Heimskringla - 23.07.1952, Síða 1

Heimskringla - 23.07.1952, Síða 1
AT ALL LEADING GROCERS Super-Quality “BUTTER-NUT” BREAD “Tops in Quality & Taste” CANADA BREAD -look for the BrigHt Red Wrapper AT ALL LEADING GROCERS Super-Quality “BUTTER-NUT” BREAD “Tops in Quality & Taste” CANADA BREAD -look lor the Bright Red Wrapper LXVI ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN , 23. JÚLÍ, 1952 NÚMER 43. FRETTAYFIRLIT OG UMSAGNIR DUPLESSISSTJÓRNIN i ENDURKOSIN í kosingum sem fóru fram í Quebec-fylki s.l. miðvikudag, vann nationalistarstjóm Dupless is með yfirgnæfandi meirihluta. Stjórn hans hefir nú 68 þing- rnenn af 92 alls. Liberalar náðu í 23 þingmenn og þykjast góðir af því! Á það -ber þó að líta að þeir höfðu aðeins 8 áður. Þetta eru þriðju kosningarnar i röð sem Duplessis forsætisráð- herra vinnur. Nokkur gauragangur var kosn ingunum samfara. Á ýmsum stöð um skiftust kjósendur á skotum. Varð að kalla her til að skakka þann leik. Slys hlutust ekki af þessu. Ef kjósendur gertgu til verks í sambands kosningum eins og þeir gera í fylkiskosningum, hefðum við nú betri stjórn í Ot- tawa. FRÁ OTTAWA Síðasta starf þingsins í Ot- tawa, sem nýlega var slitið, var að heyja deilu um kjördæmi. Drews, leiðtoga íhaldsflokks- ins, sem liberalstjórnin ákvað að leggja niður, með nýju kjör- dæmaskipuninni. Var upp aftur og aftur bent á að ekkert í sög- unni minti á annan eins klíku- skap og fram hefði komið við þessa kjördæma endurskipun hjá St. Laurent-stjórninni, þar com ráðist er á hvert kjördæmi stjórnarandstæðinga af öðru og þau lögð niður. Og nú sáðast kjördæmi foringja aðal-andstæð- ingaflokksins. Pólitísk saga nú- verandi stjórnar var orðin nógu gruggug, þó þessu væri ekki bætt við. HEIÐURS-ERINDSREKI TIL BRETLANDS OG NOREGS W.O.2 Magnús Stefansson Stöðugt fer þeim fjölgandi ungmennunum af íslenzku bergi brotin, sem ryðja sér fram á við til frægðar í ýmsum stéttum þjóðfélagsins hér vestan hafs. í æði mörgum tilfellum verður maður þess var, að ungmenni af íslenzku bergi brotin, standa þar talsvert framar öðrum 'þjóð' flokkum í landi hér, samanborið við fólksfjölda. Nýverið hefur ungur maður af íslenzku bergi brotinn getið sér stórkostlegan heiður fyrir fram- úrskarandi starf í Air Cadet League of Canada. Þessi ungi efnilegi piltur er Magnús Stef- ansson, sSnur Björgvins og Kristínar Stefánsson, að 740 Banning St. hér í borginni. , Magnús eða Mac, eins og hann er oftast kallaður af félögum sínum og ættmennum, hefur hlot meðlimum A.C.L.O.C., og einn af þremur úr 1,200 í Manitoba til að verða fulltrúi þessa fylkis á ; kynningarráðstefnu Air Cadet League of Canada, sem það hef- ur haft með höndum síðast liðin fimm ár. í sl. mánuði voru þessir tveir ungu menn gerðir kunnug- ir æðstu embætismönnum A. G. L.O.C. í Ottawa, sem voru hér á ferð. Og úr prívat bréfi sendu Magnúsi af forseta Manitoba Air Cadets, segir hann: “Það gleður mig mikið að mega tilkynna þér og staðfesta, að þú ert einn af 25 Royal Can- adian Air Cadets í Can., sem ert valinn til að ferðast til Englands og Evrópu á okkar kostnað í sumar. Eg óska þér til hamingju. Vinir okkar á Englandi eru að undirbúa skemtilega móttöku fyrir þig, og eg veit, að þú munt skemta þér hið bezta, og einnig veit eg, að þú verður fulltrúi Canada, sem hún má vera upp með sér af. Áður en eg loka bréfinu leyfi eg mér að segja, að mér er per- sónulega kunnugt um þína framúrskarandi góðu einkunn í Cadet-félaginu og þykir mér mjög ánægulegt að þú hefur vel verðskuldað þennan mikla heið- ur.” Dagblöð hér hafa farið lofsam- legum orðum um þessa útvöldu ungu menn og á einum stað seg- ir Mr. G. M. Ross, aðal-yfirmað- ur A.C.L.O.C. 1 Ottawa: “Þetta eru mjög efnilegir ung- ir menn og eg er sannfærður um, að þeir munu gera þjóð sinni og fylki stóran heiður með því, að vera fulltrúar hennar.” Þar sem þeir ferðast um, skoða þeir flugskóla og verksmiðjur og kynna sér allt þar að lútandi. Þessir þrír ungu menn eru allir 18 ára gamlir. Fara þeir fyrst til Lachine, Quebec þar sem þeir verða að hafa ýmsar æfingar áður en þeir ieggja af stað. Árið .1949 var Magnús á 75 ára afmæli Fargodaorgar. Var Mac sendur þangað til að sýna list siína. Hann er útskrifaður af Daniel Maclntyre háskólanum. Síðast liðið sumar vann hann flug-verðlaun og einkaleyfi til að fljúga. Auk þess að ferðast til Bret- lands, fara tveir frá Canada til Noregs, og er Magnús annar þeirra. Magnús lagði af stað í ferðina 20 júlí, flugleiðis og verður rúm- an mánuð í burtu. DÁNARFREGN Jóhannes Kristófer Pétursson j andaðist að heimili sínu, 649 ; Home St., hér í borginni 19. þ. m. ! 77 ára að aldri. Hann var áður ! lengi bóndi og landnemi að Wynyard, Sask.; kom til Can- j ada fyrir 49 árum, en til V/inni- i peg kom hann asamt konu sinni fyrir 15 árum. Hér do kona hans, Þorbjörg Hósíasdóttir, fyrir nokkrum árum, eiga þau sex mannvænleg börn á lífi. fjóra syni og tvær dætur. Börnin eru: Hósías, bóndi að Wynyard; Jörgin, búsettur -í Winnipeg; Björn, í Yellowknife, N. W. T.; Ragnar í Hartford, Conn.; Björg Mrs. Peters; og Petra, Mrs. Smith, sem báðar eru búsettar í Boston, Mass. J. K. Pétursson var hægur maður og hreinlundaður, félags- maður ágætur, tillögu góður og Hann var ættaður ið þann heiður, að vera einn af | hjálpsamur. tuttugu og fimm úr 18,000 úr Austur-Skaftafellssýslu, fæddur á Geirsstöðum í þeirri sýslu, lærði ungur klæðskeraiðn, bæði á íslandi og Noregi, en þá iðn, stundaði hann aldrei eftir að hingað kom. Jarðarförin fer fram frá First Federated kirkjunni hér í borg- inni á morgun (24. júlí), kl. 2 e.h. Séra Philip M. Pétursson jarðar. —S. O. DÁNARFREGN Alex Johnsson Alex Johnson fyrrum korn- kaupmaður hér í Winnipeg, lézt 19. júlí að heimili sínu 924 Sel- kirk Ave. í bænum. Hann var 65 ára. Hann stundaði hér um hrtíð kornsölu, en var 17 síðustu árin sem hann lifði í þjónustu Sam- bandsstjórnar í deild Canadian Loan Board. í viðskiftaheiminum hér var Alex víðkunnur. En hann var eigi síður kunnur á meðal landa sinna. Hann tók mikinn þátt í félagslífi þeirra og mátti svo um hríð heita, að hér væri ekki sam- koma svo haldin, að hann og kona hans skemtu þar ekki með söng. En þau sungu bæði unaðs- lega. Hinn látni var og mörg ár formaður íslenzka karlakórsins í Winnipeg. Alex var sonur Jóns Jónsson- ar frá Hjarðarfelli og konu hans Vilborgu Guðmundsdóttir Hall- dorsson. Hann lifa kona hans Louisa Thorsteinsdóttir Thor- láksson. Var faðir hennar bróð- ir séra Steingríms, en móðir hennar hét Hlaðgerður Laxdal. Voru séra Friðrik Bergman og hún syskinabörn. Börn Alex heitins og Louisu eru 2 á lífi: Alexander og Trev- of, en 2 eru dáin. Útförin fer fram í dag (23. júlí) frá Fyrstu lútersku kirkju. FALLIN í ÓNÁÐ Þess var fyrir nokkru getið, að Anna Pauker, utanríkisráð- herra Rúmeníu og mattarstólpi Kommúnista flokksins og Kom- inform í mörg ár, hefir nú orðið að þoka úr sessi og er sökuð um> að hafa vikið frá hinni einu og sönnu línu frá Moskva. Jafnvel hún mun hafa reynst of sjálf- stæð í skoðunum og of trú landi sínu fyrir valdhafana í Moskva, sem nota 'leppríkin fyrir mjólk- urkýr og hirða ekki um efnahags vandræði þeirra. “GLÆPSAMLEGT KÆRINGARLEYSI l Með ofanskráðum orðum hef- ir dómur verið kveðinn upp yfir manninum sem stýrði fólksflutn ingsvagninum, sem varð 8 manns að bana, er hann rakst á vöru- vagn 3. júlí um 3 mílur suður af St. Norbert. Nafn vagnstjórans er Robert Stavos frá Crookston, Minn. Vörn hans í málinu var sú að hann hafi vegna ljósa frá bíl- um er hann mætti á þessum slóð- um, orðið’að snúa nokkrum ljós- um augnabliksstund af, rétt í því er slysið vildi til. Sá er vörubílnum stýrði, er á veginum stóð kyr, var sýknaður. Slysið og dauði hinna átta manna var kallað tilfallandi at- vik (accidental) og er með því fólksflutningafélagið ekki á- byrgðarfult fyrir neinu. FRÁ HELSINKI Olympsku leikarnir hófust s.l. laugardag í Helsinki á Finn- landi. Koma þar saman heimsins mestu íþrótta kappar, um 5,870 að tölu, frá 70 þjóðum. Á íþróttavellinum eru sæti fyrir 70,000 manns og er haldið að ekki veiti af. Forseti Finnlands, J. K. Paasi kivi setti hátíðina og mælti á finsku, sænsku, frönsku og ensku. Fjölmennur hljómleika flokk- ur spilaði við opninguna. Eric von Frenckell, formaður íþróttanefndar Finnlands, bauð íþróttamenn og gesti velkomna. Hann sagði meðal annars: “Það er oss mikil ánægja, að hafa íþróttaleikana í Finnlandi, landi, þar sem Austrið og Vestr- ið geta mæst án hrindinga.” Inn í íþróttahöllina, sem er undra stór og fögur, komu svo í- þróttadeildirnar og gengu fyrir forseta. Fyrstir voru Finnar, með merkið “Kreikka”, (Grikk- land) á stórri veifu. Á eftir þeim komu Austur-Indverjar, holl- enskir með kápur á herðum sér utan yfir íþróttabúningnum. Á eftir þeim Argentínumenn, í dökkbláum treyjum og hvítum buxum, og þar næst Brazilíu- menn, í bláum treyjum og gráum buxum eða kjólum — settum gulum veiðimannamerkjum. Bul garar í gráum fötum. Á eftir þeim Bill Parnell, hlaupari frá Vancouver, haldandi á canadiska fánanum og á hælum honum í- þróttagarpar héðan í bláum bún- ingi. Næst komu Egiptar í gráum fötum, með rauð hálsbindi. Guatamela- íþróttamennirnir, voru klæddir rauðum og bláum treyjum og bar mikið á búningi þeirra. Sikhar með túrbana á höfði, báru fána Indlands. frska sveitin var græn klædd. Sveit frá Japan var þarna í fyrsta sinn síðan 1936. Þeir drógu niður fyrir framan forset- an fána sinn “The Rising Sun”, Jugóslavar gerðu slíkt einnig. Fyrir - Suður-Koreudeildinni var mikið klappað þegar hún gekk fyrir forseta. Svo kom í ljós maður sem Jacob Kusenki hét, beljaki hinn mesti og sem hlaut að vera bers- erkur að kröftum og hélt á fána Rússa. Hann er aflranna kappi í að lyfta hlutm. Flokkurinn sem honum fylgdi, var mjög fjöl- mennur, klæddur hvítu með rauð hálsbindi. Þetta er í fyrsta sinni, sem Rússar taka þátt í olym- sku-leikjunum. Fyrir þeim var klappað, en þó meira fyrir flokki Norðmanna, er komu á eftir Rús sum. Fyrir þjóðverjum var klappað, sem nú koma fram í fyrsta sinni síðan 1936. Heikki Savolainen, sem verið hefir í 29 ár íþróttakappi Finn- lands, kom þá fram fyrir áheyr- endur og vann eið að þvtí, að stjórna svo íþróttum sem bezt sæmdi þessu alheims-íþróttamóti og landinu, sem það færi fram í. FRÉTTIR FRÁ NEFNDINNI f KENSUSTÓLSMÁLINU Föstudagskvöldið 11. þ. m. lögðu af stað frá Winnipeg þeir Dr. P. H. T. Thorlakson, Dr. Lár us A. Sigurdson, Einar P. Jóns- son og W. J. Lindal, dómari. Ferðinni var heitið til Minne- apolis og var hún farin í erind- um íslenzka háskólaembættisins. Valdimar Björnsson, fjármála- ráðherra Minnesotaríkis, sem ráðstafaði ferðinni ásamt Dr. Lárusi, bauð nokkrum íslending- um í Minneapolis og St. Paul og gestunum til morgunverðar í Curtishótelinu á laugardags- morguninn og komu saman þar 14 manns. Að morgunverði lokn- um skýrði Valdimar frá erindi gestanna og bauð siíðan Dr. Thor- lakson og félögum hans að taka til máls, og bentu þeir á að nú sem stendur væri komið í sjóð- inn um $195,000.00 og létu þess getið að ekki væru nema fáeinar af íslenzku bygðunum, sem ekki hefðu byrjað að safna í byggðar- stofnendasjóð. Valdimar Björnsson hóf þátt- töku Minnesota fslendinga með því að leggja fram rausnarlegt tillag og bað svo aðra að taka til máls. Það gerðu allir viðstaddir og hver einasti kvaðst ekki ein- ungis vera hlyntur málefninu, heldur fús á að taka f járhagsleg- an þátt í því. Svo var skift verkum. Einar P. Jónsson og W. J. Lindal héldu áfram til Minneota, Dr. Thorlakson og Hjörtur Lárus- son, einn af leiðandi íslending- um í Minneapolis, skruppu út á land í aðra átt, en Dr. Sigurdson varð eftir í Minneapolis, til að eiga tal við menn, sem ekki gátu M O R G U N N Drýpur í þögn af þollsins hvarmi þrúngin sumardögg. Ekki er þetta þó af harmi það er vissa glögg. Ungum blöðum gefur gróður greina til hann nær. Starfshönd hinnar miklu móður moldum hlúað fær. Hrímfaxi um loftið líður leið um óttuskeið, Nóttin húmklædd honum ríður harða þeysireið. Méldropar hans foldu frjóva, fegra dal og hól, þeir í dögg á grundum glóa glatt í morgun-sól. Skinfaxi um bláhvelsboga brokkar farna leið, hristir fax í ljósum loga létt hann rennur skeið. t Glömpum slær af gullnu hári gegnum húmin dökk merlar jörð í morguns-ári- Moldin grætur þökk. Jón Jónatansson verið við morgunverðinn. Eitt athyglisvert við þessa ferð, sem lýsir svo vel samhug Minnesota-fslendinga í þessu máli, var það hvernig þeir ráð- stöfuðu því að koma Einari P. Jónssyni og Lindal dómara til Minneota, sem er um 180 mílur suðvestur frá Minneapolis. Matt- hías Thorfinnsson ók með þá hálfa leið og þar mætti þeim Jón Metúsalemsson frá Minneota, sem for með þá til Minneota og var með þeim það sem eftir var kvöldsins. Á sunnudaginn tók Júlían Gíslason við og ók með þeim út um bygðina þar til kom- inn var tími að snúa til baka. Þá tók bróðir hans við, Joe Gísla son og ók hálfa leið til baka og þar mætti hann bróður sínum frá Minneapolis, Jack Gíslason, sem fór með gestina alla leið að járnbrautarstöðinni í Minneapol- is, en þar voru til staðar Dr. Thorlakson og Dr. Sigurdson og var þá haldið heimleiðis til Winnipeg. Svo vel hittist á, að íslenzku konurnar í Minneapolis og St. Paul, sem hafa haldið við félags- skap, sem nefndur er Hekla, höfðu stofnað til skemtunar á sunnudaginn við eitt af hinum mörgu og fögru vötnum í Min- eapolis og þar^söfnuðust saman um hundrað manns. Læknarnir Thorbjörn og Lárus voru við- staddir og bað forstöðunefndin þá að ávarpa samkomugesti. Þeir skýrðu frá hvað hefði unnist á varðandi fjársöfnunina og þökkuðu fyrir kurteisi þá og gestrisni, sem nefndinni hefði verið sýnd. Félagið mun halda fund í haust og verður þetta mál þá rætt og ákveðið hvaða þátt félagið geti tekið. Ferðin suður heppnaðist ágæt- iega. Enginn efi er á því að ís- lendingar Minnesotaríkis fara langt fram yfir lágmarkið. Á þessum tveimur dögum var safn- að yfir þúsund dollurum. Það var margt í sambandi við þessa ferð, sem hefði verið gam- an að minnast á, svo sem gest- risnina og samhug allra. En það er tvennt, sem öðru fremur snart hjartarætur nefndarmanna: — Allir, bæði konur og menn, sem nefndarmenn töluðu við, voru málefninu hlyntir og fúsir til að taka fjárhagslegan þátt í því. Þetta einhuga samstarf nær lengra en til íslendinga. Ein kona frá Connecticut-ríki, gift íslendingi, Tryggva Willard ís- feld, hafði engu síður en hann á- huga á því að leggja peninga í sjóðinn. Hún hafði numið tungu- mál við skóla austur frá og henni Var auðskilið hið pána samband milli forn-íslenzku og forn- ensku. Svo var annað. Allir fundu til þess að þetta væri mál allra Vest. ur-íslendinga, og eiginlega mál allra íslendinga. Þess vegna væri engin landamæri til hvað ís- lenzku háskóladeildina snerti. Það var mikið fagnaðarefni fyr- ir nenfdarmenn að vita að menn í Bandaríkjunum litu svona á málið. Smánefnd var skipuð í Min- neota, eða réttara sagt, þrír menn buðust til þess, að ljúka fjár- söfnuninni þar, en þeir eru Joe og Julian Gíslason og Jón Metú- salemsson. Valdimar Björnsson, með að- stoð annara, sem hann útnefnir, mun ljúka fjársöfnuninni í Min- neapolis og St. Paul. Búist er við að íslendingar í Duluth, New Ulm og víðar í Minnesota sláist í hópinn. W. J. Lindal form., upplýsinganefndar

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.