Heimskringla - 02.07.1947, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 2. JÚLl 1947
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
FRÉTTIR FRÁ ISLANDI
Öskufall úr Heklu fellur í
Reykjavík í fyrsta sinn
Aska úr Heklu hefir fall,ið hér
í bænutm og nágrenninu í gær og
í fyrrakvöld og er það í fyrsta
sinn sáðan Hekla tók að gjósa að
þessu sinni, að vitað er með vissu
að aska hefir fallið hér í bænum.
Dr. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur vann að því í gær
að safna öskusýnishornum hér í
bænum og verða þau rannsökuð
í Atvinnudeild háskólans í dag.
Menn urðu einna fyrst varir
við öskufall hér í bænum á því,
að það settist á bila og klestist á
bílrúður. Maður sem var á leið
milli Reykjavíikur og Hatfnar-
fjarðar 1 fyrrakvöld í bil varð að
fara nókkrum sinnum út til að
þurka af framrúðu bílsins, þar
sem þurkur bílsins unnu ebki á
öskunni. 1 fyrrakvöld varð fólk
á fþrottavellinum vart við að
svart ryk settist á yfirhafnir þess
og var það Heklu aska
Eé í nágrenni Reykjarvíkur
ber þesS greinileg merki, að
öskufall hefir verið talsvert.
öÞá verða menn varir við ösku
fall á þann hátt að það sest í
augu manna, og 9víður undan
því.
Allmikið gos hefir verið í
Heklu undanfarna tvo daga eftir
þv*í, sem menn er koma að aust-
an herma.
Hefir öskufall orðið talsvert í
Ölfusi undanfarna tvo daga, í
Grímsnesi og víðar vestur af
Heklu. —Mbl. 5. júm
» ★ ★
Ræður þingmanna teknar upp
á “diktafón” í dag
Eins og Visir hefir áður skýrt
frá voru í vikunni sem leið gerð-
ar tvær tilraunir til þess að taka
þingræður í efri deild á stál-
þráð.
Var siðari tilraunin gerð á
föstudaginn og voru þá tveir
hljóðnemar hafðir í deildinni,
annar við borð forseta, en hinn
var fluttur milli ræðumanna,
jafnóðum og þeir tóku til máls.
Tilraun þessi stóð yifir í % kl.,
og tókst í hvívetna með ágætum.
Fyrirkomulag er hið sama og
þegar umræðum er útvarpað og
heyrist í alla staði jafn skýrt og
greinilega.
Verði rœður þingmanna eftir-
leiðis teknar á stálpráð, munu
þeir ekki geta talað úr sætum
sínum, heldur flytja sig í sér-
stakan ræðustól, þar sem hljóð-
nemanum verður komið fyrir.
1 dag er svo ráðgert að gera
tilraun með “diktafón” í efri
deild Alþingis, en diktafónar eru
m. a. notaðir í þessu skyni í
finnska þinginu. Þeir hafa þann
kost framyfir stálþráðinn, að
vélritunarmaðurinn getur stillt
þá á hyaða hraða sem er og
þægilegastur er fyrir manninn
til þess að rita eftir. Stálþráð-
inn verður hinsvegar að færa
aftur og taka til að nýju ef vél-
ritunarmaðurinn hefir ekki við.
—Vísir 20. maí
* ★ ★
Flugslysið í Héðinsfirði
Að því er fregn frá Ólafsfirði
hermdi í gærmorgun, virðast
vera skiptar skoðanir um það
hvort liikin sem fundust hjá flug-
vélarflakinu í Hestfjalli hafi
verið 25 að tölu eða aðeins 24,
eins og fyrst var álitið. Ólafs-
firðingar, sem komu á slysstað-
inn og fluttu liíkin til Ólafsfjarð-
ar með vélabátnum, segja flug-
vélina hafa lent í klettaskoru, í
innan við 100 m. hæð frá sjó, og
hafi hún ekki hrapað neitt eftir
áreksturinn. Var flugvélin í
pörtum eftir sprenginguna og
líkin mikið sködduð. Þykir því
sýnilegt að allir sem með henni
voru hafi látizt strax er árekst-
urinn varð.
Þá telja sjónarvottar, að ekki
sé hægt að ráða það af ásigkomu
lagi vélarflaksins í hvaða áitt
hún hafi flogið þegar slysið varð.
Vélabáturinn Egill, en skip-
_____ 't
stjóri á honum er Jón Sigurpáls-
son í ólafsfirði, niáði lendingu í
svokölluðu Vogum undir Hesta-
fjalli og var skammt þaðan að
flakinu.
1 gærmorgun var farið aftur á
slysstaðinn frá Ólafsvík til að
sækja farangur sem skilinn var
eftir á staðnum þegar líkin voru
sótt.
• * •
“Skilum handritunum strax”
Formaður danska Kommún-
istaflokksins, Axel Larsen, lét
þá von í Ijós í umræðum í Rííkis-
þinginu í gær að dönsk yfirvöld
ssæju sóma sinn í að afhenda ís-
lendingum handrit fornsagn-
anna sem fyrst. Axel Larsen hef-'
ur alltaf verið ötull fórvígis
maður þess, að Islendingum
væri skilað handritunum. í vor
hefir hann ritað um handrita-
málið á blað kommúnista, “Land
og Fólk”, gegn dönskum fræði-
mönnum, sem ekki vilja að
handritunum sé skilað.
★ ★ *
Emil Ludwig í
banni hjá Rússum
)Emil Ludwig, hinn heims-
kunni ævisagnaihöfundur, hefir
nú verið settur á bannlista á
hernámssvæði Rússa í Þýzka-
landi. Eru bækur hans gerðar
upptækar, hvar sem |>ær finn-
ast og strangar refsingar liggja
við, ef út af er brugðið.
Emil Ludwig er kunnur fyrir
snjallar ævisögur ýmissa stór-
menna, meðal annars bækurnar
Roosevelt, Bismarck, Napoleon
og Kleópatra. Er hann Gyðingur
og varð að flýja Þýzkaland, er
nazistar brutust til vald'a, en
bækur hans voru lýstar í bann.
Rússar segja, að bækur hans
hafi verið bannaðar, vegna þess
“hernaðaranda”, er í þeim fel-
íst. Hafa kommúnistar víða um
heim lofsungið hann vegna
fjandskapar nazista við hann, en
snúa nú væntanlega við blaðinu.
—Vísir 14. maí
* * *
Handrit Jóhanns Sigurjóns-
sonar gefin Landsbókasafninu
Landsbókasafninu hefir bor-
izt stórmerk gjöf, en það eru öll.
handrit Jóhannis Sigurjónssonar,
sem voru í eigu hans, er hann
dó.
Gefandinn er danskur maður,
Gunnar ,R. Hansen, en ekkja
Jóhanns arfleiddi Gunnar að
handritunum.
1 handritasafni þessu eru
frumdrög að öllum leikritum
Jóhanns, ennfremur brot að ó-
prentuðum leikritum og prent-
uð og óprentuð kvæði. Þar eru
ennfremur bréf Jóhanns til konu
hans, sem ekki hafa áður verið
prentuð, vasabækur minnisbæk-
ur, ýmisleg skjöl og plögg svo
sem samningar um útgáfur eða
sýningar á leikritum o. s. frv.
Loks er þar allstórt safn fjöl-
skyldumynda og mynda af hlut-
verkum úr ieikritum Jóhanns,
pennastöngin hans, en hún er
úr hérafæti, blýantsstubbar o.fl j
1 bréfi, dagsettu 13. apríl s. 1.1
segir gefandinn að hann hafij
fyrir löngu ákveðið í erfðaskrá|
sinni að Landsbókasafnið fengi
þetta fyrr eða síðar í hendur,
þvá hann kveðst vera þeirrar
skoðunar, að handrit af íslenzk-
um uppruna eigi hvergi annars-
staðar að vera en á Islandi. Hann '
kveðst hafa verið milli vonar og ^
ótta um afdrif þessara handrita j
meðan á hernámi Danmerkur
stóð því ekki hefði verið hægt að j
segja fyrir um hver afdrif Kaup- j
mannahafnar yrðu. Hefði sig þá
iðrað þéss að vera ekki búinn að
koma handritunum til Islands,
en það væri hér með gert, þrví ef
til ófriðár drægi að nýju, séu
þau betur geymd hér en í Dan-
mörku.
Gefandinn, Gunnar R. Hansen
var mikill vinur Guðm. Kam-
bans og ekkju Jóhanns Sigur-
jónssonar og var henni hjálpleg-
Kveðju koss
til Sigrúnar og Guðinundar Gíslason á Gilsbakka
Við fórum hingað ástarkossi að kveðja
og kanske fyrir litla stund að gleðja
ykkur, kœru eðallyndu hjón.
Að Gimli sigri en Geysir tapi,
gerir oss í þungu skapi,
bygðin okkar bíður við það tjón.
Þið hafið lengi Gils á Bakka búið,
í blómgvar lendur feni og skógi snúið.
Búandans er starf með stríði háð,
állir dagar eiga kvöld um 9Íðir.
Ælfi starfið verkamanninn prýðir,
þið sannarlega sigri hafið náð.
Á Gimli verður gott að búa,
gæfan mun að ykkur snúa.
Þar er gamialt goða ból,
Æsir munu ykkur hylla
með alskyns krásum borðin fylla,
á himni — skín í heiði sól.
Þegar fer að halla að hausti
hugsið þið í fullu trausti
um almættisins einka son.
Þá verður lífið ljúfur draumur
Mkt og friðsæll veizlu glaumur,
ekki bregst hin æðsta von.
F. P. Sigurðson
ur á ýmsa lund. Hann hafði áður
sitt eigið leikhús, Komediesen-
en í Khöfn oig var Kamban leik-
stjóri hjá honum. Seinna hefir
hann haft leikstjórn á hendi við
ýms dönsk leikhús. Hingað til
íslands hefir hann komið í leik-
stjórnarerindum árið 1934 og
setti þá m. a. Jeppa á Fjaili, eftir
Holberg, á svið. Hann talar ís-
lenzku reiprennarndi og er mik-
ill íslendingavinur.
Gjöf Hanisens er höfðingleg og
verður seint fullþökkuð. Er það
okkur mikill fengur, að fá hand-
rit Jóhanns hingað heim, því
eins og gefandinn kemst að orði,
eiga handrit hans, sem önnur ís-
lenzk handrit, hvergi annars-
staðar að vera. —Vísir 14. maá
* * *
Skemmdir hafa orðið á
húsum í Hveragerði
Eins og skýrt var frá í Vísi í
gær, hafa landskjálftar valdið
allmiklu tjóni á mannvirkjum í
Hveragerði. 1 ábúðarhúsinu að
Gufudal hafa allir veggir
sprungið. Þá hafa gróðurhús á
sama stað skemmzt nokkuð.
Tugir nýrra bvera hafa mynd-
ast víðsvegar á hverasvæðinu.
Einn hver hefir t. d. myndazt ó
miðri akbrautinni, sem um þorp-
ið liggur, tveir við húsvegginn
á Reykhólum og á lóðinni kring-
um húsið að Ásgarði. Hveraopin
eru á stærð við tunnubotna og
spýta þeir leir í sífellu. Flutt
var úr tveim húsum, Reykhólum
og Ásgarði. Flutti fólkið úr þeim
sökum þess, að eigi þótti óhætt
að láta það vera þar yfir nótt-
ina. Fékk það inni í skólanum.
í nótt og morgun hafa litlir
kippir fundizt ,en þó hafa menn
orðife varir við hræringar. Eng-
in slys hafa orðið á mönnum í
sambandi við þessar jarðhrær-
ingar, en eitthvað af konum og
börnum mun hafa yfirgefið
þörpið lí gær, aðallega til þess að
geta haft 9vefnfrið næstu nótt.
—Vísir 20. maí
★ ★ •
ísfirðingar ráðgera að kaupa
Helicopterflugvél til
s j úkraf lutninga
1 ársskýrslu Rauðar Kross Is-
lands er blaðinu hefir nýlega
borist, er þess m. a. getið um
starf Rauðakros9deildarinnar í
Isafirði, að mikill áhugi sé rí'kj-
andi þar fyrir því, að kaupa
Helicopterflugvél til sjúkra-
flutninga. Þessar vindmyllu-
flugvélar hafa reynst afbragðs
vel til þeirra hluta erlendis.
Starfsemi Rauða Kross Islands
hefir verið mjög mikil og fjöl-
þætt á sl. ári. Þess er getið um
starfsemi Akureyrardeildar í
skýrslunni, “að deildin hefir
annast sjúkraflutninga eins og
áður, en átt á talsverðum vand-
ræðum vegna þráiátra bilana á
bifreiðum. Hlutur deildarinnar
í fjársöfnun vegna lýsiskaupa
handa börnum i Mið-Evrópu,
var hinn rausnarlegasti, því að
Akureyringar gáfu yfir 40 þús-
und krónur i því skyni. Deildin
nýtur nokkurs styrks frá Akur-
eyrailbæ og Eyjafjarðar'og Þing-
eyjarsýslum, eða samtal's 3400
krónurá sl. ári. — Dagur 14. maí
* * ♦
Hljóðbylgjurnar úr Heklu
á kvikmynd
Á Heklukvikmynd jarðfræð-
inganna kemur fram merkilegt
fyrirbœri,- en það eru hljóm
bylgjur, sem myndast við
sprengingarnar i gígunum. —
Bregður þessum hljómbylgjum
fyrir, sem snöggum leiftrum í
myndinni.
Kafli úr þessari kvikmynd var
sýndur í Tjamarbíó á fimmtu-
dagskvöldið til ágóða fyrir
Rangæingasöfnunina, en síðar
verður myndin fullgerð í Amer-
íku. Er kvikmyndin tekin af
þeim Áma Stefánssyni og Stein-
þóri Sigurðssyni.
—Alþbl. 11. maí
★ ★ ♦
Dæmi um verðlækkunina
Sem dæmi um áhrif hinnar
nýju lækkunar Viðskiptaráðs á
álagningum heildsala og smásala
má nefna tvær tegundir nauð-
synjavara, sem hvert heimili
notar. Síðustu sendingar af
hveiti hefðu samkvæmt gömlu
verðlagsákvæðunum kostað kr.
1.65 kg. í smásölu til neytend-
anna, er lækkar nú um átta aura
eða í kr. 1.57, sem 9varar 5%.
Þannig lækkar útsöluverð á síð-
ustu sendingum af strausykri úr
kr. 2.06 kg. um 10 aura í kr. 1.96
eða sem svarar 5%.
Ekki hefur enniþá verið reikn-
að út, hversu mikið þessi nýju
ákvæði muni lækka vísitöluna.
—Alþbl. 7. maí
★ ★ ★
Mikil gos í Heklu
Mikil gos hafa verið í Heklu
síðan fyrir helgi, og hefir þeim
verið jafnað við fyrstu daga
gossins. Öskufall hefur verið
nokkuð að Næfurholti og í sveit-1
unum þar í kring, og um hríð
var þar vart lesbjart. Nú hefur!
aftur dregið nokkuð úr gosinu. |
—Alþbl. 8. mai
* ★ ★
Gísli Sveinsson sendiherra
Islands í Noregi
Svo sem kunnugt er hefur
sendiherra fslands í Bretlandi
jafnframt verið sendiherra þess
í Noregi, en þar hefir ekkert
sendiráð verið og ekki verið séð
fyrir fyrirsvari landsins á annan
veg. Hefir þessi háttur þótt ó-
fullnægjandi og þessvegna stað-
ið til að setja á stofn sérstakt
sendiráð í Oslo. Utanríkisráðu-
neytið hefur nú ákveðið, að svo
skuli gert frá 1. júlí n. k. og er
ráðið, að Gísli Sveinsson sýslu-
maður verði fyrsti sendiherra
fslands með aðsetri í Noregi.
íslenzkir blaðamenn á al-
þjóðamót blaðamanna
Meðal farþega með leiguflug-
vél Flugfélags fslands, til Prest-
víkur í gær, voru þeir fulltrúar
Blaðamannafélags íslands á al-
þjóðablaðamannamót sem hald-
ið verður í Prag.
Fulltrúarnir eru þeir Emil
Björnsson fréttamaður hjá Rík-
isútvarpinu og Jón Bjarnason,
fréttaritstjóri Þjóðviljans.
Blaðamannamót þetta er hald-
ið að tilhlutan alþjóða blaða-
mannasambandsins og stendur
það yfir frá 1. júní til 10. júní.
—Mbl. 30. maí
* » ★
Emil Nielsen, fyrrverandi
forstjóri Eimskip, látinn
Emil Nielsen, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Eimskip,
lézt í Kaupmannahöfn í fyrra-
dag, 76 ára að aldri. Var hann
framkvæmdastj óri félagsins frá
byrjun og fram í júnií 1930, og
hefur verið í þjónustu þess sem
eftirlitsmaður i Höfn síðan.
Nielsen fór á unga aldri í sigl-
ingar og fór víða, áður en hann
gerðist framlkvæmdastjóri Eim-
skipaifél., við stofnun þess. Hann
átti hér margt vina.
—Alþbl. 20. maí
★ ★ ★
ísland selur fiskimjöl
til Palestínu
1 april-miánuði sáðastliðnum
voru seldar til Palestínu eitt
hundrað smálestir af fiskimjöli.
Er þetta í þriðja sinn, sem siík
vara er flutt út frá íslandi til
Palestínu. Alls voru greiddar
um 104 þúsund krónur fyrir
þessar afurðir. Það var i byrjun
þessa árs er útflutningur á fiski-
mjöli hófst til Palestínu. —Vísir
★ ★ ★
200,000 um 8,700 íbúðir
Húsnæðiseklan er víðar slæm
en hér í Reykjavík. 1 New York
er nú brátt lokið byggingu á
heilu hverfi af nýbyggingum,
sem trygginga félagið Metropwl-
itan Life stendur að. Bárust 200
þúsund umsóknir, en íbúðirnar
eru 8,700 og eru þar meira en
helmingi fleiri um hverja íbúð
en eru um Skúlagötuhúsin hér.
í New York eru ekki aðeins
gamlar herbúðir teknar til í-
búðar fyrir húsnæðislaust fólk,
heldur eru ný braggahverfi reist
fyrir það.
* ★ »
Þrjár konur hengdar
Þrjár konur voru hengdar í
gærmorgun í fangabúðunum í
Rathensburg í Þýzkalandi. Kon-
ur þessar voru við stjóm fanga-
búðanna, meðan nazistar voru
við völd, og reyndust þær sekar
um hinar svivirðilegustu pynt-
ingar á konum, sem voru í fanga
búðunum. Herréttur dæmdi kon-
urnar þrjár til dauða.
Réttarhöldum heldur áfram í
Nurnberg, og munu innan
skamms verða dregnir þar fyrir
rétt nokkrir herforingjar nazista
þar á meðal herforingj ar, sem
voru í Noregi og Finnlandi.
—Alþbl. 3. maí
Hhagborg U
FUEL CO. n
Dial 21 331 Norfl)" 21 331
Forseta liður vel
eftir smáaðgerð
Samfcvæmt símskeyti sem ut-
anníkisráðuneytinu hefir borizt
fiá Jóhanni Sæmundssyni ytfir-
lækni og Viihjálmi Finsen sendi-
herra frambvæmdi prófessor
John Helilström á Karolinska
Sjukhuset í Stockholm þ. 9. þ.
m. minnilháttar aðgerð á forseta
Islands útaf lasleika, sem gerði
vart við sig í desember s.L Tlókst
aðgerðin vel og er forseti hress
og hitalaus og liðan hans óað-
finnanleg. Ráðgert er, að fonsetfi
verði enn nokkra daga á sjúkra-
húsi, en dvelji þvínæst eitthvað
sér til hressingar í Svíþjóð.
—Vísi 15. maí
★ ★ *
Sæmdur orðu frönsku
heiðursfylkingarinnar
Forseti Frakklands hefir ný-
léga sæmt Alexander Jóhannes-
son prófessor riddaraorðu —
tfrönsku heiðurfylkingarinnar,
(Chevalier de la Légion d’Hon-
neur).
Hefir sendiiherra Frakka hér
á landi, M. Henri Volliery atf-
hent prófessorunum heiðurs-
merkið. —Mbl. 14. maí
★ * *
Krónprinsinn tók á móti forseta
Knútur krónprins og Gustav
Rasmussen, utanríkismálaráð-
herra Dana, tóku á móti Sveini
Björnssyni, forseta Islands, er
hann kom til Kastrupflugvallar-
ins í Kaupmannahöfn.
Forsetinn mun búa í konungs-
höllinni Ama'lienborg, meðan
hann dvelst í Kaupmannahöfn.
—Alþbl. 30. apríl
* * ★
Steingr. Arason og frú hans, fyr-
stu heiðursfélagar Sumargjafar
Steingrímur Arason og kona
hans, Sína Arason voru kjörin
heiðursfélagar Barnavinafélags-
ins Sumargjatfar á aða'lfundi fé-
lagsins síðast liðinn föstudag, og
eru þau fyrstu heiðursfélagar
Sumargj af ar.
Steingrímur Arason var einn
af stofnendum Sumargjafar og
var formaður félagsins i 16 ár.
Hefur hann með stuðningi konu
sinnar unnið ómetanlegt braut-
ryðjandastarf í þágu félagsins
og uppéldismála í landinu.
—Alþbl. 22. apríl
Sjónvarpsbylgjum er ékfci
hægt að taka á móti handan við
sjóndeildarhring, sökum þess að
þœr eru svo stuttar, að þær fara
í gegnum öll þrjú lög andrúfs-
loftsins, sem þrungið er rafeind-
um, og endurkastast því ekki til
jarðarinnar, eins og hinar löngu
bylgjur, sem notaðar eru við
önnur lotftbylgjusambönd.
ÁREIÐANLEG
VINGJARNLEG og
ÁBYGGILEG þjónusta
til boða hjá öllum vorum sveita
kornlyftu umboðsmönnum
ff I Slt
FEDERHL GRfllD LIDIITED
HOW YOU WILL
BENEFIT BY READING
the world's doily newspoper—
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR.
You w.ll flnd yourself one of
the best-informed p>ersons in your community on world offoirs when
you read this world-wide daiiy newspoper regulorly, You will goin
fresh, new viewpoints, d fuller, richer understonding of todo/s vltol
news—PLUS help from its excluslve feofures on homemoking, educo-
tion, business, theoter, music, rodio, sports.
Subseribe now to
this speciol "gcf-
ocquainted" offer
—1 monfh for $★
(0. 8. fusds) 1
The Christion Science Publishing Sociefy
One, Norwoy Street, Bosfon 15, Moss., U. S. A.
PB-S
. Enclosed is SI, for which pleose .send me The Christion
I Science Monitor for one month.
Listen to The Christian
Suence Monitot Vie»s th< i
Ne»s ' e«em Thursday 1.
mgnt o»er the American
SroadCd stmg Gompany % ■
Nome___......
Stroet.........
\City...........
Zono...