Heimskringla - 29.07.1953, Page 4
4. SIÐA
HEIM SKRINGLA
WINNIPEG, 29. JÚLÍ 1953
Heimakringla
(StofnuO lUé)
K*mtu 6t á hrerjum miövikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Talsími 74-6251
Verð blaOslns er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram.
AlUir borganir aendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aPlútandi sendist:
Tlie Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Wirmipeg
Rltatjórl STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA. 853 Sargent Ave.. Winnlpeg
Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON
"Heimskrlnglo" is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Telephone 74-6251
Authorized qs Second Clasg Mail—Post Oífice Dept., Ottqwq
WINNIPEG, 29. JÚLÍ 1953
KRUNK - KRUNK
Af sumu því að dæma, sem liberalar hafast að í þessum kosn-
ingum, má ætla að þeir séu annað hvort óviðráðanlegum ótta slegn-
ir um að þeir muni tapa í kosningunum, eða að virðing þeirra fyrir
sjálfum sér, er fokin út í veður og vind, hafi þeir hana nokkru
sinni átt.
Dæmin eru deginum ljóssari um þetta.
Frá Ontario er sú frétt nýlega sögð, að átta af ráðgjöfum lib-
erala hafi í einu verið á flögri klett af kletti um eitt og sama kjör-
dæmi fylkisins, sem Carleton er nefnt, krunkandi framan í kjós-
endur um að greiða ekki íhaldsmanni atkvæði, heldur liberala. —
Þingmaður þessa kjördæmis, er Col. George Drew, foringi íhalds-
flokksins. Það munu nú flestir hafa rent grun í, að liberalstjórnina
fýsi að sjá Drew tapa kosningu. En verður það ekki dýru verði
keypt, að kasta frá sér öllu vel-sæmi fyrir það? Það getur enginn
á þetta tiltæki litið öðru vísi en sem hina mestu smán, bæði fyrir
ráðgjafana, flokk þeirra og liberal stjórnina í heild sinni.
í þessari ráðherra kosningafylkingu, voru þessir: St. Laurent,
Abbott, Harris, Gardiner, Claxton, Martin og McCann.
Merkisiberi liberala í þessu kjördæmi heitir John H. Mc-
Donald, 38 ára lögfræðingur hjá liberal stórninni. Hafa blöð eftir
honum, að þessi heimsókn ráðherranna, muni ríða Drew að fullu.
Annað komi og einnig til greina. Inn í þetta kjördæmi hafi
flutt síðan kosningar fóru fram hópur nýrra kjósenda, sem meiri
hlutinn af ætti að greiða liberölum atkvæði, því fjöldi þeirra er
stjórnarþjónar. Ófagurt er þarna aðhafst!
Þá er kjördæmaskipunin eitt dæmi um vanvirðuna á framkomu
liberal stjórnarinnar. Mörg kjördæmi andstæðingaflokkanna voru
bútuð sundur og “innlimuð” að nokkru kjördæmum liberal þing-
manna. Nokkur voru alveg þurkuð út eins og kjördæmi Diefen-
bakars. Hann var of harður í horn að taka i gagnrýni sinni á stjórn-
ina til þess að ekki væri reynt að gera honum ómögulegt, að halda
áfram þingmensku. Hann sækir nú í kjördæmi, sem hann hefir
aldrei áður sótt í, og skipað hefir áður verið forsætisráðherra og
öðrum höfuðpaurum liberala.
Liberal stjórnin leggur meiri áherzlu á að koma foringjum
annara flokka fyrir kattarnef, en nokkur stjórn hefir áður gert
Ummæli blaða hennar um Low, Coldwell, Stanley Knowles og
fleiri, eru slík, að oft mættu þeir ætlav er ekki þekkja til þessara
manna, að vitfirring væri að kjósa þá á þing eða fela nokkurn
stjórnarrekstur.
Hon. Stuart Garson, dómsmálaráðherra lætur sér það um munn
fara í kjördæmi sínu hér, “að það sé ekki hægt að hugsa sér neitt
verra, en að Drew yrði stjornarformaður Canada . Hann alitur
sjálfan sig eða Pickersgill eflaust langt fyrir ofan Drew og alla
aðra flokksforingja, en liberala. En báðir þessir áminstn menn
hafa verið nefndir, sem hugsanlegir eftirmenn hins aldna og móða
St. Laurent, þó hvorugur hafi tærnar þar, sem hann hefir hælana.
Hinn fyrnefndi var sama árið og hann varð ráðgjafi, staðinn að
því, að leyna glæpa framferði flokksmanna sinna, vegna þess, að
illa kom sér að birta það fyrir kosningar. Um Pickersgill veit al-
menningur það eitt, að hann hefir rægt menn frá stjórnarstöðum,
einn t.d. í þessum bæ, sem blaðið Winnipeg Tribune hefir um langt
skeið skorað á hann að hreinsa sig af, en sem ógert er enn.
Þetta eru þeir, sem til stjórnarforustu Canada eru réttbornir, en
ekki Drew, eða neinn foringi annara flokka, það er að segja, sé sá
flokkur í andstöðu við liberala.
Það getur borið mikinn vott um áhuga fyrir malefnum al-
mennings, að sjá ótta ráðgjafa dreyfa sér út um Carleton-kjördæm-
ið, til að ná því úr höndum foringja íhaldsflokksins. En þyrfti
nokkur að vera hissa, þó þeir mintu kjósendur fremur á krunkandi
hrafnahóp, en velunnara þjóðfélagsins?
PÓLITÍSKIR BITAR
Veðbréfafall
í ræðu sem St. Laurent, for-
sætisráðherra Canada. hélt ný-
lega í Sudhury, fórust honum
orð á þá leið, að veðskuldabréf
Canada mundu falla í verði ef
íhaldsstjórn kæmist til valda.
Ádrepu þessari er svarað í Tri-
bune 25. júní, af manni sem Jo-
seph Peden heitir í Rossburn,
Man., á þessa leið:
Það væri gott og blessað að
fá tækifæri til að ræða um veð-
skuldabréf Canada fyrir 10. ág.
Það var fyrir tveimur árum að
eg bygði nýtt íveruhús en þar
sem ekki fékst nema 52 centa
virði af vöru, eða efni í það, fyr
ir dollarinn, hrukku peningarn-
ir ekki sem eg átti í reiðu-silfri
fyrir það. Eg varð því að grípa
til sigurlánsbréfa, sem eg átti.
En þá var mér sagt, að eg fengi
ekki nema 93 dali fyrir hverja
100 sem eg hafði keypt.
í síðasta stríði var fundur
í samkomuhúsinu í Rossburn
af trúnaðarmönnum li'beral
stórnarinnar, er sögðu, að ef
þessi verðbréf væru ekki góð og
gild, væri sambandsstjórnin það
ekki heldur.
Dollarinn mun nú um það 48
centa virði. Auk 7 dollara taps-
ins á hverju hundraði af veðbréf
unum, sé eg mér þann kostinn
vænstan nú, að greiða íhalds
stjórinni atkvæði.
“Canada á þröminni”
“Liberalar hafa síðustu fjög-
ur árin farið eins næri því og
hægt er, að koma Canada á helj-
ar þrömina efnalega”, sagði T.
Douglas forsætisráð herra Sask.,
fylkis, í kosningarræðu, sem
hann hélt nýlega í Prince
George. Hann var að stuðla að
kosningu William Irvine í Car-
iboo-kjördæmi, CCF-sinna.
“Kosningarnar snúast allar um
það fyrir liberölum”, sagði
stjórnarformaðurinn “að St.
Laurent sé fínasti karl, sem hver
maður mætti væra ánægður með
að eiga fyrir afa”.
“Hagur landsins nú”, sagði
stjórnarformaður, “að væri svip
að og 1920, að því leyti að óseld-
ar vörur hrúguðust upp sem eng-
in vissi hvað við ætti að gera.
En svo illa sem hjá oss er statt
í þessum efnum, fær það ekkert
á stjórnina, því hún hefir enga
stefnu að bjóða, hvorki vonda né
góða, til að forða lýð landsins
frá þessu fári.
Hagur landsins veltur á því,
að geta selt bændavörur, fisk og
trjávið til Bretlands og Evrópu.
En sambandsstjórnin er búinn
að svifta Canada þessum mark-
aði, vegna aðgerðarleysis og ó-
framsýni í stjórnarrekstrinum.”
Skattar ekki háir
Liberalar virðast alveg hissa á
fyrirætlunum Drews um að
lækka skatta um hálfa biljón á
ári, vegna þess, að skattar séu
eins lagir og mögulegt sé.
Hvað háir eru skattar lands-
ins?
Tekjur sambandsstjórnar eru
um 4 biljón dali á ári.
Á hverja fjölskyldu (af fjór-
um) verða skattar því $1200 á
ári.
Það halda margir, að þeir
greiði enga skatta, vegna þess,'
að meginið af þeim er falið sem j
kallað er. Menn greiða þá flesta;
án þess að af því sé vitað .um í
vörukaupum, nema skattinn á!
fjárinntekt, sem miðaður er við,
hvað hún er mikil.
Skatta greiða því allir, mis-
jafnlega, háa. að sumu leyti eins
og tekjuskatt, en duldu skatt-
arnir eru aðal skatt-tekjurnar.
Við verðum þeirra varir í verði
vöru og bölvum kaupmönnunum
fyrir það. En það er sambands-'
stjórnin, sem því veldur og tæki-j
færi er að minna á það með at-
kvæði yðar 10. ágúst.
Á VÍÐ OG DREIF
Um orðið Dominion
Eg varð hálf hissa þegar eg
rakst á það í blöðum landsins ný
lega, að fyrsti júlí, þjóðhátíðar-
dagur Canada, heiti nú ekki
lengur Dominion Day, heldur
“Canada-Day”.
Eg hafði séð þessu hreyft áð-
ur, en hefi líklega verið sofandi
á verðinum eins og fleiri og ekkij
hugsað út í við hvað væri átt
með hugmyndinni, mér fanst hún
vera bóla, sem brátt hlyti að
springa.
En ónei — heimskan gerir það
vanalega ekki.
Oirðínu ‘Dominion of Canada
var alls ekki þrengt upp á okkur.
Það var sérstaklega valið land-
inu af “feðrum stjórnarskrár
vorrar, vegna trúarlegrar þýð-
ingar orðsins.. Eg skal segja
spekingunum, sem ekki vita
þetta, að það stendur í ,trúbók
vor kristinna manna hjá Sakar-
íusi í 9 kafla, 10 vers: “Veldi
hans mun ná frá hafi til hafs og
frá Fljótinu til endimarkar jarð-
ar”. Orðin eru einnig þrykt á
skjaldarmerki vort (Coat-of-
Arms).
Að sleppa orðinu “Dominon”
er einungis vottur litilmensku
húgsunarháttar. Með því er í
raun réttri sagt, að þó forfeður
okkar vildu hafa almættið með
sér í verki, er engin ástæða til
að við séum að burðast með það;
nauðsyn þess er horfin! Persónu
leg skoðun mín er, að þess sé
meiri þörf nú en nokkru sinni
fyr. (W. S. Palmer, í Western
Producer).
Eftirtektarverð orð
Dorothy Thompson, er flest-
um kunn fyrir blaðagreinar sín-
ar. Eitt sinn er hún var spurð
um hvað hún áliti hið versta að
glíma við í heiminum á þessum
síðustu og verstu tímum, svaraði
hún, að það væri ekki endilega
stríð, heldur miklu fremur skoð-
anir sem básúnaðar væru, sem
við ekkert verulegt eða sögulegt
gildi hefðu að styðjast.
—Jæja, svo þú hefur eignast tví
bura. Trufla þeir ekki hvor ann-
an að næturlagi.
—Nei, þeir æpa og skrækja svo
hátt að hvorugur heyrir til hins.
GREETINGS . . .
from
Thorunrís Beauty Salon
“Your Personality is In Your Hair-do”
GIMLI, MAN
Phone 132
2 tondbúendur af hverjum ^
njóta nú hagnaðar af
óbrigðulli rafur-
magnsorku
Já, Manitoba orkueftirlitsnefndin hefir
miklu til leiðar komið síðan 1945, að aðeins
eitt býli af hverjum 50, naut raforku.
Hydro-félagið yðar hefir eflt framfarir
fylkisins . . . og mun halda þeim áfram un?.
allir íbúar Manitoba eiga kost á notkun
raforku. ,
THE
MANITOBA POWER GOMMISSION
YÐAR HYDRO - NOTIÐ ÞAÐ
“KOMIÐ INN NÚ ÞEGAR”
Þegar þér gangið inn í skrifstofu
bankastjóra, leitið þér til hans um ábyggi-
legar upplýsingar og heilbrigðar ráðleggingar. Nú get-
ur hann gert meira fyrir yður en nokkru sinni
áður—fyrir víðtækari sambönd, sérfræðilega þjón
ustu og aukna þekkingu byggða upp af banka
hans. Um árafjöld hafa löggiltir bankar Canada
fylgst með framþróun, til að geta mætt
hinum stöðugu víðtækari og
vaxandi kröfum.
BANKAR STARFANDI I UMHVERFI YÐAR
Ad. No. 5303B
>