Heimskringla - 20.07.1949, Blaðsíða 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 20. JÚLÍ 1949
Hjcimskrirtgla
(StofnwO im/
Ksmrn út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24 185
VerB hlaðsins er S3.00 árgangurinn, borgist fyriríram.
Aliar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
The Viking Press Limited, 853 Saxgent Ave., Winnipeg
Rltstjóri STEFAN EINARSSON
Utaná skrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PALSSON
"Heimskringla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185
Aathorized as Second Class Mail—Post Office Dept., Ottawa
WINNIPEG, 20. JÚLf 1949
Horft um öxl til lýðveldisstofnunarinnar
Eftir dr. Richard Beck próf., vara-ræðismann íslendinga í N. Dak.
(Ræða flutt á fslendingadegi að Mountain N. D., 17. júní 1949)
Þessi árlegi þjóðhátíðardagur okkar fslendinga í landi hér er
dagur hugljúfra og margþættra minninga, sér í lagi fyrir okkur, sem
á íslandi erum borin og barnfædd. Við minnumst hins svipmikla
og hrikafagra ættlands okkar á þessum degi, lands hinna miklu
andstæðna, elds og ísa; lands blárra fjalla, grænna dala og hlíða,
blikandi fjallvatna, fjarða og sunda, hrynjandi fossa og hrað-
streyma fljóta, lækja og linda; lands hinna bragandi norðurljósa á
heiðum vetrarkveldum og á sumrum lands hinna björtu nátta, sem
heilla hugann með þeim undramætti, að engum gleymist, sem und-
ir það áhrifavald hefir komist. Þá, einmitt á þessum tíma ársins, er
ísland, eins og skáldið mikla, sem landnemi var á þessum slóðum,
sagði svo fagurlega: “Nóttlaus voraldar veröld, þar semvíðsýnið
skín.” Og eg vil biðja ykkur að ganga með mér í anda inn í töfra-
höll íslenzkrar hásumardýrðar, eins og Örn skáld Arnarson hefir
lýst henni í hinu tilkomumikla og fagra kvæði sínu til Guttorms
J. Guttormssonar skálds og okkar fslendinga vestan hafs í heild
sinni:
"Nú skulum við líta á landið
í ljósflóði sólstöðudags.
Hver æskir sér fríðari fjarða
og fegurra bygðarlags?
Er hvolfþak á snæfjallaháborg
ei hrukku- og blettalaust?
í blámóðu blágrýtishöllin
rís bursthá og veggjatraust.
Það hillir upp eyjar og útnes
sem æskunnar vonadraum.
Það kliðar í laufi og limi.
Það ljómar á tjarnir og straum.
Og særinn er fljótandi silfur
og svellið á tindunum gull,
öll sveitin í titrandi tíbrá,
af töfrum og dásemdum full.”
Þannig er fsland, þegar það
skartar sínum dýrðlega sumar-
skrúða. En það á einnig “annað
gerfi og annað viðmót”, sinn
harða og kalda vetrarham, sem
Örn skáld lýsir einnig eftir-
minnilega í hinu stórbrotna
kvæði sínu, er hann segir: “Það
á frostgljáðan fannkyngju-
skrúða, sem er fagur, en minnir
á lík.” Þannig er okkar svip-
mikla og hrikafagra ættland,
hjartfólgið fæðingarland okkar
margra í þessum hópi, land
hinna stærstu andstæðna, hins
blíða og stríða.
En jafnframt því og við minn-
umst landsins, minnumst við
þjóðarinnar, sem í landinu hef-
ir búið í meir en þúsund ár, háð
þar sína baráttu fyrir lífinu, oft
við hin óblíðustu kjör, en eigi
að síður borið sigur af þeim
hólmi. Það er ættþjóðin okkar
með kostum sínum og göllum;
fram hjá því getum við aldrei
komist, því að enginn getur flú-
ið sjálfan sig, þó að hann ferð-
ist á enda veraldar. Og milli
landsins og þjóðarinnar, sem það
elur á brjóstum sér, er miklu
nánara samband, en margur ger-
ir sér grein fyrir. “Sálin er ná-
skyld þeim jarðvegi, sem hún er
sprottin úr”, sagði hinn virti
maður og ágæti rithöfundur
frændi okkar Norðmanna hér í
landi O. E. Rölvaag, er túlkað
hafði landnemalíf þeirra með
sjaldskyggni, og hann vissi hvað
hann fór. Jón skáld Magnússon
sem eigi síður var vitur maður
og ágætt skáld, hafði hið sama
í huga, er hann sagði í snjöllu
kvæði; “Land og þjóð er orðið
eitt, annars væri hvorugt neitt.”
Þessvegna sagði Stephan G.
Stephansson einnig í sínu fræga
kvæði:“ Þótt þú langförull legð-
ir, sérhvert land undir fót, bera
hugur og hjarta samt þíns heima-
lands mót.” Hann vissi vel hvað
hann söng, sá spaki maður og
mikli landnemi. Grímur Thom-
sen, sem líka var maður djúpvit-
ur og hafði lært að meta ísland
og íslenzka menningu eftir lang-
dvöl erlendis, færði sömu hugs-
unina í dálítið annan búning
málsins, er hann komst svo að
orði: “Innst í þínum eigin barmi,
eins í gleði og eins í harmi, ymur
íslands lag.”
Auðvelt væri að tilgreina
annara slíkra ummæla úr kvæð-
um íslenzkra skálda beggja meg-
in hafsins. Það eitt er víst, að
við fáum eigi minnst íslands,
svo að við minnumst ekki ís-
lenzku þjóðarinnar, svo nánumj
böndum eru landið og þjóðin ^
tengd; og sjálf berum við ættar-
mót landsins, sem ól okkur, eða'
feður okkar og mæður, kynslóðj
eftir kynslóð.
En við minnumst eigi aðeins
fslands og íslenzku þjóðarinnar
á þessum degi. Við minnumst
sögu hennar, og það af alveg sér-
stökum ástæðum. f dag er fimm
ára afmæli hins endurreista ís-
lenzkra lýðveldis, eins og utan-
ríkisráðherra fslands vék að í
hinu fagra og drengilega kveðju-
skeyti ríkisstjórnarinnar til okk-
ar, er eg las í byrjun máls míns.
Og eðlilega vekur fimm ára af-
mæli lýðveldisins upp kærar
minningar í huga mínum, því að
eins og ykkur er öllum kunnugt,
þá var það hið góða hlutskipti
mitt að vera viðstaddur stofnun
lýðveldisins sem fulltrúi ykkar
íanda minna vestan hafs. Og satt
að segja, á eg dálítið erfitt með
að átta mig á því, að fimm ár séu
hliðin síðan eg sat að Lögbergi
vordaginn sigurbjarta, þó regn-
þungur væri hið ytra, þegar alda-
gamla og hjartfólginn frelsis-
draumur hinnar íslenzku þjóðar
rættist að fullu. Mér finnst rétt
eins og þessi söguríki atburð-
ur hefði gerst í gær, svo lifandi
er hann og verður í minningu
okkar, sem bárum gæfu til að
lifa þann dag. Og sannarlega á
það ágætlega við, á þessu fimm
ára afmæli, að rifja upp í megin-
dráttum atburðina í sambandi
við endurreisn hins íslenzka lýð-
veldis.
Enginn, sem ekki var úr steini
gerður, gat verið á íslandi dag-
ana þá, svo að honum hitnaði
eigi um hjartarætur, fyndi það
ekki glöggt, að þakklæti, sigur-
gleði og vongleði fyllti huga
manna og setti svip sinn á þá
vorbjörtu daga, daga djúpstæðra
minninga og stórra framtíðar-
dauma. Það var vor í lofti og vor
í hugum fólksins. Reykjavík
blasir mér við hugarsjónum, fán-
um og blómum prýdd, í sínum
allra fegursta hátíðarskrúða, og
sömu söguna var að segja ann-
arsstaðar á landinu. Hvarvetna
var hinum langþráða degi fagnað
með bæjarprýði og hátíðahöld-
um. Hér var um þjóðhátíð að
ræða í orðsins sönnustu og
dýpstu merkingu.
Fæðingardagur Jóns Sigurðs-
sonar forseta, hins mikla leið-
toga í sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar, hafði að verðugu verið val-
inn stofndagur lýðveldisins. Og
hátíðahöldin þ. 17. júní hófst
einnig um morguninn, eins og
vera bar, með því, að þáver. for-
seti Sameinaðs Alþingis, herra
Gisli Sveinsson sýslumaður, nú
sendiherra fslands í Noregi,
lagði veglegan og fagran blóm-
sveig við fótstallinn á styttu
Jóns Sigurðssonar og'flutti
skörulega ræðu um forystustarf
hans í stjórnfrelsisbaráttunni og
menningarmálum þjóðarinnar.
Var athöfn þessi hin hátíðlegasta
í alla staði, hæfandi byrjun hins
atburðaríka dags.
Víkur nú sögunni til Þing-
valla, og vil eg biðja ykkur að
fylgjast með mér í anda á þann
sérstæða og sögufræga stað, en
þar höfðu safnast saman 25 - 30
þúsundir manns til þess að vera
viðstaddir stofnun lýðveldisins,
eða fimmti hluti þjóðarinnar, og
að sjálfsögðu var athöfninni út-
varpað. Var það mikilfengleg
sjón að horfa af þingpallinum
að Lögbergi yfir haf mann-
fjöldans, Almannagjá fánum
skreytta, með hvíta tjaldborgina
á grænum völlunum í baksýn.
Gjallarhorn fluttu mannfjöldan-
um það, sem fram fór að Lög-
bergi, en björgin tóku undir. Var
sem maður heyrði þar enduróm
frá sál landsins sjálfs á þessari
miklu fagnaðar- og sigurstundu
í sögu þjóðarinnar, eins og eg
hefi orðað það á öðrum stað. En
stuttu áður hafði vþjóðin, með
allsherjar- atkvæðagreiðslu og
yfirgnæfandi meirihluta, sam-
þykkt, að lýðveldi skyldi stofn-
að, og Alþingi, á fundi daginn
áður, endurtekið þá samþykkt
einum rómi, og ákveðið, að stofn-
un lýðveldisins skyldi fram fara
að Lögbergi síðdegis þ. 17. júní.
Og nú var hin stóra stund að
renna upp. Kl. 1.30 setti þáver.
forsætisráðherra, dr. phil. Björn
Þórðarson, hátíðina með gagn-
orðu ávarpi. Við hina áhrifaríku
guðsþjónustu, sem þá fór fram,
flutti biskup íslands dr. Sigur-
geir Sigurðsson, hjartnæma
ræðu og bæn, en Samband ís-
lenzkra karlakóra, undir stjórn
dr. Páls ísólfssonar tónskálds,
annaðist hinn ágæta söng. Lauk
guðsþjónustunni með því, að
sunginn var sálmurinn “Faðir
andanna”. Aldrei hefi eg heyrt
þann andríka lofsöng betur
sunginn, aldrei hefir hann grip-
ið hug minn jafn föstum tökum;
hann hljómaði mér þessa stund
Þetta Nýja Ger
Verkar Eins Fljótt Og Ferskt Ger
Heldur Ferskleika Eins Og Þurt Ger
Nú getið þér fengið fljóthefandi ger án þess að vera hrædd um
skemdir. Hið nýja Fleischmann’s Royal Fast Rising Dry Yeast
heldur sér viku eftir viku án kælingar. Hafið ávalt mánaðar-
forða á búrhillunni.
Notið það nákvæmlega eins og ferskt ger. Einn pakki af þessu
nýja, þurra geri jafngildir einni köku af fersku geri í öllum
forskriftum. Tekur tafarlaust til, er fljóthefandi. Afleiðingar
þess eru lostæt brauð og ágætir brauðsnúðar, á afar stuttum
tíma. Biðjið nú þegar matvörusala yðar um hið nýja Fleisch-
mann’s Royal Fast Rising Dry Yeast.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast!
sem sameiginleg þökk og bæn
frá brjóstum heillar þjóðar, og
syngur mér í hug til daganna
enda.
Og nú var stundin langþráða,
stund frelsisins, sem þjóðina
hafði dreymt um kynslóðum
saman, loksins komin. Kl. 1.55
reis Gísli Sveinsson, forseti
Sameinaðs Alþingis úr sæti sínu
setti þingfund, las upp sam-
þykktir Alþingis frá deginum
áður um stofnun lýðveldisins og
kosningu forseta fslands, og
mælti síðan á þessa leið: “Sam-
kvæmt því, sem nú hefir greint
verið, lýsi eg yfir því, að stjórn-
arskrá lýðveldisins ísland er
gengin í gildi.”
Eg fæ því eigi með orðum lýst,
hvernig sú söguríka yfirlýsing
sló á hjartastrengi mína, og vafa-
laust hefir öðrum í hópi þúsund-
anna, sem viðstaddir voru, verið
eins innan brjósts. Áhrifamikið
var það einnig, er lýðveldisfán-
inn var dreginn við hún að Lög-
bergi, klukknahringingin í Þing-
vallakirkju, og þögnin og stöðv-
un allrar umferðar, sem fylgdi
um stuttrar stundarbil. Og áreið-
anlegt er það, eins og eg hefi
einnig lagt áherzlu á við annað
tækifæri, að þegar þögnin var
rofin með því, að hinn mikli
mannfjöldi söng þjóðsönginn —
“Ó, Guð vors lands”, hafa menn
fundið til þess, að þeir höfðu lif-
að ógleymanlega stund í sögu
þjóðar sinnar — óskastund henn-
ar. Þeir höfðu séð draum kyn-
slóðanna um endurfengið frelsi
rætast að fullu. Lýðveldi hafði
verið endurreist á fslandi. Orð
skáldsins, sem sjálfur hafði
spunnið meginþátt í sigurvinn-
ingu, hurfu mér í hug: ‘Hugsjón-
ir rætast, þá mun aftur morgna’.
Nú var dagur um allt loft, hvað
sem leið rigningunni og þung-
viðrinu.
Þvínæst fór fram kosning for-
seta lýðveldisins, herra Sveins
Björnssonar þáver. ríkisstjóra,
er síðan hefir verið endurkosinn,
enda er hann hinn ágætasti mað-
ur og skipar sinn virðingarsess
með mikilli sæmd. Var hið fyrsta
ávarp hans til þjóðarinnar, er
hann flutti að Lögbergi, íturhug-
uð lögeggjan til sameiningar og
samstarfs.
Annar meginþáttur hátíða-
haldsins að Lögbergi voru kveðj-
ur þær, sem fulltrúar erlendra
ríkja fluttu hinu nýstofnaða lýð-
veldi, og allar lýstu miklum vin-
arhug í garð hinnar íslenzku
þjóðar, virðingu fyrir henni og
afrekum hennar. Voru þær þann-
ig vaxnar, að þær hlutu að glæða
hverjum góðum íslendingi holl-
an metnað í brjósti, láta hann
finna til þess, að hann var kvist-
ur á traustum ættstofni, sem
staðið hafði af sér storma ald-
anna og ekki fúnað í rót.
Síðar um daginn hélt hátíða-
haldið áfram, með fjölbreyttum
skemmtiþáttum og menningar-
legum, niðri á Völlunum við ræt-
ur hinnar fornfrægu Fangbrekku
og var þar, sem áður að Lögbergi
geysimikill mannfjöldi saman
kominn. f viðurvist þess fjöl-
menna mannsafnaðar og í út-
varpið til þjóðarinnar í heild
flutti fulltrúi Vestur-íslendinga
kveðjur þeirra, og þarf ekki að
fjölyrða um það, hve frábærlega
vel þeim var tekið. En á hitt vildi
eg minna, að þar kom eftirminni
lega fram sá djúpstæði ræktar-
hugur, sem íslendingar heima á
ættjörðinni bera í brjósti til okk-
ar landa þeirra hérna megin hafs-
ins. Megum við ekki láta neinar
hjáróma raddir villa okkilr sýn
í þeim efnum.
Hér hefir aðeins verið stiklað
á stærstu steinum. En um hitt
voru allir sammála, að þrátt fyrir
hið óhagstæða veður, stórrign-
ingu mestan hluta dagsins,
höfðu hátíðahöldin við stofnun
lýðveldisins farið ágætlega
fram. Sjálfur þreytist eg aldrei
á að lofa frjálsmannlega og
glæsilega framkomu fólksins
þann dag, enda hefi eg aldrei
verið stoltari af þjóð minni, eins
og eg hefi margsagt í frásögnum
mínum af lýðveldisstofnuninni.
Rigningarveðrinu “sló sannar-
lega ekki inn”, menn voru gripn-
ir of ríkri fagnaðarkennd til þess
að láta slíkt á sig fá. Og víst er
um það, að altaf ljómar vorsins
bjarmi um stofndag lýðveldisins
í minningu okkar, sem áttum því
láni að fagna að vera þar við-
staddir.
Þessi hátíð hér í dag, í tilefni
af endurreisn hins íslenzka lýð-
veldis, getur einnig verið okkur
íslendingum í landi hér kröftug
áminning um það, hve auðug og
lífræn menningarverðmæti við
höfum að erfðum hlotið. Og þá
arfleifð viljum við varðveita sem
lengst og gera frjósamasta í
menningu og þjóðlífi þessa okk-
ar nýja lands, sem við unnum og
eigum þegnskuld að gjalda, land-
inu, sem okkar daglega vinna er
vígð, vöggustöð barna okkar og
þeirra barna. Við höfum aldrei
farið leynt með það, í orði eða
verki, að við erum fyrst og síðast
hérlendir borgarar. Milli þegn-
skyldu okkar annarsvegar og
ræktarsemi okkar við ættlandið
hinsvegar hefir aldrei orðið og
verður aldrei árekstur, en það er
sannfæring margra okkar, að
með því að varðveita og ávaxta
hið bezta og fegursta í hugsjóna
og menningararfinum íslenzka
greiðum við þegnskuld okkar
sém drengilegasta, auðgum mest
hið nýja land okkar.
í einu af allra fegursta ætt-
jarðarkvæðum Bandaríkjanna
kemst skáldið þannig að orði: —
“Fögur ert þú, ættjörð mín, í
draumi föðurlandsvinarins, sem
lítur alabastur-hvítar borgir þín-
ar, óflekkaðar tárum mannanna
barna,'rísa úr djúpi framtíðar-
innar.” Það er hinn mikli og
glæsilegi draumur framtíðarinn-
ar, sem beztu menn og konur
þessa lands bera í • brjósti og
helga viðleitni sína. Það er metn-
aður minn, ósk og vön, að íslend-
ingar hérlendis eigi sinn fulla
þátt í að láta þann draum rætast.
En með þörfu og vel unnu starfi
okkar, á hvaða sviði sem er,
minnumst við íslands fegurst og
bezt. Allt, sem hver maður og
kona af íslenzkum stofni vinna
sér til sæmdar eða frægðar, það
er líka sómi íslands. Lýk eg svo
máli mínu með þessum erindum
úr “íslandsvísum” Hannesar
Hafstein;
“Lifi minning liðins tíma;
langtum meir þó tímans starf!
Lifi og blessist lífsins glíma,
leifi framtíð göfgan arf.
Hverfi ofdrambs heimsku víma,
hefjist magn til alls, sem þarf.
Lifi og blessist lífsins glíma,
lifi og blessist göfugt starf!
Landið blíða, landið stríða,
landið hrauns og straumafalls,
landið elds og hrímgra hlíða,
hjörtum kært til fjalls og dals.
í þér kraftar bundnir bíða
barna þinna, fljóðs og hals.
Hvert þitt býli um byggðir víða
blessi Drottinn, faðir alls.”
Ræða þessi var að miklu leyti
flutt blaðalaust, en birtist hér
að meginmáli.)
SILFURBRÚÐKAUP
í gær áttu hin góðkunnu hjón,
Bergþór E. Johnson og Kristín
R. Johnson tuttugu og fimm ára
giftingarafmæli. Var þess minst
af Sambandssafnaðarfólki í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg í
gærkvöldi með fjölmennu og á-
nægjulegu samsæti. Veizlustjóri
var Hannes Péturson fasteigna-
sali, en ræður fluttu þar auk for-
seta, séra Philip M. Pétursson,
Vilhelm Kristjánsson, séra R.
Marteinsson (bæn), Jochum Ás-
geirsson, frú Anna Pétursson,
frú S. Jakobsson og fleiri. Kvæði
voru og silfurbrúðhjónunum
flutt af dr. Sig. Júl. Jóhanessyni,
Davíð Björnssyni og fleirum í
skeytum og bréfum. Með söng
skemtu frú Elma Gíslason og
Pétur Magnús. Áður en skemti-
skráin hófst, var ágæts “turkey”
kvöldverðar neytt.
Heillaóskaskeyti bárust silfur-
brúðhjónum bæði víða og langt
að.
Samsætið var hið skemtileg-
asta og myndarlegast. Voru allir
einhuga um að sýna silfurbrúð-
hjónunum þakklæti sitt fyrir
þeirra mikla starf í safnaðar-,
þjóðræknis- og öðrum félagsmál-
um og fyrir ágæta viðkynningu
við samferðafólk þeirra. Stundin
var órækur vottur hins mikla og
almenna vinarhugs, er silfurbrúð-
hjónin njóta.
Minjagripir einhverjir voru
silfurbrúðhjónunum afhentir í
samsætinu.
Silfurbrúðhjónin þökkuðu
hvert fyrir sig fyrir gjafir, góð-
hug og gestrisni sýnda þeim með
samsætinu.
Frásögn þessari látum vér