Heimskringla - 28.03.1945, Blaðsíða 5

Heimskringla - 28.03.1945, Blaðsíða 5
I WINNIPEG, 28. MARZ 1945 HEIMSKRINGLÍ, 5. SIÐA VALGERÐUR EINARS- DóTTIR ERLENDSSON 25. desember 1855 20. febrúar 1945 Háöld ruð landnámskona, ^ugnaðarmikil og kærleiksrík, hjálpfús og ósérhlífin á oieðan að heilsa og kraftar leyfðu, er nú farin til hinnar síðustu hvíldar. Valgerður Ein- ersdóttir, sem með manni sín- Urn, var landnemi á Bluff og nokkrum árum fyr nálægt Sandy ®ay var afbragðs kona, að dómi allra sem þektu hana. Hún var dóttir Einar Kjart- anssonar prests í Skógum undir Eyjafjöllum og Helgu Hjörleifs- úóttur konu hans, og var fædd 25. des. 1855 í Drangshlíð undir Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu. Hún var ein af þrettán barnum aHs, ellefu drengjum og tveimur úætrum. Systir hennar dó í barn- ®sku, og flestir bræðranna dóu nngir, og er öll fjölskyldan nú horfin þessum heimi nema einn bróðir, Sigurjón, heima á ís- landi. Valgerður sál. ólst upp í for- eldra húsum og vann fyrir sér a ýmsan hátt, eftir því sem þá gerðist, og var fyrirmyndar köna 1 alla staði. Árið 1887, giftist ^ún Ingimundi Erlendssyni, ^ttuðum frá Böðmóðsstöðum í Arnessýslu. Hann var sonur ^rlends bónda Eyjólfssonar, og ^rgrétar Ingimundardóttur ^onu hans. Sama árið fluttust Þau hjónin vestur um haf og Settust fyrst að í Winnipeg og dvöldu þar sex ár. Þau fóru svo þaðan til nýlendunnar í Saskat- chewan, en dvöldust þar aðeins Ivö ár. Hugur Ingimundar hnieigðist meir að veiðiskap en landbúnaði, og þessvegna var flutt til Sandy Bay, við Mani- toba-vatn, og svo þaðan nokkru seinna eða aldamótaárið á tang- ann þann sem Bluff kallast, ná- MORE AIRCRAFT WILL BRING QUICHER TQRY Æ^WAR SAVINGS /V5>CERTIFICATES ^lægt Reykjavík, P.O. Ingimund- ur nam land á Bluff, og þar bjuggu þau hjónin til 1917, er þau leystu upp bú sitt. Þau bjuggu eftir það hjá dætrum sínum og undu sér vel þau sól- setursár æfinnar sem eftir voru. ilngimundur dó árið 1937, og nú á 90. árinu, hefir ekkja hans, einnig kvatt þetta líf. Börn þeirra voru alls þrjú, og ilifa þau móður sína. Þau eru tvær dætur, Margrét, sem er gift Jóni Thorsteinssyni á Steep Rock, og Helga, gift Alfred Klein á Lonely Lake, og einn sonur, Einar, til heimilis í Winnipeg. Einnig eru sex barnabörn. Á unga aldri misti Valgerðui sál. heyrnina, en lét það lítið á sig fá, þó að það hefði sína erfið- leika í för með sér, eins og menn vita. Og nú síðustu ár æfinnar, j var minnið farið að bila og heilsa j hennar að hníga, eins og eðlilegt er, er aldurinn er orðinn mikill. En kjarkur og þrek biluðu ekki, og hún tók öllu sem að höndum Ibar rólega og með mikilli þolin- mæði. Seint í haust, varð að flytja hana til Winnipeg á heilsu- hæli þar, þar sem hún fékk að njóta aðhlynningar sem aðeins iþesskonar hæli geta veitt. Og svo, eftir fárra mánaða dvöl þar, sofnaði hún út af, hægt og ró- lega, s. 1. 20. febrúar. Hún leit- aði sér hvíldar eftir erfiði dags- ins. Líkið var flutt til Lonely Lake, þar sem útfararathöfn fór fram, frá heimili dóttur hennar, Mrs. Alfred Klein, 23. febrúar. Séra Philip M. Pétursson flutti síð- ustu kvenðjuorðin. Jarðað var í grafreitnum við Reykjavík. Þannig er til moldar hnigin enn önnur háttmetin landnáms- kona, sem sinn skerf hefir lagt til byggingu þessa lands. Megi guð blessa minningu hennar. — Verði hvíldin, sem hún hefir hlotið, henni kær. P. M. P. ÁRAMOTADAGAR Allir dagar eru, áramótadagar — Eins og allar vísur, urðu hættir bragar. Ef þú eina vísu, yrkir hverjum degi, Víkur þögn og þreyta, þínum æfi-vegi. Máske einhver annar, af þeim hafi gaman, Sjálfur bstri bindi, Braga-hætti saman. Þá er ei til einskis, eyddur liðinn tími. Sá er öðrum eykur, æðaslátt í rími. Kannske fljóðin finni, falin lög og syngi, Svo að svanna raddir, sónar-skálum klingi. ljóða allir ómar, undir tóna-mætti, Flétti sveinn o gsvanni saman líf og hætti. Jakob J. Norman SMÆLKI — Níels gamli er níræður í dag, hann er þá fæddur 1854. — Já, en á Akureyri er mað- ur, sem er fæddur 1762. — Það er algerlega ómögulegt. — Nei, það er satt, það stend- ur á legsteininum hans. ★ ★ ★ 1 gamaldags háskóla voru stúdentarnir þrjú ár áður en þeir gengu undir lokapróf. — Fyrsta árið voru þeir kallaðir vitrir menn, annað árið voru þeir kallaðir heimspekingar — þessir sem óska þess að vera vitrir menn og þriðja árið voru þeir álitnir meðal skussar. ÁRAMÓTAVISUR Til J. Magnúsar Bjarnasonar, 24. maí 1944. Þá var hann veikur á sjúkrahúsi í Winnipeg, en undirritaður veikur heima hjá sér. Báðir eiga afmæli í maí. Maí sólin okkar er Aftanskuggum búin — Jóhann Magnús mér og þér Miorgun-geislum rúin. Kæri vinur, af því er Okkur nú að dreyma: Oftar sorg og særðann her, En sólarlögin heima — Sem að bygðu eilífð á Alla sína dóma — Vorið kaus í kviðdóm þá Kvöld- og morgun-ljóma. Þá var líf um lyng og hlyn, Ljóð var æsku gaman Árdagsroði aftanskin Unnu dygðum saman. Kveldar sorgum—geislaglóð Gróðurfregn skal boða: Svo við yrkjum aftan-ljóð Upp — á morgunroða! Jakob J. Norman — Nú, það gengur þá ekkert að þér, kunningi. — Nei, hversvegna spyrðu? —í gær sagðistu þurfa að flýta þér til læknis, og rétt á eftir sá eg þið vera að tefla við mann mann inni í kaffihúsi. — Það var læknirinn. ★ ★ ★ Ameríski orðabókahöfundur- inn Noah Webster (1758—1843) tók eitt sinn að sér að skrifa bréf fyirir þjón sinn, sem hvorki var læs né skrifandi. Áður en hann lokaði bréfinu, sagði hann: “Er það ekkert meira, sem þú vilt bæta við bréfið?” “Nei, ekkert”, sagði þjónninn og klóraði sér bak við eyrað, “nema kanske að biðja hann bróðir minn um að afsaka vill- urnar og vonast til þess, að hann geti stafað sig fram úr párinu.” ★ ★ * Kristín Svíadrotning sló hin- um fræga málfræðingi Vossius eitt sinn gullhamra með því að segja, að hann vissi ekki einung- is, hvaðan öll orð væru runnin, heldur vissi hann einnig, hvert þau myndu fara. ir ★ * — Hversvegna ferðu ekki heim? — Konan mín er reið við mig. — Hversvegna er hún reið við þig? — Vegna þess að eg kem ekki heim. FJÆR OG NÆR Ný bók komin út “Björninn úr Bjarmalandi,” eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson. — Bókin fjallar um þroskasögu Rússlands og aðra rás viðburð- anna í veraldarsögunni s. 1. 25 ár. Gefur óvilhalt og gott yfir- lit yfir heimsmálin fram til síð- ustu tíma. Bókin er hart nær 200 bls. að stærð. — Verðið er, saumuð í góðri kápu $2.50 — í bandi $3.25. — Og er það mjög sann- gjarnt, samkivæmt núverandi verðlagi á íslenzkum bókum. — Pantanir sendist til, The Colum- bia Press Ltd., 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man., og Björnsson’s Book Store, 702 Sargent Ave., og verður bókin send hvert sem vera ber. Burðargjald er lOc. ★ ★ k Nýjar bækur sem allir þurfa að lesa BRAUTIN, ársrit Hins Sam- einaða Kirkjufélags íslendinga í Norður Ameríku. I. árg. 112 blaðsíður í Eimreiðarbroti. — Fræðandi og skemtilegt rit. — Verð _______*___________$1.00 “ÚR ÚTLEGД, ljóðmæli eft- ir Jónas Stefánsson frá Kaldbak. Vönduð útgáfa með mynd af höf- undi. Góð bók, sem vestur-ís- lenzkir bókamenn mega ekki vera án. Bókin er 166 blaðsíður í stóru broti. Verð____$2.00 BJÖRNINN ÚR BJARMA- LANDI, Þ. Þ. Þ., í bandi $3.25, óbundin $2.50. HUNANGSFLUGUR, eftir Guttorm J. Guttormsson. Kostar aðeins $1.50 í bandi. Fæst nú l BJÖRNSSONS BOOK STORE 702 Sargent Ave. Winnipeg W ★ * Messur í Nýja íslandi 1. apríl — Árborgi íslenzk messa kl. 11 f. h. Hnausa, messa kl. 2 e. h. Riverton, íslenzk messa kl. 8 e. h. B. A. Bj arnason SKRASETJIST NÚ/j^ Jjölókylauó tytknum Fjölskyldustyrkur verður borgaður í hverjum mánuði fyrir hvert barn innan 16 ára aldurs. Fyrsta borgun verður sett í póstinn í júlí 1945. Fjölskyldustyrkurinn er borgaður til hjálpar foreldrum að annast börn sín, til læknishjálpar, tannlækninga og hjúkrunar — fyrir betra fæði, föt og húsnæði, og til hjálpar jöfnuði tækifæra allra barna. Skrásetningaskjal hefir verið sent hverri f jiilskyldu. Skrifaðu þitt út undir eins og þú færð það. Það er mjög einfalt—aðeins sjö spurningar—og leiðbeiningar neðan við til hjálpar svo svarað sé rétt. Gerðu það strax fyrir börnin þín, því ávísun er aðeins hægt að senda þeim f jölskyldum er hafa svarað spurn- ingunum og sent svörin til baka. Ef þú hefir ekki fengið skrásetningar- skjalið með pósti, þá biddu um eitt í næsta pósthúsi. 1. SPURNING. SKRIFAÐU 1 UPPHAFSSTÖFUM ( L I K U M Þ E S S U M ) nöfn barna þinna innan 16 ára. Skrifaðu fæðing- armánuð, svo dag og ár. Skrif- aðu fæðingarstað hvers barns. Endaðu hverja línu með skyld- leika þínum til barnsins, og ef faðir og móðir senda beiðnina þá skal rita nöfn beggja. 2. SPURNING. Hér verða faðir og móðir að undirskrifa ef þau eru bæði heima. Svo gefið árit- un þess, er taka skal við ávísun- inni. SKRIFIÐ ÞETTA 1 UPP- HAFSSTÖFUM (LIKUM ÞESS- UM) undir bæði nöfnin. Móðirin skal ekki skrifa fyrsta nafn manns síns. Hún skal skrifa sitt fyrsta nafn, svo sem Mrs. Alice, Mary, Joan, o. s. frv. ----_—J FAM/LY ALI niA vSÍ H“lth WtíAM -5 Það er Hægt Það er þjóðræknisskylda allra að framleiða og hag- uýta eins mikið og hægt er af mismunandi garðávöxtum, á sínum eigin búum. Þessu fylgir unaður; safnið Radish, Lettuce, Fresh Shelled Peas, Snap Beans, öllu úr yðar eigin garði. — Njótið gleðinnar af að tína þessa uppáhaldsrétti þar. Sáið í eldhúsgarðinn Steele-Briggs’ Trial Ground Testéd Seeds, og árangurinn er vís. Spyrjið eftir vöruskrá og Field Seed List. Steele-Briggs Seed Co., Limited TALSÍMI 98 552 139 Market St. East Winnipeg Einnig í Regina og Edmonton 3. SPURNING Ef aðeins eitt nafn er sett undir 2. spurning, þá gefið ástæðu því bæði nöfnin standi þar ekki. Gefið sundurliðaðar skýrinpjar—segið ekki að faðir eða móðir séu “í burtu”—segið hvar og hvað lengi. 4.. 5.. 6. oq 7. SPURNING sem eru hinu megin á skjalinu, verður að svara annaðhvort með “já” eða “nei”. Ef svarið er “nei” við 4„ 5. eða 6. spurningu, þá gefið sk. ringar, skrifið nafn barnsins eða barnanna er um ræðir. I sam- bandi við nr. 5, ef þú átt börn innan 16 ára er eigi eru hjá þér, gefið nöfn þeirra, gefið ástæður og fulla áritun þar sem hægt er að heim- sækja þau. Ef nr. 7. er “já”, gefið upplýsingar er um er beðið. TEKJUSKATTUR: Svo engin fái hvorutveggja, fjölskyldustyrk og frá- drátt barna frá tekjuskatti, verður sú upphæð, er tekið er á móti í fjölskyldustyrk, dregin frá undanþágu af tekjuskatti. Foreldrar geta þessvegna ráðið því, hvert þau biðja um styrkinn—eða ekki. Hverjum þeim sem er í efa hvort hann ætti að biðja um styrkinn eða ekki, er ráðlagt að biðja um hann. ,Of ÞIÐ HJÁLPIÐ BÖRNUM | YKKAR ÞEGAR ÞIÐ SKRÁSETJIÐ | FYRIR tyialAl2yl(ii4AÍ4yiJz4Mm Published under the authority of HON. BROOKE CLAXTON, Minister DEPARTMENT OF NATIONAL HEALTH AND WELFARE, OTTAWA

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.