Heimskringla - 28.04.1943, Blaðsíða 2

Heimskringla - 28.04.1943, Blaðsíða 2
2. SlÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 28. APRIL 1943 FRÁ STJóRNARRÁÐI ÍSLANDS ' (Sent íslenzku blöðunum af sendiráðinu i Washington) Upplýsngastarfsemi Ráðuneyti Islands hefir á- kveðið að með byrjun ársins 1943 skuli hafin upplýsinga- starfsemi, sem meðal annars skuli hafa það markmið að veita fulltrúum ríkisins erlend- is upplýsingar um hið helzta sem gerist í þjóðmálum vorum hér heima, bæði stjórnmálum, atvinnumálum og mentamál- um. Það verður að teljast þýð- ingarmikið að fulltrúar Islands erlendis starfsemi sinnar vegna geti fylgst sem bezt með öllum slíkum málum, og þar sem ó- kleift mundi verða að senda þeim öllum þau blöð, tímarit, skýrslur og bækur sem upplýs- ingar geyma um þessi efni, mun í þessari fréttaskýrslu verða viðað saiman öllu því helzta, sem talið verður nauðsynlegt og æskilegt að þeir fái vit- neskju um. Án staðgóðrar þekkingar á mönnum og mál- efnum íslenzku þjóðarinnar mundi starfsemi fulltrúanna ekki ná tilgangi sinum nema að litlu leyti. Fulltrúunum munu oft ber- ast fyrirspurnir um hin ólík- ustu atriði að því er Island snertir. Ekki mega þeir vænta þess að þessi frétta- og upplýs- ingastarfsemi verði þannig að hún veiti þeim alla þá fræðslu, sem nauðsynleg er, því það væri ekki mögulegt að gera skýrslurnar svo fullkomnar. En reynt mun verða að vanda til þeirra eftir beztu föngum og sjá um að í þeim verði þær upplýsingar, sem helzt mega að gagni koma í starfsemi fulltrú- anna, þannig, að þeir eigi sem auðveldast með að fylgjast með íslenzkum málefnum og að þeir geti að jafnaði haft við hendina nýjustu upplýsingar um þau, sem völ er á. Svo er til ætlast að fulltrúar geri útdrátt úr fréttaskýrslun- um sem íslenzku fólki í um- dæmi þeirra megi vera gagn og ánægja af að fá vitneskju um, og að fulltrúarnir dreifi upplýsingum þessum meðal landsmanna í hæfilega mörg- um eintökum. Sé ekki ætlast til þess að upplýsingar séu birt- ar þannig mun verða tekið fram við hvern kafla að hann sé ekki til birtingar. Þær fréttir og upplýsingar sem aðallega verða sendar eru sem hér segir í stórum drátt- um: Stjórnmálafréttir: 1. Breytingar á stjórn landsins. 2. Kosningar til Alþingis. 3. Flokkaskifting. 4. Yfirlit yfir störf Alþingis. 5. Yfirlit yfir helztu lög. 6. Yfirlit yfir helztu mál, sem efst eru á baugi með þjóð- inni á hverjum tíma. Atvinnumál: 1. Atvinnukjör landsmanna. 2. Landbúnaðarmál. 3. Sjávarútvegsmál. 4. Iðnaðarmál. Samgöngur. BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleymd er goldin skuld Viðskifti og verzlun. Peningamál. Bókmentir og listir. Almennar upplýsingar um land og þjóð. Starfsemi ráðuneytisins. Þessi upplýsingastarfsemi verður fyrst um sinn hagað þannig, að í byrjun hvers mán- aðar verður samin skýrsla um næsta mánuð á undan og þar gefnar upplýsingar um þau efni sem að framan eru nefnd. Um hver áramót verður samið efnisyfirlit, yfir það sem i skýrslunum hefir verið skráð og getur þá skýrslusafn þetta þegar fram í sækir orðið að svipuðu gagni og handbækur með upplýsingum um Island. ★ Ný ríkisstjórn Hinn 16. des. 1942 tilkynti ríkisstjóri Alþingi að hann hafi talið sér skylt, að skipa stjórn utan þings, eftir að hafa kann- að að árangurslausu allar hugsanlegar leiðir til myndun- ar stjórnar þingmanna, sem hefði fyrirfram trygt meiri- hluta Alþingis. Voru þá þessir skipaðir í stjórn: Forsætisráðherra: Dr. jur. Björn Þórðarson lögmaður í Reykjavík. Utanríkis- og atvinnumála- ráðherra: Vilhj. Þór banka- stjóri. E>ómsmálaráðherra: Dr. jur. Einar Arnórsson hæstaréttar- dómari. Fjármálaráðherra: — Björn Ólafsson stórkaupmaður. Hinn 22. des. var fimti mað- urinn skipaður í stjórnina, sem félagsmálaráðherra: Jóhann Sæmundsson yfir-læknir. Samkvæmt stjórnarúrskurði dags. 16. des. og 22. des. 1942 um breytingu um stundarsakir á konungsúrskurði 29. des. 1924 um skipun og skifting starfa ráðherra og fleira, er skifting mála meðan núverandi ríkisstjórn situr, sem hér segir: Forsætisráðherra dr. juris Björn Þórðarson fer með öll þau mál, er samkvæmt kon- ungsúrskurði 29. des. 1924 heyra undir forsætisráðherra, nema utanríkismál. Auk þess fer hann meö kirkjumál, heil- brigðismál, — þar undir sjúkrahús og heilsuhæli, — svo og tryggingamál, sveitarstjórn- armál, — þar undir fátækra- mál og atvinnubótafé. Utanríkis- og atvinnumála- ráðherra Vilhjálmur Þór fer með utanríkismál og þau mál, er samkvæmt téðum konungs- úrskurði heyra undir atvinnu- og samgöngumálaráðherra, og ekki eru með þessum úrskurði falin öðrum ráðherrum. Dóms- og mentamálaráð- herra dr. juris Einar Arnórsson fer með öll þau mál, er sam- kvæmt téðum konungsúrskurði heyra undir dóms- og kirkju- málaráðherra, og ekki eru með þessum úrskurði falin öðrum ráðherra. Fjármála- og viðskiftamála- ráðherra Björn Ólafsson fer með öll þau mál, er samkvæmt téðum konungsúrskurði heyra undir fjármálaráðherra, og auk þess verzlunarmál, önnur en útflutningsverlzun. Félagsmálaráðherra Jóhann ÍM GLAD WE BOUGHT THOSE V, VlCTORYv' ^ I BONDS/ YES.THE VICTORY BONDS WE BOUGHT IN 1943 > ARE PAYING FOR A j , UOT OF TMINGS WEV/ V NEED NOW. / / VICTORY BONDS WILL HELP TO MM(E DREAMS COME TRUE- Sæmundsson fer með það af þeim málum er skv. téðum konungsúrskurði heyra undir forsætisráðherra og atvinnu- málaráðherra. með alþýðu- tryggingamál, húsnæðismál, og byggingafélög, sveitastjórn- mál — þar undir fátækramál og atvinnubótafé, — og önnur félagsmál. Stefnuskrá nýju ríkisstjórnarinnar Þegar er Alþingi hafði feng- ið tilkynningu um hina nýju ríkisstjórn flutti forsætisráð- herra svohljóðandi ávarp þar sem hann lýsti yfir þvi hver verða myndi aðalverkefni rík- isstjórnarinnar: Herra forseti! Háttvirtir al- þingismenn; Eins og yður er kunnugt, hefir hið háa Alþingi reynt, að því er virðist til þrautar sem stendur, að mynda stjórn, er fyrirfram hefði stuðn- ing Alþingis. Með því að þetta hefir ekki tekist þá hefir herra rikisstjórinn farið þá leið, að skipa menn í ráðuneyti án at- beina Aiþingis. Nú hefi eg og samstarfsmenn minir í hinu nýja ráðuneyti tekist þann vanda á hendur. Kemur þá væntanlega í ljós, er ráðuneyt- ið ber fram tillögur til úrlausn- ar brýnustu vandamálunum, hvort hið háa Alþingi vill vinna með því eða ekki. Ráðuneytið telur það höfuð- verkefni sitt að vinna bug á dýrtíðinni, með því fyrst og fremst að setja skorður við frekari verðbólgu, meðan leit- ast er við að lækna meinsemd- ina og vinna bug á erfiðleikun- um. Ráðuneytið ætlar sér að vinna að því, að atvinnuvegum landsmanna, sem nú eru marg- ir komnir að stöðvun, verði komið á heilbrigðan grundvöll, svo að útflutningsvörur verði framleiddar innan þeirra tak- marka, sem sett eru með sölu- samningum vorum, m. a. við Bandaríkin i Norður-Ameríku. Þá verður einnig þegar í stað að gera þær ráðstafanir um innflutningsverzlun landsins, að henni verði komið í það horf, sem skipakostur lands- manna og ófriðarástandið ger- ir nauðsynlegt. Ennfremur ber nauðsyn til, að verðiagseftirlitið verði Iátið taka til allra vara og gæða, sem seldar eru almenningi, og að tryggja í þeim málum svo örugga og einbeitta fram- kvæmd sem verða má. Jafnframt verða að sjálf- sögðu athuguð ráð til að stand- ast þau útgjöld, sem dýrtíðar- ráðstafanirnar hljóta að hafa í för með sér. Ráðuneytið mun kosta kapps um að efla og treysta vináttu vð viðskiftaþjóðir vorar. Eins og stendur verður lögð sérstök áherzla á vinsamlega sambúð við Bandaríki Norður-Ameríku og Stóra Bretland. Ráðuneytið vill eftir föngum vinna að alþjóðar heill. Auðvit- að mun það geta sætt mismun- andi dómum, hvort því tekst að finna réttar leiðir. Ef hinu háa Alþingis og ráðuneytinu tekst að sameina krafti sína til lausnar framangreindum vandamálum, þá vonar ráðu- neytið, að samvinnan verði þjóðinni til hagsmuna. Áramótarœður Um áramótin fluttu rikis- stjóri og ráðherrar allir ræður í útvarpið. Fer hér á eftir út- dráttur úr ræðum ríkisstjóra, forsætisráðherra, utanríkis- og atvinnumálaráðherra og fjár- málaráðherra: Ræða ríkisstjóra: Rikisstjóri hóf mál sitt á þvi að minnast sjómanna þeirra, sem fórnað höfðu lífi sínu í þágu þjóðarinnar á hinu síð- asta ári, og vottaði aðstand- endum þeirra samúð sina. Því næst vék ríkisstjóri að stjórnmálaviðburðum síðasta árs og lýsti þeirri von sinni, að atburðir ársins hinir síðustu mættu leiða til góðs, en lét þess jafnframt getið, að máske vær- um við nú að komast yfir örð- ugasta hjallann. Þá vék ríkisstjóri að ófriði þeim er nú geisar, og gat þess að ýmsir bjartsýnir menn von- uðu að honum yrði lokið á þessu ári, en þótt slíkt væri að- eins von en ekki vissa, væri réttmætt að beina athyglinni að viðhorfinu er ófriðnum lýk- ur. Vék ríkisstjóri sérstaklega að ummælum Roosevelts Bandaríkjaforseta, en hann taldi að takmark lýðræðisþjóð- anna að ófriðnum loknum ætti að vera það, að þjóðunum yrði trygt ferfalt frelsi: Málfrelsi, trúfrelsi, frelsi án skorts og frelsi án ótta. Vék ríkisstjóri því næst að þessum liðum öll- um, og flutti um þá snjalt mál. Þá vék ríkisstjóri að starfi brezka hagfræðingsins Sir Wil- liam Beveridge, áætlunum hans og tillögum um hvernig skapa megi í framtíðinni ör- yggi gegn skorti, eftir því, sem aðstæður eru þar í landi. — Þrautirnar, sem við væri að glírna i þessu efni í Bretlandi væru: Skortur á lífsviðurværi, veikindi, vanþekking, um- byggjuleysi og óhollusta og að- gerðarleysi. Ríkisstjóri ræddi um það að lokum, hve rík ítök jafnrétti ætti nú með hinum striðandi þjóðum, og nefnd dæmi þess, er hann hafði kynst hér á landi, og taldi, að slikt, hugarfar myndi ekki aðeins hjálpa til þess að vinna ófriðinn, heldur og að vinna friðinn á eftir. — Komst ríkisstjóri svo að orði i því sambandi: “Mér er kunn- ugt um hitt og þetta hér á landi, sem ber vott um að slík hugarfarsbreyting sé ekki orð- in svo almenn enn með okkur sem skyldi. Eg held að það sé nauðsynlegt, ef við eigum að yfirbuga vandkvæðin, sem ó- friðarástandið hefir skapað okkur, að hugarfarið breytist í þessa átt. Og eg efast um að við verðum megnugir að vera með ií því að “vinna friðinn” aO ófriðnum loknum, nema að okkur takist að eignast slikt hugarfar og breyta samkvæmt því.” Ennfremur sagði ríkis- stjóri: “Góðvinur föður míns sagði við mig fyrir tuttugu ár- um, að faðir minn hefði einu sinni mælt við sig eitthvað á þessa leið: “Ef allir Islending- ar, sem komnir eru til vits og ára, gerðu sér það að reglu að lesa Fjallræðuna, ekki einu sinni, heldur oft á ári, myndi islenzku þjóðinni farnast betur en ella.” Kvaðst ríkisstjóri vilja gera þessi ummæli föður síns að nýársósk til íslenzku þjóðarinnar, og árnaði jafn- framt einstakling hverjum og þjóðinni í heild árs og friðar. Rœða forsœtisráðherra Frá upphafi vega höfum vér aldrei þurft á einum og sama tíma, að snúast við jafnmörg- um, miklum og óvæntum við- horfum og skapast hafa síð- asta ár. Einangran lands vors er úr sögunni. í einni svipan var land vort gert að einu höfuð- vígi. Inn í landið hefir borist meira fjármagn en oss hefir nokkurn tíma dreymt um. — Þegar nú sú ólga og truflun í þjóðlífinu, sem þessar stað- reyndir hafa haft í för með sér blönduðust saman við gömul og viðkvæm innanlandsmál verður skiljanlegt, að fulltrúa þjóðarinnar gat greint á um það hvernig taka bæri á þeim viðfangsefnum, er fyrir liggja. Afleiðing þessa ágreinings varð sú, að núverandi ríkisstjórn var skipuð. Þessi stjórn hefir tekist á hendur þungar skyld- 777//// //////* ■^ThFSí LAKE OF THE WOODS MILLING CO. LIMITED. WINNIPEG «CCCOOOOCCCOOCCCOOCCGOCOOOCOOCOOOOCOCCCOCOOOCOOCCO« John S. Brooks Limited DUNVILLE, Ontario, Canada MANUFACTURERS OF GILL NETTING Okkar net eru búin til úr beztu tegund af hör tvinna og “Sea Island Cotton” j! Þér megið treysta bœði vörugœðum og verði Allar pantanir fljótt og ábyggilega afgreiddar. jj Captain M. R. Janes, Leland Hotel, Winnipeg Umboðsmaður fyrir Manitoba, Saskatchewan og Alberta ur. Hún hefir lofað því að reyna að vinna bug á dýrtíð- inni og að þrýsta niður verð- bólgunni. Ennfremur að vinna að því að atvinnuvegunum verði komið á svo heilbrigðan grundvöll að framleiðsla vara til sölu erlendis geti haldið áfram skv. því, sem samningar við viðskiftaþjóðir vorar gera ráð fyrir, og stjórnin vill finna ráð til að skipakostur lands- manna komi þeim að sem best- um notom. Þeir, sem hafa fengið mikið undanfarin ár mega vera við því búnir, að hagnaður þeirra rýrni, og að þeir verði að bera nokkrar byrðar. Stjórnin litur svo á, að hún hafi, að svo stöddu eng- an rétt til að krefjast af al- menningi, engri stétt, neinna fórna, enda þurfi þess ekki, því I það er ekki fórn heldur aðeins I framsýni að verja nokkru af afla sínum til þess að styrkja grundvöllinn undir framtíðar- hag. Vér verðum að sýna það í verki, að vér metum þjóðar- hag meira en stundarhag ein- staklingsins, og marka honum því hæfilegan bás. Stjórnin' getur ekki lofað yður því að leysa af hendi nein afrek, en hún heitir því að vinna eftir beztu getu. Rœða utanríkis- og atvinnumálaráðherra Á meðan eg fer með utanrík- ismál mun verða lögð stund á vinsamlega samvinnu við öll þau ríki sem við náum til að hafa viðskífti við, og að sjálf- sögðu lögð áherzla á fulla að- gæzlu á lögmætum rétti ís- lands gagnvart öðrum ríkjum. Vér óskum, að sú stund rnegi sem fyrst renna upp, að frænd- þjóðir vorar allar á Norður- lönum verði aftur frjáisar og fái að nýju aðstöðu til að knýta sín á milli keðju frændsemi, vináttu og samstarfs. — ísland mun kappkosta að fá að vera með, þegar sú keðja verður endurknýtt. Er vér nú lítum yfir liðið ár, virðist mér vart komist hjá að minnast þess að í landi voru hefir dvalið mjög fjölmennur erlendur her. Það verður aldrei komist hjá að af slíku sambýli verði nokkrir örðugleikar og ó- þægindi. Vér höfum eigi held- ur farið algerlega varhluta þessa; meðal annars hafa kom- ið fyrir slys, raunaleg slys. — En þegar alls er gætt, ætla eg að oss sé rétt og skylt að viður- kenna, virða og meta, hversu 'herstjórnin hefir lagt sig fram um að afstýra árekstrum, ó- höppum og óþægindum, og hversu þetta hefir yfirleitt tekist. — Af fenginni reynslu um þetta tel eg oss óhætt að horfa vonbjartir til framtíðar- innar hvað sambýlið snertir. • Eins og nú er aðstöðu, eru megin viðskifti vor við tvö lönd: Stóra-Eretland og hin voldugu Bandaríki Norður- Ameríku. Vöruskifti vor við Stóra- Bretland hafa verið þann veg fyrirfarandi, að oss er skylt að meta fyllilega þá fyrirgreiðslu og greiðvikni, sem oss hefir verið sýnd með afgreiðslu ýmsra nauðsynja og annara' vara, meira að magni og leng- ur, en heimilt var að gera ráð fyrir fyrirfram. — Vér skiljum og fullvel þær ástæður, sem valda því að vörukaup þaðan verði fábrotin nú um stund. Megin viðskifti vor eru nú við Bandaríkin, og flestallar nauðsynjar, er vér þörfnumst utan frá, koma nú eingöngu þaðan, að undanskildum kol- um, salti og sementi, sem enn fæst frá Bretlandi. Óánægju- raddir heyrast um, að seint gangi með uppfyllingu ýmissa ó'ska vorra um vörur og að- flutningar gangi mikið seinna en æskilegt þætti. Hvort tveggja þetta má með nokkr- um rökum segja. Sérstaklega hefir þó gengið seint með flutn- ingana.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.