Heimskringla - 09.06.1954, Side 4
4. SÍÐA
HEIM SKRINGLA
WINNIPEG, 9. JÚNÍ 1954
FJÆR OG NÆR
Skemtiferð
Hin árlega skemtiferð, picnic,
Fyrsta Sambandssafnaðar verð-
ur n.k. sunnudag, 13. þ.m. til
Gimli. Komið verður saman við
kirkjuna kl. 10. sunnudagsmorg-
uninn. Allir sem bíla eiga eru
beðnir að mæta þar, og taka með
sér þá, sem flutnings á skemti-
garð þurfa, börn eða fullorðna.
Farið verður í skemtigarð Gimli
og þar, meðal annars fara_ fram
hinar vanalegu skemtanir—kapp
hlaup, af ýmsu tægi handa börn-
um og öðrum, boltaleikir, o. fl.
★ ★ ★
UNITARIAN SERVICES IN
INTER-LAKE REGION
June 13, 1954
Aborg — 11 a.m., (S. T.)
Gimli — 3 p.m. (D. S. T.)
Riverton — 8 p.m. (S. T.)
P. Allen Myrick, minister
★ ★ •*r
Á þriðjudaginn s.l. 8. þ.m.
flutti séra Philip M. Pétursson
kveðjuorð fyrir John Hume
Robertson, í Winnipeg, á útfara-
arstofu Mordue Bros., og í Nin-
ette, í United Church þar. Jarð-
sett var í Ninette grafreit.
★ ★ ★
Dr. Thorbergur Thorvaldson
frá Saskatoon brá sér fyrir helg
ina austur til Ottawa og St.
John, Newfoundland, í erindum
sambandsstjórnar, er hann gerir
ýms rannsóknarstörf fyrir. Hann
var hér á fundum vísindafélaga
Canada, og kemur innan viku til
baka.. Frú Thorvaldson var með
i förinni hingað, en austur mun
hann einn hafa farið.
itnsi; Tiieme
—SARGENT & ARLINGTON—
JUNE 10 12 Thur. Fri. Sat. (Gen.)
THE CLOWN
Red Skelton, Timmy Considine
PRINCE OF PIRATES (Color
John Derek, Barbara Rush
JUNE 14-16 Mon. Tue. Wed. (Ad.
AFFAIR WITH A STRANGER
Jean Simmons, Victor Mature
ROGUt’S march
Peter Lawford, Janice Rule
Engin messa verður í Fyrstu
Sambandskirkju n.k. sunnudag,
13. þ.m., vegna skemtiferðarinn-
ar til Gimli þann daginn.
★ ★ ★
John Goodman frá London,
Ontario, var staddur í bænum
s.l. þriðjudag.
★ ★ ★
Sveinn Oddsson prentari í
þessum bæ, sem verið hefir rúm
an mánaðar tíma í heimsókn í
Bandaríkjunum hjá ættingjum
og fornum kunningjum, kom
heim um síðustu helgi.
Kvað hann veður vera mjög
líkt þar og hér hefir verið, rign-
ingar og kuldar.
★ ★ ★
KIRK JUÞING
Þing hins fyrverandi kirkju-
félags íslendinga í Vesturheimi
tr nú neft Western Canada Uni-
tarian Conference, verður hald-
ið dagana 19. og 20. júní í Fyrstu
Sambandskirkju í Winnipeg.
Söfnuðir út um landsbygðir eru
beðnir að veita því athygli og
útnefna fulltrúa á þingið. Meðal
annars verða prestar staddir á
þinginu frá Edmonton, Toronto
og Ellsworth, Maine. Þeir eru
Rev. Wm. P. Jenkins, prestur
LÆGSTA FLUG-FARGJALD
tii
ÍSLANDS
Notfærið yður þessa fljótu, hagkvæmu leið að heim-
sækja gamla landið á komandi sumri. Reglulegar á-
ætlunarferðir frá New York.
Máltíðir og öll hressing ókeypis.
Aðeins $310 fram og aftur til Reykjavíkur
Sambönd við allar aðrar helztu borgir.
Sjáið ferðaumboðsmann yðar eða
ICELANDIC AIRLINES
15 West 47th Street, New Yorlc
PLaza 7-8585
Kirkjuþing
Western Canada Unitarian Conference
(fyrv. Sameinaða kirkjufélag Islendinga)
WINNIPEG MAN., 19. og 20. JÚNÍ
í Fyrstu Sambandskirkju, Banning St. og Sargen.t Ave.
GESTIR:
Rev. Wm. P. Jenkins, prestur Unitara kirkjunnar í
Toronto, og vara-forseti American Unitarian Associ-
ation.
Rev. Charles W. Eddis, prestur Unitara kirkjunnar
í Edmonton, Alberta.
Rev. Emil V. Gudmundson, prestur Unitara kirkj-
unnar í Ellsworth, Maine.
Söfnuðir eru hvattir til að senda fulltrúa á þingið tvo fyrir
hverja hundrað meðlimi. Skrásetning og miðdagsverður fara
fram í Fyrstu Sambandskirkju í Winnipeg kl. 12. laugardag
inn, 19. júní.
Ávarp forset, kl. 1.15 Fundir byrja kl. 2
Philip M. Pétursson, forseti
G. P. Magnússon, ritari
17. júní
(Tíu ára afmæli hins íslenzka lýðveldis)
Samkoma Þjóðræknisdeildarinnar “Frón”
SAMBANDSKIRKJUNNI, SARGENT 8c BANNING
FIMMTUDAGSKVELDIÐ, 17. JÚNÍ 1954
— Skemtiskrá —
ÁVARP FORSETA_____________________________ Jón Jónsson
O’ CANADA - Ó GUÐ VORS LANDS______________________Allir
KVEÐJA (Hljómplata) ______________________Thor Thors
KVÆÐI, frumsamið___________________Sig Júl. Jóhannesson
(lesiff af Ragnari Stefánssyni)
RÆÐA, Minni Jóns Sigurðssonar------Björn Sigurbjörnsson
EINSÖNGUR _______________________________Elma Gíslason
Undirleik annast: THORA ÁSGEIRSSON DU BOIS
1. Nú gyllir ylrík sólin sæ______SigurÖur Þórðarson
2. Þið þekkið fold_________________________Grétry
öxar við ána------------------------Helgi Helgason
KVÆÐI, frumsamið._____
Æinar Páll Jónsson
RÆÐA, Lýðveldisdagsminning___________Sr. Bragi Friðriksson
PIANÓLEIKUR______________________Thora Ásgeirsson du Bois
HOLBF.RG SUITE_________________________Edward Grieg
Prelude — AIR — Rigaudon
GOD SAVE THE QUEEN - ELDGAMLA ISAFOLD
Byrjar kl. 8.30 e.h. Inngangur 75c
Við hljóðfærið: GUNNAR ERLENDSSON
Eftir samkomuna selur Kvenfélag Sambandssafnaðar fínustu
islenzkar veitingar í neðri sal kirkjunnar fyrir aðeins 25 cents.
Unitarakirkjunnar í Toronto;
Rev. Charles W. Eddis, prestur
' hinnar nýstofnuðu Unitara-
I kirkju í Edmonton og Emil V.
I Guðmunds, prestur Unitarakirkj
unnar í Ellsworth, Maine. Þeir
taka þátt í fundum sem fram
fara, og fróðlegt og skemtilegt
verður að kynnast þeim og
hlusta á þá. Mr. Jenkins var kos-
inn vara-forseti Unitara félags-
ins á nýafstöðnu þingi haldið í
Boston.
★ ★ ★
Einar Magnússon frá Selkirk,
Manitoba, var staddur í við-
skiftaerindum í bænum s.l.
mánudag.
★ ★ ★
Þjóðræknisdeildin Frón þakk
ar hér með eftirtöldu fólki fyrir
bækur og annað gefið til Bóka-
safns deildarinnar. : Séra Sig-
urð Cristopherson; Mrs. Margr-
ét Jóhnson; Mrs. Una Th. Lin-
dal. — Innilegt þakklæti til ykk
ar allra sem sýnið deildinni vin-
semd og velvild með gjöfum ykk
ar. — Fyrir hönd deildarinnar,
J. Johnson
★ ★ ★
Útvarp lýðveldisdaginn
Haldið verður upp á lýðveldis-
dag íslands 17. júní hér vestra
með því að útvarpað verður yíir
kerfi CBW stöðvarinnar í Win-
r.ipeg. Herra Thor Thors sendi-
herra fslands til Canada og
Bandaríkjanna flytur kveðju til
Vestur-íslendinga frá heima-
þjóðinni. Einnig mælir forseti
Þjóðræknisfélagsins, Dr. Valdi-
mar J. Eylands, nokkur orð. Út-
varpað verður kh 6 C.D.T. Menn
hafa nægan tíma til að hlusta á
útvarpserindin og síðan að fara
á' skemtunina sem deildin Frón
stendur fyrir og sem á að fara
fram í Fyrstu Sambandskirkju í
Winnipeg.
★ ★ ★
SERVICES IN NEW ICE-
LAND.
Sunday, June 13th
Betel — 9 a m. D. S.T.
Gimli — 11 a.m. D.S.T.
Arnes — 2 p.m. D.S.T.
Hnausa — 2.30 p.m. C.S.T.
Hecla — 2 p.m. C-S.T.
Gimli — 7 p.m. D.S.T.
Riverton — 8p m. C.S.T.
Pastors R. Jack and H. S. Sigmar
-r
MENNIRNIR SEM FLESTU
RÁÐA
Augu allra þeirra mörgu millj-
óna manna, sem búið hafa við
órétt og yfirgang og vita hvað
ófrelsi er, mæna nú til Genfar.
í veglegum og glæstum sal sitja
fulltrúar mestu valdamanna
heims. Þeir ræða heimsmálin,
deila um landamæralínur, hverj-
ir eigi að stjórna þessu og þessu
landsvæði og þeir ráða því hvar
barizt er í heiminum. Umræður
þeirra og orðaval er alls staðar
rætt—jafnvel á rakarastofum
uppi á íslandi. Hvernig skyldi
það vera, að standa í sporum
þessara manna sem svo miklu
ráða um líf milljónanna? Eru
þeir venjulegir menn eða í ein-
hverju frábrugðnir öðrum? —
Bóndi í ísl. afdal jafnt sem borg
ari í Reykjavík kann að velta
slíkum spurningum fyrir sér.
o o o
Danskur blaðamaður einn hef-!
ur gefið eftirfarandi lýsingu á
fjórmenningunum—þar sem þeir
sitja á fjórveldafundi.
John Foster Dulles — er typ-
iskur lögfræðingur, hvað mál-
flutning snertir. Málflutningur
hans er þurr en mjög formfast-
ur, einkum þegar hann deilir við
Molotov. Og þegar Molotov tal-
ar fylgist hann vel með hverju
orði, tilbúinn til að skrifa niður
orðalag, sem gæti komið honum
að notum í svarræðu. í ræðum
er Dulles ákveðinn og öllum sem
á hann hlýða 'hlýtur að vera ljóst
hvað hann talar um og hvað hann
vill. Svo skýrt lætur hann vilja
sinn í ljós í aðalatriðum ræðu
sinnar, en fléttar þar inn á milli
skýringar á afstöðu Bandaríkj-
anna. — Þegar aðrir tala grípur
hann stundum fram í fyrir ræðu-
manni, en þó mjög lágt, svo að-
eins næstu menn heyra. En á
brosum þeirra má sjá að þegar
hann grípur fram í, þá hrjóta
hnyttiyrði af vörum Dullesar.
o o o
George Bidault — hefur aðra
aðferð. Hann er mjög líflegur í
ræðum sínum og leggur áherzlu
á orð sín með miklum handa-
hreyfingum. Hann kemur 'hægt
að aðalatriði — margar leiðir
virðast opnar, þar til hann allt
í einu kemur með bombuna og
hrekur lið fyrir lið röksemdir
Molotovs. Hann er mjög fljótur
að svara fyrir sig — og gerir
það vel. Margir telja hann mest-
an lögfræðinginn af fulltrúum
Vesturveldanna.
o o o
Anthony Eden — er oft sá af
f jórmenningunum sem minnst
talar. En þegar hann talar, talar
hann stutt, en skýrt og ákveðið
VINNIÐ AÐ SIGRI FRELSIS
Bogi Sigurðsson
M/1SIMS7
BETEL
í erfðaskrám yðar
og túlkar skoðanir sínar svo að
þær standa öllum ljósar. Sumir
segja hann vera persónugerfing
hins gamla þingmannaskóla.
Rödd hans er alltaf ljúf og á-
heyrileg og hann notar fastar
og ákveðnar áherzlur. Hann er
alltaf eins og hann sé í brezka
þinginu — reiðubúinn að svara
stjórnarandstæðingum, á róleg-
an, kurteisan en ákveðinn hátt.
o o o
Gaspadin Vjatcheslav Mirail-
ovitch Molotov — er maðurinn
sem alltaf veit til hverra ráða
hann á að grípa á fundum og ráð
stefnum. Hann undirbýr hvern
dag mjög vel og kemur öðrum út
af sporinu með því að leiða um-
ræðurnar úr einu efninu í annað.
Á síðari tímum virðist hann
frjálsari og menn geta sér þess
til að andlát Stalins hafi þar
einhverju um ráðið. Hann kveik
ir í einum vindlingnum (rússn-
eskum með pappamunnstykki)
af öðrum og er stundum hulinn
reykskýi. Hann hlustar með eft-
irtekt á hina ráðherrana, og ræð
ur þeirra er það eina, sem getur
tafið hann frá að kveikja sér í
vindlingi að öðrum reyktum.
—Mbl. 14. maí.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Winnipeg
Prestur, séra Philip M. Pétursson,
Ph.B., B.D.
681 Banning St. Sími 3-4571
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h., á ensku
Kl. 7 e. h., á íslenzku
Safnaðarnefndim Fundir I. fimtu-
dag hvers mánaðar
Hjálpamefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld f hverjum mánuði
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að kveld
inu.
Ungmennafélagið: — Hvert fimtu-
dagskveld kl. 8.30
Skátaflokkurinn: Hvert miðviku-
dagskveld kl. 6.30.
Söngæfingar: Islenzki söngflokkur-
urinn á hverju föstucjagskveldi.
Enski söngflokkurinn á hverju
miðvikudagskveldi.
Sunnudagaskólin: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.30
COPENHAGEN
Semur tvö leikrit í vetur
Annað kvöld verður flutt í rík
isútvarpinu nýr leikþáttur eftir
séra Jakob Jónsson, í sambandi
við kvöldvöku Austfirðingafé-
lagsins. Nefnist leikþátturinn—
“Bókin horfna”, og gerist á því
tímabili, er safnað var handrit-
um hér á landi.
Hitt leikritið, sem nefnist “í-
þróttamótið”, er samið fyrir
samtök er starfa til ágóða fyrir
Djúpavogskirkju, en þar þjón-
aði séra Jakob fyrir 25 árum sem
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÓBAK”
Þjáir kviðslit yður Fullkomin lwkning
og vellíðan. Nýjustu aðferðir. Engin tegju
bönd eða viðjar af neinu tagi.
Skrifið SMith Manfg. Company
Dept. 234 Preston Ont
aðstoðarprestur föður síns. Er
það leikrit samið með tilliti til
þess, að hægt sé að sýna það þar
sem lítill sviðsútbúnaður er fyr-
ir hendi, —til dæmis krefst það
engra leiktjalda. Verður það
frumsýnt innan tíðar á Djúpa-
vogi. —Alþbl. 7. apríl
t » * « » >.*. *' . ♦ . * Ut « J «
TMIS
SPACE
CONTRIBUTtD
B Y
DREWRYS
MANITOBA
DIVISION
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L I M I T E D
Engin ástæða til að ætla útisalerni
hreingerningu óþaegilcgt verk. GILLETT’S LYE
heldur úthýsi yðar hreinu og heilna-mu alla tíð.
Það eyðir daun og sótthreinar fullkomlega, og
fælir flugur burtu. Skvettið inn hálfri lítilli öskju
GILLETT’S vikulega. Tekur aðeins 10 sekúndur. Kostar
aðeins fáein cents.
Fyrir fullkomna sótthreins-
un: Þvoið sæti og veggi öðru
hvoru úr uppleysingar efn-
inu Tvær matskeiðar GIL-
LETT’S LYE i pott af vatni.
Viðarverk verður hreint og
ferskilmandi samstundis. —
Kaupið GILLETT’S LYE
nú þegar. glf-353