Heimskringla - 11.04.1945, Page 4
4. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. APRÍL 1945
JÉrchnskrmjjla
(StofnuB lStt)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsimi 24 185
Verö blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
Öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
Manager J. B. SKAPTASON, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winmpeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24185
WINNIPEG, 11. APRlL 1945
Kenslubók í íslenzku
Kenslubók í íslenzku fyrir enskumælandi menn, hefir próf.
Stefán Einarsson samið, og The Johns Hopkins Press nýlega gefið
út. Innihaldið er íslenzk málfræði, les- og skrif-æfingar og orða-
safn, eins og heiti bókarinnar á ensku bar með sér: Icelandic -
Grammar, Texts, Glossary. Hún er 500 blaðsíður að stærð og
kostar í smekklegu bandi $5.50.
Hér er um mikilsverða bók að ræða, bók, sem gæti að öllu
eðlilegu verið stór þáttur } útbreiðslu íslenzkrar tungu á meðal
enskumælandi manna. Hana má og hiklaust tslja í flokki sígildra
bóka, sem lengi eiga fyrir hendi að verða notaðar, sem heimildir,
auk hins beina ætlunarverks hennar, að nema af íslenzka tungu.
Það getur nokkur vafi verið um að íslenzk tunga nái mikilli út-
breiðslu hér eftir, að -ekki sé talað um að hún verði eins útbreidd
og hún forðum var. Það verður ekki einu sinni sagt, að byrlega
hafi blásið með að halda henni við af börnum ættlandsins hér
vestra, þó það megi þjóðernislega stórslysalegt kalla, með tæki-
færinu sem þar gafst til að halda henni varanlega við. Hitt er
samt víst, að íslenzku er af enskumælandi þjóðum nú meiri
gaumur gefin en áður. Þessa sézt vottur við háskóla hér; það
hefir einnig með viðkynningu hers héðan að vestan við heima
þjóðina, skapast sérstök ástæða til íslenzkunáms af erlendum
Fjöldi skólagenginna hermanna, sem heima dvöldu, hafa lagt fyrir
sig nám í íslenzku, sem líklegt er að ekki verði gleymt eða niður-
lagt eftir að hingað kemur. Bók sú sem hér um ræðir, virðist til
valin til slíks náms innan skóla hér eða utan og raunar hvar í
enskumælandi heimi sem er.
En svo, og ekki sízt, beinist athyglin að notkun þessarar
bókar á meðal Vestur-íslendinga. 1 stuttu máli sagt, ætti hún að
vera á borði í dagstofu hvers íslenzks heimilis, þar sem fólk býr,
er móðurmál sitt metur nokkurs. Það mun nú ýmsum, eftir að
hafa séð bókina, þykja hún full þung til þess og meira við hæfi
mið- og háskólanema en almennings. En ef byrjað er á æfingun-
um og málfræðin látin bíða þar til nokkurri kunnáttu er náð í
málinu, þá ætlum vór að hver og einn hafi bókarinnar not, jafnvei
þó til notkunar í æðri skólum sé samin.
Fyrir Vestur-íslendinga er nám í íslenzku enn auðvelt, vegna
þess að á mörgum heimilum, sveitaheimilum nálega öllum, en
færri hlutfallslega í bæjum, er íslenzka enn töluð. Að hinu
er bagi, að mörgum finnast þeir í óvissu um hvað sé góð og
gild íslenzka og veigra sér þessvegna oft við að tala hana. Óskeik
uú leðarvísir sem þessi bók, ef við hendina væri, ætti oft að geta
gefið tækifæri til að sigrast á þessum erfiðleika. Það er ef til vill
ástæðan fyrir þessu oft, að slík heimild hefir ekki verið handbær.
Framburður er gefinn á íslenzkum orðum og er þar táknum
fylgt, sem í hljóðfræði eru viðurkendust og sem notaðar eru i
orðabók Sigfúsar Blöndals ,en ekki farið eftir Webster eða fram-
burði eldri orðabóka, sem alment má kost telja. Myndir eru og
nokkrar í bókinni, allar dregnar, en ekki vélteknar. Hafa þær
tekist vel hjá íslenzka listamanninum, Halldóri Péturssyni. Fylgir
myndunum sá kostur að þær eiga betur við efnið fyrir að dregnar
eru. Til alls hefir sjáanlega verið sem bezt vandað.
Auk útgefenda lagði Island fé til útgáfunnar svo að verð
bókarinnar er alt að því helmingi lægra, en annars hefði verið.
Þegar litið er á stærð borgarinnar, innihaldið sem svo vandað
hefir verið til og allan frágang, er hér um gjafverð að ræða, jafn-
vel þó hér kosti vegna tolls og gengismunar, nokkuð meira en
syðra.
Við íslenzku kenslu hér ætti bókin að vera notuð eins mikið
og kostur er á.
Það er ekki vandalaust að skrifa bók sem þessa. Það krefst
ekki einungis fræðimanns góðs að gera það, heldur þeirrar ná-
kvæmni sem með óbilandi elju fæst. En svo hefir höfundi tekist.
að leysa verkið af hendi, að það ber hæfileikum hans og starfs-
þrótti óbrigðult vitni. Bera dr. Stefáni Einarssyni þakkir hvers
sanns íslendings fyrir starf hans og öllum er að útgáfu þessarar
vönduðu bókar hafa stutt.
Pantanir sendist til The JcAns Hopkins Press, Baltimore 18,
Maryland, U. S. A.
LÍTTUR ER SÁ SEM EKKI
FYLGIR LANDSSIÐNUM
Eftirfarandi klausa birtist í
fréttum frá Rússlandi s. 1. mið-
vikudag í blöðum hér vestra:
“Útvarpið í Moskva kastar
hnútum að íslandi, eftir því er
fregnritum í Bandaríkjunum far-
ast orð, út af því, að það hafi
ekki sagt Þjóðverjum stríð á
hendur.
Þulurinn í Moskva sagði ís-
landi hafa verið bjargað af
Bandaþjóðunum frá að lenda í
klóm nazista, og frelsi sitt hefði
það endurheimt með beinni að-
stoð þriggja stórveldanna.
Með þetta áminsta fyrir aug-
um, er furðulegra, sagði útvarp-
ið, að til skuli vera menn á Is-
landi, sem ekki láta sér einu
sinni ant um að efla vináttu við
Bandaþjóðirnar, heldur gera
sitt til að draga úr henni.
Útvarpið hermdi, að Islandi
hefði verið boðið til fundarins í
San Francisco, með því.skilyrði
að vísu, að lýsa yfir stríði, en
það væru óróaseggir á íslandi,
sem reyndu að telja mönnum trú
um, að Bretland og Bandaríkin
teldu alveg sérstaklega standa á
með ísland og greindi í því á
við hinar Bandaþjóðirnar.”
Þannig hljóðar nú þessi frétt.
Það má að sjálfsögðu búast við
því, að hver sá sé líttur, sem
ekki fylgir landssiðnum, þessum
landssið, sem nú ríkir um allan
heim, að líta enga þjóð réttu
auga, sem ekki h'efir lagt blessun
sína yfir stríðið, með öðrum
hvorum stríðsaðilanna. Það
kann eitthvað mega finna þessu
til málsbóta, ef um volduga þjóð
er að ræða, segjum með tugum
miljóna manna. En þegar um
þjóð er að ræða, sem einn þrí-
tugasta hluta af mannfjölda
Moskva hefir, þá er erfitt að
skilja kröfuna um, að segja öðr-
um þjóðum stríð á hendur, áður
en Bandaþjóðirnar geti, að hildi
lokinni, nokkuð átt við slíka
þjóð saman að sælda. ísland
hefir með Bandaþjóðunum verið
og hefir aflað þeim fæðu í þessu
stríði möglunarlaust úr sjónum
og metið sér það hag og heill að
geta gert það, eins og á stóð og
þó það hafi orðið fyrir mann-
tjóni af völdum stríðsins eins og
fleiri þjóðir og margt mannfé-
lagið út um heim hefir orðið, þó
saklaust væri af að eiga nokkurn
þátt í upptökum stríðsins. Slík-
um þjóðum og Islandi lekki sízt,
getur virst það undarlegt, að
mega ekki að stríði loknu vinna
í þessum anda með Bandaþjóð-
unum. Þó það hafi neitað þátt-
töku í San Francisco-fundinum
af því, að henni fylgdi sá böggull,
að maður ekki segi sá kúgunar-
skilmáli, að verða að segja öðr-
um þjóðum stríð á hendur, er
mjög skrítið að dæma hana óal-
andi sem samvinnúþjóð að stríði
loknu eftir að hafa verið út alt
stríðið í náinni samvinnu við
Bandaþjóðirnar * og málstað
þeinra af einlægni fylgjandi.
Islendingar lögðu niður vopna-
burð fyrir mörgum öldum síðan.
Þeir fundu mannlegu réttlæti
betur fullnægt með því að leggja
ágreiningsmál sín í gerðardóm,
en að láta vopnin og hnefarétt-
inn skera'úr þeim. Sín ágrein-
ingsmál segjum vér, vegna þess,
að þeir áttu lengin ágreiningsmál
við aðrar þjóðir, nema ef telja
á þar með sjálfstæðisbaráttu
þeirra við Dani, en sem lauk með
sigri fyrir ísland og réttsýni
Dana á friðsamlegan og í alla
staði á viðunandi hátt, Banda-
þjóðunum að þakkarlausu. Að
fara nú að segja þessari vopn-
lausu, friðar- og frelsisunnandi
þjóð, Ib segja stórþjóðum stríð
á hendur, getur ekki skoðast
annað í augum Islendinga en ó-
skiljanlegur trúðurleikur,
hversu hátt sem einræði er nú
sett og á enn eftir að komast í
heiminum.
Það er eftir vestrænum ment-
uðum herforingja haft sem lengi
dvaldi á Islandi, að honum hiefði
komið íslendingar svo fyrir-
sjónir, að þeir væru þjóðernis-
lega ein heilsteyptasta þjóðin
sem hann þekti. Þeir hefðu kom-
ið að ónumdu landi, bygt það,
alist upp við náttúru þess og náð
svo miklum andlegum þroska, að
ótrúlegt væri um svo fáment og
afskekt þjóðfélag. Hann sagðist
einu sinni hafa spurt mann að
því, hvort nokkuð væri um fas-
ista á Islandi. Maðurinn svar-
aði um hæl, að Islendingar voru
pró-íslenzkir og ekkert annað.
Þetta áleit hann hverju orði
sannara. Þeir unna bókmentum
sínum fornum og nýjum, eru ef-
laust mesta bókmentaþjóð
heimsins og byggja alla sína
menningu á því sem þeir eiga
þjóðlegast til hvert sem þeir
sækja 'efniviðinn í hana. Fram-
farir heimsins fara ekki fram hjá
þeim, hvorki andlegar né verk-
legar. I þessu stríði eru þeir yfir-
fljótanlega með Bandaþjóðun-
um, vegna þess, að þeir álíta að
öllu athuguðu og bornu saman
við þeirra eigin skoðanir, það
hið eina heilbrigða, úr því sem
að gera sé.
En þá fýsir einnig, að standa
utan við stríðsheiminn, ekki
vegna þess, að þeir sjái þar ekki
mismun góðs og ills, heldur fyrst
og aðallega vegna þess, að þeir
skoða stríð barbarisk, og talandi
vott um hræðilegan skort frjálsr-
ar menningar í heiminum.
Island er fátækt land og þjóð-
in fámenn. Eins og á stendur
veit hún að þeim mun meira
veltur á þroska einstaklingsins,
andlegum þroska hans, en hjá
stórþjóðunium, sem ttniklum
hluta þegna sinna skipa á bás
með húsdýrunum. íslendingar
segja eins og Ruskin, að auður
þjóðarinnar sé fólginn í þroska
borgaranna. En sá þroski fæst
aldrei með pólitísku einræði eða
viðhaldi vopnaburðar; hann fæst
aðeins með jafnrétti og frelsi.
Islendingar urðu fyrstir þjóða
til að leggja niður vopnin og
þeir urðu fyrstir vestrænna
þjóða til að stofna lýðfrjálst
stjórnskipulag hjá sér með al-
þingi. Þetta hvorttveggja geta
stórþjóðirnar enn lært af sögu
íslendinga. Og svo segja Rúss-
ar þeim að selja þær hugsjónir
sem að baki þeirra búa fyrir
vonina um sölu fáeinna fisk-
punda, með því að sækja San
Francosco-fundinn!
Og þetta ier boðið á sama tíma
og verið er að berjast með vopn-
um fyrir frelsi og mannréttind-
um í hejminum. Það er eftir að
berjast enn lengi fyrir þessu
hvorttveggja með andlegum
vopnum. Og það er þá, er fyrir
háMtum hugsjónum er barist,
j sem mannkyninu 1 heild er til
þroska og velferðar, en ekki er
um pólitískan hrásksinsleik einn
að ræða, til au.kins valds fá-
einna, sem Islendingar gætu ti!
sögunnar komið án þess að slá af
menningarmarkmiði sínu, sem
líf og starf þjóðarinnar hefir
lotið að að byggja upp kynslóð
eftir kynslóð.
Var til flots að flýta sér fyrir
Islendinga að sækja San Fran-
cisco-fundinn, lef hann verður
haldinn? Maður hefði tekki síð-
ur ástæðu til að spyrja þá en
Canada fulltrúana, til hvers ferð-
inni væri heitið, eins og hér er
nú gert, þar sem enn virðist
sem vafasamt sé um atkvæðis-
rétt fulltrúanna.
PÁSKARÆÐA
Eftir séra Halldór E. Johnson
Kalt sem ísinn og hart sem
stálið væri það hjarta, sem vildi
ræna þessa óhappasælu kynslóð,
sveita og sára, harms og hieljar,
þeim vonargeislum, er gera
henni unt að sjá til sólar á bak
við ský, að sjá friðland framtíð-
arinnar gegnum bölmóð þessa
skelfilega tímabils. Óþarfur
væri sé prestur, sem á þessum
páskum stigi í stólinn til að út-
byggja engli lífsins frá orpnum
gröfum og hljóðstafi vonarinnar
í blæðandi móðurbrjóstum og
harmþrungnum huga syrgjandi
feðra.
Hver einasta sál, sem á annað
borð býr yfir nokkurri við-
kvæmni og kristilegrar samlíð-
unar, kennir sinnar þarfar úm
styirk þeirrar trúar, er viðheld-
ur vonarljósinu í mannlegum
muna. Þú og eg getum gert
þetta og við verðum að gera það
ef við viljum framleggja ein
hvern skerf til að ráða bætur í
böli heimslífsins og sorgum Vorr-
ar samtíðar. Vor veika, irieik-
andi en hrifnæma sál þarf þess
svo hún megi verja sjálfstæði
sitt en samlaðist eigi þeirri
heimshyggju, er metur eigin-
girnina meir en bróðurkærleik-
ann; ágirndina mleir en fórn-
fýsina, blekkingar meir en sann-
leikann; gleymskuna, við mun
að stundarinnar, meir en dreng-
skapinn. Við þurfum þessa trú-
arstyirks við til að halda réttum
stefnum fram til farsældar. Við
þurfum hans einnig við til að
óðlast, í þessari trú og með þess-
ari trú, það andlega bætilíf er
veiti okkur þrótt og uppynging
í framsókninni, svo vér eigi van-
megnumst á veginum.
Aldrei hefir verið meiri hætta
á því, að eitursýklar hatursins
beri sitt banvæni inn í mannlíf-
f
ið; aldrei meiri hætta að menn-
irnir glati hugsjónum fyrir
þunga þjáninganna; aldrei lík-
legra, en nú, að menn og konur
gráti sig sjónlaus í þessum dauð-
ans dal, er rangsnúið aldarfar
hefir skapað.
Við lerum sjóndöpur og fálm-;
andi en látum okkur fálma eftir
ljósinu en ekki myrkrinu, eftir
sannleikanum en ekki blekking-
um, trú en ekki hugsunarlaus-
um játningum. Gefum gaum að
ósjálfráðri eðlishneigð hvítvoð-l
ungsins, er óttast myrkrið en j
vill grípa geislann, hinn lífgef- ^
andi, hieilsunærandi sólargeisla
með barnslegum höndum.
Verið þess viss, að eg þarfnast
og leita þessa ljóss, sem til vor
streymir frá upptökum allra
ljósa, frá hinni óumbreytanlegu
vitastöð, frá guði sjálfum. Eg
leita þess af því eg finn að eg
þarfnast þess og eg vildi alshug-
ar fegin bægja frá því öllum
bl'ekkingar skuggum svo eg megi
greina götur sannleikans til
hinna eilífu föðurhúsa. Við er-
um í raun og veru öll að leita að
engli lífsins í gröf dauðans, á
þessum upprisumorgni. Gæti
orð mín og trú ínín svift ná-
blæjum vanhyggju og hleypi-
dóma frá einhverra augum, gæti
eg ekki dýrðlegra hlutskiftis
vænst í þessum heimi, geti eg
það lekki, hefi eg, sem prestur
til lítils lifað.
Oft geymast lífsins dýrustu
sannindi í hugarfylgsnum fólks-
ins, eins og falinn eldur, eins og
ósjálfráð eðlis ávísun. Endrum
og sinnum leiftrar þetta eðlisvit
eins og glampandi logi í skáld-
skap aldanna og þá ekki sízt í
þjóðsögunum. Þið munuð kann-
ast við kempumar, sem urðu að
ganga í gegnum ótal þrautir til
að eignast lífsins dýrmætustu
fjársjóði, til að fanga gimsteina,
þeir lágu þeim ekki á vaðbergi.
Reynslan sýnir það líka, að mað-
ur metur það æfinlega mest sem
maður hefir sjálfur aflað með
eigin atorku, en ekki þegið að
erfðum.
•Til þess að eignast ábyggilega
og uppbyggilega trúarvissu
verða menn sjálfir að hugsa og
leita sannreynda. 1 raun og veru
trúir engin maður nema því sem
honum sjálfum þykir trúlegast.
Upp á annara ábyrgð getur hann
að vísu goldjð jákvæði við einni
eða annari fullyrðingu, en trú
bygð á slíkum grundvelli, er að
mestu tál, hún verður aldrei
hans eiginleg eign og þessvegna
áhrifalítil til umsköpunair á inn-
rætinu. Jafn ábyggilega hefir
reynslan sýnt og sannað, að ein-
læg, persónuleg trú er máttur til
mikilla athafna. — Hún getur
breytt, og hún hefir brieytt, allri
lífsstefnu og framkvæmda við-
leitni einstaklinganna; en með
því er þó engan vegin sagt að sú
, breyting hljóti ávalt að vera til
. bóta. Trúin hefir gert marga
' að göfugmennum, en hún hefir
líka gert suma að hrakmiennum;
hún hefiir bætt og blíðkað
marga, en hún hefir líka um-
snúið öðrum í hatursfulla of-
, stækismenn; hún hefir göfgað
marga, en sturlað aðra; alt eftir
því hvernig trúin er og að
I hverju hún stefnir. Trúin er
j máttur og þeim mætti má verja,
j eins og vísindunum, eins og
! þekkingunni, til ills og góðs. Um
hvorutveggja ber veraldarsagan
vitni.
Hvergi opinberast undramátt-
ur trúarinnar fremur en í lífi og
afrekum postulanna, þessara
ellefu, örsnauðu, ómentuðu, als
þurfandi fjárhirðara og fiski-
manna, er áttu uppruna sinn að
rekja til undirokaðrar, lítilsmeg-
andi smáþjóðar í afskektu og lítt
þektu landi. Heimssagan herm-
ir ekki frá stórvægilegri eða tor-
ræðari viðburði en kristniboði
þeirira og hvernig, fyrir þeirra
áhrif og atbeina voldugasta ver-
aldarríkið varð að beygja kné
sín fyrir hinum krossfesta. Þann
kiraft, sem til þess þurfti sóttu
þeir til trúarinnar, einlægrar,
persónulegrar, óhvarflandi trú-
arvissu, — þessa trúarvissu eign-
uðust þeir á hinum allra fyrstu
pástum í kristninni, fyrir at-
burð upprisunnar.
Að svo stöddu fer eg ekki fram
á að þið trúið öðru en því, sem
sagan sýnir, mannkynssagan,
sem engin mun treysta sér til að
véfengja í aðal atriðunum. Árið
33 eða fjögur e. K. b. fór ofur-
lítill hópur ómentaðra gyðinga
að kenna margfróðum heimspek-
ingum undarlega trú á hinn
krossfesta og upprisna Krist;
tóku að prédika hinum albrynj-
uðu, ósigrandi Rómverjum að
máttur Krists og kærleikans
væri öllum vopnastyirk sterkari
og fyrir þeim mætti yrði þeirra
hierfræga heimsveldi að beygja
sig. Um þrjú hundruð ára skeið
voru þessir postular og eftir-
komendur þeiirra ofsóttir á alla
lund. Þeir voru kvaldir og pínd-
ir með öllu mögulegu móti og
að síðustu leiddir til lífláts með
hinum villimannlegasta hætti.
Rökslyngustu rithöfundar og
mælskumenn, bæði Grikkja og
Rómverja reyndu að hnekkja
þeim í orðspeki. Háðskáldin
hæddu þá en skríllinn gerði skop
að þeim. Á móti þessu öllu höfðu
þeir aðeins trú sinni að tefla til
gagnsóknar ,trú sinni á hinn upp"
risna Krist. Með þessari trú
unnu þeir bug á Rómaríki, með
þessari trú stofnuðu þeir bræðra-
félag sameignar og samvinnu,
svo þeirra á meðar var hvorki
þræll eða höfðingi, auðmaður
eða öreigi; í krafti þeirrar trúar
kristnuðu þeir óvini sína. Róm-
verjar ætluðu þeim alt ilt, höfðu
heyrt svo margt ljótt um það.
Til hringleikhússins mikla
streymdu þeir til að sjá þá sund-
ur rifna af óarga dýrum, þessa
brjáluðu sérvitringa sem dirfð-
ust að bjóða þeim byrginn. Þeir
komu til að sjá bugaða menn
biðjandi vægðar í dauðanum.
Þeir sáu hetjur mæta dauðanum
með djarfmannlegri hugprýði.
Engin Rómverji hafði dáið sæmi-
legri dauðdaga fyrir keisarann
en þessir kristnu menn og þessar
kristnu konur fyrir trú sína. —
Hugprýðin var metin æðst allra
dygða meðal Rómverja og nú
fyrst sáu þeir fólk sem hafði
lærst að yfirstíga óttann. Marg-
ir meðal mentaðri stéttanna í
Rómaborg, angruðust yfir mis-
iréttinum í þeirra þjóðfélagi. —
Nokkrir h’eimspekingar höfðu
um það skrifað. Margir aí
þeirra göfugustu sonum höfðu
látið lífið til að lagfæra ástandið-
Hór sáu þeir fyrir sér fólk, sem
hafði ekki einungis lærst að
deyja sem hetjur heldur einnig
þá sem höfðu lært þá list að lifa-
Þeir veittu því athygli hversU
hinir styrku studdu þá veiku,
hvernig hinir hugrökku hug-
hreystu hina skefldu, hversu
einn bar annars böl og gaf hon-
um sína gleði — sína trú. Þeir
fóru frá aftökunni undrandi og
spyfjandi: “Sjá þeir elska hver
annan,” sögðu þeir við sjálf3
sig og stundum við aðra. Þess*
hugsun ásótti þá, lét þá aldrei J
friði, svo kom spurningin: “Eig3
ekki þessir menn í rauninni það
jafnvægi hugans þá ákvörðun
hugrekkinnar, þann styrk og þú
göfugmensku, sem heimspekin
okkar hefir leitað eftir að mestu
árangurslaust? Hafa þeir ekki
höndlað þá innbyrgðis samkend,
það bróðurþel kærleikans sexn
gæti án uppreisna og blóðsút-
hellingar leiðrétt misréttið sem
sundrar mönnum, vekur óhug og
flokkadrátt, og ógnar þjóðfélag'
inu miað yfirvofandi uppleyS'
ingu. Þetta ýfði þær öldur í hug'
arheimi heiðingjans, sem síðaf
meir brutu skörð í hin innri
varnarvirki Rómaríkis. Fram'
koma játendanna annað hvort
útbreiðá eða eyðileggja trúna,
engar ræður, áróður, söngvar,
listir, mentun, játningar eða
hugmynda háfleygi megnar
hrinda þeirri staðreynd. Píslar-
vottar kristninnar kyntu Krist
með framkomu sinni. Engin