Heimskringla - 02.05.1951, Síða 1
*—--------------------\
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
i---------------
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
LXV ÁRGANGUR
WINNIPBG, MIÐVIKUDAGINN, 2. MAÍ, 1951
NÚMER 31
FRÉTTAYFIRUT OG UMSAGNIR
Páll Jónsson
landnámsmaður að Kjarna í Geysisbygð í Nýja-íslandi
F. 20. ágúst 1848 — D. 13. febrúar 1951
Fölna laufin, falla viðir,
fyrnast menn sem trén í skóg.
Ellin kemur, aflið rénar,
opnast loksins grafar þró.
Eins fékk þennan öðling bugað
elli fyrst og síðan hel.
Sæmdarmann, er sanntrúr nægði
sinni stöðu lengi og vel
Þökk sé föllnum fremdarmanni,
fyrir liðna heiðursdvöl.
Borgmanns kranz úr blöðum grænum
bindið hans að svarti fjöl.
Hver er loksins hrósun meiri
heldur en nytsamt ævistarf?
Því þó duft að dufti verði,
dæmið tökum vér í arf.
Þörfin nú mest
Það er aldrei heppilegri tími
en nú til þess að greiða andvirði
Heimskringlu, sem er ódýrasta
og bezta íslenzka blaðið, eins og
einhver vék að, því auglýsingar
jafnvel áskriftir falla niður að
vorinu. En útgjöldin eru hin
sömu. Bankinn þarf síns punds
með og þannig gengur það.
Við erum stundum að hugsa
um að hækka verð blaðsins, sem
ekki væri ósanngjarnt þar sem
verð á öllu öðru hækkar. Það
getur að því komið að svo verði
að vera en athygli skal að því
dregin, að útistandandi áskrifta-
gjöld, ef skjótt heimtuðust,
gætu tafið það.
Ef þú sem þetta les ert í skuld
við blaðið, vildum við vinsam-
legast mælast til að sú skuld
væri greidd sem fyrst. Þú vinn-
ur Heimskringlu þarft verk með
því. Og þú styður með því, það
sem okkur er hér kærast viðhald
íslenzku.
12 maí
í sambandi við umferðalögin
sem ií framkvæmd koma í Win-
nipeg 12. maí, gerir náungi í
Winnipeg Tribune þessa athuga
semd:
Og bílstjórar voru spurðir að
því, hvort ekki væri alveg rétt
að sekta menn sem skáganga
yfir götu! Það vantar ekki að
farnar séu leiðir lýðræðisins.
En skyldi það vera sama klíkan,
sem þessu á að ráða og sú, sem
kom því til leiðar, að öryggis-
pallarnir voru teknir af Portage
Avenue? Þeir voru burtu tekn-
ir til þess að víkka umferð um
3 fet fyrir bíla. En fyrir það eru
þeir er strætisvagna taka í þris-
var til fjórum sinnum meiri
hættu staddir en áður.
Það virðist ekki með þessu
hugsað um öryggi gangandi lýðs
eða strætisvagna notenda.
Á Higgins Avenue og aðal-l
stræti, er bílaumferð vestur
stöðvuð, svo í þessum þröngva
krók, er oft svo mikil umferð,
að þeir sem af strætisvögnunum
koma, verða að bíða óra tíma eft-
ir að komast yfir götu, sem á
að vera þeim opin leið.
Eg spyr í einlægni, hvort rétt
sé að láta mann, sem gangandi er
og 3 miílur kemst í mesta lagi
á klukkustund, bíða tímum sam-
an eftir þeim, sem fara um 35
miílur á klukkustund?
legg til, að ef það á að
kosta menn sekt, að ganga yfir
götu, að þeir gangandi sitji
heima og lofi bílahöfðingjunum
einum að hafa vegaréttindin.
Skyldi það ekki sannfæra neina
um, að hinir gangandi séu til
einhvers nýtir líka.
Er ástæða til annars?
Bændur í Vestur-Canada eru
yfirleitt þeirrar skoðunar, að
hveitisamningurinn við Bret-
land hafi verið svikinn. Er sann-
ast að segja nokkur ástæða til
þess.
Fyrstu tvö ár samningsins
voru 300 miljón mæla af hveiti
sendir Bretlandi á $1.55 mælir-
inn. Sú sala reyndist einum
dollar lægri, en á heimsmark-
aðinnum.
Árið 1948 og 1949 var verðið
sett $2.00. En jáfnvel það var
laegra en verðið á heimsmark-
aðinum.
Á sölunni 1946 — 1947, var
búist við uppbót á árunum 1948
og 1949. En hún kom aldrei. Það
bættist meira að segja við hana
þessi tvö siðastnefndu ár.
Með þessu háttalagi, sem lib-
eralstjórnin ber fulla ábyrgð á,
hafa bændur í Vestur- Canada
tapað hundruðum miljóna dala.
Þetta er engin kostur að
dylja hvað mikið sem til þess
er reynt. Þegar þeir Howe, Gard
iner og Garson telja bændum hér
trú um að þeir hafi aldrei feng-
ið meira fyrir hveiti sitt, en nú,
gleyma þeir heimsmarkaðsverð-
inu með öllu, eða vilja ekki
muna það. Að skáka í Iþví skjóli,
að verð sé nú hátt er heldur ekki
til neins, því háverð er á öllum
hlutum og kaupgeta peninga,
sem bændur nú fá fyrir hveiti
sitt, er lægri, en hún hefir nokkru
sinni verið.
Grænland og Bandaríkin
í síðasta stríði höfðu Banda-
ríkin hergæzlu á Grænlandi
með höndum. En að stríðinu
loknu fór her þeirra þaðan, eins
og til stóð.
Nú stendur lítið betur á með
Grænland en þá gerði. Hefir því
um skeið staðið í samninga-
smíði milli Danmerkur og Band-
aríkjanna um nýja vernd á
Grsdhlandi, ef til hins versta
komi aftur.
Danir eru nú ií félagi með
Norður-Atlanríiafs þjóðunum.
En að því er Grænland snertir,
þurfa þeir hinnar sömu aðstoðar
við og áður frá Bandaríkjunum.
Hefir sendiherra Bandaríkj-
anna á Kaupmannahöfn, Mrs.
Eugenie Anderson frá Minne-
sota átt mestan þátt í samnings-
gerð um þetta, af hálfu Banda-
ríkjanna.
Er nú nýjum samningum þar
komið, að Bandarkin takast á
hendur að hafa þar radar- og
veðurstöðvar, not hafna, eitt-
hvað af mönnum og ef til vill
liði.
tJR ÖLLUM ÁTTUM
Bæjarstjórnin í Winnipeg til-
kynti á þessum vetri, að klukk-
unni yrði flýtt um eina stund,
sunnudaginn 30. apríl og vænti
þess, að borgararnir höguðu sér
eftir þvtí. Lögmál þetta muriu
flestir hafa haldið. Þó var það
eitt sigurverk, sem var á eftir
öllum öðrum klukkum bæjarins
á mánudagsmorgun, er borgar-
arnir héldu til vinnu sinnar, það
var iklukkan í turni bæjarráðs-
hallarinnar í Winnipeg. Það
hafði gleymst að flýta henni.
*
í ræðu sem W. Kossar, forseti
þjóðræknisfélags Ukraina í
Winnipeg og bæjarráðsmaður,
hélt á háfcíð félags síns nýlega,
lagði hann til að Jacob Penner
bæjarráðsmanni, væri ibönnuð
landvist ií Canada, þegar hann
kæmi til baka úr Rússa för sinni
og öðrum er með honum fóru.
Kossar sagði Penner svo heillað-
ann af kommúnistafyrirkomulag
inu, að það væri sjálfsagt að
hann nyti góðs af að búa við það
um stundarsakir.
★
í gær var sú breyting á eftir-
liti á leigu húsa í Manitobafylki
að fylkisstjórnin hefir það með
höndum í stað Sambandsstjórn-
ar. Á leigulögum Sambandsstj.,
verður þó engin breyting, nema
ef vera skildi sú, að þeir sem
ekki hækkuðu leigu í desember
1949 um 18 til 22 %, geta nú
hækkað hana, ef þeim sýnist.
Frá Tókíó bárust fréttir s.l.
mánudag um að Glochestershire
herdeildin brezka í Koreu hefði
verið strádrepin í bardögum
norður af Seoul undanfarna
daga. í deildinni voru um 1000
manns. Um 100 komust undan
eða bjargaðist.
Er sagt að kommúnistar hafi
þar haft 16 á móti hverjum ein-
um ;í Glochestershire deildinni.
★
Rússar leggja nú mikið kapp
á að halda því fram, að þeir hafi
verið á undan öðrum þjóðum á
öllum sviðum. í tilefni af því
hefir þessi saga komist á kreik:
Adam gekk um í Eden og var
að tala við sjálfan sig:
—Eg er fyrsti maðurinn á
jörðinni, engan mann verður
talað um í framtíðinni . . .
Adam .komst ekki lengra því
að hann heyrði þrusk fyrir aft-
an sig og gamall maður kom
fram úr skógarþykkninu.
—Hver ert þú, spurði Adam.
—Eg er Rússi, svaraði gamli
maðurinn.
FRÁ ÍSLANDI
Þýzkt-íslenzkt fyrirtæki stofn-
að hér með 10 milj. hlutafé?
Dagur á Akureyri hefur það
eftir þýzika blaðinu Der Kurier,
að stofnað hafi verið í Reykja-
vík þýzkt-tíslenzkt fyrirtæki, er
nefnist Vulcan h.f., og sé til-
gangur þess að vinna alumin-
íum, járn og önnur verðmæt efni
í sambandi við sementsvinnslu
hér á landi. Sé hlutafé fyrritæk-
isins hvorki meira né minna en
10 milljónir króna.
Þá er frá því skýrt, að iðnað-
ur Vestur-Berlínar muni af-
greiða vélar til fyrirtækisins, og
enn fremur Zentralbankinn í(
Berlín sé fyrirtækinu hlið holl-
ur, svo og utanrjíkísviðskifta-
deild borgarstjórnarinnar og við
komandi ráðuneyti í þýzku sam-
bandsstjórninni.
Þetta munu fyrstu upplýsing-
arnar, sem hingað berast um
þetta milljóna fyrirtæki, því
ekki hefur enn verið opinber-
lega skýrt frá því, að Vulcan h.f.
hafi verið stofnað né hverjir
standi fyrir því. ,
—Al-þbl. 29. marz
*
Séra Kristinn Stef-
ánsson fimmtugur
Séra Kristinn Stefánsson
fríkirkjuprestur og stórtemplari
í Stórustúku íslands af I.O.G.T.
er orðinn fimmtugur.
Séra Kristinn er fæddur á
Brúnastöðum í Fljótum. Hann
lauk guðfræðinámi 1928, var síð-
an við framhaldsnám í fræði-
grein sinni um skeið í Þýzika-
landi. Árið 1931 tók hann við
skólastjórn í Reykholtsskóla og
gegndi því starfi um árabil.
Er séra Kristinn var í mennta
skólanum, gerðist hann félagi í
góðtemplarareglunni. Það var
árið 1924, og síðan hefur hann
æfcíð verið óhvikull þar í sveit
og einhuga og ótrauður starfs-
maður bindindismálsins. Síðan
1941 hefur hann gegnt embætti
stórtemplars og hefur setið leng
ur í því embætti samfleytt en
nokkur annar maður hérlendis,
og má af því marka traust það,
er félagar hans innan góðtempl-
arareglunnar bera til starfs-
hæfni hans, enda er séra Krist-
inn Stefánsson allt í senn góð-
viljaður, einlægur og sannur fé-
lagsbróðir og forustumaður.
Séra Kristinn er kvæntur
Dagbjörtu Jónsdóttur, hinni á-
gætustu konu.
—Alþbl. 22. nóv.
Skipastóll landsins í árslok ’50
Við árslok sl. árs áttu íslend-
ingar 664 skip og báta, sem færð
eru á skipaskrá. Eru 110 þeirra
undir 12 smálestum, en 130 yfir
100 smálestir. 629 eru fiskiskip,
þar af 312 undir 30 lestum, en
48 botnvörpuskip. 17 eru vöru-
flutningsskip og 6 farþegaskip.
Brúttólestatala alls skipaflot-
ans er samtals 91,320 lestir og
hefir hún hækkað um 518 lestir
frá árinu 1949.
Hins vegar hefir skipunum
fækkað um 29. 33 voru á síðasta
ári skrikuð af skipaskrá (13
strönduðu eða fórust, 12 voru
talin ónýt, 6 seld úr landi og 2
breytt í skemmtibáta), en 4 skip
hafa hætzt við, er eitt þeirra
fiskiskip undir 100 lestum en
hin eru Gullfoss, María Júlía og
iínuveiðarinn Jón Steingrims-
son. —ísl. 29. marz
FJÆR OG NÆR
Frú Ingiríður Jónsson 774
Victor St. ekkja Dr. B. B. Jóns-
sonar fyrrum prests lúterska-
safnaðar, lézt að heimili sínu á
fimtudaginn þ. 27 apríl s.l. Út-
för hennar fór fram frá Fyrstu
lút. kirkju að viðstöddu afar-
miklu fjölmenni á mánudaginn.
Séra V. J. Eylands jarðsöng.
Hún var ættuð úr Hraunhreppi
í Mýrasýslu.
* * *
Þakkarorð
Við þökkum hjartanlega öll-
um, sem að sýndu okkur hlut-
tekningu við fráfall elskaðs eig-
inmanns og föður, Tómasar
Benjaminssonar, við þökkum
séra Eyjólfi J. Melan, söngstj.,
söngflokki og líkmönnum, og
þeim öllum, sem viðstaddir voru
útförina.
Með endurteknu þakklæti
Soffía Benjamínsson
og börn
* * *
Séra Harold Sigmar messar
6. maí, á — Betel kl. 9.30 a.m.;
Húsavík kl. 2 e. h.; Arnes kl. 3
e. h.; Gimli kl. 7 e. h.
Á öllum þessum stöðum er
Daylight Saving tími nema í Ár-
nesi.
* * *
The Women’s Association of
the First Lutheran church will
hold their next meeting on Tue.
May 8, at 2.30 p.m. in the lower
auditorium of the church. This
is the last meeting of the season
and a dessert luncheon has been
arranged.
Þá er hann nú genginn grafar-
veg þessi aldurhnigni landnáms-
maður og ættfaðir. Hann andað-
ist að heimili Thorgríms sonar
sáns og Guðrúnar tengdadóttur
sinnar við Árborg, þriðjud. 13.
febrúar, þa, hundrað og tveggja
ára, fimm mánaða og tuttugu og
fjögra daga að aldri. Hjá þessum
syni sínum og tengdadóttur
hafði hann átt dvöl síðustu þrjú
æviárin.
Páll var fæddur að Álfgeirs-
völlum 1 Skagafjarðarsýslu, 20.
ágúst 1849, sonur Jóns bónda
Pálssonar og Margrétar konu
hans Halldórsdóttur, ólst hann
upp með þeim að Viðvatni í
Skagafjargarsýslu, en þar
bjuggu þau lengi; var Páll
yngstur barna þeirra. Systkini
hans voru: Halldór, um langt
skeið bóndi að Halldórsstöðum
við Rivefton; Thorgrímur,
bóndi að Akri, við Riverton;
Jón, er lifði og dó á íslandi;
Mrs. Engilráð Sigurður, Gimli,
Man.; og Mrs. Þofbjörg Stef-
ánsson, Blaine, Wash., öll látin.
Þann 1. okt. 1878 kvæntist
Páll Sigríði Lárusdóttur frá
Steinsstöðum í Skagafjarðar-
sýslu, var hún af Kjarna-ætt í
Eyjafjarðarsýslu. Þau voru gef-
in saman í Mællifellskirkju af
séra Jóni Hallssyni. Næstu fimm
árin bjuggu þau á íslandi, síð-
ast á Hallgrímsstöðum í sömu
sýslu.
Þau fluttu vestur um haf
1883; fyrstu árin dvöldu þau við
íslendingafljót, (Riverton), en
fluttu' til Geysis-bygðar og
námu þar land 1885, og nenfdu
landnám sitt Kjarna. Þar bjuggu
þau í meira en 50 ár; síðustu ár-
in ásamt Vilhelm syni sínum. Er
þau létu af búskap dvöldu þau
meðal barna sinna; fyrst á vetr-
um í Selkirk, hjá dóttur sinni og
tengdasyni, Mr. og Mrs. Sigurði
Indriðasyni, og síðar hjá þeim
(Steingr. Thorsteinsson)
að öllu leyti í nokkur ár. En síð-
ustu æviárin voru þau hjá Lár-
usi og Thorgrími sonum sínum,
bændum í grennd við Árborg.
Á heimili Lárusar lézt Sigríður
13. apríl 1946. Eftir lát konu
sinnar dvaldi Páll á heimili
Thorgríms sonar síns og þar
andaðist hann þriðjudaginn 13.
f ebrúar.
í síðari tíð höfðu kraftar hans
fjarað út á eðlilegan hátt, mátti
hann þó vart þjáður kallast.
Sjón augna hans fór smáþverr-
andi, varð hann að lokum al-
blindur, en heyrn hans ávalt
góð..x
Það sem gerði Kjarna-hjónun-
um báðum ellina inndæla, var
hin ágæta umönnun, er þau nutu
af hálfu eiginbarna og tengda-
fólks síns. Þannig naut hinn há-
aldraði maður ágætrar aðhjúkr-
unar og umönnunar á heimili
Thorgrims sonar síns, Guðrúnar
konu hans og Sigríðar dóttur
þeirra, er heima dvelur.
Fyrir hönd nánustu aðstand-
enda hins látna, túlka eg þeim
alúðar þakkir fyrir frábæra um-
önnun og kærleika þeirra hin-
um látna til handa. Börn Páls
og Sigríðar eru hér talin:
Guðrún, dó barri að aldri;
Thorgrímur, bóndi við Árborg,
kvæntur Guðrúnu Helgadóttúr
Jakobssonar; Jón, er dó full-
vaxta hér í landi; Guðrún Sig-
ríður, ekkja Sigurðar Indriða-
sonar í Selkirk; Pálmi, er dó
barn að aldri; Lárus, bóndi við
Árborg, kvæntur Elínu Ólafs-
dóttur Ólafssonar; Vilhelm.
bóndi á Kjarna, kvæntur Ástu
Jósefsdóttur Schram. Barna-
börnin eru 23 og barnabarna-
börnin 8.
Við lát Páls má fullyrða að
fögur og affarasæl ævi manns
er að ósi eilífðar fram runnin.
Maður er nú þess meðvitandi að
Frh. á 2. bls.
FUNDUR
Stjórnarnefnd Viking Press félagsins heldur fund
næstkomandi mánudag, 7. maí, á skrifstofu félagsins, kl.
4 e. h.
Ó. Pétursson, forstjóri