Heimskringla - 23.05.1945, Blaðsíða 3

Heimskringla - 23.05.1945, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 23. MAÍ 1945 HEIMSKRINGLA 3. SIÐA GÍSLI S. STEFÁNSON íileinkað minningu hans I vow to thee, my country, all earthly things above, Entire and whole and perfect, the services of my love; The love that asks no question, the love that stands the test. That lays upon the altar the dearest and the best; The love that never falters, the love that pays the price, The love, that makes undaunted the final sacrifice. And there’s another country, I’ve heard of long ago. Most dear to them that love her, most great to them that know; We may not count her armies, we may 'not see her king; Her fortress ip a faithful heart, her pride is suffering; And soul by soul and silently her shining bounds increase, And her ways are ways of gentleness and all her paths are peace. (Cecil Spring Rice) Einn úr hópi vorra ungu og efnilegu manna, Gísli S. Stefán- j son frá Selkirk, Man., féll á or-j ustuvöllum á Italíu, þann 23. febr. á umliðnum vetri. Hann var sonur Stefáns G. Stefánson- ar (er andaðist 4. maí 1940), og eftirlifandi ekkju hans Rann- veigar Stefánson, í Salkirk. Þau | hjónin bæði, voru af skagfirsk- um ættum, og fluttu úr Skaga- firði vestur um haf árið 1903, settust að í Selkirk, og bjuggu þar þaðan af. Gísli (Gillie var hann venju- lega nefndur af sínum nánustu), var fæddur í Slekirk, 16. apríl 1910, var hann fjórði í aldursröð af börnum Stefáns og Rannveig- ar. Auk móður hans syrgja hann sex systkini, tveir bræður: Jó- hann, til heimilis hjá móður sinni, og Gustav, sem er með Canadian Q.O.C.H. deildinni í Evrópu. Systurnar eru: Anna og Emily, báðar heima; Mrs. Louise Jones, Hecla, Man., og Mrs. J. V. M. Jónasson, Devil’s Creek, Man. 7 \ Gisli ólst upp með foreldrum sínum í Selkirk, gekk þar á skóla, og vann þar lengst af; um oaörg hin síðari ár hjá Booth fiskifélaginu; ávann hann sér þar ti'ltrú sem dyggur og ágætur Verkmaður. Hann innritaðist í herinn í aprílmánuði 1943; og ^fðist til herþjónustu í Fort Osborne Barracks í Winnipeg, Eortage La Prairie, Shilo og De- hert, N. S. Til Englands fór hann með P.P.C.L.I. 1. deildinni 1 desember mánuði sama ár og hann innritaðist, en þaðan fór hann brátt til Italíu, og þar bar dauða hans að, sem fyr getur. — ffofir móðir hans fengið óvenju fogur bréf frá sumum yfirmönn- ubi hans og félögum, er sýna §fögt það traust er hann hafði áunnið sér þeirra á meðal, eins °g hvair sem hann kyntist. Lrísli var stór maður og karl- 'Mannlegur, vel gefinn til sálar °§ líkama. Fremur var hann fá- látur við fyrstu kynningu, en þó lundléttur og glaður, aldrei orð- Uiairgur. Hann var með afbrigð- Uru skyldurækinn, og einkar trygglundaður þar Sem hann tók því. þess veit eg dæmi að ^aun hlynti að öldruðum ein- stasðingum, með dæmafárri nær- Saetni — { kyrþey — og án þess á bæri; lét hann sér altaf annara um að vera, en að sýnast. Jafnan var honum ljúft að greiða úr erfiðleikum annara, væri það á hans valdi. Hann var hjart- fólginn sonur og bróðir, og að- stoðaði móður sína og h'eimili, í langvarandi sjúkdómi föður síns. Hann naut trausts og virðingar allra er honum kyntust. Við lát hans finna skyldir og vandalaus- ir til þess, að með honum er góð- ur drengur og sannur maður til grafar genginn.—Nú hvílir hann ásamt svo mörgum öðrum ung- um hetjum er fallið hafa — á fjarlægri strönd; en minningarn- ar fögru sem hann hefir eftir skilið í ástvina hjörtum, sefa söknuðinn og brúa fjarlægðina. Móðir hans og systkini þakka guði — sem gaf — og geymir soninn og bróðurinn hugum- kæra. Vertu sæll! S. Ólafsson MINNISSTÆÐIR DAGAR í STRÍÐSSÖGU EVRÓPU, (Frá 1939 til 7. maí 1945) » 1939 1. sept. — Þýzkaland ræðst á Pólland. 3. sept. — Bretar og Frakkar lýsa stríði á hendur Þjóðverjum. 10. sept. — Canada segir Þjóð- verjum stríð á hendur. 28. sept. — Þýzkaland og Rúss- land skifta Póllandi með sér. 1940 9. apríl — Þjóðverjar hertaka Noöeg og Danmörku. 15. apríl — Brezkur og franskur her lendir í Noregi. 2. maí — Bretar fara úr Noregi. 10. maí — Þýzkaland ræðst á Belgíu og Holland. ! 30. maí — Bretar hverfa burt úr | Dunkirk. 110. júní — Canada segir ítalíu stríð á hendur. 22. júní — Þjóðverjar og Frakk- ar semja með sér vopnahlé. 6. ágúst — ítalía ræðst á Egypta- land. 15. ágúst — Bretar senda 1000 sprengjuflugvélar á móti Þjóð- veirjum. 15. ðept. — Bretar stöðva loft árásir Þjóðverja með því að skjóta 185 flugvélar niður á einum degi. 18. okt. — Breíar komu í veg fyrir innrásartilraunir Þjóð- vera til Englands. 6. d'es. — Bretar hefja sókn í Egyptalandi. 1941 22. jan. — Bretar taka Tobruk,' Libya og 25,000 fanga. 10. mar — Bretar senda lið frá j Alexandria til Grikklands. 6. apríl — Þjóðverjar ráðast á Júgóslavíu og Grikkland. 13. apríl — Öxulþjóðirnar ná aft- ur Bardia í Libyu. 20. maí — Þjóðverjar koma til Krít m'eð loftherliði. 31. maí — Bretar hverfa burtu af Krít. 22. júní — Þýzkaland, Italía og Rúmanía segja Rússum stríð á hendur. 7. júlí — Bandarískur her lendir á íslandi. 12. úlí — Bretar og Rússar gera samning um að berjast sam- eiginlega móti Þjóðverjum. 18. nóv. — Bretar byrja sókn í Libyu. 1942 29. jan. — Möndulþjóðirnar end- urtaka Bengasi. 30. maí — Eitthvað yfir 1000 Canadamenn taka þátt í 1000 flugvéla árás á Cologne. 21. júní — Möndulþjóðirnar end- urtaka Tobruk. 1. júlí — Þjóðverjar .vinna Se- vastopol. 19. ág. — Canadamenn hefja innrás í Dieppe. 6. sept. — Möndulþjóðirnar stöðvaðar við E1 Alamein. 24. okt. — 8undi brezki herinn fbyrar sókn við E1 Alamein. 7. nóv. — Bandaríkjalið lendir í Frönsku Norður-Afrfku. 11. nóv. — Þjóðverjar taka alt Frakkland. 13. nóv. — Brezki heririn nær Tobruk á ný. 13. des. — Möndulríkja herinn rekinn úr E1 Alamein. 1943 18. jan. — 17 mánaða umsátri Stalingrad lýkur. 23. jan. — Áttundi her Breta tekur Tripoli. 28. marz — Bretar sigra í Tunis- ia. 7. maí — Tunis og Bizerte falla. 13. maí — Mödulríkin gefast upp í Afríku. 10. júlí — Canadiskir, brezkir og bandarískir hermenn hefja innrás á Sikilgy. 25. júlí — Mussolini leggur nið- ur völd. Badoglio undir her- stórn tekur við á Italíu. 17. ágúst — Sikiley sigruð. 3. sept. — Canadamenn lenda í Italíu. 8. sept. — ítalía gefst upp skil- yrðislaust. 10. sept. — Þjóðverjar tapa Smolensk. 24. des. — Eisenhower settur yfir innrásarher Evrópu. 1944 4. jan. — Her Rússa kemst yfir landnmæri Póllands. 20. marz—Lt.-Col. H. B. G. Cre- rar tekur við stjórn Canada- hersins af Lt.-Gen. A. G. L. McNaughton. 2. apríl — Rússar halda inn í Rúmaníu. 10. maí — Rauði h'erinn tekur Sevastopol. 18. maí — Cassino á ítalíu tekin. 4. júní — Róm unnin. 6. júní — Innrás bandamanna í Normandí. 15. júní — Þjóðverjar senda mannlaus sprengjuflugför til Englands. 23. júní — Rússar hefja nýja sókn í Hvíta Rússlandi. 3. júlí — Rússar taka Minsk, síðustu stórborg þeirra í hönd- um Þjóðvera. 6. júlí — Canadamenn og Bretar vinna Caen. 20. júlí — Hitler meiðist í morð- tilraun. 31. júlí — Bandaríkjaherinn brýst út úr Normandy inn í Brittany. 7. ágúst — Tilkynt að lsti Can- adaherinn sjái einn um Aust- urvígstöðvar í Normandí. Er það í fyrsta skifti í sögu Can- ada, að her landsins sækir fram sem ein heild. 15. ágúst — Bandaherinn heldur inn í Suður-Frakkland. 16. ágúst — Canada herinn kem- ur til Falaise. 25. sept. — De Gaulle kemur til París. I. sept. — Canadaherinn tekur Dieppe, her Breta Vimy Ridge og Brussel, höfuðborg Belgíu. Finnland úr stríðinu. 12. sept. — Bretar taka Le Havre 20. sept. — Canada herinn kem- ur til Boulogne. U. S. herinn tekur Brest. 7. okt. — Rússar komast til Lith- uaníu. II. okt. — Bretar komast inn í Aþenu. 15. okt. — Ungverjaland biður Rússa um vopnahlé. 21. okt. — Aachen tekin af Bandaríkj amönnum. 16. ' nóv. — Bandaþjóðirnar sækja inn í Rínarhérað. 19. nóv. — Bandaríkjaherinn tekur Geilenkirchen, eina af borgum Siegfried virkjanna. 22. nóv. Metz fellur. 23. nóv. — Franskir skriðdrekar halda inn í Strassbourg. 12. des. — Rússar komast til Búdapest. 20. des. — Þjóðverjar sækja á vesturvígstöðvunum. — Eru stöðvaðir 10 mílur frá landa- mærum Frakklands. Mont- gomery tekuir við yfirstjórn lsta og 9unda hers Banda- ríkjanna auk síns eigin. 1945 17. jan. — Rússar taka Varsjá. 25. jan. — Austur Prússland ein- angrað. 29. jan. — Rússar komast inn í norðausturhluta Þýzkalands. 5. feb. — Fundurinn á Krím- skaga. 13. feb. — Rússar taka Búdapest. 15. feb. — Canada herinn við Rín. 6. marz — Bandaríkaherinn tek- 1 ur Cologne. 7. marz — Bandaríkjaherinn kemst austur yfir Rín á Re- magen brúnni. 12. marz — Rússar tala Kuestrin. 21. marz — Bandaríkja herinn tekur Saar. 24. marz — Bandaríkjaherinn kemst yfir Rín norðan til á víg- stöðvunum. 2. apríl — Bandam. herinn slær skjaldborg um Rúr. 6. apríl — Rússar segja upp hlut- leysissamningi við Japa. 14. apríl — Rússar taka Vín. 19. apríl — Leipzig og Halle falla 26. apríl—Rússneski og Banda- ríski herinn mætast í Torgan á Þýzkalandi. 28. apríl — Mussolini skotinn í grend við Como. Bandamanna- herinn tekur Venice og Genoa. H HAGBORG FUEL CO. H < ★ Dial 21 331 no'FU) 21 331 1. maí — Þýzka útvarpið segir Hitler dauðann. 2. maí — Berlín fellur. Þýzki herinn á Italíu og í Austurríki gefast skilyrðislaust upp. — Bretar taka Lubeck. Danmörk einangruð. 3. maí — Bretar ná Hamborg. 5. maí — Þýzki berinn í Hol- landi, Danmörku og Norðvestur Þýzkalandi gefst upp. 7. maí — Þjóðverjar gefast skil- yrðislaust upp og Evrópu stríð- inu lýkur. KAUPIÐ HEIMSKRINGLU bezta íslenzka fréttablaðið .......................... I I = 2 | Verum Allir j í Canadamenn! I □ £ | y = “Látum oss líta á alla vora borgara, hvaða kynflokki sem þeir heyra til, sem Canadamenn. Látum oss hafa færri skiftilínur í Canadisku þjóðfélagi. Látum oss í Canada vera Canada-fólk” — JOHN BRACKEN Vér erum heitbundnir að stofna, eftir þjóðlegum mælikvarða, nýja mögu- leika til velmegunar og góðrar líðunar, þar sem allir íbúar Canada, hvaða kynflokki eða trúflokki sem þeir tilheyra, eiga jafnan rétt til. — Hver maður, kona og barn sem gert hefir Canada að kjörlandi sínu, eiga fullan rétt til þess að verða meðlimir vorrar stóru fjölskyldu,—Canada þegn, með öllum réttindum sem borgurum landsins tilheyrir. Hvert einasta atriði í framfara stefnuskrá vorri, leggur sérstaka á- herzlu á að hver og einn þegn Canada—hver sem hann er og hvar sem hann á heima—taki þátt í hinu mikla og sameiginlega þróunar starfi Canada, bygðu á sterkum grunni þj óðar einingar. Treystið manninum sem hefir sýnt að hann treystir ykkur. SIGRIÐ MEÐ BRACKEN Greiðið atkvæði meðL umsækjendum Progressive Conservative s \ □ I | = I u <«iiiiiiiiiiiiniiiHimmuiimiii Published by The Pro^ressive Conservative Party. Ottawa. .......................................................................................................miommiminmiimiiioimimm^ ( v

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.