Alþýðublaðið - 20.05.1960, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 20.05.1960, Qupperneq 8
JÓN nágranni kom seint heim í fyrrinótt og átti í dálitlum erf- iðleikum með að opna húsdyrnar hjá sér. Hann virtist dansa með lykilinn allt í kringum skráargatið, en fann það aldrei. Samvizkusamur og framkvæmdasamur, atvinnulaus lögreglu- ■þjónn var á vakki þarna við húsið og fylgdist vel með að- förum Jóns. Svo gekk hann til hans, potaði í bakið á Jóni með ein- um fingri og sagði: — Heyrðu, á ég að hjálpa þér að finna skráargatið? — Nei, takk, sagði Jón. — Ég finn það sjálfur. Vilt þú ekki bara halda húsinu kyrru á meðan? Fínt fólk ÞEGAR Truman fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna fór til heimaborgar sinnar, Independence í Missouri til að kjósa í kosningunum 1948, höfðu blöðin sent út herskara blaðamanna, sem áttu að fylgjast með hverri hreyfingu Trumans. En þegar blaðamennirnir komu til flugvallarins í Kansas var þeim sagt, að vél forsetans hefði þegar lent, og hann væri kominn á leið heim til sín. Blaðamennirnir fengu leigðan lögreglubíl með sír- enu og óku með ýlfri í gegnum umferðina beint til heimilis Trumans. Þegar þangað kom var þeim sagt, að hann væri ekki kominn. Nokkru síðar kom svo Tru- man. Einn blaðamanninn spurði hann áhyggjufullur, hvort eitthvað hafi orðið að á leiðinni. — Nei, ekki annað en við vorum stöðvaðir af lögreglu bíl og urðum að víkja til hliðar, sagði Truman. — í þessum bíl voru víst ein- hverjir höfðingjar, sem þurftu endilega að komast áfram! ÞESSAR tvær myndir eru frá Suður-Afríku. Litlá myndin er af Henri Ver- woerd, augnabliki eftir að stórbóndinn David Pratt hafði skotið tveimur kúlum 'í andlit hans. Stærri mynd- in sýnir blökkumenn gera útför hinna 74 kynbræðra sinna, sem lögreglan í Sharpville felldi á torginu fyrir utan lögreglustöðina þar. Þessir tveir atburðir eiga báðir rætur í 300 ára sögu Suður-Afríku og endur- spegla átök hinna ólíku afla, sem þar kljást um völd og áhrif, fyrst og fremst til- raun hvítra manna til þess að halda völdum, baráttu blökkunianna fyrir jafnrétti og yfirráðum og ósættanleik enskumælandi manna og Búa, afkomenda hinna púrí- tönsku Hollendinga, er byggðu landið í kringum Höfðaborg fyrir rúmum þremur öldum. Hvítir menn í Suður-Af- riku kalla sig Afrikander. Þeir eru að meirihluta af hollenzkum ættum, en auk þess enskum og allmargir afkomendur franskra húg- enotta búa í landinu. Það var hollenzka skipið Haarlem, sem var á leið til Indlands, er fyrst lenti við suðurodda Afríku, nálægt því þar sem Höfðaborg reis síðar. Skipið fórst í lending unni, en nokkrum árum síð- ar fann annað hollenzkt skip skipbrotsmennina við beztu heilsu og í ágætu skapi. Þeir höfðu ekki orðið varir við neina af plágum hitabeltisins, frumskóga, eiturslöngur eða villidýr. Og hvergi höfðu þeir orðið varir við svertingja eða mannætur. Þetta var árið 1647. Fjórum árum síðar fól Austur-indíafélagið hol- lenzka flotaforingjanum Jo- hann Van Riebeck að stofn setja áningarstöð við Góðr- arvonarhöfða fyrir þau skip, sem sigldu til hinna fjar- lægari Austurlanda. Átti hann einkum að sjá um að rækta matjurtir þar til þess að skipshafnir gætu endur- nýjað þar matarbirgðir sín- ar. Allar jurtir náðu góðum þroska þarna, og hófst nú barátta Búanna fyrir lífs- rými í sólinni. Landið var ekki eins ó- by-ggt og skipbrotsmennirn- ir á Haarlem höfðu haldið. í savannalendum hásléttunn ar voru verur, sem líktust mönnum: Búskmenn, ljótir og villtir. Og skammt undan voru Hottentottarnir með stóra þjóhnappa, sem gegndu sama hlutverki og hnúðar úlfaldanna, það er að segja voru forðabúr. Hollendingarnir höfðu litlar áhyggjur af þessum úrkynjuðu mannverum, og litu ekki einu sinni á þá sem menn. Þeir smituðu þá líka brátt af bólusótt, sem út- rýmdi þeim á stórum svæð- um. f hálfa aðra öld var Höfðanýlendan paradís á jörðu. — Hollendingarnir lögðu samt á þessum tíma grundvöllinn að þeim vand- ræðum, sem eru að sliga Suður-Afríku í dag. Þeir tóku negrana'fyrir þræla og vegna skorts á kvenfólki áttu margir Búar börn með blökkukonum og smám saman myndaðist nýr kyn- flokkur, metis, hinir lituðu íbúar Höfðanýlendunnar. 1795 komu Englendingar til sögunnar. Þeir hernámu Höfðanýlenduna og 1815 varð hún brezkt land í frið- arsamningunum eftir Na- póleonsstyrjaldirnar. — Nokkru síðar komu 5000 enskir innflytjendur þang- að. Búarnir kunnu illa yfir- ráðum Englendinga, og nú hófust hinir miklu fólks- flutningar þeirra, Voortrek, norður á bóginn, yfir há- sléttur og eyðileg fjöll, allt til Natal við Indlandshaf og dalanna í Oraníu. Englend- ingarnir fóru í humáttina á eftir, og Búarnir námu ekki staðar fyrr en í Transvaal. Þessir fólksflutningar leiddu til aukinna viðskipta hvítra manna og innfæddra, einkum hinna fjölmennu ættkvísla Bantúnegranna, Xhosas, Vendas, Basutos og Zúlúanna. Búarnir kölluðu alla svertingja Kaffa. Þeir áttu í stöðugum styrjöldum sín á milli og var reglan sú, að allir herteknir karlar voru drepnir, en konur og börn hneppt í þrældóm. Þarna norður í Transvaal, Oraníu og Natal stofnuðu Búarnir ríki sín og hófu bú- skap. Þeir áttu í stöðugum bardögum við innfædda, sem aldrei létu þá í friði. Þeir erjuðu jörðina með byssu sér við hlið. Kaffarnir settust einnig um kyrrt og leituðu vinnu hjá Búunum og í dag koma að jafnaði 20 000 Bantúnegr ar á ári til Suður-Afríku í leit að betri lífskjörum en þeir búa við heima fyrir. Gullöld Búanna var á seinni helmingi 19. aldar. Enginn skipti sér af þeim og þeir skiptu sér ekki af neinum. Sískeggjaðir og al- varlegir, vinnusamir og harðgerir erjuðu þeir jörð- ina, stunduðu kvikfjárráekt og héldu fast við trú feðra sinna. Þegar óveður Búa- stríðsins skall yfir voru Transval og Oranía sjálf- stæð ríki og þar kom fram í dagsljósið hinn mikli for- ingi Búanna, Kriiger forseti, og brezkur liðsforingi lýsti Búunum sem beztu her- mönnum heimsins. Hann hét Winston Cruchill. Gullið og demantarnir spilltu Búunum. Þeir gerðu allt, sem í mannlegu valdi stóð til þess að koma í veg fyrir að grafið væri eftir þessum . dýrmætu efnum í beitarjörðum þeirra. En Uit landers, útlendingarnir dróg ust að gullnámui brezka stjórnin vai í að nota þessi mi æfi í sína þágu. Bús enn mesta viðbjóS og hata tgullið og ana, sem eru undir megunar þeirar. Bretar seildust ti áhrifa í löndum innlimuðu Natal í ' Ienduna, hertóku og stofnuðu vernd Bechuanaland. k enskum uppruna u jafnfjölmennir Búi Búastríðinu laul sigri Búanna, og síi sífellt sigið á ógæ fyrir þeim. Kynþái málið varð hálfu er fjöldi Hindúa : Suður-Afríku. Þei fyrstu ætlað að vin urekrunum í Nata: urðu snemma kaui fjármálamenn, seri fé með okurvöxtui menn kúga Hind Hindúarnir fyirrlít mennina og kúga megni. Þannig er jarð\ sem atburðirnir g 20. maí 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.