Heimskringla - 04.07.1945, Blaðsíða 5

Heimskringla - 04.07.1945, Blaðsíða 5
WINNIFEG, 4. JÚLI 1945 HEIMSKRINGLA 5. SIÐA uðinum á minningarhátíð þeirri sem myndir prestanna séra Guð- mundar og séra ALberts voru af- hentar kirkjunni. Samverka kona hennar og núverandi for seti kvenfélagsins, Mrs. Björg Björnsson mintist fagurlega, í bréfi til prestsins, hinnar miklu ástundunar, sem hin andaða merkis kona ihafði sýnt í störf- um sínum fyrir kvenfélagið, söfnuðinn og sunnudagaskólann. 1 sama streng tók fyrverandi prestur þessarar bygðar, séra Al- bert. Munu þau hjónin á Borg hafa mátt teljast ein af máttarstoðum þessa safnaðar á fyrri árum. Guðmundur sál. var hirðu og snyrtimaður hinn mesti og bún- aðist því vel og farsællega. Gleði- maður var hann víst mikill á fyrri árum og fékst ekki alllítið við íþróttir, einkum glímu. Heimili þeirra var annálað fyrir gestrsini og því vinsælt áð verðleikum. Munu nöfn þeirra lengi geymast í þakklátri minn- ingu samfierðafólksins. H. E. Johnson MEDICAL CENTRE 1 WINNIPEG Fyrir nokkru síðan skrifaði eg dálitla grein um Ihugmynd Iþá er vakir fyrir framsæknum og vak- andi áhugamönnum hér í Winni- peg og víðar, í sambandi við hina fyrirhuguðu lækninga miðstöð og viðreisn og framiþróun heil- brigðismálanna hér í Winnipeg, Manitoba og Vestur-Canada. — Skýrði þar frá upptökum þess máls, þróun þess og hinni dnengi- legu þátttök-u hins ágæta landa vors, Dr. P. H. T. Thorlakssonar, fram að þeim tíma sem hinn sam- eiginlegi fundur áhugamanna þsesa víðtæka og svo mjög þarfa máls og tímabæra var (haldinn. Síðan eru nú liðnir nokkrir mán- uðir, og að því er okkur íslend- inga snertir, ekkert orð heyrst eða sézt um málið, en þar sem eg tal víst að Islendingum í Vest- ur-Canada standi ekki á sama hvernig að þessu máli reiðir af, hvort það nær fram að ganga, eða ekki, hvort það lifir eða deyr, og vil eg taka fram í stuttu máli, hvað á daga málsins hefir drifið síðan að eg mintist á það síðast. Fyrst er að minnast þess, að fyrirtæki þetta hefir verið lög- gilt undir lögum Manitoba-fylkis og veitt öll þau réttindi sam s'lík stofnun þarfnast, til starfrækslu hugsjóna þeirra sem fyrir for- göngumönnum má'lsins vakir nú og sem stofnunin kann að þurfa á að halda. Stjórnar- eða fram- kvæmdarnefnd (bráðabirgðar- nefnd) tekur löggildingar frum- varpið fram að séu þessir: Garnet Coulter, who is bhe May- or of the City of Winnipeg. The Honourable H. A. Bergman, who is chairman of The Board of Governors of The Univer- sity of Manitoba. H. P. Armes, who is president of The University of Manitoba. Hugh Mclntyre and Russell Bar- rett, who are president and vice-president respectively of Union of Manitoba Municipal- ities. His Honour J. M. George, who is vice-president of the Manitoba Hospital Association. C. C. Miller, who is president of the Associated Boards of Trade of Manitoba. Violet C. Fillmore, who is presi- dent of The Childnen’s Hospi- ta'l of Winnipeg. G. O. Vale, who is a member of the Board of St. Joseph’s Hospital. W. A. Murphy, who is president ( of The Winnipeg General Hospital. R. G. Persse, who is president of The Cancer Relief and Re- search Institute. George W. Northwood, who is presidient of The Sanatorium Board of Manitoba. Dr. O. G. Trainor, who is presi- dent of The Manitoba Hospital Association. Dr. A. T. Mathers, who is dean of , the Faculty of Medicine of The University of Manitoba. William J. Parker, who is presi- dent of Manitoba Pool Eleva- tors. Henry E. Sellers. Dr. P. H. T. Thorlakson Rev. Antoine D’Esohambault, who is a member of the advis- ory board of St. Boniface Hospital. George C. Maclean, who is the mayor of t'he City of St. Boni- face. Á þessum lista má sjá hve víðtæk þessi hugsjón er, og al- vöruþrungin. Annað spor sem stigið hefir verið máli þessu til gengis og þróunar var samtal sem fjöl- menn nefnd af velunnurum málsins áttu við forsætisráð- herra fylkisins 22. jiúní s. 1. Mál- svari nefndarinnar var Dr. Thor- láksson, sem einnig er formaður Ihennar og fórust honum orð á þessa leið: Við biðjum yður, hr. fylkis féhirðir (forsætisráðherra Garson er einnig fylkisféhirðir) að stefna til fundar með fjár- máladeild fylkisins, heilbrigðis- máladeild þess, f jálmálanefndar Winnipeg-iborgar og háSkólaráðs Manitoba, til þess að ákveða hag- kvæma og réttláta niðurjöfnun á fjárstyrks skyldu þeirri sem á þeim hvílir til þess að sjá far- borða sjúkrahúsrúmi, kenslu. æfingum og þjálfunar þörfum þeim, sem sjúkra umönnun krefst og sem þörfin er svo brýn fyrir, til þess að fullnægja á- kvæðum þeim og fyrirætlun sem stjórnin í Manitoba hefir gert í því sambandi. Einnig fór nefnd- in fram á að stjórnin í Mani- toba gæfi ákveðið loforð um að styrkja og standa með Medicál Centre áforminu og einnig að þar sem engin ábyggileg áætlan um kostnað þann, sem stofnun lækninga miðstöðvarinnar hefði LUNDÚNA HERMENN MEÐ FLUGHERNUM I BURMA Hér eru sýndir tveir þessara manna, heitir annar iþeirra Peter Widgery (til vinstri), og er aðeins seytján ára og er frá Holden Road, Norður Finchley, en sá til hægri heitir Ray- mond Mindham og er frá Tottenhall Road, Palmers Green, og eru þeir að skoða myndaprufu er þeir táku á lágflugi. í för með sér, þá væri nú slíkur kostnaður nákvæmlega athugað ur og þar ssm alt starf í þágu þessa máls frá byrjun hefði verið unnið endurgjaldslaust, þá tæki fylkisstjórnin og bæjarfélagið að sér að borga fyrir þá áætlun og fullkomnari rannsókn málsins, sem áætlað var að mundi nema um $15,000.00. Vorsætisráðherrann tók máli nefndarinnar vel, sagðist að sjálfsögðu vera hlyntur málinu sem væri svo brýnilegt til upp- byggingar og velferðar öllum fylkisbúum, en kvaðst þó verða að skoða málið frá raunverulegu sjónarmiði að því isr til f járfram- laga kæmi. Sagðist vona að fundur sá er ákve:ðinn er 6. ágúst á milli fylkjanna í Canada og sambandsstjórnarinnar myndi festa og greiða svo tekju samböndin á milli fylkjanna og landstjórnarinnar að ivegif myndu opnast fylkinu, til fjár- greiðslu í sambandi við eins þýðingarmikið velferðarmál, og hér væri um að ræða. Á þessum samtalsfundi mætti C. E. Simonite, settur borgar- stjóri í forföllum Garnets Coul- ters borgarstjóra; fyrir hönd Há- skólans bráðabirgðar forseti, H. P. Armes; Dysart dómari og Bsrgman dómari, forseti há- skólaráðsins. En með forsætis- ráðherranum sátu á viðtalsfundi þessum þeir Ivan Sohultz heil- brigðismálaráðherra og J. C. Dryden, mentamálaráðherra. Það er nú að því komið að Manitoba menn verða að ráða við sig hvort að fyrirtæki þetta á að fá líf og fast form og Mani- toba að verða vísindaleg mið- stöð læknisfræðinnar í Vestur- Canada, eins og Vienna var í Evrópu, eða það á að dofna og deyja, því þótt forgöngumenn- irnir séu allir af vilja gerðir, þá geta þeir ekki borið þetta mikla v elferðarmál á herðum sér einir. Lifandi áhugi almennings verður að blása því byr undir báða vængi. J. J. Bíldfell FERÐABÓK DUFFERINS LÁVARÐAR Ferðabók Dufferins lávarð- ar. Hersteinn Pálsson ís-1 lenzkaði. Reykjavík, Bók- fellsútgáfan h.f., 1944. I Sumarið 1856 var mikið um dýrðir ihér í Reykjavík. Glæsi-1 leg skip frá fjarlægum ströndum | lágu á höfninni, og á fátæklegum l götum milli lágkúrulegra húsa. spásséruðu prúðbúnir hofmenn og aðalsmenn með öllum þsim fáránlega' útbúnaði og umstangi, Hann: Sjáðu elskan mín. Eg keypti íhanda þér demantstrúlof- unarlhring. Hún: Ó, hann er dásamlegur. En hvað er að sjá steininn í hon- um. Hann er eitthvað einkenni- legur. Hann: Það gerir ekkert til. — Ástin er hvort sem er blind. Hún: Já, (en ekki steinblind. * ★ * Vinurinn: Veiddir þú msð flugu? Veiðikempan: Með flugum. Já, við veiddum með þeim, borðuð- um með þeim og sváfum með þeim. FJÆR OG NÆR Skrifið stúlkunni Ung stúlka á Islandi,—19 ára ■ óskar eftir bréfaviðskiftum á, íslenzku, við vestur-íslenzkanj pilt eða stúlku, á svipuðu reki Áritun er: Ungfrú Hjördís Hjörleifsdóttir, Sólvöllum, Önundarfirði, Iceland, Europe * * * Framvegis verður Heims- <ringla fáanleg í lausasölu, hjá hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla vörðustíg 2, Reykjavík, Island. * ★ * Alþingishátíðin 1930, eftir próf. Magnús Jónsson er íslendingum kærkomin jólagjöf. I bókinni er yfir 300 myndir og frágangur allur hinn vandaðasti. Fæst bæði í bandi og óbundin. Verð í bandi $20.50 og $23.00. óbundin $18.50. Björnssons Book Store 702 Sargent Ave., Winnipeg ★ ★ ★ Heimskringla er til sölu hjá hr. bóksala Árna Bjarnarsyni, Akureyri, Island. LESIÐ HEIMSKRINGLU bezta íslenzka fréttablaðifl sem löngum hefir fylgt erlendum ferðamönnum á Isilandi. íbúar höfuðstaðarins störðu á þessa tignu gesti eins og tröll á heið- ríkju, karlmennirnir voru allir á hjólum í kringum þá og Reykja-1 víkurstúlkurnar þá voru eigi síð- ur en nú hrifnar af spengilegum og stimamjúkum liðsforingjum. Og nærri má geta ihvílíku róti at- burður eins og dansleikurinn á frönsku freigátunni “Artemise” j hefir komið í ung meyjahjörtu í öðru eins fásinni og þá ihlýtur að hafa grúft yfir þessum smábæ. Engu er logið, þegar sagt er, að hér hafi komið tignir gestir sum - arið 1856. Þá kom Napoleon Frakkaprins ihér með fríðu föru- j neyti, en Ihann var frændi Napol- eons mikla. En koma annars manns varð þó msrkilegri fyrir Island. Sá maður var Dufferin, enskur lávarður, sem kom hing- að á skemtisnekkju sinni þetta sama sumar. Dufferin lávarður var háment- aður maður og fjölhæfur, skáld- mæltur vel og hneigður til rit- starfa. Hann var af ágætu fólki kominn og á léttasta skeiði. þeg- ar ihann fór þessa för, um þrítugt. Síðar komst hann til mikilla met- orða, varð landsstjóri i Canada og vara-konungur Indlands. Dufferin hafði hér aðeins skamma viðdvöl, var nokkra daga hér í Réykjavík og ferðað- ist síðan til Þingvalla og Geysis. En sú viðdvöl nægði til þess, að þessi stórhöfðingi mintist íslands jafnan síðan meðhlýju, svo mjög hreifst hann af þessu fátæka ey- landi 'í Norðurhöfum. Og um þessa ferð sína skrifaði hann merka bók: Letters From High Latitudes, sem kom út í Englandi árið eftir, 1857. Oft ihefir verið vitnað ti'l þessarar bókar í ís- lenzkum ritum, en nú er hún komin út 'í íslenzkri þýðingu Hersteins Pálssonar ritstjóra og nefnist Ferðábók Dufferins lá- varðar. Eins og enski titillinn bendir á, er bókin skrifuð í sendibréfs formi. Höfundurinn skrifaði móður sinni þessi bréf á ferða- laginu sjálfu. Segja bréfin frá flairu en ferðinni um ísland, því að Dufferin og félagar hans héldu héðan til Jan Mayen, Spitzbergen og Noregs. Frásagn- arblærinn er viðfeldinn og skemtilegur, þrunginn af ferða- igleði höfundarins. 1 bókinni er mikill fróðleikur, einkum fyrir aðra en Islendinga, enda var hún að sjálfsögðu ætluð isnskumæl- andi fólki. Okkur varðar auðvitað mest um kaflana um Island. I ferða- bókum um Island er oft ihægt að finna ýmislegt merkilegt, því að glögt er gestsaugað á menningu og þjóðháttum, ef gesturinn er kominn til að sjá og fræðast, án hleypidóma og ihroka. íslending- ar geta unað vel við vitnisburð Dufferins lávarðar, svo góður er hann og velviljaður. Hinu er ekki að leyna, að kynning höf- undarins á landi og þjóð er ekki víðtæk, sem varla er heldur von, og hann hefir lítið séð af shugga- hliðum þjóðlífsins. Hann sat veizlur með höfðingjunum í Reykjavík, en inn í kotin um- hverfis hefir hann varla stigið fæti sínum. Hann gisti í tjöldum á ferð sinni um Suðurland, hafði sérstakan matsvein og þjón, svo að ekki þurfti margt saman við bændurnar að sælda. En það, sem Dufferin lávarður sá hér, var hann glöggsýnn á og segir fjörlega og vel frá því. Og óneitanlega er það góður fengur að eiga þarna bráðfyndna sögu úr samkvæmislífinu í Reykjavík fyrir 90 árum síðan. Og Dufferin lýsir þessu svo vel, að við liggur, að maður finni á sér og sjái þá ljóslifandi fyrir sér, karlana, Bjarna rektir, Hjaltalín land- lækni, Þórð háyfirdómara og Helga biskup Thordarsen. Dufferin lýsir landslagi og náttúrufari með mikilli hrifn- ingu. Hann hefir haft mikinn hug á jarðfræði og skýrir í ibréf- unum jarðmyndunarsögu Þing- valla og segir frá tilgátum um það, hvernig á Geysisgosum standi. Lávarðurinn segir frá mörgu úr sögu Islands og bókmentum og fer furðu rétt með. Má vafa- laust þakka það hinum ágæta fylgdarmanni Ihans og túlk, Sig- urði L. Jónassyni, íslenzkum mentamanni, síðar starfsmanni í utanríkisráðuneytinu danska. — Væri betur, að allir útlendir ferðamenn hefðu haft slíka fylgdarmenn um ísland, en sum- ir þessara fylgdarmanna 'hafa alt fram að þessu verið of líkir þeim stallbróður sínum, sem benti á ‘Snorre Sturlasöns Butik” á Þingvöllum. Kaflarnir um Island eru skemtilegasti 'hluti bókarinnar, en þó er leiðangurinn itil Jan Mayen og Spitzbergen meiri svaðilför og segir frá töluverðum mannraunum, sem Iþeir félagar lentu í. Dufferin lýsir sumum sam- ferðamönnum sínum skýrt og skemtilega. Einkum leggur hann rækt við þjóninn Wilson, og hendir mikið gaman að ö’llu framferði hans, en Wilson þessi var svo gallsúr bölsýnismaður, að svo virtist sem honum þætti jafrwel miður iþegar vel rættist fram úr ýmsum vandkvæðum ferðarinnar, sem hann hafði spáð hraklega fyrir. Þýðing Hersteins Pálssonar virðist vera ágæt, yfirlætislaus en kjarngóð. Hefir það vafalaust ekki verið áhlaupaverk að þýða suma kaflana. Myndir og teikn- ingar frá ferðinni eru í bókinni. Hún er vel út gefin og eiguleg. Það má teljast góður fengur að fá þessa bók Dufferins á ís- lenzku. Ragnar Jóhannesson —Alþbl. 10. apríl. BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleymd er goldin sknld M0RE AIRCRAFT WILL BRING QU/CHER VJÆTORY m SAVINGS Æ#S>CERTIFICATES Góð Mentun eflir Mannsildið Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein- mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun, og það fólk sem hennar nýtur hefir venju- lega forgangsrétt þegar um vel launaðar stöður er að ræða. Vérhöfum nokkur námsskeið til sölu við fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg. Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu viðvíkjandi, það margborgar sig. The Viking Press Limited Banning og Sargent WINNIPEG :: MANITOBA — MUSIC ----- Tólf sönglög, Friðrik Bjarnason ___________ $ .35 Sex sönglög, Friðrik Bjarnason________________ .35 Tvö kvæði, St. G. St., Jón Laxdal____ _______ .35 Að Lögbergi, Sigfús Einarsson ________________ .35 Til Fánans, Sigfús Einarsson ________ 35 Jónas Hallgrímsson, Sigfús Einarsson ... .35 Pétur Guðjónssen, Sigfús Einarsson __________ .35 Fáninn, Sveinbjörn Sveinbjörnsson ___________ .35 Now is the North of Maying, Sv. Sveinbjörnsson .35 Up in tlhe North, Sveinbj. Sveinbjörnsson ____ .35 Þrjú sönglög, Bjarni Þorsteinsson ________ __ .35 Bjarkamál, Bjarni Þorsteinsson ________________ 35 Huginn, F. H. Jónasson ______________________ '35 Þrjú sönglög, Hallgr. Jónsson ________________ .35 Serenata, Björgvin Guðmundsson________________ .35 Passíusálmar með nótum _______________________ 1.60 Harmonia, Br. Þorláksson ______________________'50 Söngbók ungtemplara, Jón Laxdal _________ .35 Skólasöngbókin II., Pétur Lárusson____________ .25 Ljúflingar, Sigv. S. Kaldalóns, Bl. raddir _ 1.00 Ave Maria, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur _____ _____ .50 Suðurnesjamenn, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur .35 Þrá, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur ___________ .30 Eig bið að heilsa, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur __. .50 Betlikerlingin og Ásareiðin, Sigv. S. Kalalóns, Eins. .75 Máninn, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur ________ .50 Kaldalóns þankar, Sigv. S. Kaldalóns, Piano __ .35 Serenaði til Reykjavíkur, Sigv. á. Kaldalóns, Eins. . .50 Þótt þú langförull legðir, Sigv. S. Kaldalóns. Eins. .25 14 sönglög, Gunnsteinn Eyjólfsson ___________ 1.25 Ljósálfar, Jón Friðfinnsson _________________ 1.50 5 einsöngslög, (með ísl. og enskum texta) Sig. Þórð. _ 1.50 BJÖRNSSON’S BOOK ST0RE 702 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.