Heimskringla - 16.02.1949, Blaðsíða 5

Heimskringla - 16.02.1949, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 16. FEBR. 1949 HEIMSKRINGLA 5. SIÐA um vorið. Þá sagði hann strákum, að hann hefði skilið alt sem þeir hefðu sagt um okkur hina um veturinn. Líka er mér sagt, að afkomend- ur Spánverja, sem komu hér fyrir 300 árum eða meira, tali enn spönsku í stórborgunum vestur við hafið, bæði í Los Angeles og San Francisco; eða sjáðu Gyðing- ana, sem hafa verið í 2000 ár út um alla veröld; samt tala þeir allir hebresku. Eg hefi tekið manntal hér fyr- ir stjórnina nokkrum sinnum og allar útlendu þjóðirnar, sem kall- aðar eru, kunnu frá tvö til níu tungumál. Bara Englendingar, frar og Skotar kunnu aðeins eitt, NÝIR 4 MONT ROSA AFAR BERJASÆLIR LÁGVAXNIR Stráberja-runnar Ávextir frá útsæði fyrsta áirð. Runnarnir eru um eitt fet á hæð. Deyja ekki út. Gefa ber snemma sumars til haustfrosta. Berin eru gómsæt líkt og ótamin. Eru bæði fögur að sjá og lostæt. Sóma sér hvar sem er, jafnvel sem húsblóm. Vér þekkjum engar berjarunna betri. Útsæði vort er af skornum skamti svo pantið snemma. (Pakkinn 25í) (3 fyrir 50(í) póstfrítt. ' Vor stóra frœ og út- en sumir Skotar og innfæddir Canadamenn af skozkum ættum kunnu Gaelic. Eg læt hér innaní $10.00 í á- skriftargjald fyrir Heimskringlu. Ef að eg væri eigandi Heims- kringlu mundi eg setja upp verð-1 ið og eg veit að þeir sem geta borgað mundu gera það; hinir sem ekki geta það borga ekki hvort sem er. Þinn einlægur, Helgi Einarsson FJÆR OG NÆR f samsæti Vilhjálmar Stefáns- sonar s.l. mánudag, voru nokkrir utanbæjar gestir. Eftir þessum munum vér: Böðvari Jakobssyni, Guðm. Einarssyni, Gunnari Sæmundssyni, öllum frá Árborg. Sigurði Kaupm., Sigurðssyni fVá Riverton, Dr. K. I. Johnson,1 Barney Egilson borgarstjóri og Fred Bergman — allir frá Gimli. * * * íslendingamótið Eins og auglýst er í þessu blaði, þá verður íslendingamót Fróns haldið á Marlborough Hot- el á þriðjudaginn, 22. febrúar n. k., kl. 8 e. h. Um skemtiskrána hefir þegar verið skrifað í íslenzku blöðun- um og þarf engu þar við að bæta. Hitt er ekki úr vegi að gera grein fyrir því hversvegna hætt var við veitingar á þessari samkomu. Ástæðan fyrir þessu var sú, að veitingar eru nú svo dýrar að inngangur hefði orðið alt of hár fyrir allan almenning ef að mat- Innilegar hamingjuóskir til íslendinga í tilefni af hinu þrítugasta ársþingi Þjóðræknisfélagsins “íslendingar viljum við allir vera’ 18L parbal ÚTFARARSTOFA 843 SHERBROOK STREET WINNIPEG, MAN. Talsímar: 27 324 og 27 325 HOUSEHOLDERS ATTENTION FUEL REQUIREMENTS We have most of the popular brand of fuel in stock such as Drumheller, Foothills, Saskatchewan Lig- nite, Coke, Briquettes and Stoker Coals in any desired mixture. By giVing us your orders a reasonable time in ad- vance you will enable us to serve you better. • We also carry a full line of Builders’ Supplies and Ready-mixed Concrete. CiT«URDYQUPPLYi^«O.Ltd. ^^BUILDERS' SUPPLIES ^/and COAL Corner Sargent and Erin Phone 37 251 — Private Exchange ur hefði átt að fylgja með. Hins- ^ vegar er vandalaust fyrir hverni sem er, að fá sér hressingu í ] kaffisal hótelsins að prógrammi loknu. Vonast er til að þessi breyting mælist vel fyrir. Fjölmennið á íslendingamótið og skemtið ykkur við ræður, söng og dans í skrautsalnum í Marlborough. H. Thorgrímsson, ritari Fróns * * • Helga magra stræti 23, Akureyri, ísland, s 8. febrúar 1949 Hr. ritstjóri: Mig langar mjög mikið til þess að komast í bréfasamband við Vestur-fslendinga á aldur við mig. Mér datt þess vegna í hug að biðja þig að láta birta nafn mitt í “Heimskringlu”. Eg er 15 ára og get skrifað ensku. Eg myndi verða mjög þakklát ef þú vildir gera þetta fyrir mig. Elísabet Kemp * * * Gifting Gefin voru saman af séra Phil- ip M. Pétursson, á prestsheimil- inu s- 1. þriðjudag, 15. febrúar, Guðmundur E. Helgason frá Gimli og Alice Elizabeth Carl- son frá Rabbit Point, Man. Þau voru aðstoðuð af Mr. og Mrs. Sv. H. Holm frá Beausejour. Brúð- guminn er sonur R. Helgasonar og Fríðu Josephson, konu hans á Gimli, en brúðurin er af sænsk- um ættum. * * \ * Dánarfregn Sunnudaginn 6. feb. s. 1. and- aðist að heimili sínu í Edmonton Alberta öldungurinn Jón Jóns- son Péturssonar frá Kolgröf í Skagafirði, 88 ára, fæddur 1860. Þessa merka athafnamanns verð- ur nánar getið síðar. * * * Heiðurssamsæti Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi efnir til samsætis í viðurkenningarskyni við Hon. Thor Thors sendiberra íslands í Canada og Bandaríkjunum og frú Ágústu Thors, á Royal Alex- andra hótelinu á fimmtudaginn þann 24. þ. m. klukkan 6.30 e. h. Aðgöngumiðar kosta $3.00 fyrir hvern einstakling og fást í Björnsson’s Book Store, 702 Sargent Avenue, eða hjá Guð- manni Levy, 685 Sargent Ave., eða með pósti gegn fyrirfram borgun hjá G. L. Johannson, 910 Palmerston Ave., Winnipeg. t * ir Messur í Nýja Islandi 20. febr. — Árborg, ensk messa kl. 2 .e h. 27. febr. — Riverton, ensk messa kl. 2 e. h. N B. A. Bjarnason HITT OG ÞETTA hefur enn getað sannað það, að, “heimsálfa” þessi hafi nokkurn- tíma verið til. Nú ætlar Sykes að fara í fyrir- lestraferð til Bandaríkjanna, í þeiri von að hann safni nógu fé til að hefja “vísindalega” leit að Atlantis. —Mbl. * * « Enskur dýrafræðingur lærir mál apanna Enski dýrafræðingurinn — Stanley Rundel heldur því fram að hann hafi lært mál apanna og geti nú talað við þá. Segir hann að aparnir noti um 200 mismun- andi hljóð, og tákni hvert þeirra sérstakt fyrirbrigði, til dæmis undrun, hungur, þorsta, reiði o. s. frv. Rundel hefur athugað apa í mörgum dýragörðum í Evrópu og segist hann hafa lært mál ap- anna. Ætlar hann nú að tala við apana í dýragarðinum í London og láta taka samræðurnar upp á hljómplötu. —Alþbl. 12. janúar ■» * * Dönsuðu hvíldarlaust í 9 tíma Síðasta sunnudag fyrir jól var haldin keppni í þoldansi í Málm- ey í Svíþjóð. Keppnin hófst kl. 2 og átján pör töku þátt í henni. Haldið var áfram látlaust í 9 klukkustundir, og fékk enginn augnablikshvíld. Níu þátttak- endur voru bornir burt af dans- gólfinu, þar af tveir meðvitund- arlausir, en tuttugu og fimm, sem upp gáfust, voru rólfærir. Einn þátttakenda dansaði í stundar- fjórðung með dömu sína meðvit- undarlausa. —Oftast voru það karlmenirnir, sem gáfust fyrr upp. Sigurvegararnir voru orðnir harla reikulir í spori, er hljóm- sveitin hætti að leika — eftir níu klukkustunda konsert. —Tíminn * * * Svíar smíða ósökkvandi björgunarbáta Skipasmíðastöðin í Marstrand í Svíþjóð hefir nú smíðað 200 “ósökkvanlega” björgunarbáta. Bátar þessir eru hin mestu þing, því að þeir geta ekki sokk- ið og ef þeim hvolfir, réttast þier við á tveim sekúnd- um. Þeir geta borið 28 manns, auk vista og eldsneytis fyrir 10 ha. vél, sem þeir eru búnir. Fyrsti báturinn af þessari gerð var smíðaður árið 1930, en eftirspurn jókst fyrst verulega á stríðsár- unum af skiljanlegum ástæðum. Berast skipasmíðastöðinni nú pantanir frá nær öllum siglinga- þjóðum. —Vísir * * * Níu togarar hafa selt i Bretlandi frá áramótum fyrir um 84 þús. pund. Fyrstu ísfisksölurnar á þessu ári hafa gengið mjög vel og hafa 9 togarar selt afla sinn í Bret- landi frá áramótum fyrir sam- tals 83,916 sterlingspund. Sölu- hæsta skipið var Helgafell, seldi fyrir 13,155 sterlingspund. Auk þess höfðu þrír togarar til við- bótar landað í gær, en ekki voru komnar fregnir af sölu þeirra. —Alþbl. 9. janúar VIÐ KVIÐSLITI Til linunar, bóta og styrktar, reynið nýju umbúðirnar, teyju- lausar. Stál og sprotalausar. — Skrifið: Smith Manfg. Company, Dept. 160, Preston, Ont. Enjoy foot Comfort in shoes correctly - fitted at MACDONALD’S. Our trained, courteous staff can help relieve foot ailments to give you miles of walking pleasure. We carry a com- plete line of corrective shoes for men and women. Visit <r Macdonald SHOE STORE LTD. 492-4 MAIN STREET Just South of the City Hall SMART SHORT HAIR FASHIONS Combined With Amazing New COLD CIIRL • So Loose • So Soft e So Easy to Manage • No Heat • No Ma :hines • Long or Short Hair SPECIAL INCLUDING HAIR i TREATMENT *4. 75 •r fW- Evenings by Appointment WILLA ANDERSON WILL LOOK AFTER YOU. SHE IS EFFICIENT AND ARTISTIC. / True-Art Beauty Saloxt 208 TIME BLDG., 333 Portage Avenue, Corner Hargrave Phone 924 137 Tekur 85 stundir að leika bíblíuna af hljómplötum Biblían er nú komin út í ný- stárlegustu af mörgum nýstárleg- um útgáfum, sem notaðar hafa verið til að koma heilagri ritn- ingu til sem flestra. Ameríska þingbókasafnið í Washington er búið að gefa bíblíuna alla út á plötum fyrir blint fólk. Þetta verk er á 169 plötum, báðum megin á hverri, en þær eru 30 cm að stærð hver. Tekur 85 klst. að leika bíblíuna alla á þennan hátt. Þingbókasafnið hefur gert mikið til þess að veita blindum aðstoð í þessu efni. Síðast liðið ár gaf safnið til dæmis út 225 bækur í 65,000 eintökum á blindraletri. —Alþbl. ★ ★ * Atlantis leitað með radar Egerton Sykes, 53 ára gamall Breti, hefur í hyggju að fara fráj Englandi í ár í leit að Atlantis, j hinni “týndu heimsálfu”. Sykes ætlar að nota radar við leitina. Langt er nú liðið síðan byrjað var að halda því fram, að Atlant- is, sem sagt er að Atlantshaf sé nefnt eftir, hafi verið “vagga menningarinnar.” Plato fer um þetta mörgum orðum, en enginn Heillaóskir til íslenzkra vina vorra í þrjátíu ár samfleytt hafa íslendingar og afkom- endur þeirra hér háð sitt árlega þjóðræknisþing í Manitoba. Þeir mega sannarlega vera hreyknir af landinu sem þeir komu frá, feðratungunni og sögu. Hveitisamleg Canada gleðst vegna þess að svo margir íslendingar eru meðlimir þess. Þeir hafa komið frá því landi sem er frægt fyrir samvinnu- hugmynd um langan aldur, og hefir blessast þeim svo vel. Vor ósk og von er, að þetta þrítugasta ársþing standi engum fyrirrennurum sínum að baki, á einn eða annan hátt. Canadian Cooperative Wheat Producers Ltd. WINNIPEG — CANADA Manitoba Pool Elevators Saskatchewan Cooperative Alberta Wheat Pool Winnipeg * Manitoba Producers Limited Calgary Alberta Regina Saskatchewan >jeoooooooooooooooooooooooooooooooooooooc»socoooaooooooceoccosoosoooeooccooooooc

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.