Heimskringla - 24.08.1949, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 24. ÁGÚST 1949
HEIMSKRINGLA
7. SIÐA
KVESJUORÐ VESTUR-
ÍSLENZKU GESTANNA
f gærmorgun ræddu blaða-
menn við vestur-íslenzku heið-
ursgestina að Hótel Borg, til
iþess að fá að vita hvernig þeim
hefði líkað heimsóknin og dvöl-
in hér. En þau eru nú öll á för-
um. Guðmundur Grímsson og
kona hans fara í dag með flugvél
til Kaupmannahafnar, en Vil-
hjálmur og kona hans leggja af
stað vestur um haf á morgun með
Goðafossi.
Öll voru þau innilega ánægð
með veruna hér og báðu fyrir
kveðjur til allra er þau hefðu
kynst. Meðal annars fórust þeim
orð á þessa leið:
Ini. V. Grímsson — Það er
langt síðan að mér fór að þykja
vænt um ísland og íslenzku
þjóðina. Fyrir hugarsjónum mín-
um var hún bókmenta- og menn-
ingarþjóð, kjarkmikil og fram-
sækin. Mér þykir sérstaklega
vænt um að kynni mín af henni
nú hafa staðfest þessa skoðun.
Og gaman þótti mér að ferðast
um landið og sjá hin mörgu og
fallegu bændabýli. Mig hafði
ekki órað fyrir að landbúnaður
væri hér á jafn háu stigi og raun
ber vitni. Eg hlýt að dást að
mörgu í fari ykkar íslendinga,
menningu ykkar og hinni aðdá-
anlegu gestrisni sem mætti
okkur hvarvetna.
Guðmundur Grímsson: — Hér
eru hetjur, ekki síður en í forn-
öld og eg undrast það mest
hverju íslendingar hafa fengið
afkastað á fáum árum. Þá finst
mér það gleðilegt hverri trygð
þeir hafa tekið við landið sitt.
Fólkið flýr ekki héðan. fsland er
líklega eina landið í Norðurálfu
sem ekki sendir jafn marga út-
flytjendur til Bandaríkjanna og
það má. Frá öllum öðrum þjóð-
um vilja fleiri komast þangað en
leyft er. Og af því að “kvóti”
íslendinga stendur þar altaf op-
inn geta íslenzkir námsmenn
fengið þar atvinnu, með því að
telja sig innflytjendur, en það
geta ekki námsmenn annara
þjóða. Nú eru íslendingar sjálf-
ir farnir að flytja inn starfsfólk
— við höfum heyrt hér norsku,
dönsku og þýzku og afgreiðslu-
stúlku hittum við á veitingastað
og hún kunni ekkert annað en
dönsku. Þetta er mikil breyting.
Þannig er allt að breytast. Eg
hefi aðeins séð svip af því, en
langar til að kynnast öllu betur.
En — í stuttu máli — þetta hefir
verið yndislegur tími, og mér
finst eg hafa yngst um 10 ár.
Evelyn Stefánsson — Eftir að
hafa verið hér langar mig til að
kynnast fslandi miklu betur.
Alt, sem eg hefi séð og heyrt
hefir glatt mig. Börnin hér eru
falleg og fjörleg, það spáir góðu
um framtíðina. — Reykjavík
finst mér falleg og þrifaleg borg
og dáist að Austurvelli og fall-
egu blómunum þar. Og hér hefi
eg fengið bestan mat, harðfisk,
hangikjöt, soðinn lax og skyr.
Eg held eg gæti aldrei orðið leið
á skyri. Og eg er viss um að þeg-
ar eg kem heim og fæ rjómaís,
þá mun eg óska þess að hann
væri orðinn að skyri. Fólkið hef-
ir verið framúrskarandi gott við
okkur og hefir ausið yfir okkur
dýrmætum gjöfum, sem við fáum
ekki fullþakkað.
Vilhjálmur Stefánsson: —
Mér verður þessi ferð minnis-
stæð, en minnisstæðust verður
mér þó líklega för mín til Mý-
vatns. Við fórum í 2 stórum bíl-
um og með mér voru 40 ættingj-
ar mínir. Og á eftir sátum við
öll veislu á Svalbarði.
Eg las í amerísku blaði
skömmu áður en eg fór hingað
að í Svíþjóð væri næstmest bóka
útgáfa miðað við fólksfjölda, en
á íslandi mest. Þar skarar ís-
lenzka þjóðin fram úr öðrum og
eg hefi nokkuð kynst því af eig-
in raun. Á fleiri sviðum eru ís-
lendingar líklega á undan öðrum
þjóðum og áriðanlega með notk-
un heita vatnsins. Að tiltölu við
fólksfjölda er rafmagnsnotkun
líklega meiri hér en annarsstað-
ar. Það hefir glatt okkur að
kynnast þessu. Og berið svo rík-
isstjórn, þjóðræknisfélaginu og
þjóðinni allri bestu kveðjur okk-
ar fyrir móttökurnar og bestu
árnaðaróskir okkar--------
Vilhjálmur er sjálfur mikil-
virkur rithöfundur og hefir
skrifað 22 bækur. Að gefnu til-
efni skýrði hann svo frá, að
nokkur eintök af þeim bókum
sínum sem ekki eru uppseldar,
hefði komið hingað nú og væri
hann að rita á þær nafn sitt til
minja um þessa ferð. Mun sjálf-
sagt marga langa til að eignast
þær og eiga til minja um komu
hans hingað. —Mbl. 29. júlí
FRAMKVÆMDIR HAFN-
AR VIÐ STOFNUN NÝ-
BÝLAHVERFIS 1
HORNAFIRÐI
Rætt við Aðalstein Aðalsteins
son, verzlunarm. í Höfn í
Hornafirði
Um þessar mundir er að hefj-
ast í Austur-Skaftafellssýslu
framkvæmdir við nýbýlahverfi í
Þinganesi í Nesjahreppi. Er gert
ráð fyrir að reisa þarna sex ný-
bíli og er vinna hafin við fram-
ræslu landsins. Tíðindamaður
blaðsins átti tal við Aðalstein
Aðalsteinsson, verzlunarmann í
Höfn í Hornafirði fyrir nokkrum
dögum og spurði hann frétta að
austan.
..Hafin vegagerð austur
að Jökulsá
Vina er nú hafin við vega-
gerð austur að Jökulsá í Lóni
og efni var komið í brú a Laxá-
VERZLUNARSKOLANÁM
Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
viðvíkjandi, það margborgar sig.
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG :: MANITOBA
’^s^ficoososseosooessoseðeooðSðooQccsoðOðoososcðccðoe
í listigarðinum
—
Ó sú fegurð allskyns blóma
af öllum litum, hvílík dýrð!
Sólskinsgeislum lauguð ljóma, • 1
í ljóði mínu ei verða skírð,
með söngfuglanna unaðsóma i
engin er hér á sælu rýrð. I
Og líti eg upp um loftsins geima,
leiftra ský þar gul og blá,
þar sem flugskip svifhröð sveima
og silfurvængir þeirra gljá.
Þá fór mig um dýrð að dreyma
og dásemd guðs, sem hér eg sá.
|
Og sál mín lyfti sér til hæða,
sumars-engla vængjum klædd, j
þar sem hvorki er mold né mæða, 5
og mein vors jarðlífs verða grædd,
þar í sölum söngs og kvæða,
að syngja — til þess var hún fædd.
Og þar verða íslenzk skáld að skrifa
á skólatöflur himnaranns;
af þeim væri gott að læra að lifa,
á ljóðaþingi — guðs og manns:
svo himnastigann, eg hlýt að klifa,
með hálfan hleif, til meistarans!
En — jarðneskt farbréf á eg ekki
og ekkert gull, að láta í pant.
En marga dána, þar eg ekki,
ei þeim var hér til gæða vant.
Með von, minn enginn orðstír blekki
við engan hér eg var á kant.
Mín trú og von því verður þessi
að vini eg eigi, þar sem hér,
og himins æðstu englar messi,
í eilífð til að fagna mér.
Og sjálfur drottinn barn sitt blessi
og bjóði mér í vist með sér.
—1. júlí 1949.
í Lóni og verður brúin byggð í
sumar. Eftir er þá að byggja brú
á Jökulsá, en hún er mikill far-
artálmi á þessari leið, þótt bif-
reiðar fari yfir hana þegar hún
er vatnslítil.
í ráði er að reisa nýbýlahverfi
í Þinganesi í Nesjum og eru
fyrstu framkvæmdir að hefjast
þar með framræslu landsins. —
Vinnur þar ein skurðgrafa um
þessar mundir. Er gert ráð fyrir
að þarna komi sex býli. Allmik-
ið er unnið að ræktun í héraðinu
og vinna tvær dráttarvélar þar
núna á vegum ræktunarsam-
bandsins. Garðrækt mun verða í
meðallagi í Hornafirði í sumar.
Seint var sett niður vegna vor-
kuldanna, en vel hefir sprottið
síðan.
Vegur út í Ósland
f fyrra var gerður garður út
í Ósland, sem er eyja við Höfn.
Er gert ráð fyrir að þaðan verði
bílferja út á tangann. Styttir
vegurinn út í Ósland mjög ferju
leiðina. Flugvélarnar setjast á
tangann, en þær eru nú bezta
samgönguibótin fyrir Austur-
Skaftfellinga.
Unnið að dýpkun
f fyrra sumar var unnið að
dýpkun í höfninni í Höfn og
ætlunin er að byggja þar
bryggju á næstunni. Er efnið
komið í hana.
Verið að leggja vatnsleiðslu
Verið er að leggja vatnsleiðslu
í kauptúnið. Er vatnið tekið úr
bonholum og á að fást þaðan
nægilegt vatn í kauptúnið og
verður því dælt í geymi en síðan
sjálfrennandi í húsin. Notazt
hefir verið við brunna í kaup-
túninu til þessa.
Sláttur hafinn
. .Vorið var mjög kalt þar eystra
en tið hefir hins vegar verið
mjög góð síðan brá til batnaðar.
Hefir spretta verið ör og sláttur
um það bil að hefjast á venjuleg-
um tíma.
Vertíðin var mjög léleg á
Hornafirði í vetur, bæði sökum
ógæfta og aflaleysis. Nú stunda
þrír bátar dragnótaveiðar frá
Höfn og hafa aflað fremur illa.
Þórður Kr. Kristjánsson
Einn bátur, Fanney, er farinn á
síldveiðar norður fyrir land. ..
—Tíminn 12. júlí
TIL MR. OG MR. B. J.
HORNFJÖRÐ
í gullbrúðkaupi þeirra
7. ágúst 1949
I.
Það vegur meira en afllaus orð
hvað eigið marga góða vini
gulli perluð búin borð
'brúðhjónum í heiðursskyni.
Ástin lenti ekki í strand
hjá ykkur Palla og Bergur,
hálfrar aldar egta band
æðsti gleði mergur.
Við viljum þakka dáð og dygð
dug sem aldrei þrýtur,
þið hafið ræktað blóm í bygð
iblóm sem fjöldinn nýtur.
Austra ferju ýtt úr vör
altaf Bergur getur,
fimlega þeim fleytir knör
fáir lenda betur.
Ennþá lengi yrkir hann
og hún kaffið hitar,
kringum þeirra risnu rann
rauðir brenna vitar.
Aldrei fjúki öll í skjól
æðsta það sé bónin,
geislum dreifi sigur sól
á silfufhærðu hjónin.
Ef við syngjum öls við skál
engin sönginn metur,
í himnaríki söngvin sál
sungið altaf getur.
n.
Þau laða gesti að góðum rann
gleðin fest á strengi,
þar er hrest og það með sann
þá í bezta gengi.
Þegar æfi sígur sól
sönn er gæfan fengin,
ykkur hæfir himins ból
hörpu æfið strenginn.
Friðrik P. Sigurðsson
VIÐ KVIÐSLITI
Til linunar, bóta og styrktar,
rejmið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Proiessional and Business
— Directory—
Office Phone
94 762
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. SIGURDSON
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Consultations by
Appointment
Talsími 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfræðingur í augna, e>Tna, nets
og kverka sjúkdómum
209 MEDICAL ARTS BLDG.
Stofutimi: 2—5 e. h.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
Phone 926 441
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími 97 538
308 AVENUE Bldg. — Winnipeg
THE WATCH SHOP
CARL K. THORLAKSON
Diamond and Wedding Rings
Agent for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 SARGENT AVE.
WINDATT COAL
CO. LIMITED
Established 1898
506 PARIS BLDG.
Office Phone 927 404
Yard Phone 28 745
H. HALDORSON
BUILDER
23 Music and Arts Studios
Broadway and Cárlton
Phone 93 055
Winnipeg, Canada
CANADIAN FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fish
311 CHAMBERS ST.
Office Phone 26 328
Res. Phone 73 917
ÁSGEIRSON’S PAINTS,
WALL PAPER AND
HARDWARE
698 SARGENT AVENUE
Winnipeg, Man.
Telephone 34 322
The BUSINESS CLINIC
Specialize in aiding the smaller
business man to keep adequate
records and prepare Inoome
Tax Returns.
ANNA LARUSSON
508 Mclntyre Blk. Ph. 97 130
O. K. HANSSON
Plumbing & Heating
CO.LTD.
For Your Comfort and
Convenience,
We can supply an Oil Burner
for Your Home
Phone 72 051 163 Sherbrook St.
PRINCESS
MESSENGER SERVICE
Við flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smærri íbúðum
og húsmuni af óllu tæi.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Sími 25 888
C. A. Johnson, Mgr
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Office 97 932 Res. 202 398
ANDREWS, ANDREWS,
THORVALDSON &
EGGERTSON
Lögfrœðingar
Bank of Nova Scotia Bldg.
Portage og Garry St.
Sími 98 291
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
H. J. PALMASON & Co.
Chartered Accountants
219 McINTYRE BLOCK
*
TELEPHONE 94 981
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave. Ph. 27 989
Fresh Cut Flowers Daily.
Plants in Season
We specialize in Wedding and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um
utfarir. Ailur útbúnaður sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE ST
Phone 27 324 Winnipeg
Union Loan & Investment
COMPANY
Rental, Insurance and Finandal
Agents
Sími 95 061
510 Toronto General Trusts Bldg.
GUNDRY-PYMORE Ltd.
British Quality - Fish Netting
60 Victoria St.. Winnipeg. Man.
Phone 98 211
Manager: T. R. THORVALDBON
Your Patronage Will Be
Appreciated
Halldór Sigurðsson
Contractor & BuUder
•
1156 Dorchester Ave.
Sími 404 945
FINKLEMAN
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
Kensington Bldg.
275 Portage Ave. Winnipeg
PHONE 922 496
DR. CHARLES R. OKE
TANNLÆKNIR
404 Toronto Gen. Trust Bldg.
283 Portage Ave., Winnipeg
•
Phone 94 908
'JORNSON S
LESIÐ HFIMSKRINGLU
/4 I
ÍOOKSTOREI
iÆyj 1
702 Sargent Ave., Winnipeg, Man.