Alþýðublaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson. Landsliðið vann + í GÆRKVÖLDI fór fram fyrsti kanttspyrnukappleikur sumarsins á leikvanginum í Laugardal og léku tilrauna- landslið og lið íþróttafréttarit- ara. Landsliðið sigraði með 3 mörkum gegn 1 í frekar til- þrifalitlum leik. í fyrri hálf • leilc skoraði Þórður Jónsson fyrir landsliðið og fleir mörk voru ekki skoruð fyrir hlé. — Síðari hálfleikur var heldur líflegri en sá fyrri og þá skor- aði Þórólfur Beck úr víta- spyrnu fyrir landsliðið og auk þess Ingvar Elísson. Mark blaðaliðsins skoraði Berg- steinn M'agnússon. — Eins og fyrr segir var leikur þessi ekki til að gefa vonir um góðan ár- Framhald á 14. síðu. Juventus vann TORINO félagið Juventus tryggði sér meistaratitilinn í I. deild ítölsku knattspyrnunn- ar £.11. sinn með því að sigra Milan með 3—1. í öðrum leik sigraði Sampdoria Fiorentina með 2—1, en Fiorentina hefði getað ógnað sigri Juventus, ef því hefði tekizt að sigra Samp- doria. 2 Frjálsíþróttamót TVÖ frjálsíþróttamót verða haldin hér í Reykjavík næstu daga, þ. e. Sveinameistaramót Reykjavíkur (drengir 16 ára á þessu ári), 25. maí og svo hið árlega EÓP-mót 30. maí. Á EÓP-mótinu verður keppt í eftirtöldum greinum: 100 m. hlaup 800 m. hlaup, 3000 m. hlaup, 110 m. grindahlaup, 400 m. grindahlaup, 4x100 m. boðhlaup, kúluvarp, sleggjukast, hástökk, þrístökk. Þátttökutilkynningar eiga að berast til Sigurðar Björnssonar eða Helga R. Traustasonar, c/o Sambandinu í síðasta lagi 25. maí. Á Sveinameistaramótinu verður keppt í 60 m., 80 m. grind, 300 m., 600 m., 4x100 m. kúluvarpi, kringlukasti, há- stökki, langstökki og stangar- stökki. Frjálsíþróttadeild KR sér um mótið og þátttökutil- kynningar eiga að berast. til Helga R. Traustasonar í síð- ) asta lagi 21. maí eða á morgun. ÞESSI MYN.D er frá leik Eng- lands og Júgóslavíu fyrir nokkru, en jafntefli varð 3 gegn 3. Þ:að er júgcslavneski mark- vörðurinn Miiutin Soskic, sem bjargar af fótum enska mið- herjans Baker. Áður fyrr var hinn þekkti Beara í marki Júgó slafíu. Hann var ballettdansari, en það virðist eftir stellingum Soskic að dæma, að hann einn- ig fengist eitthvað við ballett. ÞAÐ verða ekki nema 9 frjálsíþróttamenn frá Suður- Afríku í Róm og þeir eru ekki af lakari endanum: Edmund Jefferys í 100 (10,2) og 200 m. (20,8) full beygja. Malcolm Spence 440 vds (45,9), Gordon Day (46,1), Brian Davis (47,5) og Potgieter (46,3). Allgóð 4x 400 m. boðhlaupssveit það! Keith James keppir í maraþon, Georg Halz í göngu, Jacobus Malan í 110 m. grind (14.1) og Stephan du Plessis í kringlu- kasti 56,32 m. ítalir verða að sjálfsögðu með stærsta hóp keppenda í Róm, talið er að keppendurnir verði um 300. Kanadamenn senda 99. • • Það verður erfitt fyrir Banda ríkjamenn að velja sína þrjá keppendur í hástökki OL. Hér eru beztu afrek þeirra það sem af er sumrinu: Thomas 2,17,1, Dumas 2.14, Wyborney 2,10,8, Grundy 2,08 9, Barnes 2,08,3, Wvatt 2,07, Faust og Lewis 2, 05,7. Þeir skipta tugum, sem stokkið hafa 2 metra og hærra í Bandaríkiunum. jþróttafréttir í STUTTU MÁLI DAGANA 2. og 3. júlí næstk. verður háð stórmót í frjálsí- þróttum í Moskvu og hefur mörgum fremstu íþróttamönn- um heimsins verið boðið. 'Verða hér eins konar „fyrirolympíu- leikar“. — Rússar hafa m. a. boðið 4 Svíum, þeim Petters- son, Waern, Fredriksson og Asplund. • • Pólverjinn Kowalski varð fyrstur Evrópumanna í ár til að ná betri tíma en 47 í 400 m.; hann hljóp á 46,9 fyrir nokkr- um dögum. A-Þjóðverjar náðu ágætum áransri 1 frjálsíþróttum um síð- ustu helgi. — Matuschewski 1:49.9 í 800 m„ Preussger og Jeitne- 4,40 m. á stöng. (Preus- sger slasaðist illa í fyrra og keppti ekkert, en hann virð- ist nú vera búinn að ná sér). Köhl setti met í kringlukasti, 55.47 m„ Grodotzki sigraði í míluhlaupi á 4:03.6, millitími í 1500 m. 3:48 2 mín. — Stein- bach hefur stokkið 7,86 m. í langstökki, aðstæður voru lög- legar. • • PARRY O’Brien var heldur slappur á síðasta mótinu, hann sigraði að vísu en varpaði ,,að- eins“ 17.98 m. — Á sama mcti sigraði I.sw Merrimann i 880 vds í 1:49,6 mín. Knatfspyrnusnillingunnn Ferenc Puskas í SAMBANDI við úrslita- leikinn um Evrópubikarinn í knattspyrnu, sem fram fór hinn 18. maí s. 1. milli Real Madrid og vestur-þýzka liðsins Ein- tracht í Hampden Park Glas- gow, er sérstök ástæða til að minnast Ferenc Puskas, Ung- verjans fræga, sem nú leikur í liði Real Madrid. Puskas er nú 34 ára og einn af aðalsnillingum spánska liðs- ins. En þátttaka hans í leiknum hafði nærri orsakað, að Ein- tracht hætti við keppnina. Margir minnast enn hins sögulega lokaleiks í heims- meistarakeppninni í Bern 1954, þegar vestur-þýzka liðið sigr- aði ungversku snillingana, Þá lék Puskas í liði’ ættlands síns, Ungverjalands. Eftir leikinn lét hann falla í viðtali, nokkur kjarnyrði um þýzka liðið, sem fór mjög í taugarnar á þýzku knattspyrnuforystunni og það svo, að þýzkum liðum var bann að eftirleiois að leika gegn liði, þar sem Puskas væri með. Þannig stóðu málin, þegar Eintracht komst í úrslit. Hins- vegar leystist vandinn, er Puskas sendi þýzka knatt- spyrnusambandinu bréf, þar sem hann baðst afsökunar á áð- urnefndum ummælum sínum. Ferenc Puskas er í knatt- spyrnu eftir stríð orði'nn að nokkurs konar þjóðsagnaper- sónu. Þeim sem eitt sinn hafa fengið tækifæri til að sjá hann í leik, gleymist það aldrei. Hann var hin mikla stjarna, • m skærast skein £ ungverska liðinu, sem sigraði svo glæsi- lega í Olympíuleikunum 1952, en sem leystist upp í bylting- unni 1956, svo sem kunnugt er. Puskas flýði fósturjörð sína og gerðist atvinnumaður og gekk kaupum og sölum á hinum al- þjóðlega sölumarkaði atvinnu- menngkunnar í knattspyrnu. Það er óþarfi að geta þess, a9 Puskas varð eftirsótt „vara“ á þessum markaði og í sjálíu sér ekkert undarlegt, þó að Real Madrid yrði hlutskarpast á þessu sviði. Hér komst Puskas í góðan íélagsskap, m. a. með di Ste- fano og Didi þeirra Brazilíu- manna eftir heimsmeistara- (Framhald á 14. síðu.) ASTON VILLA er nú kom ið til Noregs og lék gegn félaginu Raufoss, sem hafði styrkt lið sitt með Rolf Björn Backe frá Gjö- ' * vik-Lyn. Englendingarnir unnu stóran sigur, skor- uðu 13 mörk gegn 1. — Norsku blöðin hrósa mjög leik Aston Villa og segja, að hann hafi verið lær- dómsríkur fyrir norska | knattspyrnu. Alþýðublaðið — 20. maí 1960

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.