Heimskringla - 19.04.1944, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 19. APRIL 1944
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA
ÍSLENDINGAMÓT í
SAN FRANCISCO
Vestur-lslendingar í Norður
Californíu og íslenzkir stúdentar
frá Berkeley komu saman í First
Lutheran Church í San Fran-
cisco sunnudaginn 19. marz til
þess að fagna komu herra Sigur-
geirs Sigurðssonar biskups og
hlýða á messugerð hans. Voru
þar saman komnir alls um 300
manns, og höfðu sumir komið
langt að til þess að mega hlýða á
biskupinn, svo sjaldséðan gest
heiman frá Fróni.
Kl. 4 e. h. hófst íslenzk guðs-
þjónusta, og messaði biskupinn,
en séra O. Thorláksson þjónaði
fyrir altari. Frú Thorláksson
lék á orgelið, og sálmar voru
sungnir á íslenzku.
1 ræðu sinni mintist séra Sig-
urgeir á stöðu kirkjunnar og
hlutverk í þjóðfélaginu. Kvað
hann kirkjuna hafa verið mikils-
verðari þátt í menningarlífi
hverrar þjóðar en flestir vildu
vera láta. Alveg eins og kirkju-
byggingar hefðu fegrað borgir
og bygðarlög, eins hefði hin and-
lega kirkja, stofnunin, sett svip
sinn á þjóðlífið, fegrað það og
bætt.
1 messulok skírði biskup þrjú
börn, dóttur Jóhanns Hannesson-
ar, stúdents í Berkeley, og tvo
syni Steinþórs Guðmunds frá
Walnut Creek.
Að lokinni messunni gengu
menn niður í samkomusal kirkj-
unnar, og voru þar bornar fram
rausnarlegar veitingar af vestur-
íslenzkum konum í San Fran-
cisco og umhverfi. Forstöðu-
kona veitinganna var Mrs.
Brynjólfsson. Margar íslenzkar
krásir voru á borðum, og voru
menn hinir kátustu. Gamlir
kunningjar, sem ekki höfðu sézt
lengi, hittust og ræddust við.
Er allir voru mettir, hófst
söngur og ræðuhöld. Fyrst
sungu tvær ungar stúlkur, þær
Eileen Christoffersen og Leona
Oddstad, nokkur ensk og íslenzk
lög hvor, báðar af mikilli prýði,
og hlutu lof allra fyrir.
Síðan tók til máls prófessor
Sturla Einarsson og bauð biskup-
inn velkominn til San Francisco.
Að því mæltu flutti séra Sigur-
geir all-langa ræðu um Island.
Eftir stutta og skemtilega frá-
sögn af ferð sinni til Ameríku
sagði hann Vestur-íslendingum
frá breytingum þeim, sem orðið
hafa á Islandi, síðan þeir fóru að
heiman. Tók þar til helzt fram-
kvæmdir í atvinnumálum, ný-
byggingar um land alt, lagning
vega og brúargerðir, vöxt kaup-
túna og kaupstaða og þá einkum
Reykjavíkur. Mintist hann á
hitaveituna, sem tók til starfa
skömmu áður en hann fór frá
Reykjavík, og fór nokkrum orð-
um um sambandsslitin við Dan-
mörku, sem munu ganga í gildi
hinn 17. júní n. k. Að lokum
sagði biskupinn nokkuð frá
kirkjumálum á Islandi síðustu
ár, taldi þau hafa dafnað vel og
áhuga manna vaxið í þeim efn-
um. Var góður rómur gerður að
ræðu biskups, enda var hún f jör-
ug og skörulega flutt.
Að lokinni ræðunni sungu stú-
dentarnir tvö íslenzk lög, og allir
viðstaddir tóku undir. Þá reis
úr sæti sínu séra Thorláksson,
sem hafði stjórnað samkomunni,
og sagði biskupi frá gjöf, sem
Vestur-Islendingar höfðu safnað
til og ætluðu að senda biskupn-
um til New York. Var það
gerfileg skjalataska, áletruð silf-
urstöfum, og í henni bók um
San Francisco og umhverfi.
Að lokum stóð upp dr. K. S.
Eymundsson, kunnur læknir í
San Francisco, og þakkaði bisk-
upi komuna fyrir hönd allra
Vestur-Islendinga, er viðstaddir
voru. Síðan sagði biskup nokk-
ur orð á ný, þakkaði fagra gjöf,
gekk um og kvaddi alla með
handabandi. Sleit þannig sam-
komunni með gleðskap og vinar-
hótum, og var þetta minnisstæð-
ur dagur öllum Islendingum i
N orður-Calif orníu.
Haraldur Kröyer
BISKUP ÍSLANDS
í SEATTLE
11. marz mættu Kolbeinn
Thórðarson og séra Haraldur
Sigmar biskupi í Blaine og
óku með honum í bifreið til
Seattle. Fóru þeir hægt meðfram
ströndinni eftir Chuckanut High-
way svo að biskup gæti notið
ferðarinnar sem bezt. Um kvöld-
ið var biskup boðinn til Dr. Frið-
riks Thorlákssonar, sem býr á
fögru heimili hjá Lake Washing-
ton. Meðal gesta voru Alfred
Albert og Dr. Jón Árnason. —
Biskup þekkir frændfólk þeirra
á Islandi mjög vel. Brátt fór
fólk að syngja íslenzka söngva
og söng biskup þar við góða rödd.
Blaðamenn í Seattle voru mjög
hrifnir af hinni ágætu ensku
biskups, svo og allir sem heyrðu
hann prédika á ensku í Hall-
grímskirkju, sunnudagsmorgun
12. marz. Um 250 manns sóttu
guðsþj ónustuna og tóku þátt í
henni kór Hallgrímssafnaðar og
sérstakur stúlkna kór. Ben Hall-
grímsson söng einsöng. Hin
enska prédikun biskups vakti ó-
vanalega athygli í borginni. For-
maður fyrir Seattle Art Society
var við messuna og tók myndir
af biskupi á eftir. Síðar verður
málverk gert af honum og verð-
ur það geymt í Art Society með
myndum af frægum mönnum,
sem hafa heimsótt Seattle. Undir
málverkinu verður minst á pré-
dikun biskups.
Um eftirmiðdaginn talaði
biskup á ensku yfir útvarpið K.
R. S. T. Var það mjög góð ræða.
Fólk talaði um að Islendingar
mættu vera hrifnir af svona
biskupi, því það væri ekki auð-
velt að prédika á erlenda tungu..
Um kvöldið prédikaði biskup
aftur í Hallgrímskirkju, í þetta
sinn á íslenzku. Þar sungu Tani
Björnson söngstjóri og Elaine
Frederick, dóttir forseta safnað-
arins. 375 manns voru við mess-
una. Þar á meðal 25 manns sem
komu frá Everett. Um 200 voru
við kveðju samsætið sem fylgdi
messunni. — Þar flutti biskup
kveðjur frá Islandi og rabbaði
við fólk. Jón Magnússon, Karl
Friðriksson og Jakobína John-
son þökkuðu biskupi komuna og
aðrir tóku í sama streng með
stuttum ræðum.
13. marz mætti biskup 80 lút-
erskum prestum frá Seattle og
nágrenni. Einn af þeim hafði
ferðast 100 mílur til að mæta
biskupi. Biskup sagði þeim frá
kirkju Islands og starfi hennar
bæði heima og í sambandi við
lúterskar kirkjur utanlands. Við
lok ræðunnar töluðu ýmsir menn
er vildu fræðast frekar um hagi
þjóðfélags og kirkju Islands. Að
beiðni séra Harald Sigmars lauk
biskup fundi með því að lesa
The World’s News Seen Through
The Christian Science Monitor
An lnternational Datly Newsþaper
hMitktd by THE CHRISTIAN SCIENCE PUBUSHING SOCIETY
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
ú Truthful—-Constructive—Unbiased—Free frotn Sensational-
iam — Editorialf Are Timely and Instructive and Ita Daily
Features, Together with the Weeldy Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
Price ? 12.00 Yearly, or $1.00 a Month.
Saturday Itsue, including Magazine Section, ?2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents.
Obtainable at:
Christian Science Reading Room
206 National Trust Building
Winnipeg, Manitoba
bæn og blessun á íslenzku og
þótti það öllum bæði merkileg
og hrífandi stund. Seinna bætt-
ust við leikmenn og fundurinn
hélt áfram langt fram á dag. Við
fundarlok hélt biskup íslands
ræðu á ensku og las síðan bless-
un yfir áheyrendum á íslenzku.
Um kvöldið var biskup gestur
íslenzkra námsmanna í Seattle,
en þeir eru Magnús Ingimunds-
son, Stefán Ingvarsson, Styrmir
Proppé, Vigfús Jakobsson og hr.
og frú Þór Guðjónsson.
Falleg stúlka: “Þér hljótið að
hafa sýnt fádæma hreysti og
hugrekki að bjarga mér, eins og
þér gerðuð?”
Slökkviliðsmaðurinn: “Já, eg
varð að slá fjóra aðra niður, sem
ætluðu að gera það.”
1
I.
1
s
I
3
i
i
u
i
S
8
S
4
4
i
I
I
3
VERUM ATJ.TR
SAMHENTIR
Nó stendur yfir styrjöld sem er ekki háð eingöngu á
stríðsvellinum, heldur og líka heimafyrir. Þetta er
VORT stríð .. . allir verða að taka sinn þátt í því.
Menn og konur í herklæðum berjast fyrir stórum
hugsjónum ... fyrir FRELSI! Ekki einungis fyrir
sínum eigin réttindum, heldur allra íbúa Canada. Er
oss vansalausa að hafast ekki að, en láta þetta fólk berjast
fyrir oss? Nei. Vor skylda er að sjá um að til séu nægileg
skip, fæði, klæði og hergögn er þeir þarfnast.
Vor skylda er að létta byrði þeirra, og
sjá um að verkið vinnist sem fyrst!
Spursmálið er ekki hvernig þér getið aðstoðað,
heldur “hve mikið”! Hvað mikið getið þér lagt í sölurnar,
sparað og lánað til þess að kaupa verðbréf ... kaupa alt
sem þér getið. Hvert verðbréf sem þér kaupið
hefir mikilvæga þýðingu.
Verum allir samtaka. Sameinaðir vinnum vér.
Hve fljótt, er oss öllum í lófa lagt.
Sniðgöngum ekki skyldur vorar ...
SIGURINN FYRST
KAUPIÐ VICTORY BONDS
NATIONAL WAR FINANCE COMMITTEE