Heimskringla - 26.12.1951, Blaðsíða 6
6. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 26. DES., 1951
WESTON’S brauðgerðin óskar öllun
skiftavinum sínum og íslendingum sér
staklega
á hátíðinni sem fer í hönd. Vér minnumst
um leið með ánægju og þakklæti viðskifta
I
þeirra á árinu og æskjum áframhalds
þeirra.
666-676 ELGIN AVE,
PHONE 23 881
Every Christmas Gift
purchased at H.l
will be wrapped in
H.R/s Blue-and-Silver
Christmas Glitter
tuíthout extra charge
HOLT RENFREW
TIL VINA OG VIÐSKIFTAMANNA
VAN’S ELECTRIC
636 Sargent Ave. .. Phone 721 453 .. Winnipeg, Man
LIMITED
Löggilt 11. apríl 1909
Taka á móti korni, senda korn og flytja út
Umboðsmaður—Gimli, Man
B. R. McGibbon
Aðalskrifstofa
STOFNSETTUR 1871
A Complete Banking Service
Vér tökum þetta tækifæri til að þakka
okkar mörgu viðskiftavinum viðskiftin
á árinu 1951 og óskum þeim og öllum
íslendingum Gleðilegra Jóla og
Farsæls Komandi Árs.
Cor. William and Albert
Telephone 935 441
GUNNAR HJARTARSON
1891 — 1951
“Skjótt hefir sól brugðið
sumri”, þessi fyrsta hending úr
erfiljóði Jónasar Hallgrímsson-
ar eftir jBjarna Thorarensen,
flaug mér í hug þegar eg frétti
um hið sviplega fráfall vinar
míns, Gunnars Hjartarsonar
hinn 29. ágúst síðastliðinn. Með
honum er horfinn úr hópi Vest-
ur-íslendinga, maður sem var
þeim og þjóð sinni yfirleitt, til
sóma, hvar sem hann fór.
Gunnar var fæddur að Flauta-
felli, í Þistilfyrði, Norður-Þing-
eyjarsýslu, 2. janúar, 1891. Hann
var því liðlega sextugur þegar
hann dó. Foreldrar hans voru:
Hjörtur, hreppstjóri, Þorkels-
son bóndi á Flautafelli, og síðar
á Ytra álandi, í sömu sveit, og
kona hans Ingunn Jónsdóttir.
Hjörtur og Ingunn eignuðust 9
börn, 7 drengi og 2 stúlkur. Hver
aldursröð þeirra ér veit eg ekki;
en nöfn þe-irra eru þessi: —
Björn, dáinn fyrir nokkrum ár-
um; Ólafur, einnig dáinn; Hall-
ur, dó ungur; Hermann, dáinn;
Gunnar, dáinn 29. ágúst, eins og
fyr segir. Tveir bræðranna eru
enn á lífi: Tryggvi og Einar,
báðir bændur á Langanesströnd-
um. Systurnar eru báðar á lífi.
Guðbjörg er gift séra Jakobi Ein
arssyni á Hofi í Vopnafirði, en
Halldóra er gift Jóni Jónssyni
bónda í Borgarfirði, syðra. Auk
þessara barna ólu þau hjónin
upp Guðbjörgu Jónsdóttir, nú
Mrs. Anderson í Winnipeg. -
Þegar eg nú rita nöfn þessara
systkina, kemst eg ekki hjá því
að minnast hins eina þeirra, fyr-
ir utan Gunnar heitinn, sem eg
Útibú
MONTREAL TORONTO REGINA
CALGARY
80 sveitakornhlöður
Endastöðvar í Calgary og Port Arthur
‘Gamalt félag, sem orð hefir á sér fyrir
ábyggilég viðskifti”
hafði nokkur persónuleg kynni
af. En það var séra Hermann,
um eitt skeið prestur á Skútu-
stöðum við Mývatn. Árið 1935
vorum við Hannes bróðir minn
og séra Friðrik Friðriksson,
prófastur í Húsavík, gestir hans
á Skútustöðum. Kyntist eg þá
að nokkru risnu hans, höfðing-
ckap og gáfum, er gjörðu heim-
I sóknina til hans minnisstæða.
En' því á þetta atvik hér heima,
lö þegar eg kyntist Gunari
bróður hans skömmu síðar, var
mér vandalaust að þekkja ættar-
mótið.
*
Sumarið 1911 flytur Gunnar
vestur um haf til Canada. En
ekki hefir hann staðnæmst þar
lengi, því næsta ár nemur hann
land í Montana, í Bandaríkjun-
um í grend við þorpið Ethridge.
Hinn 15/ desember, 1916, giftist
hann eftirlifandi konu sinni,
Rósu Maríu Steinþórsdóttur,
Gunnlaugssonar og byrjuðu þau
þá þegar búskap á landnáms-
jörð hans. Mörg fyrstu árin í
Montana voru erfið, sökum
þurka og þarafleiðandi uppskeru
brests. Fluttu þá margir ná-
grannar þeirra burt af þeim or-
sökum, en þau Gunnar sátu kyr
og biðu betra árferðis. En stað-
festa þeirra og þrautseyja hefir
borið þeim góðan ávöxt, og voru
þau kominn í mjög góð efni þeg-
ar örlögin kölluðu Gunnar til
hvíldar. Föður sinn lifa 3 mjög
efnilegir synir, allir yfir 6 fet á
hæð og allir góðir drengir og
manndómsmenn. Eru þeir eftir
aldursröð: Garðar, hann var í
sjóher Bandaríkjanna í síðasta
stríði og var sendur til íslands,
með því liði er þangað fór. Not-
aði hann vel tímann á ættjörð-
inni, því hann hertók hjarta
einnar Reykjavíkur stúlknanna,
Sigríðar að nafni, og giftist
henni. Eiga þau nú 3 littlar
stúlkur; Steinþór, giftur Amer-
ískri konu. Þau eiga einn dreng;
Hjörtur, giftur Amerískri konu.
Steinþór og Hjörtur voru einn-
ig í Bandaríkjahernum, en ekki
er mér kunnugt um í hverri deild
þeir voru, eða stöðu þeirra.
Nokkur síðustu árin hafa þeir
Garðar og Hjörtur átt félagsbú
með föður sínum, en Steinþór
býr sér, nálægt Cutbank, skamt
frá bræðrum sínum. Til marks
um það að þeir feðgar hafa fært
út kvíarnar má geta þess, að á
þessu síðastliðna sumri, tóku
þeir uppskeru af nærri 1000 ekr-
um af korni, að líkindum mest
hveiti.
Gunnar hafði notið talsverðrar
mentunar á íslandi og naut þess
vegna betur ágætra gáfna. Enda
varð hann brátt forystumaður
ýmsra nytsamlegra framkv. í
sveit sinni hér vestra. Var hann
formaður Toole County Draft
Board, meðlimur í Benevolentl
and Protective Order of Elks,
No. 1632 of Cut Bank, o.fl.
Þegar verið var að byggja
Elliheimilið “Stafholt” í Blaine
gaf hanntil þess fyrirtækis
$1,000.
Hann hafði ráðgert að heim-
sækja ættjörð sína frændur og
vini þar á komandi sumri. En
órlögin bundu skjótan enda á
það áform hans. Hann veiktist
um kl. 4 e.h. hinn 29. ágúst. —
Læknir var þegar kallaður og lét
hann flytja Gunnar tafarlaust á
sjúkrahús í Cut Bank. Þar and-
aðist hann kl. 10 um kvöldið.
Laugardaginn, hin l.sept. var
bann jarðsunginn frá lútersku
kirkjunni í Shelby, að yiðstöddu
fjölmenni.
Gunnar var einn þeirra manna
sem maður telur sér gróða að
hafa kynnst. Hann var hinn á-
sjálegasti að vallarsýn og í svip
hans lýsti sér sú festa í skap-
gerð, sem vakti manni traust til
hans, jafnvel við fyrstu sýn.
Framkoma hans öll var hin prúð-
mannlegasta ofy þó hann héldi
fast fram skoðunum sínum, þeg-
ar um skoðanamun var að ræða,
gjörði hann það með kurteisi og
skynsamlegum rökum, en aldrei
með ofstopa eða staðlausum stað
hæfingum. Hann var verulegur
höfðingi í lund og kom það með-
al annars fram við gesti sem að
garði bar. Voru þau hjónin sam-
hent í slíku og átti kona hann
sinn fulla skerf í því hve gestum
var þar gott að koma sem
þau réðu húsum. Hann skilur
eftir ljúfar og fagrar minningar,
ekki aðeins í klökkum hjörtum
konu og barna, heldur einnig
allra þeirra er þektu hann. Og
sveitin hans saknar ötuls, hag-
sýns og góðviljaðs forystu-
manns.
Grátperlur glóa
á gröf þinni vinur.
Frjófga þær foldu.
Unz fögur blóm
rísa naót röðli.
Er rökkrið dvín.
Ætt þinni og ekkju
opnast þá heimur,
Ljúfra minninga,
er lífið veitti.
Færir þeim fró
og frið í sál.
Hann er ei horfinn,
sem harmið þið látinn,
því augum ástar,
er ekkert hulið.
— Far nú sæll vinur,
í föðurskaut.
A. E. K.
EINBÚINN í ATLANTS-
HAFINU
Mikið úrval af íslenzkum jóla-
kortum, með fallegum jólavísum,
15 cent hvert. Fást nú í Björns-
son’s Book Store, 702 Sargent
Ave., Winnipeg, Man.
WINNIPEG BRANCHES:
Main Office—Main Street and McDermot Avenue
Broadway Avenue and Donald Street
Main Street and Redwood Avenue
North-End Branch—Main St. near C.P.R. Station
Notre Dame Avenue and Sherbrook Street
Portage Avenue and Kennedy Street
Portage Avenue and Sherbrook Street
Union Stockyards, St. Boniface ,
Also at: Selkirk, Man., — Teulon, Man.
í Noregi hefur verið starfandi
í nokkur ár félag, sem nefnist
Norsk-Isandsk samband, og þarf
r.afnið ekki skýringar við.
Félagið hefur nýlega gefið út
bók um ísland, á vegum bóka-
forlagsins Gröndahl and Sons í
Oslo. Bók þessi er eftir kunnan
lögmann, Sven Brun að nafni og
nefnist Eneboeren í Atlanter-
havet, Smaa Islands besög.
Þetta er um margt sérstæð
bók, sem eigi má liggja þannig
hjá garði, að hennar sé ekki get-
ið hér á landi.
Að frágangi öllum er bókin,
sem er 220 bls. óvenjulega vönd-
uð og smekkleg, prentuð á á-
gætan myndapappír svo að hinar
mörgu myndir njóta sín prýði-
lega. Þetta er yfirborðið, en svo
er efnið.
í formála bókarinnar, sem er
ritaður í apríl 1949, segist höf-
undurinn hafa komið tvívegis til
Islands, 1937 og 1939, og að bók-
in eigi rót sína að rekja til áhrifa
og minninga frá þessum ferðum.
Þetta er engin venjuleg ferða-
saga, þó efnið sé að nokkru
skipulagt með tilliti til ferða
höfundarins. Aðeins einn kafli:
Ferðin til Öræfa, er með ferða-
sögu sniði, en til Öræfa fór höf-
undurinn 1939 með Ragnar Ás-
geirsson sem fylgdarmann.
Bókin skiptist í þessa kafla:
Einbúinn í Atlantshafi.
Frá Björgvin til Vestmanna-
eyja.
Frá Vestmannaeyjum til R*.-
víkur.
Reykholt.
Borg.
Frá Skallagrími bónda til
yorra daga.
Breiðifjörður.
Vestfirðir.
Horn.
Norðurland.
Reykjavík.
Þingvellir.
Ferðin til Öræfa.
íslendingar og Norðmenn.
Þó að bók þessi sé ekki ferða-