Heimskringla - 03.03.1954, Qupperneq 2
2. SÍÐA
HEIHSKRINGLA
WINNIPEG, 3. MARZ 1954
ífeimskrittgla
(StofnuO ÍSÍB/
Cemiu út á hverjum midvikudegi.
Eisreiídur: THE VIKING PRESS LTD
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Talsimi 74-6251
Veifí blaöetns er $3.00 árgangurlnn, borgist fyrlríram.
Aliíir borgantr sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viöskiftabréf blaðinu aPlútandi sendist:
The Viiung Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEPAN EINARSSON
UtanAafcrlft til ritstjórans:
fiöITOR HEíMSKRINGLA. 853 Sargent Ave.. Wlnnipeg
Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON
"Heimskrlngla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man„ Canada — Telephone 74-6251
Awthorised as Second Class Mail—Post Office Depl., Ottawq
WINNIPEG, 3. MARZ 1954
Þjóð vinaf élagsbæku rnar
Bækur Þjóðvinafélagsins eru 5 talsins í ár og eru sem hér
segir:
1. “Suðurlönd” eftir Helga P. Briem sendiherra. Fjallar bók-
in um ftalíu, Spán og Portugal og er ein af mörgum, sem nú eru
komnar út undir nafninu “Lönd og lýðir”. Þeim sem þjóðvinafé-
lagsbækurnar kaupa, er nú orðið kunnugt um af innihaldi þeirra
bóka, sem út eru komnar í þessum flokki, að þar er um bækur að
ræða, sem með sanni má segja um að séu fræðibækur fyrir alþýðu
sem á hverju heimili ættu að vera til. Að blaða í þessari bók.Helga
Briem, er skemtilegt. “Suðurlanda” getur svo oft í íslenzkum bók
mentum að fornu og nýju, að það er bæði gagn og gaman að virða
þau fyrir sér í nútíðarmynd sinni.
Aðrar bækur þjóðvinafélagsins eru Almanakið, Andvari,
Kvæði Eggerts Ólafssonar og skáldsaga, “Musteri óttans”, eftir
Guðmund Danielsson skólastjóra. Þetta eru félagsbækur Menn-
ingarsjóðs og þjóðvinafélagsins. Bækur þessar eru öllum bókum
ódýrari, og 5 bækur á ári, eru gott innlegg í heimilisbókasafn, sem
hver íslendingur ætti að eiga. Davíð Björnsson bóksali í Winr.’-
peg, er umboðsmaður þessara bóka hér vestra.
En svo eru aðrar bækur, sem félagið gefur út, er sérstaklega
ná til Vesturíslendinga. Það eru Saga Vestur-íslendinga og
fyrsta bindi af Andvökum Stephans G. Stephanssonar. Þessar
bækur ættu vissulega að vera keyptar hér vestra. f bréfi frá einum
manni í útgáfunefnd þessara bóka, ásamt Þjóðvinafélagsbókunum,
getur hann þess, að fjórða bindið af sögu íslendinga, sem Menn-
ingarsjóður gaf út á s.l. ári, hafi lítið selzt vestan hafs. Þetta er
sú dæmalausasta hneisa, sem við höfum yfir okkur kallað. Út-
gáfa Menningarsjóðs, ræðst í að gefa þessar bækur út af ræktar-
semi einni við minningu og afrek íslendinga í Vesturheimi, er
við hér vestra heyktumst efnalega við að halda áfram að gefa út.
Það er vonandi, að við sýnum svo mikla þjóðrækni einu sinni í
verki, því oftast er hún eins og áminnst dæmi sanna meiri í orði
en á borði, að vinna kappsamlega að útbreiðslu og sölu á sögunni.
Eins og minst var á í síðustu Heimskringlu, ætti það vel við, cr
sagan er nú öll komin út, að reka af sér sliðruorðið, og bindast
markvissum átökum um sölu sögunnar. Það er til heldur lítils, að
vera að skrifa annað eins verk og sögu þessa í fimm bindum af
Vestur-fslendingum, ef enginn þeirra fæst til að lesa hana eða eiga
og þeir kjósa heldur að vaxa hér upp og leggjast út af sögulaust,
eins og trén og dýr merkurinnar, en sem menn, er af einni mestu
sögu og bókmentaþjóð heimsins eru komnir.
FRÁ ÞJÓÐRÆKNISÞINGINU
1954
ARSSKÝRSLA FORSETA
Dr. Valdimar J. Eylands
Framhald
Ýms mál
Síðari hluta vertar í fyrra bár-
ust félaginu spólur með útvarps:
efni frá Þjóðræknisfélagi fs-
lendinga í Reykjavík. Voru hér(
faldar ræður merkra manna, upp
lestur og söngur. Stjórnarnefnd-
in ákvað að lofa fólki almennt
að njóta þessarar skemmtiskrár,!
og fékk henni útvarpið. Útvarpj
þetta, sem stóð yfir í eina klukku
stund, fór fram 18. júní s.l. og'
tókst ágaetlega. Þessar spólur |
hafa verið notaðar á samkomum
á nokkrum stöðum, og hafa veitt
fólki mikla fræðslu og ánægju. I
Á þingi í fyrra var því hreyft,
hvort ekki mundi vera hygt að
komast að samningum við ríkis-
stjórn íslands um tollfrjálsar
bögglasendingar Vestur-tfslend-
inga austur um haf. Nefndin fól
þeim prófessor Finnboga Guð-
mundssyni og Ólafi Hallssyni að
færa þett amál í tal við hlutað-
eigandi yfirvöld á íslandi, og
munu þeir nú gera þinginu grein
fyrir árangrinum af þeirri mála
leitan.
Þetta félag hefir lengi haft
skógræktarmál íslands í huga,
og hefir nú lagt fram nokkurt fé
til þeirra mála. Samkvæmt bréfi
frá Hákoni Bjarnasyni til fé-
lagsins, dagsettu 17. júní s.l.
hefur nú verið gróðursettur trjá-
reitur innan hins svonefnda
Þjóðgarðs á Þingvöllum, og ber
reiturinn nafnið “Minningar-
lundur Vestur íslendinga.”
Á árinu hafa nokkrar peninga-
gjafir frá einstökum mönnum
borizt til íslands. Þannig hafa
þau Árni Pálsson og Ragnheiður
kona hans að Lundar, sent Skál-
holtsstað $150.00 að gjöf, og
Mrs. Guðný Thomasson, Beaver,
P.O., sendi $300 til endurreisn-
ar hinu forna biskupssetri, til
minningar um mann sinn, Einar,
sem nú er látinn. Þá gaf Þjóð-
ræknisfélagið Barnaspítalasjóði
Hringsins 10,000.00 kr. til minn-
ingar um hr. Svein Björnsson,
fyrsta lýðveldisforseta íslands.
Dr. Richard Beck hefir staðið
fyrir merkjasölu í tilefni af 100
ára afmæli Stephans G. Steph-
anssonar, með góðum árangri.
Agóðinn af leiksýningunni
“Happið”, sem leikfélag Gimli-
bæjar, undir forustu frú Krist-
ínar Thorsteinsson, sýndi hér í
bænum í haust, var, að viðbætt-
um smáupphæðum frá einstök-
um mönnum, sendur til héraðs-
spítalans á Blönduósi. Nam
þetta alls $160.0. Hefir Dr.
Kolka kvittað fyrir þessa upp-
hæð með þakklæti.
Eitt meiriháttar samsæti hélt
félagið á árinu. Fór það fram 30.
apríl, s.l., í tilefni af heiðri þeim,
er dr. Thorlakson varð aðnjót-
andi, er háskóli þessa fylkis
veitti honum heiðursgráðuna
“Doctor of Law” (LL.D.).
Stýrði forseti samsæti þessu.
Einnig voru þau séra Einar
Sturlaugsson og frú Guðmunda
Elíasdóttir kvödd með kaffi
drykkju, séra Einar að heimili
Grettis ræðismanns Jóhannsson-
ar, og frú Guðmunda á heimili
Guðmanns Levy.
Eitt af þeim málum, sem rædd
hafa verið á þingum og nefndar-
fundum og til framkvæmda kom
á árinu, var útvegun fundar-
herbergis og skrifstofu fyrir
stjjórnarnefndina. Losnaði lítið
kjallaraherbergi í byggingu fé-
lagsins á Home St. og var það
að afstaðinni mikilli viðgerð,
tekið til afnota fyrir nefndina.
Stóðu þeir Guðmann Levy,
Grettir Jóhannsson og Ragnar
Stefánsson fyrir þessum aðgerð-
um fyrir nefndarinnar hönd.
Fyrsti fundur nefndarinnar var
•haldinn í þessari nýju skrifstofu
47 ágúst s.l. Enda þótt húspláss
þetta sé næsta lítið var þó, auk
nauðsynlegustu húsgagna, svo
sem borði og stólum, komið þar
fyrir skápum til geymslu fyrir
ýmsa muni félagsins, bækur og
skjöl. Hefir skjalavörður, Ragn-
ar Stefánsson varið miklum
tíma til að hreinsa og fága þessa
muni og raða þeim niður á mjög
smekklegan hátt.
Á þingi í fyrra var ákveðið að
breyta nokkrum liðum í auka-
lögum félagsins, og að yfirfara
þau að öðru leyti. Var milli-
þinganefnd, skipuð þeim Walter
J. Líndal dómara, dr. Tryggva J.
Oleson og séra Agli H. Fáfnis,
fengið málið til meðfarðar. Gef-
ur Líndal dómari væntanlega
skýrslu um störf nefndarinnar á
þessu þingi.
íslenzkuskóli félagsins hefir
því miður ekki vreið starfræktur
en sem komði er í vetur. Til þess
liggja þær ástæður að ekki hefir
tekizt að fá nauðsynlegar lestrar
og kennslubækur fyrir skólann.
Próf. Finnboga Guðmundssyni
var falið að útvega þessi kennslu
tæki í íslandsferð sinni s.l. sum
ar, og lagði hann fram pöntun á
þeim bókum, sem hann taldi
nauðsynlgear. En þessar bækur
eru enn ókomnar. Blindur er
bóklaus maður, segir máltækið,
og bóklaus skóli er ekki betur
staddur. Öll viðleitni til kennslu
án kennslutækja verður kák eitt,
og oft verri en ekki. Vonandi
greiðist bráðlega úr þessum
vanda, svo að þessi vinsæla og
bráðnauðsynlega stofnun geti
aftur tekið til starfa.
Til nýmæla má það telja að
bréfaskifti eru nú að komast á
milli vestur-íslenzkra barna og
barna á íslandi. Nokkru fyrri jól
barst mér allstór béfabúnki frá
Hannesi Magnússyni skólastjóra
barnaskólans á Akureyri. Börn
á ýmsum aldri í skóla þessum
höfðu skrifað bréfin, og var ætl-
ast til að þeim yrði útbýtt til
jafnaldra þeirra hér. Kunnugt er
mér um að 25 svarbréf hafa ver-
ið send héðan til barnanna á Ak-
ureyri. Annar bréfabunki barst
um síðustu jól frá nemendum
gagnfræðaskólans á Akranesi til
jafnaldra þeirra á Gimli. Ef til
vill verður þetta upphaf á við-
kynningu og kunningsskap æsk-
unnar, þrátt fyrir hindranir
tungumáls og fjarlægðar. Aö
svo megi verða, munu margir
óska.
Á þingi í fyrra, og reyndar á
mörgum fyrri þingum, hefir
verið umþað rætt, að nauðsyn-
legt væri að íslendingar hér í
borginni kæmi sér upp samkomu
húsi í samræmi við þarfir sínar.
Hafa milliþinganefndir setið í
málinu ár eftir ár, en engu feng-
ið áorkað. Tók eg að mér sem
forseti Þjóðræknisfélagsins að
kveða til fundar ýmsa helztu
forystumenn félaga hér í bænum
til að ræða um þetta mál. En eft-
ir einkasamtöl við suma þessara
manna komst eg að sömu niður-
stöðu og milliþinganefndirnar:
Það er ekkert hægt að gera, þeg-
ar viljann vantar, eða getuna,
eða hvorutveggja. Verður nú
tækifæri til að fytja upp á þessu
á ný, ef menn óska þess.
Þjóðræknisfélagið hefir ekki
haft nein útgáfufyrirtæki með
höndum á árinu, nema Tímarit
sitt, sem er í góðum höndum
ritstjórans, Gísla Jónssonar. Á
því hefir engin breyting orðið,
cnnur en sú, að það er nú selt
fyrir $2.00; í þeirri upphæð, sem
að hálfu gengur til deilda, felst
meðlimagjald félagsmanna, sam-
kvæmt ákvörðun þingsins frá
1952. En eins og menn mun reka
minni til, beitti félagið sér á
sínum tíma fyrir útgáfu á Sögu
Vestur-fslendinga. Verki þessu
á nú að heita lokið, með útkomu
5. bindis, sem nýlega er komið í
bókabúð Davíðs Björnssonar
hér. Þrjú fyrstu bindi þessa
verks ritaði skáldið Þorsteinn Þ.
Þorsteinnon, og voru þau gefin
út í Winnipeg; tvö hin síðari
annaðist dr. Tryggvi J. Oleson
prófessor, og eru þau prentuð í
Reykjavík. Félag vort gafst upp
við útgáfufyrirtæki þetta vegna
fjárþurðar um það bil að ritun
annars bindis var lokið. Sérstök
“Sögunefnd”, skipuð fjórtan
mönnum, tók þá verkið að sér,
og var G. F. Jónasson, forstjóri,
fromaður hennar. Þjóðræknis-
félagið og Sögunefndin gerðu
með sér skriflegan samning, og
segir þar í fjórðu grein: “Að
nefndin (Sögunefndin) leggi
fram allt það fé, sem nauðsyn-
legt sé til útgöfunnar rentulaust.
Ef fyrirtækið gefi ekki nægi-
legt í aðra hönd til þess að mæta
kostnaði, þegar verkinu sé lokið,
þá leggi nefndin það einnig fram
úr eigin vasa sem á vanti; en
verði tekjuafgangur að verkinu
loknu, renni hann í sjóð Þjóð'
ræknisfélagsins”. Gegn þessu
var nefndinni afhent fullritað
handrit annars bindis, það sem
þá var óselt af fyrsta bindi, og
afsal á öllum kröfum til þess
fjár, sem félagið hafði fram að
þeim tíma lagt til þessarar sögu-
ritunar.
Með bréfi til forseta Þjóð-
rækisfélagsins, dag 13. janúar,
1954, gerir formaður Sögunefnd
ar grein fyrir störfum nefndar-
innar, og fylgir þeirri greinar-
gerð ávísun að upphæð $745.12,
sem tekjuafgangur, samkvæmt
fyrrgreindum samningi. Hefir á
vísun þessi verið afhent féhirði
vorum. Auk þessarar greiðslu
hefir Sögunefndin afhent Þjóð-
ræknisfélaginu 255 bundin ein-
tök af þriðja bindi bókarinnar
“Saga Islendinga í Vesturheimi”
138 óbundin eintök af sama
bindi, og 9 bundin eintök af öðru
bindi sömu bókar, eða alls 397
bækur. Er þessum bókum komið
fyrir á skrifstofu stjórnarnefnd-
arinnar í byggingu félagsins á
Home St. Ber nú þinginu að ráð-
stafa þessari bókaeign sinni, og
um leið þakka Sögunefndinni
dugnað hennar og framkvæmdir
allar í þessu máli. Einnig á út-
gáfa Menningarsjóðs og Þjóð-
vinafélagsins og fostjóri þess,
hr. Jón Emil Guðjónsson, þakkir
skilið fyrir að gefa út tvö síðari
bindin, og fyrir að annast sölu
ritverks þessa á íslandi.
Enda þótt það komi Þjóðrækn
isfélaginu ekki beint við, tel eg
iétt að vekja athygli á nýútkom
inni bók eftir frú Thorstínu
Jackson Walters, sem fjallar
um íslenzku byggðina í Dakota.
Er hér um fróðlega og vel ritaða
bók að ræða, sem á skilið að hún
sé keypt og lesin. Þá hefir Wil-
helm Kristjánsson nýlokið vio
að rita sögu íslendinga í Mani-
toba, á ensku. Mun það verk unn
ið á vegum Manitoba Historical
Society. Er hér um allstóra og
mjög fróðlega bók að ræða, sem
að vísu er enn óprentuð, en verð
ur á sínum tíma góður fengur
þeim, er unna sögulegum fræð-
um.
Þá vil eg geta þess, sem síðast
er fram komið á meðal vor, en
það er sýninghreyfimyndarinn-
ar “Sunny Iceland”, sem Mr. Hal
Linker kom með hingað til borg
arinnar, 13. febrúar, á vegum
World Adventur Tours og Mr.
A. K. Gee’s, forstjóra þess. Var
myndin og skýringar fyrirlesar-
ans með þeim ágætum, sem bezt
verður á kosið; má óhætt segja,
að myndin varð fólki voru og
fjölmörgum öðrum til ununar og
fróðleiks, og landi voru og þjóð
til sóma. Tel eg, að vel fari á
að þingið votti öllum þeim, sem
hér áttu hlut að máli, kærar
þakkir. í þessu sambandi vil eg
geta þess, að kunnugir menn
telja að til sé jafnvel enn betri
íslandsmynd en sú, er hér var
Þetta Nútíma Fljóthefandi
Dry Yeast, þarf
Engrar Kælingar
Heldur ferskleika!
Verkar fljótt!
Hér er þetta undursamlega nýja ger, vinnur eins fljótt og ferskt
ger, samt er það altaf ferskt, heldur fullum krafti í matskápnum.
Þér getið keypt mánaðar-forða í einu.
Engar nýjar forskriftir nauðsynlegar. Notið Fleischmann’s
Fast Rising Dry Yeast alveg eins og ferskt ger. Að leysa upp:
(1) í ofurlitlu volgu vatni skal leysa upp vel eina teskeið aí
sykri móti einu umslagi af yeast. (2) Sáldrið í það dry yeast.
Látið standa 10 mínútur. (3) Hrærið vel. (Vatn sem notað er
þannig reiknist sem hluti af þeim lög sem forskriftin sýnir.)
Biðjið nú þegar matvörusalann yðar um hið nýja Fleischmann’s
Fast Rising Dry Yeast.
Kaupið mánaðarforða hjá matsölumanni yðar.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast!
sýnd, og að hún sé í eigu Kjart-
ans O. Bjarnasonar, myndatöku-
manns í Reykjavík. Um það hef-
ir verið rætt í stjórnarnefnd fé-
lagsins, hvort tök muni vera á
því að fá Kjartan til að koma
með þessa mynd sína hingað
vestur og til þess að hann, um
leið og hann sýnir þessa mynd
hér vestra, taki hreyfimynd af
Vestur-íslendingum til sýningar
á íslandi.
Eg hefi nú leitast við að gera
grein fyrir því helzta, sem gerzt
hefir í félagsmálum vorum á
umliðnu ári. Auk hinna venju-
legu mála, sem koma fyrir þing,
svo sem skýrslur deilda og milli
þinganefnda, vil eg leyfa mér
að benda væntanlegri dagskrár
i nefnd á, að eg tel æskilegt að
þetta þing: 1) votti ástvinum
j'átinna starfsmanna félagsins
samúð á tilhlýðilegan hátt; 2)
votti þakkir þeim séra Einari
Sturlaugssyni, Guðmundu Elías-
dóttur, Hal Linker, A. K. Gee
og Sögunefndinni; 3) lýsi á-
nægju sinni yfir því, að deildin
“Ströndin” í Vancouver hefir
gengið í félag vort; 4) ráðstafi
bókaeign sinni; 5) leggi á ráð
um það hvernig örva megi ís-
lenzku nám barna; 6) ræði ítar-
lega um fræðslu- og útbreiðslu-
mál félagsins yfirleitt; 7) at-
hugi samvinnumál við ísland,
með sérstöku tilliti til frétta-
sambanda, talvírs, útvarps, gagn-
kvæmra hópferða, bóka- og blaða
viðskipti, útvegun kvikmynda o.
s. frv.
Vil eg svo þakka meðnefndar-
fólki mínu í stjórnarnfendinni
ágæta samvinnu á árinu, og öll-
um þeim mönnum og konum
víðsvegar, sem hafa arfleifð vora
í heðiri og vinna sjálfu sér, kjör-
löndum vorum og fósturjörð til
sóma. Sérstaklega vil eg í félags-
ins nafni, þakka íslenzku viku-
blöðunum og útgefendum þeirra
hið ómissandi og ágæta vöku-
mannsstarf þeirra í öllum mál-
um er snerta þjóð vora og menn-
ingu.
Starfið er margt, en eitt er
bræðrabandið, sem tengir oss.
Tengdir böndum sameiginlegs
uppruna og áhugamála hefjum
vér nú störf vor á þessu 35. árs-
þingi Þjóðræknisfélags íslend-
inga í Vesturheimi.
AF FLJÓTSDALSHÉRAÐI
Þar sem nú er byrjað nýtt ár,
er ekki seinna vænna að senda
ykkur línur, og óska löndunum
vestra árs og friðar á þessu herr-
ans ári 1954.
Árið nýliðna var eitt hið bezta
sem komið hefir lengi, og mun
eg nú reyna að lýsa því nokkuð.
Veturinn var vægur til loka
marzmánaðar að kalla, en þá
gerði norðaustan hörkuhríðar
með fannkomu, eins og þær
verða vestar hér og héldust þær
fyrstu vikuna af apríl. Þann
mánuð allan var tíð mjög köld
og stirð, en jarðbönn lítil, þvi
alltaf var veðurhæð mikil með
fannkomunni svo snjóinn reif
vel. Maí var kaldur og stirður
fram um 20. en þá byjar sauð-
burður almennt. Gróður var þá
lítill og sauðfé var gefið þar til,
en ær voru þó lítið hýstar á sauð
burði, því brátt gerði hlýindi
cs
eoæ
Hl! Manitoba Barley Growers
Get your seed cleaned and treated for the production of
a carload of malting barley to be entered in the National
Barley Contest.
Provincial Prizes Regional Prizes Interprov. Prizes
1. $200.00 1. $100.00 1. $500.00
2. 150.00 2. 80.00 2. 300.00
3. 100.00 3. 70.00
4. 60.00
5. 50.00
6. 40.00
7. 30.00
This space contributed by
SHEA’S Winnipeg Brewery Limited