hættulegur hugsunar- háttur vegna þess, að hann kemur í bága við þær staðreyndir, sem kunnar eru. 9 Hverjar eru þær staðreyndir? Hin fyrsta og stærsta er sú, að Sovétstjórnin er í fylsta skilningi sjálfstæðasta stjórn- in í heimi. Hún hefir ekki bundið sig neinum samningum við nokkra þjóð, er hindri frelsi hennar er til eftirmála stríðsins kemur, hvort sem er í Asíu eða Evrópu. Atlantshafssamningnum, sem er að visu mjög óákveðinn og meira heit, en nokkuð annað, hafa Rússar tek- ið vel og munu vera honum fylgjandi, en skuldbundin samþykt um það, er engin til af þeirra hálfu. Jafnvel þegar sem verst leit út fyrir þeim í striðinu, neituðu leiðtogar þeirra að bindast nokkrum loforðum um eftirmál stríðsins fyrir hjálpina, sem Bretar og Bandaríkjamenn höfðu veitt þeim, enda þó þeir dyldu ekki að þeir væru einlæglega þakklátir fyrir hana. í stað þessa, fóru Rússar fram a samn- inga við Breta um nokkur lönd, eftir að Hitler hafði gert innrás í Rússland. Þeir fóru fram á viðurkenningu frá Bretum um kröfur þeirra til þriggja Eystrasalts- landanna, nokkurs hluta Finnlands og Rúmanáu. Þeir kröfðust ennfremur að landamæri milli Rússa og Póllands yrðu ekki ákveðin fyr en siðar. Þeir sóttust, með öðrum orðum, eftir sömu viður- kennngu frá Bretum á þessum kröfum sínum og þeir gerðu frá Hitler árið 1939. Bretar virtust tilleiðanlegir með að veita þessar kröfur. Sir Stafford Cripps mælti eindregið með þeim, jafnvel eftir að hann var kominn í brezka ráðuneytið. Eins gerði blaðið London Times, eitt voldugasta blað Breta. Frá sjónarmiði brezku stjórnarinnar, var það talið sikyn- samlegast og einlæglegast, að verða und- ir eins við þessum kröfum Rússa og taka sem fyrst af allan vafa um það. En stjórn Bandaríkjanna var ekki á þessu og fyrir áhrif frá Washington, var bæði Bretum og Rússum þröngváð til að fella úr samningum Rússlands og Bretlands 1942 alt sem að kröfum Rússa laut til ofan nefndra landa. Þrátt fyrir þetta, hafa Rússar aldrei vikið frá þessum kröfum. Þeir hafa að- eins lofað, að láta þær liggja í þagnar- gildi sem stendur. Og þar sem þeir hafa látið þessar óskir sinar svo ótvirætt uppi, fyrst með því að semja við Þjóðverja um þær og síðar Breta, þarf enginn að vera hissa á því, þó Rússar taki aftur ÖII þessi lönd, sem þeir réðu yfir 1939 og 1940 og geri þau að hluta Sovét rikisins. Nazistar og Slafar Frá sjónarmiði Rússa, eru landakröfur þeirra hóflegar. Þær fara ekkert út fyrir landamæri ríkisins á keisaratím- unum, og uppræta aðeins þau ríki, er sett voru á stofn með Versalasamning- unum til þess eins, að bægja Sovét-ríkinu sem mest frá öllu sambandi við Evrópu. Það er ekki ónauðsynlegt nú að minnast þess, að Rússland, eigi síður en Þýzka- land, fordæmdu þau atriði Versala-samn- inganna, sem að Austur-Evrópu lutu, og það er ekki fjarri, að gera ráð fyrir í lok þessa stríðs, að Rússar standi vel að vígi með að fá þeim ki'öfum sínum framgengt í Austur-Evrópu, sem þeir óskuðu 1918, en voru ekki þess megnugir að koma fram. Þegar Hitler réðist á Rússland, reyndi hann að vinna sér stuðning hjá öðrum þjóðum með því að benda á “rauðu hættuna”. En Þjóðverjar sjálfir og fylgifiskar þeirra — nauðugir viljugir að vísu — Ungverjar og Rúmenar, óttuð- ust aldrei eins mikið bolshevismann, eins og hugsanleg samtök allra slafneskra þjóðflokka (Pan-Siavism). Samkepni milli Slafa og Þjóðverja, hefir i margar aldir verið ríkjandi í Evrópu, og á sér afar djúpar rætur. Þessar mannmörgu þjóðir báðar, fullar ílöngunar um völd og yfrráð, hafa aldrei getað unnið vel saman. Og jafnvel áður en Hitler rauk á Rússland 1941, hafði Stalin byrjað, en mjög gætilega þó, að vekja upp gömlu pan-slafisku hreyfinguna, sem ríkjandi var á tíð keisaranna. 1 þessu stríð hefir Hitler reynt að ráða bætur á þessum þjóðernisríg fyrir fult og alt með því að gera Slafa að þrælum sínum. Þó Nazistar háfi látið sem þá fýsti að gera sigruðu Vestur-Evrópu þjóðirnar sér að vinum, hafa þeir ekki borið það við, er um Slafa hefir verið að ræða. Að undanteknum Búlgörum og Slóvökum, hafa nazistar aldrei sýnt Slöf- um annað en megnustu fyrirlitningu. Þetta hefir náð til Tékka, Pólverja, Serba og sjálfra Rússa jafnt. Útlitið eftir stríðið En afleiðingin af þessari fyrirlitningu, sem nazistar hafa sýnt Slöfum og grimd- inni, sem þeir hafa haft í frammi í slaf- neskum löndum, er sú, að Slafar eru sam- einaðri en þeir hafa nokkru sinni áður verið, og mæna nú til Rússlands í von um frelsi. Á ferð um Balkan löndin 1941, duldist mér það ekki, að hugur manna var hlýr til Rússlands hjá Slöfunum, sem undir oki Hitlers eru, eins og í Tékkó- slóvakíu, Júgóslavíu, jafnvel í Póllandi, sem mjög er fráhverft Rússum og hjá bandaþjóð Hitlers, Búlgörum. Sigri Rússland í þessu stríði, er það deginum ljósara, að áhrif Rússa mega sin meira í þessum löndum en áhrif Breta og Banda- ríkjamanna. Að þessu er þannig háttað, er ekki bolsévismanum að kenna eða þakka i sjálfu sér, heldur á það sér stað þrátt fyrir hann. — Það er þjóð- ernisstefna Slafanna, sem miljónir Aust- ur-Evrópumanna aðhyllast nú, sem ávalt hafa á móti stjórnarstefnu Rússlands verið, og sem jafnvel hafa úr Rússlandi flúið hennar vegna. Þó Rússar hafi sýnt, að þeir hafi lagt útbreiðslu bolsév- ismans í öðrum löndum á hilluna, munu leiðtogar þeirra vissulega færa sér við- horf Slafa nú í þjóðernismálunum í nyt, í löndum þeim er að Rússlandi liggja. En þó þetta sé eins augljós hlutur og nokkuð getur verið hafa Bretar og Bandarikjamenn, sem við uppkast að friðarskilmálum hafa átt, að stríðinu loknu, aldrei tekið þetta mikið til greina. Að gera ráð fyrir því, að Bretar og Bandariikjamenn, ásamt smærri þjóðum striðsins með stjórnir sínar í útlegð í Lohdon, geti fyrirfram og einar ráðið öllu um hverng alt fer í Evrópu eftir stríðið, er óréttlætanlegt, þegar allar staðreyndir eru til greina teknar. Evrópa verður eftir þetta stríð næsta ólík þvi, sem hún var að stríðinu 1918 loknu. Þegar því stríði lauk og Þýzka- land var yfirunnið, voru sigurvegarar Bandarikin, Bretland, Frakkland og Italía. Rússland var algerlega úr sög- unni; það hafði beðið ósigur í stríðinu og logaði í innanlands byltingu. Rússar áttu ekki hinn minsta þátt í friðargerð- inni eftir stríðið 1914 til 1918. íhugið hve gerólíkt ástandið nú er þessu. Frakkland og Italía eru nú úr tapað flota sínum, og þeir eru, eftir eins sögunni, sem stórveldi. Frakkar hafa árs harðstjórn Þjóðverja, and- lega sem líkamlega þjakaðir. Italía er ekki aðeins sigruð, heldur og í rústum. Og stríð- j inu lýkur ekki fyrir Bandaríkj- unum og Bretum með sigri bandaþjöðanna í Evrópu, held- ur byrjar þá fyrir alvöru stríð þeirra gegn Japan. Af öllum eyktamörkum nú j að dæma, er alt útlit fyrir að stríðið vinnist i Evrópu áður' en það vinst á Kyrrahafinu. Og það eru jafnmiklar líkur á þvi, ef Japan heldur sér í skef j- j um, að friður verði kominn fyr á í Rússlandi, en í Bandarikj- unum og Bretlandi. Er það þá líklegt, að Rússar muni undir eins leggja lykkju á leið sína og fara með okkur út i stríðið viðJapan? Ef fyrir því er gert ráð, verður að spyrja nánar um ástæðurnar til þess. Það eitt er víst, að Rússland er ekki einungis voldugt í Ev- rópu og að vissu leyti voldug- ast allra Evrópu þjóðanna, heldur er það einnig voldUgt í Asíu. Lönd Rússa þar eru helmingi stærri, en öll lönd Evrópu til samans og áhrif og viðskifti Rússa í Asiu, eru meiri en Breta og Bandarikjanna til samans. Sovétríkin hafa stöðugt ver- ið að efla ríki sitt í Asíu síðan 1927. Þau hafa og varið tals- vert miklu af tekjum stjórnar- innar til þess, að koma *sér þar upp voldugum her, vel útbún- um með skriðdrekum og sprengjuflugvélum. Þeir hafa komið þar á fót stórkostlegum vopnasmiðjum, svo herinn þar þyrfti ekki að reiða sig á að- stoð frá Rússlandi í Evrópu. Á 16 árum má heita að þarna myndist voldugt ríki út af fyrir sig. Og það var þangað, sem Rússar úr hernumdu héruðum Rússlands hrúguðust, þegar Þjóðverjar 1941 réðust á Rússa. Þó eftir því hafi ekki verið tekið, áttu sér þarna stað mestu þjóðflutningar mann- kynssögunnar á örstuttum tima. Miljónir manna tóku þátt í þeim. Og það merkilega er, að þeim var þarna strax fund- inn bústaður, sem ekki er lík- legt, að þeir yfirgefi, að stríð- inu loknu. Voru Rússar svona við því búnir, er nú er komið fram? Á því er enginn efi, að Rúss- um er jafn ant um að vernda þetta Asiuríki sitt og Vestur- Rússland. Það væri þvi ekki síður, heldur öllu fremur, hag- ur þeirra en vor Bandaríkja- manna, að uppræta hið háttu- lega vald Japana. En fara þeir í stríð við þá undir eins? Af öllu að dæma getur dráttur orðið á því. Stalin er tregur til að hefja strið að fyrra- bragði. Hann hélt frið við Þjóðverja, þar til þeir réðust á Rússland, sumarið 1941. En meðan hann var að reyna að I forðast stríð, bjó hann sig und- 1 ir það og gerði það rækilega, eins og nú er á daginn komið. Stalin og Japan Eg var í Mansjúríu 1931, þegar Japar byrjuðu heims- yfirdrotnunar-æfintýri sitt. Hershöfðinginn í Mukden fór ekkert dult með hvað fyrir vekti og sagði Rússa næsta á heráæltunarskránni. Við ætl- um ekki lengur að eiga þá yfir höfðum vorum. Sprengjuflug- vélarnar þeirra í Vladivostok, eru of nærri hjarta japanska rikisins. En í stað þess samt að ráð- ast á Rússa, sneru Japar sér í suður til Kina. Þeir héldu á- fram suður, unz þeir réðust á Pearl Harbor, Singapore, Phil- ipseyjar og Indlandseyjar Hol- lendinga. Þeir gerðu þetta vegna þess, að þeir komust að því, eftir nokkrar tilraunaskærur við Rússa á landamærunum, að þeir voru þeim ofjarlar. Japar hafa síðan hagað sér eins og vatnið, leitað framrásar, þar sem fyrirstaðan er minst. Á Rússa hafa þeir ekki leitað síðan, enda mun fáum sem þeim Ijóst, hve Asíuher þeirra er sterkur. Rússar hafa ekki verið að segja neinum frá þessu. Þeir hafa ekki einu sinni gefið Bandaríkjunum nokkrar upplýsingar um hvar flugstöðvar þerra eru og ekki leyft hernaðarflugvélum vor- um að heimsækja þessa staði. En það er eigi að siður aug- ljóst, að hervörninni er vel haldið þarna við, úr því Japar hafa ekki, þrátt fyfir stríð Rússa við Þýzkaland, vogað sér að reyna að reka þá burtu af þessum slóðum, sem svo hættulegar eru Japan og þeir hafa stöðugar áhyggjur út af. Rússar hafa stöðugt neitað að gefa nokkur loforð um þátt- töku í Kyrrahafsstríðinu; þeir hafa jafnvel neitað að ræða nokkuð i^m það. Þeir hafa eytt því með þvi að halda fram, að þeir væru að leggja meira fram en nokkur önnur þjóð í stríðinu við Þýzkaland, sem svo stór- fenglegt sé, að þeir megi ekk- ert gera, er flækt geti þá inn í annað stríð. En hvað býr raunverulega undir þessu? Við getum verið vissir um, að Kyrrahafsstríðið, er þeim eigi síður raunveru- leiki, en stríðið við Þýzkaiand. Þrátt fyrir samninga Rússa við Hitler 1939 og það, að þeir kunni að hafa átt þátt í að hvetja Hitler til þess að heyja stríð heldur í vestrinu, á Frakka og Breta, var Stalin allan tímann að búa sig undir að taka á móti Þjóðverjum og tók nokkur lönd á þeim £2 mánuðum til að efla hervarnir sínar. Rússar hafa hagað sér mjög svipað þessu eystra. Nokkrum vikum áður en Þjóðverjar réð- ust á Rússa, gerðu þeir friðar- samning við Japa. Sá samning- ur gaf auðvitað Jöpum fríar hendur til að eiga við Banda- ríkin, Breta og Kína, á sama hátt og Rússum í viðureign sinni við Þýzkaland. Þann samning, ef ekki verður rofinn áður en stríðinu lýkur 4 Ev- rópu, eru Rússar ekki liklegir til að rjúfa. Rússar vita það, að Bandaríkin verða að halda áfram að berjast við Japa, unz þeir gefast upp og að Bretland hefir lofað þeim sinni aðstoð og verður, hvað sem því líður, að vinna með þeim að sínum eigin hagsmunum, bæði á Indlandi, Burma og Malayaskaga og ennfremur vegna ÁstraMu og Nýja-Sjálands. Afstaða Rússa til Kyrrahafs- ! stríðsins, er þvi óháð. Geti þeir haldið Jöpum í skefjum, , þurfa þeir ekki í því stríði að i lenda. Ráðist Japar á Rúss- land, getur það reitt sig á alla þá aðstoð sem við getum veitt, því okkur gengur sama til að hjálpa þeim eystra, móti Jöp- um, og vestra móti Þjóðverjum. Rússland þarf engar áhyggjur að bera út af því, að Bretar og við gerum nokkru sinni frið við Japan á kostnað Rússlands, eins og 1939 út af því að Bretar og Frakkar reyndu að gera frið við Hitler, á kostnað Rússa. Rússar geta reitt sig á að Kyrrahafsstriðinu höldum við áfram til loka, hvort sem þeir hjálpa þar nokkuð til'eða ekki. Þyki Rússum liggja nokkuð við að færa út landamæri sín eystra, vegna hemaðarlegra á- stæða, eins og í vestrinu, get- ur svo farið að þeir fari af sjálfdáðum i stríðið eystra til að ná í eitthva,ð af herfanginu. Bendir þetta nokkuð á um hvað fyrir geti komið í Asíu, að stríðinu loknu? Það virðist mega af því ráða, að Rússar hafi góða aðstöðu til að ná full- komnari yfirráðum, en þeir nú hafa í útskekkla ríkjunum í

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.