Heimskringla - 28.03.1945, Side 3
WINNIPEG, 28. MARZ 1945
HEIMSKRINGLA
3.S1ÐA
og ódrýgðum, og á þann hátt að
frelsara alls mannkynsins. En
nú eru liðin nær tvö þúsund ár
og syndin virðist nú eins mikil
«ftir sem áður í heiminum.
Svo einhverstaðar er mis-
reiknað eða misskilið, því nú vil
og ekki láta mér detta í hug að
almáttugum skapara alls, hafi
skjátlast. Svo eg er farinn að
voga mér að hugsa, að hlutimir
séu eitthvað öðru vísi, eða að
minsta kosti, hægt að hugsa sér
þá á fleiri vegi og áreiðanlega
mikið skiljanlegri, ef maður
bara leyfir sér að hugsa og reyna
að styðjast við það, sem manni
finst vera næst því raunveru-
lega. Mér finst að fyrst verði
að reyna að gera sér grein fyrir
«því, hvað tilveran sé og khvaða
afstöðu er hún við það, sem við
köllum guð. Ef guð befir skapað
altilveruna og alt sem henni til-
heyrir, þá hefir guð verið til áð-
ur en alt annað varð til. Okkur
hefir verið kent að guð væri al-
staðar og það væri engin staður,
sem hann væri ekki og líka það
að guð væri alt í öllu. Þá kemur
spurningin aftur, hvað er guð?
Okkur hefir líka verið kent að
guð væri eilífur. Já, hann væri
frá eilífð til eilífðar.
Ef guð er eilífur þá hefir aldrei
verið sá tími sem guð var ekki
til, því það sem eilíft er hefir
altaf verið til og hefir því hvorki
upphaf né endir. Þá kemur að
því að spurningin um hvað sé
• tilveran svarar sér sjálf og segir.
Guð er öll tilveran og tilveran er
guð. Mér getur ekki dottið í
hug að það hafi nokkurn tíma
verið sá tími, að guð hafi ekki
verið almáttugur né alvitur og
þvi stórt spursmál hvort hann
hafi nokkuð þurft að skapa, en
vera sístarfandi í breytiþróun
tilverunnar, þar sem hann hefir
verið alfullkominn frá eilífð og
verður aldrei annað en alfull-
homnn. Þetta sem eg kalla guð
af þvi að eg hef ekki annað orð,
sem mér finst ná því hugtaki sem
eg meina með því er ekki nema
að nafninu til sá sami guð sem
mér var kent að hefði bústað
Slnn á himnum og stjórnaði öllu
þaðan. Því eg get ekki aðskilið
&uð frá náttúrunni né náttúrlög-
Uíálunum og frá sjálfum sér, sem
°tl tilveran á öllum sviðum. —
í*essi guð hefir að minsta kosti
tvö eðli eða tvær hliðar, annað
^ efnisheimurinn, en hitt ósýni-
legi eða andlegi heimuirinn. —
^efir bæði föður og móður eðli.
f'öður eðli, sem alvizka fylgir og
alt lífgar og móður eðli, sem öllu
'úll gefa líf og þroska.
í*essi tvö eðli eru sístarfandi
°g viðhalda öllu, fyrir það þau
starfa altaf eða eilíflega, er alt á
h^eyfingu og altaf starfandi um
aHa tilveruna, á sveiflu hraða,
^ni aldrei hikar né stansar. Eins
°g mannssálin uppfyjlir manns-
hkamann, eins fyllir guðs sálin
alla tilveruna. Eins og alt sem
^ hefir stendur það saman af
lrumum eða svo smáum verum
Sem geta safnast saman, svo það
Sliláa myndar það stóra. Eins|
er mannssálin ein frumla eða j
Srnáeind úr alheims sálinni eða:
^ðs sálinni og á þann hátt gefur}
^nninum skyldleika við guð
andlega eða í sannleika börn al-
°ðurs, og því manns andlegi arf-
Ur margfalt stærri en okkar jarð-
fieski eða víðtækari. Þetta er
Sannarlega mikið breytt mynd
ra þvf, sem mér var kent í mínu
Ul}gdæmi. Hún opnar eins og
uýjan heim, sem mér finst svo
mikið eðlilegri og dregur svo
^ikið úr óttanum við Satan og
a sama tíma svo mikið eðlilegri.
n samt finst mér kirkjan nauð-
synlegt þvj hQn hefir ega aetti
f hafa mikið starf fyrir hendi,
r sem Krists kenning og hans
^firmynd er það æðsta og full-
^nasta sem heimurinn þekkir.
> erna þá annað því betra kæmi
aff a^nn’ en hún þarf sannarlega
ná betri tökum á Krists kenn-
v . nni> Sú kirkja sem getur
1 1 syndurum fyrirgefning alls
þess, sem þeir hafa syndgað eða
misstigið sig, hvort það er karl
eða kona, með því að borga svo
mikið eða játa syndir sínar á
einn eða annan .hátt, getur það
ekki.
Fyrst og fremst eru allar synd
ir eða brot afleiðing orsaka, sem
hver einn verður sjálfur að líða
fyrir, eða afplána á einhvern
hátt. Svo er spursmálið á móti
hverju eða hverjum hefir verið
syndgað? Ekki á móti neinum
guði sem situr í hásæti einhver
staðar út í geimnum. Þegar við
höfum brotið er það á móti guði
í okkur sjálfum. Er þá fyrst að
fá þann guð til að fyrirgefa. En
það er ekki hægt með peningum
eða bara að játa sínar misgerðir,
því hvorki Kristur né guð altil-
verunnar geta gert það, heldur
verður hver einn að afplána það
sjálfur eða líða fyrir. Því ekki
er hægt að breyta réttlætis lög-
málnu né náttúmlögmálunum
bara eftir hvers eins vild, því þau
■p'
Lt. R. G. P. Bulkeley, R.N.
af Westward Ho, Devon, æðsti
maður Breta yfir kafbátum
þeirra í Kyrrahafinu er ásækja
Japani á siglingaleiðum þeirra
í austurhöfum.
verða að hafa sitt réttlæti fram
til þess að geta verið réttlát.
Við erum öll á mismunandi
þroskastigi andlega og leitandi
eftir meira ljósi eða skilning við-
víkjandi guði eða því sem við
köllum Alföður, og þráum að
skilja okkar tilveru og tilgang
með þessu svokallaða jarðneska
lífi. Það er sannarlega blessun
að það er nú meira frjálsræði í
heiminum, menn vom ofsóttir
svo oft ef þeir leyfðu sér að
hugsa eða halda einhverju fram,
sem kom í mótsögn við það sem
kirkjan vildi eða kendi. I því
sambandi hefir mér oft dottið í
hug hin gamla Grýla, sem börn-
in vom mest hrædd á, þegar eg
átti heima á Islandi, þegar þau
þóttu óþæg, þá gat hún altaf
komið og tekið þau í pokann
sinn, sem hún bar á bakinu, eða
svo var mér oft sagt frá henni.
Eins hefir kirkjan notað Satan
til þess að hræða fólkið á eða
þann stað, sem eilífar kvalir em.
Eg kalla það gleðiefni að nú um
þessar mundir ber mikið minna
á því og vonandi að veldi Satans
fari þverrandi.
Eð hef skrifað þessar línur til
þess, ef einhverjir lesa þær og
líkt hefir staðið á fyrir og mér,
að þeir hinir sömu sjái að það
eru fleiri en þeir, sem eru að
leyfa sér að hugsa þó það sé
eitthvað út frá því vanalega, og
reyna að ná meirn viðvíkjandi
skilning á eilífðar málunum.
S. S. B.
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
Heimskringla á Islandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
íslandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
víkjandi áskriftar-gjöldum, og
einnig allir þeir sem gerast vilja
H HAGBORG FUEL CO. H
★
• Dial 21 331 21 331
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
að máli.
Orð án athafna er eins og ský
án regns og bogi án strengs.
Oehlenslager.
* * *
Góður granni er fjarlægum
bróður betri.
Belgiskur málsháttur.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
bezta íslenzka fréttablaðið
Saga Yelgengnis:
Canadisk Venja
yELGENGI er hin venjulegasta saga í
Canada.
Við þekkjum öil margar þeirra. Af
erfiðismanninum sem nú er höfuðsmaður
stórbygginga-félags . . . af smákaupmann-
inum sem lagði hornsteininn að miljón
dollara verzlun ... af þeim er þvoði diskana
en er nú eigandi margra matsöluhúsa . . .
og svo framvegis.
örðug vinna — að viðbættri dálítilli
hepni — gerði þessa velgengni mögulega.
* Svo er einnig önnur saga um velgengni,
sem er ekki eins vel kunn. Hún er sú al-
gengasta — og algerlega canadisk. Hún er
velgengis saga hinna mörgu manna og
kvenna, sem hafa bygt heimili, mentað börn
sín og lifa ánægjulegu lífi, laus við alla
hjálp og skort.
Örðug vinna — oft örðugri en sú, sem
ínnvann stórauð hinum fyrnefndu — hafði
mest að gera við velgengni þessa fólks. Þaö
— og eitthvað vissara en hepni: vaninnað
spara.
Þessi tegund velgengnissagna, er skrif-
uð á hverjum degi af fólki, sem safnar til
framtíðarinnar . . . safnar fyrir heimilið
er það hefir hugsað sér að byggja . . . fyrir
mentun er börn þess þurfa . . . fyrir iðn er
það hefir hugsað sér að setja á stofn.
Og með sparnaði hjálpar það Canada.
Sérsitaklega ef sparisjóðurinn liggur í
Sigurláns Verðbréfum, sökum þess, að
dollarar lagðir í Sigurláns Verðbréf hjálpa
til að vinna stríðið. Og gleymið ekki —
Sigurláns Verðbréf borga 3% í rentur, eru
auðseld ef þörf krefur, eru fyrsta trygging
fyrir lánum.
Gerðu velgengíssögu þína virkilega
Iíka. Byrjaðu nú þegar að skrifa hana með
því að vera viðbúin að kaupa Sigurláns
Verðbréf.
ÁTTUNDA SIGURLÁNIÐ HEFST 23. APRIL
Verið viðbúin að kaupa Victory Bonds
8-61
national war finance COMMITTEE