Alþýðublaðið - 20.05.1960, Qupperneq 3
■__________________*7y/7J
«Ul'Ft-E> ER SKRVT/£>. EF V/£> HEFÐUM EINS MIKEAR TEKJUR
OG SUM\R HAFA SKATTA, ÞÁ HEFÐUM V/í> NÚWA MEIRI
SKATTA £N V/£> HÖTUM l'TEKJUR"
Hafnarfram-
kvæmdir fyrir
9 milljónir
Keppnin
í Eyjum
hefst
í dag
ÞÁTTTAKENDUR í sjó-
stangveiðimótinu í Vestmanna-
eyjum stunduðu veiðar í gær.
'Var þar um nokkurs konar æf-
ingu að ræða, þar eð sjálf keppn
ín hefst ekki fyrr en í dag.
Veiðin gekk allvel í gær. Var
það einkum þorskur, ufsi og
keila er veiddist. Voru komu-
menn ánægðir með aflann þótt
heimamenn væru meiru vanir.
Auk komumanna taka okkrir
Vestmannaeyingar þátt í mót-
inu. Hinir erlendu gestir láta
vel yfir sér og hyggja gott til
verunnar í Eyjum og keppn-
innar. í gærkvöldi sátu þeir boð
bæjarstjórnar Vestmannaevja.
Todd-AO í
Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ, hið nýja
og fullkomna kvikmyndahús
■Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna tók til starfa s. 1. mið-
vikudagskvöld. Var þá sýnd
söngvamyndin South Pacific.
Fjöldi gesta var viðstaddur
■frumsýninguna þar á meðal for-
setahjónin.
' Undan sýningunni var tón-
verkið 'S'tjáni blái eftir Sigfús
Halldórsson, flutt af Sinfóníu-
hljómsveitinni og karlakórn-
um Fóstbræðrum, og Henry
Hálfdánarson formaður Sjó-
mannadagsráðs flutti ávarp.
Kvikmyndasalurinn nýji er
hinn glæsilegasti og tekur 450
manns í sæti. Sýningartækin
eru frá Philips í Hollandi og
eru gerð til sýningar á Todd-
■AO myndum. Forstjóri Laugar-
ássbíós er Valdimar Jónsson.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
læltka furn Bæjarsjúkrahúss-
ins um IV2 m. Sparar það á
3. hundrað þús. teningsmetra,
en það mun þýða hundruð
þúsunda kr. minni kostnað en
ella hefði orðið.
Upphaflega var gert ráð
fyrir', að 3,40 m. yrðu á milli
hæða í turninum, en nú hefur
arkitcktinn ákveðið hæðina
3,06 m. og lækkar það turn-
inn um IV2 m. eins og fyrr
segir.
Turninn, sem á að vera 15
/ Hafnarfirði
BÆJARSTJÓRINN í Hafn-
arfirði, Stefán Gunnlaugsson,
sýndi blaðamönnum í fyrradag
framkvæmdir bæjarins í hafn-
armálum. Er verið að vinna að
gerð nýrrar uppfyllingar, þar
sem togurum er ætlað athafna-
svæði í framtíðinni.
Hin nýja uppfylling kemur
hæðir, rís nú upp óðfluga. Er
lokið við að steypa upp 10
hæðir. Eins og kunnugt er,
hefur dr. Gunnlaugur Þórðar-
son gagnrýnt turnbyggingu
Bæjarsjúkrahússins og virðist
það hafa borið nokkurn árang
ur með ofangreindri ákvörð-
un.
En hvernig væri að hætta
við turninn í 10 hæðum og
spara þannig geysimiklar fjár
hæðir? Þeirri spurningu er
hér með beint til bæjarráðs
Reykjavíkur.
milli hafskipabrygganna fyrir
framan Fiskiðjuver Bæjarút-
gérðar Hafnarfjarðar. Rekið er
niður járnþil, sem verður 173
metrar á lengd og 16.5 metrar
á hæð. Botninn er mjög gljúp-
ur þarna, vatnskenndur leir.
Er járnþilið látið ganga um 8
metra niður í leðjuna þarna.
Uppfyllingin verður mjög stór
eða 43.000 rúmmetrar. Verður
notað í uppfyllinguna efni úr
Kapelluhrauni fyrst og fremst.
Er-þegar hafin vinna við að
aka grjóti í sjóinn þarna en
ætlunin er sú, að hafnarfram-
kvæmd þessari verði lokið fyr-
ir næstu áramót. Daníel Gests-
son verkfræðingur hefur ann-
ast eftirlit með framkvæmdum
þessum af hálfu vita- og hafn-
armálaskrifstofunnar.
FREKARI
FRAMKVÆMDIR SÍÐAR.
Stefán Gunnlaugsson bæjar-
stjóri tjáði blaðinu, að þegar
þessum framkvæmdum væri
lokið hefði bæjarstjórnin mik-
inn hug á því að breikka suð-
urgarðinn, þar sem bátarnir
hafa nú sitt aðalathafnasvæði.
Er ætlunin að breikka garðinn
þar um 4—5 metra svo að að-
keyrsla öll verði auðveldari.
Turn Bæjarsjúkra-
hússins lækkar
Síldveiðar
á Faxaflóa
byrjaöar á ný
Fleiri
öryrkjar
fá bíla
GYLFI Þ. GÍSLASON við-
skiptamálaráðherra flutti í
gær í Neðri deild alþingis breyt
ingartillögu vð frumvarpið um
Innflutnngs- og gjaldeyrismál,
þess efnis að sett yrði inn í
það ákvæði til bráðabirgða, —
þar sem hámarkstala þeirra
bifreiða, sem lækka má aðflutn
ingsgjöld af, yrði 150 árin 1960
og 1961, í stað 50, eins og verið
hefur.
Hér er um að ræða bifreiðar
handa fólki, lömuðu og fötluðu,
sem notið hefur ívilnana varð-
andli aðflutningtsgjöld af bif-
reiðum til eign afnota. Sagði
ráðherrann, að komið hefði i
ljós, að umsóknir um þessi fríð-
indi skiptu hundruðum, — og
nefnd sérfræðinganna, sem út-
hluta leyfunum, hefði verið í
hreinustu vandræðum, þar eð
hámarkstalan var bundin við 50
bíla á ári. Kvað hann hér um
sanngirningsmál vera að ræða
og lét í Ijós þá yon, að aiþing-
ismenn gætu fallizt á breyting-
artillöguna.
TiUagan var samþykkt eftir
nokkurt þóf
iIIIIIIllllltlllllllllllllllllIIIIIIIttllMllwilllllllllllllll 1111111
| Óflokksbundinn
| kommúnisii
| með fulla sjón
I FRUMVARPIÐ um drag-
| nótaveiðar í fiskveiðiland-
= helgi var til 2. umræðu i
| Neðri deild í gær. Jón
i Pálmason kvaddi sér fyrst
| ur hljóðs og talaði mjög
i gegn frumvarpinu sem
I fyrr.
i M. a. skýrði Jón frá því,
| að sér hefði borizt bréf frá
| manni, sem hann þekkti
! ekki neitt, þar sem þökk-
1 uð var andstaða þing-
| mannsins gegn dragnóta-
| frumvarpinu. Með undir-
| skriftinni undir bréfið
i fylgd skýringin: Óflokks-
! bundinn kommúnisti með
| fulla sjón.
Umræðunni var frest.að.
í
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
EINN bátur, Ásbjörn frá
Akranesi, fékk í gærmorg
un 51 tunnu síldar í rek-
net hér í Faxaflóa. Tjáði
Sturlaugur Böðvarsson, út
gerðarmaður á Akranesi
blaðinu í gær, að hann
hefði í hyggju að láta
nokkra báta stunda síld-
veiðar í Flóanum á næst
unni.
Sturlaugur sagði, að fyrir
nokkrum vikum hefði verið
krökkt af síld í Faxaflóa < og
hefði síldin þá vafalaust verið
á leið norður. Virðist hún hafa
gengið fljótt yfir og verið fyrr
í því en undanfarin ár.
VANTAR SJÓMENN.
Afli Ásbjörns bendir til þesS
að síld sé í Flóanum, sagði
Sturlaugur, en vandamálið er
bara það, að erfitt er að fá sjó-
menn á reknetaveiðar nú. S’jó-
mennirnir vilja bara fara norð-
ur upp úr næstu mánaðamót-
um en hafa lítinn áhuga á rek-
netaveiðum hér syðra.
* B jr ,
Smtoniu-
tónleikar
í kvöld
HINN 8. júní eru liðin 150
ár frá fæðingu þýzka tón-
skáldsins Roberts Schumanns,
og verður þess minnzt með því,
m. a., að flutt verður verk eft-
ir hann, sinfónía nr. 4 í d-mollv
á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Þjóðleikhús-
inu í kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 8,30,
og eru þetta síðustu tónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar hér
í Reykjavík á þessu vori. —•
Stjórnandi er dr. Václav Smet-
ácek frá Prag og einleikari
Björn Ólafsson fiðluleikari.
Önnur viðfangsefni á þess-
um tórileikum eru forleikur að
óperunni „Iphigenia in Aulis‘c
eftir Gluck og fiðlukonsert í
D-dúr eftir Beethoven, eitt hið
merkasta og fegursta verk sinn
ar tegundar, sem samið hefur
verið.
Alþýðublaðið — 20. maí 1960 3