Heimskringla - 18.07.1945, Blaðsíða 2
2. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 18. JÚLI 1945
ISLENDINGADAGURINN
að Gimli, 6. ág. næstk.
Framh.
II.
Vissulega er Islendingadagur-
inn þjóðlegasta hátíðin sem við
eigum hér vestan hafs. Þar er alt
gert til þess, að minnast íslands
sem fegurst og bezt. Skreyting
staðarins er öll með íslenzkum
blæ. Fjöldi af stórum og falleg-
um málverka-tjöldum af nátt-
úrufegurð íslands, blasir þar við
sjónum manns á svo hrífandi
hátt, að æði mörgum finst, að
konan, sem Fjallkonuna táknar,
hafi komið með Island til okkar,
þegar hún sezt í hásætið, með
málverka tjöldin að baki og til
beggja hliða.
Óvíða fáum við að mæta eins
mörgu gömlu fólki, sem þar, —
landnemum, þessum íslenzku
“hetjum af konunga kyni, sem
komu með eldinn um brimhvíi
höf, — og stormana hlutu í
vöggugjöf,” og báru hróður ís-
lands um Ameríku alla, og auðg-
uðu hið nýja land af andlegum
verðmætum úr veganesti sínu.
III.
Fjallkonan að þessu sinni
verður frú Ólína Pálsson, glæsi-
leg kona og íslenzk vel. Hirð-
meyjar Fjallkonunnar verða
þær, ungfrú Pauline Marian
Einarsson og frú Margaret Páls-
son Ramsay.
Eitt með öðru, sem gefur ný-
breytni á íslendingadaginn, að
þessu sinni er það, að María
Markan Östlund, hin vinsæla ís-
lenzka söngkona við Metropoli-
tan Opera Association, hefir ver-
ið fengin til þess, að skemta
VESTRIÐ
HORFIR
FRAM í
TÍMANN!
Meö öruggri trú og látlausu
starfi; viturlegum viðbúnaði,
raunhæíri skipulagningu!
Vestrið horfir fram í tímann—
einkum vegna viturlegra ráð-
stafana af hálfu búnaðarráðu-
neyta hinna ýmsu stjóri)a og
leiðbeininga frá háskólunum.
Félög, er vinna að fóðrun kálfa
og svína, samkepni um góða
fleskframleiðslu, kvenna og
stúlknáklúbbar, hússtjórrtar-
klúbbar, námsskeið varðandi
matargerð, og margt annað, sem
kent er á námskeiðum, spáir
góðu um framtíð landbúnaðar-
ins og holla þjóðmegun. Þekk-
ingin ræður úrslitum.
Öllum þeim forustumönnum og
félögum, sem nú hafa nefnd
verið, samfagnar EATON'S og
óskar þess að mega í framtíð-
inni vikka út þjónustu sína frá
Winnipeg í þágu Vesturlands-
ins.
ST. EATON C?™—
WINNIPEG CANADA
EATONS
fólki með söng sínum á hátíð-
inni. Veit eg að margir hlakka
til að heyra hana og sjá og
“þakka henni fyrir síðast.”
f»örf er ekki að fara mörgum
orðum um söng Maríu Markan,
því hún er fyrir löngu, mestum
þorra Islendinga kunn af frægð-
ar orðstír þeim, sem hún hefir
getið sér, hvar sem hún hefir
ferðast og numið ný lönd á sviði
sönglistarinnar. Hún hefir sung-
ið í þektustu sönghöllum víðs-
vegar um Evrópu, Ástralíu og
Ameríku, og bvarvetna getið sér
aðdáun og frægð, eftir blaðarit-
dómum að dæma. Vér heyrðum
hana hér fyrir nokkrum árum
síðan. Hún hreif oss þá með
söng sínum, framkomu og við-
kynning. Mér er sagt að María
syngi jafnvel betur nú en áður.
Oss verður á að spyrja. Getur
það verið? Hvort sem heldur
er, þá hlökkum vér til að sjá
hana og heyra, og bjóða hana
velkomna.
Þá syngur líka Karlakór Is-
lendinga í Winnipeg, undir
stjórn Sigurbjörns Sigurðssonar.
Karlakórinn hefir komið svo oft
fram til að skemta okkur við
þetta tækifæri, að við mundum
sakna hans stórkostlega ef hans
misti þar við.
Nokkur undanfarin ár, höfum
vér verið svo lánsöm, að margir
mætir og góðir gestir hafa komið
til okkar frá Islandi og verið
með oss á íslendingadaginn, og
hefir það ekki all-lítið aukið á
vinsældir þessa hátíðahalds. Við
eigum því láni að fagna einnig
að þessu sinni, og eg vona að svo
verði við hvern Islendingadag
framvegis. Aðal ræðumaðurinn
fyrir Minni íslands, verður Pét-
ur Sigurgeirsson, sonur Sigur-
geirs Sigurðssonar biskups yfir
íslandi, mannsins sem með oss
var fyrir skömmu síðan og vann
sér almennar vinsældir og allra
hylli með hrífandi ræðum sínum
og ástúðlegu framkomu.
Minni Canada flytur hinn víð-
kunni og ágæti læknir okkar.
Dr. P. H. T. Thorláksson, og
veit eg að öllum verður það
gleðiefni áð hlusta á hann við
þetta tækifæri.
Minni íslands í ljóði, befir
samið hinn góði vinur okkar
Gunnbjörn Stefánsson, en Dr
S. E. Björnsson frá Árborg,
Minni Canada í ljóði. Get eg
með góðri samvizku fullvissað
alla um, að báðir þessir menn
gera hlutverki sínu góð skil.
Margbrotnar íþróttir fara þar
fram fyrir yngri og eldri og góð
verðlaun verða veitt.
Háhíðlegt er það einnig, að
heyra þúsundir manna og
kvenna syngja ættjarðar og
gleði söngva á báðum málunum.
Að síðustu verður stiginn
dans, við ágætan hljóðfæraslátt,
langt fram á nótt. D. B.
Guðrækin kona (við mann,
sem kom út af “bar”): Mérþyk-
ir leiðinlegt að sá yður koma út
af svona stað.
Hvað er þetta, svaraði sá
slompaði, munduð þér vilja að
eg væri þar inni í alla nótt?
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
I bezta íslenzka fréttablaðið
OLD CARTONS CAN
BE RE-USED
Old cartons, if carefully opened when delivered,
can be re-used to the great advantage of the present
shortage in carton materials.
When returning empty bottles, please use old
carton together with any extra used cartons on hand.
Cartons take material and labour and it is in the
interests of conservation that your co-operation is
required.
DREWRYS
LIMITED
Saknaðarljóö
Hvað húsið er eyðilegt, einmana, hljótt
og allslaust, á hverjum degi.
Mér finst, sem mig umlyki niðdimm nótt
og náttúran máttvana þegi.
Því sorgin í augum mér situr bljóð,
og sjón mína og hugsjónir blindar.
Og náttmyrkur tómleikans næðir mitt blóð,
sem nákaldir janúar vindar.
Mér fatast að skilja þau skaparáð,
og skynja, — að burt er þú farinn.
Þú hafðir svo margsinnis höfnum náð
frá hættum og líftjóni varinn.
Fyrir sjö dögum aðeins, sast þú hjá mér.
Við sáum ei aðkomu nauða.
En nú ertu horfinn, svo harðleikið er
handtak hins kaldlynda dauða.
Ef vakir þú kæri, — sem vonandi er,
í veröld að efnisins baki?
Þá samúðardulþkveðju símaðu mér,
er sorgina frá mér taki.
J. S. frá Kaldbak
ÞJóÐMINJASAFNIÐ
Séra Helgi Sigurðsson, sem
merkur klerkur var á sinni tíð,
mun bafa lagt grunninn að forn-
minjasafninu, með því að gefa
safn sitt íslenzku þjóðinni, en
það safn geymdi ýmsa merkilega
muni. Hugmynd séra Helga mun
þegar hafa mætt almennum
skilningi, þannig að menn hafa
sent margvíslegar gjafir til safns-
ins og einstakir menn unnið í
þágu þess án mikilla launa. —
Mestan framgang safnsins mun
mega þakka einum manni, nú-
verandi safnstjóra þess, Matthí-
asi Þórðarsyni, sem helgað hefir
starfsemi þessari alla krafta sína,
skipulagt safnið og gætt þess um
áratuga skeið. Verður starf
hans áreiðanlega aldrei of met-
ið, en hitt er svo annað mál, að
svo hefir verið búið að safninu,
að furðulegt má teljast hversu
vel það hefir varðveizt frá
skemdum alt til þessa.
Nú í vor skoraði Blaðamanna-
félagið á ríkisvaldið að reisa veg-
legt þjóðminjasafn, en þjóðhá-
tíðarnefndin mun hafa samþykt
og borið fram svipaða tillögu.
Var málinu tekið vel og nú er svo
komið, að unnið er að teikning-
um að væntanlegri safnbygg-
ingu, en henni hefir verið ákveð-
inn staður á háskólalóðinni. Er
vænst að bygging hússins hefjist
mjög bráðlega. Verður þetta
vegleg bygging, en teikningu
hennar annast byggingameistar-
arnir Sigurður Guðmundsson og
Eiríkur Einarsson, sem báðir eru
einhverjri færustu fagmenn í
sinni grein, svo sem mörg dæmi
sýna. Er því ekki að efa, að
bygging þessi verður prýði höf-
uðstaðarins, um leið og bún hef-
ir að geyma það, sem þjóðinni
er dýrmætast frá fyrri öldum.
Mjög er það ánægjulegt, að
þjóðminjavörður getur verið
1 með í ráðum, að því er fyrir-
komulag varðar, með því að
reynsla hans og þekking á safn-
inu, svo og smekkvísi hans, er
alkunn. Óskabarn hans, þjóð-
minjasafnið, verður ekki horn-
reka úr þessu.—Vísir.
WARTIME PRICES AND
TRADE BOARD
Spurningar og svör
Spurt: Eg hefi heyrt það sagt
að hótelum og öðrum opinberum
matsöluhsúum sé bannað að
skamta kjöt á þriðjudögum og
föstudögum. Á þessi reglugerð
einnig við einkaheimili?
Svar: Nei, ekki sem reglugerð.
En í útvarpserindi sem Hon. J.
L. Ilsley flutti á mánudagskvöld-
ið var, mæltist hann til þess að
húsmæður reyndu að gera sér
það að reglu að bera fram kjöt-
lausar máltíðir að minsta kosti
tvo daga í viku, eða eins oft og
þeim væri það unt. Evrópu þjóð-
irnar liðu svo mikinn skort að
við, sem altaf hefðum haft meira
en nóg, yrðum að komast af með
minna til þess að sem mest mætti
senda þeim til hjálpar á meðan
þær væru að ná sér aftur eftir
stríðið.
Spurt: Hvenær gengur kjöt-
skamturinn í gildi?
Svar: Þegar okkur var tilkynt
um væntanlega skömtun á kjöti
6. júlí, var tekið fram að það
mundi þurfa frá sex til átta
vikna undirbúning. Eftir því að
dæma ætti það ekki að verða fyr
en seint í ágúst mánuði. Okkur
verður sjálfsagt tilkynt um þetta
aður en langt um líður.
Spurt: Er það satt að alt kjöt
verði skamtað, lifur, nýru, sau-
sages og annað slíkt?
Svar: Já. Einnig hjörtu, heil-
ar, tungur, sweetbreads, bologna,
weiners, með öðrum orðum alt
kjöt. I þetta sinn verða engar
undantekningar.
Spurt: Hvenær ganga næstu
niðursuðusykur seðlar í gildi?
Svar: Tíu fyrri seðlarnir eru
þegar gengnir í gildi. Þeir síð-
ari tíu öðlast gildi 19. júlí. Það
INDVERJAR SÆKJA FRAM I BURMA
Hér eru sýndir indverskir herflokkar á ferð um ár og
sanda á leið þeirra í áttina til Taungtha í Burma.
má nota þessa seðla fyrir tilbúið
sætmeti ef menn vilja það held- j
ur. Ef sykur er tekið út á þá, I
fæst hálft pund með hverjum
seðli.
Spurt: 1 búðinni þar sem eg
verzla fæst ekki nema eitt
stykki af þvottasápu í einu, og í
sumum búðum vantar sápu al-
gerlega. Er nokkur bætta á al-
varlegum sápu skorti?
Svar: Nei. Ekki nema fólkið
sjáMt fari að safna birgðum og
kaupi miklu meira en það þarfn-
ast. Kaupmaðurinn sem þú
verzlar við er að reyna að koma
í veg fyrir þetta með því að selja
engum of mikið í einu.
•
Sykur seðlar nr. 61 og sæt-
metis niðursuðusykur seðlar frá,
P2 til P13 að báðum meðtöldum,'
ganga í gildi 19. júlí. Smjörseðl-
ar nr. 115 ganga ekki í gildi fyr
en 26. júlí.
•
Spurningum á íslenzku svarað
á ísl. af Mrs. Albert Wathne,
700 Banning St., Winnipeg.
Kennarinn: Hvort er lengra til
tunglsins eða Englands-
Simbi: Til Englands.
Kennarinn: Af hverju heldur
þú það?
Simbi: Nú, við getum séð
tunglið en ekki England.
★ ★ ★
Sá fulli: Viljið þér ná í bíl
handa mér, góðurinn minn.
Sjóliðinn: Nei, eg held nú ekki.
Eg er sjómaður.
Sá fulli: Jæja. Náðu þá í bát
handa mér. Eg verð að komast
heim sem allra fyrst.
Hhagborg u
FUEL CO. 11
★
Dial 21 331 no FU) 21 331
Ætli þér að fara nokkuð á
sunnudagskveldið? spurði skrif-
stofustjórinn einkaritara sinn.
Nei, sagði hún og brosti.
Jæja. Þá skuluð þér reyna að
mæta á réttum tíma á mánudag-
inn.
★ * ★
Jón: Ferðu nokkurn tíma með
konuna þína í nýja bílnum þín-
um?
Björn: Nei. Við getum ekki
stjórnað honum bæði.
★ ★ ★
Kennarinn: Stafið enska orðið
dry.
Nemandinn: D-r-y.
Kennarinn: Rétt. En segið mér
hvað það þýðir.
Nemandinn: Óblandað.
★ ★ ★
Kennarinn: Hvað eru mörg
rifbein í þér, Jón?
Jón: Mig kitlar svo mikið, að
eg hefi aldrei getað talið þau.
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
A ÍSLANDI
Reykjavík______Björn Guðmundsson, Reynimel 52
Antler, Sask.......
Árnes, Man.........
Árborg, Man........
Baldur, Man........
Beckviíle, Man.....
Belmont, Man.......
Brown, Man.........
Cypress River, Man
Dafoe, Sask—.......
Ebor, Man..........
Elfros, Sask.......
Eriksdale, Man.....
Fishing Lake, Sask.
Foam Lake, Sask.....
Gimli, Man.........
Geysir, Man........
Glenboro, Man......
Hayland, Man.......
Hecla, Man.........
Hnausa, Man........
Innisfail, Alta....
Kandahar, Sask.....
Keewatin, Ont......
Langruth, Man......
Leslie, Sask.......
Lundar, Man..........
Markerville, Alta.—
Mozant, Sask.......
Narrows, Man.......
Oak Point, Man.....
Oakview, Man-------
Otto, Man..........,
Piney, Man.........
Red Deer, Alta.....
Riverton, Man......
Reykjavík, Man-----
Selkirk, Man_______
Silver Bay, Man....
Sinolair, Man......
Steep Rock, Man....
Stony Hill, Man----
Tantallon, Sask....
Thornhill, Man.....
Viðir, Man.........
Vancouver, B. C....
Wapah, Man.........
Winnipegosis, Man.
Wynyard, Sask......
ICANADA
...............-K. J. Abrahamson
..............Sumarliði J. Kárdal
.................G. O. Einarsson
...............Sigtr. Sigvaldason
...............—B.iöm Þórðarson
......................G. J. Oleson
............. Thorst. J. Gíslason
........—........Guðm. Sveinsson
..................O. O. Magnússon
......—........_K. J. Abrahamson
......._...Mrs. J. H. Goodmundson
------------------Ólafur Hallsson
..................Jtósm. Árnason
..................Rósm. Árnason
...................K. Kjernested
............... Tím. Böðvarsson
_____________________G. J. Oleson
-................Sig. B. Helgason
............. Jóhann K. Johnson
..................Gestur S. Vídal
...............Ófeigur Sigurðsson
.................. O. O. Magnússon
............... Bjarni Sveinsson
................ Böðvar Jónsson
................Th. Guðmundsson
......................D. J. Líndal
...............Ófeigur Sigurðsson
__________________ Thor Ásgeirsson
................. S. Sigfússon
.................Mrs. L. S. Taylor
.....................S. Sigfússon
__Hjörtur Josephson
.....................S. V. Eyford
...............Ófeigur Sigurðsson
.................Einar A. Johnson
..._...........„...Ingim. Ólafsson
______________ Mrs. J. E. Erickson
............. ....Hallur Hallson
_______________K. J. Abrahamson
................. Fred Snæda!
______________ Hjörtur Josephson
_______________ Árni S. Árnason
................Thorst J. Gíslason
__________________ Aug. Einarsson
....., .........Mrs. Anna Harvey
................„...Ingim. óiafsson
........................S. Oliver
.................. O. O. Magnússon
í BANDARIKJUNUM
Bantry, N. Dak__________________________E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash.................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash......................Magnús Thordarson
Grafton, N. Dak......................
Ivanhoe, Minn......................Miss C. V. Dalmann
Milton, N. Dak............................J3. Goodman
Minneota, Minn._....................Miss C. V. Dalmann
Mountain, N. Dak_________________________C. Indriðason
National City, Calif..John S. Laxdal, 736 E. 24th St.
Point Roberts, Wash......................Ásta Norman
Seattle, 7 Wash-------J. J. Middal, 6522 Dibble Ave., N.W-
Upham, N. Dak---------------------------E. J. Breiðf jÖrð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba