Heimskringla - 15.06.1955, Qupperneq 3
WINNIPEG, 15. JÚNf 1955
HEIM SKRINGLA
3. SÍÐA
Beverly (Hanson) Seattle.
5. Sigurrós Emily gift Krist-
inn F. Gudmundson Mountain,
N. Dakota.
6. Sigurjón Valdimar giftur
Nancy A. Bacon, Seattle Wash.
7. Ivan Agust, ókvæntur, Seat-
tle Washinton.
Systkini Hannesar á lífi eru:
Rósa, Kristíbjörg, Soffia Tomas-
son, Jón, Sigurbjörn, Valdimar,
Kristján, og Jóhann.
Útför Hannesar sál var gjörð
frá “Calvary Lutheran Ghurch’’
Seattle, Washington, 4. janúar,
1954. Stýrði henni séra S. O.
Thorlaksson, sem þá þjónaði
þeim%söfnuði í fjærveru sóknar-
prestsins, séra E. H. Sigmar, sem
var við nám á íslandi í leyfi safn
aðar síns. Við útförina talaði
einnig séra Haraldur Sigmar frá
Blaine, Washington.
Við útförina söng Dr. Edward
Pálmason einsöngva, og auk þess
söng kór safnaðarins.
Var það ákveðinn vilji fjöl-
skylduhnar að útförin yrði gjörð
frá kirkjunni fremur en frá út-
fararstofu, þar sem Hannes
hafði elskað kirkju sína svo ein-
læglega og sótt hana stöðugt
meðan kraftur leifði. Mintust
margir þess þá með hrifningu í
huga að Hannes hafði stundum
^ungið í kór(num ásamt eldri
dóttur sinni, og öllum fimm son-
um sínum.
Svo er það í fáum dráttum æfi
saga þessa ljúflynda og velmetna
manns ,sem var harmdauði ást-
mennum, vinum og samferða-
fólki. Hann var prúður maður í
framkomu, fríður sýnum, stiltur
og vinsæll. Velgefinn var hann
°g hafði einnig notið mentunar.
Hann var bókhneigður og fróður
um margt. Góður eiginmaður,
faðir og afi var hann og líka.
Eins og vænta má er hans sárt
saknað af ástvina hópnum fjöl-
menna. Og það voru margir fleiri
sem söknuðu hans sárt bæði ætt-
ingjar og vinir.
Þau kveðja hann öll með sár-
um söknuði og mikilli ástúð. En
þau kveðja hann líka í þeirri trú,
sem beigir sig fyrir vilja Drott-
ins, vitandi að fæst síst með
fögru gjaldi frestur um augna-
blik”. Þau kveðja hann í trúnni
á Guðs náð, friðinn og sigurinn
í Honum. Þau geta glaðst með
honum í þeirri sælu von, að
hann hafi þegar náð þeirri höfn
“þar sem alt er eilíf náð”.
Haraldur Sigmar
Blaine, Wash
CONTRIBUTED
BY
Drewrys
MAN ITOBA
DIVISION
WESTERN
CANADA
BREWERIES
LIMITED
Thelma
(RAGNAR STEFANSSON ÞÝDDI)
“Eg er sannarlega mér þess greinilega með-
vitandi!” sagði hann. “Og mig undrar það alls
ekki þó að tala hinna óguðlegu sé margfalt
hærri oftast en tala hinna réttlátu! Já, því er
nú ver! Hversvegna flokkast heiðingjar saman
í sinu grimmdaræði? Aðeins af því að í hjört-
um sínum ímynda þeir sér ein'hverjar hégóm-
legar grillur! Eg fyrirgef þér, Philip barón,
fyrirgef Iþér fúslega! Og þér einnig herra
minn,” hann snéri sér hátíðlega að Duprez, sem
meðtók fyrirgefninguna með glaðlegri og rokna
kurteislegri hneigingu. “Þú hefir valdið meið-
ingum, og lætur það vel—en \þú hefir aðeins
sært og lamað minn veikbyggða líkama—sálina
hefirðu ekki getað snert! Nei, og ekki heldur
málfrelsið”—hið illmannlega bros var djöful-
legt! — “sem er mitt dýrðlegasta vopn, og sem
skal ætíð og æfinlega verða beitt á móti öllum
þeim sem aðhafast ilt, hvort sem það er fagurt
kvenfólk og nornir, eða afvegaleiddir heiðingj-
ar —” Aftur þagnaði hann, fremur forviða þeg
ar Errington ’hló háðslega.
“Auðvirðilega mannfýla!” sagði baróninn.
“þú ert frá Yorkshire? Jæja, það vill nú svo til
að eg þekki margt fólk í þeim hluta landsins—
°g eg hefi dálítil áhrif þar, 1 íka. Viltu nú láta
þér skiljast það—að eg skal sjá um að þú verðir
útrekinn og hundeltur úr þeim stað! Þú skalt
komast að því að þér skal ekki verða vært þar
—það sver eg! Mundu það! Eg er maður sem
stend við orð mín! Og ef þú dirfist að nefna
nafn ungfrú Guldmar með lítilsvirðingu, skal
eg ganga næst lífi þínu”!
Dyceworthy deplaði augunum aumingja-
lega, og tók upp vasaklútinn sinn: “Eg treysti
því, Philip barón,” sagði hann smeðjulega, “að
þér snúist hugur í þessu máli! Það væri þér
sízt sæmandi að leggja þig fram til að spilla
fyrir mér í því prestakalli þar sem þjónusta mín
er metin og vinsæl hjá því fólki sem aðhyllist
lúthers-kenningar. O, já’!’ hann brosti glaðlega
—“Þú ætlar að skoða huga þinn, hvað þessu
viðvíkur. Og hvað hitt snertir —” hann stamaði
dálítið —“þá bið eg fyrirgefningar! Eg vildi
stúlkunni aðeins vel—en eg hefi verið misskil-
inn, eins og alvanalegt er með Drottins-þjóna.
Við skulum ekki tala meira um þetta! Eg fyrir-
gef! Við skulum allir fyrirgefa! Eg skal jafn
vel bjóðast til að fyrirgefa heiðingjanum þarna.
En heiðinginn, svokallaði hafði á þessu
augnabliki einmitt svift af sér þeim hömlum
sem vinir hans, góðlátlega, höfðu lagt á hann,
og æddi upp að prestinum sem heygðist niður
eins og barinn hundur fyrir svipnum á göfug-
mannlega andlitinu sem var þrútið af réttlátri
reiði, og þessum bláu, hvössu augum, sem glömp
uðu eins og stál. “Þú kallar mig heiðingja!”
æpti hann. “Eg þakka goðunum fyrir það—eg er
stoltur af nafninu! Eg vildi heldur vera hinn
grimmasti villimaður sem kraup í fáfræði og
þekkingarleysi í tilbeiðslu frammi fyrir undra-
mætti náttúruaflanna, heldur en að vera eins og
þú, saurugt kvikindi sem læðist og skríður eins
og raggeit milli himins og jarðar, og dirfist að
kalla sig Kristinn mann! Svei! Ef eg væri
Kristur, yrði mér flökurt af að horfa á þig!”
Dyceworthy svaraði engu, en litlu augun
hans glömpuðu illúðlega. Errington sem enga
löngun hafði til að framlengja þessi illindi,
reyndi að stilla til friðar, og tókst að draga hinn
æsta bónda til ihliðar.
“Við erum allir búnir að fá nóg af þessu,
herra minn”, sagði hann í lágum hljóðum. “Við
skulum fara heim til Thelmu!”
“Eg var að því kominn að stinga upp á því
að við færum að hafa okkur héðan,” bætti Lor-
imer við. “Það er aðeins tímaeyðsla að vera hér
lengur”. ,
“Já”, hrópaði Duprez, fjörlega —“og mon-
sieur Dyceworthy verður sárfeginn að komast
í rumið! Hann verður ósköp stirður og aum-
ingjalegur á morgun, það er eg viss um! Hér
er honan sem hugsar um hann”.
Þetta var kurteisisávarp til Ulriku sem svip
köld og stirðleg birtist skyndlega í litla gang-
inum. Hún virtist forviða að sjá þá, og talaði
tilbreytingarlaust, eins og hún gengi í svefni.
Stúlkan er farin? spurði hún seinlega.
Duprez kinkaði kolli, ákafur. “Hún er far-
m! Og eg get sagt þér það, að ef það hefði ekki
verið fyrir þínar aðgerðir þá hefði hún alls ekki
komið hingað. Þú fórst með spjaldið til henn-
ar ?”
Ulrika hleypti brúnum. “Eg var neydd til
þess”, sagði hún. “Hún þröngvaði mér til þess.
Eg lofaði —” Hún horfði á Guldmar með daufu,
starandi augnaráði. “Það var Lovísu að kenna.
Spyrjið Lovísu um það”. Hún þagnaði og vætti
þurrar varir sínar með tungunni. “Hvar er brjál- <9“
aði pilturinn ykkar?” spurði hún nærri því
kvíðvænlega. “Kom hann heim með ykkur?”
“Hann er dáinn!” svaraði Guldmar, með al-
vöru og kulda.
“Dáinn!” Öllum til stórkostlegrar undrun-
ar, baðaði hún út handleggjunum og rak upp
tryllingslegan hlátur. “Dáinn! Guði sé lof og
þakkir! Nokkuð sama með hvaða atvikum hann
dó—það er nóg að hann er dáinn! Eg sé hann
þá aldrei framar—hann getur ekki formælt mér
aftur! Guði séu þakkir fyrir alla hans miskun!”
Smám saman dróg úr hlátrinum— hún huldi
andlit sitt með svuntunni sinni og brast í sár-
asta grát.
“Konan hlýtur að vera brjáluð!” hrópaði
bóndinn algerlega forviða—Ihann lagði hönd
sína á handlegg Erringtons, og sagði óþolinmóð
lega. “Þú hafðir rétt fyrir þér, drengur minn!
Við erum búnir að fá nóg af þessu. Við skulum
hreinsa ryk þessa bölvaða staðar af fótum okkar
og fara heim. Eg er úttaugaður.”
Þeir fóru út úr íbúðarhúsi prestsins og
beint ofan að ströndinni, og voru brátt á leið
yfir fjörðinn til bóndabýlisins. Að þessu sinni
var sjávarfallið þeim hagstætt—kvöldið var ynd
islegt, og svalur kvöldblærinn—bárugjálfrið
við bátshlíðariiar og hið friðsæla fagra landslag,
kom hinum æstu taugum þeirra og tilfinningum
í rólegra ástand. Thelma beið þeirra á svölunum
eins og vanalega, hún var dálítið fölari en hún
átti vanda til, eftir allan kvíðann, hræðsluna og
óvissuna sem hún var búin að þjást af—en ástar
atlot föður hennar og elskhuga, komu litarhætti
hennar í samt lag. Ekkert var minst á hvað vilj-
að hafði til með Sigurd þá í svipinn—þegar hún
spurði um hann—aðeins var henni sagt að hann
hefði reikað eitthvað sinna ferða eins og vana-
lega. Þaé^var ekki fyr en Errington og vinir
hans voru farnir út í skipið, að gamli Guldmar,
þegar hann var orðinn aleinn hjá dóttur sinni—
sagð henni fréttirnar af slysinu með mestu nær-
gætni
En þessi tíðindi svo óvænt og hryllileg,
buguðu hana nálega eftir allan taugaæsinginn
og hugarangrið þennan dag—og mörg tár voru
feld yfir fráfalli vesalings brjálaða drengsins
að Sigurd myndi hafa orðið hrifinn af innilegu
þakklæti. Sigurd—hinn trúi og tilbeiðslufulli,
látinn—Sigurd—leikfélagi hennar—þjónn henn
ar dánn! Hún syrgði hann einlæglega! Hún
minntist iðrandi hinna tryllingslegu orða hans
“Vesalings Sigurd getur ekki lifað lengur!’
Angurvær braut hún heilann um það, hvort hin
mikla og heita ást er hún bar til Philips hefði
valdið því að hún hafði vanrækt Sigurd—andlit
hans, fölt, angistarfullt og biðjandi, stóð henni
íyrir hugskotssjónum, og þessi sorg var hin
sárasta sem fyrir hana hafði komið síðan hún
horfði á móður sina sofna hinum hinnzta svefni.
Britta grét einnig og vildi ekki huggast láta—
henni hafði þótt vænt um Sigurd á sinn hátt—
og það leið nokkur tími þangað til hún og hús-
móðir hennar náðu sér svo að þær gengu til
hvílu. Og löngu eftir að Thelma var sofnuð með
tárvotar kinnar sat faðir hennar úti á svölunum
í þunglyndislegum hugleiðingum. Stundum
strauk hann hið úfna, hvíta hár sitt með hend-
inni óþolinmóðlega—ferðalag dóttur hans og
vera hennar í húsi Dyceworthy’s ýfði hið stolta
skap -hans. Hann vissi vel að afsakanir prests-
ins meintu ekkert—vissi að allir í þorpinu
myndu baknaga Thelmu meira en nokkru sinni
áður—eins lengi og Dyceworthy var þar til
þess að blása að kolunum. Hann sat lengi og
braut heilann um hvað gera skyldi—þegar hann
að lokum reis á faetur til þess að fara inn og
ganga til 'hvilu, tautaði hann hálf hátt: “Ef það
a að ské þá verður það að vera svo! og því fyr,
þess betra, að eg held, barnsins vegna.
Næsta morgun kom Philip, óvenjulega
snemma, og ræddi við bóndann einslega meira
en klukkustund. Að þeim tíma liðnum var
Thelma kölluð á ráðstefnu. Árangurinn af þessu
leynilega samtali var ekki undir eins gerður
heyrum kunnur—þó að næstu daga væri meira
um að vera á bóndabýlinu en nokkru sinni áður
við allskonar undirbúning í langferð. Meira en
það, Bosekop-íbúunum til mikillar undrunar var
var seglskútan “Valkeyrie” sem Olaf Guldman
átti, sem hafði verið í uppsátri marga mánuði,
allt í einu komin á flot á firðnum, og Valdemar
Svensen, hafnsögumaður Erringtons, virtist
önnum kafinn við að útbúa hana í ferðalag. Það
var ekki til neins að spyrja hann neins—'hann
var ekki maður sem leysti úr neinum ruddaleg-
um forvitnisspurningum. Smám saman bárust
þó fréttirnar til Bosekop og nágrennisins. —
Lovísa hafði haft sitt fram að einu leyti —Guld
mars feðginin voru að fara burt—burt úr Alten-
firðinum! f fyrstu efaðist fjöldinn mikið um
að fréttirnar væru sannar, en fór að trúa þeim
betur, þegar vart varð við að talsverður farang-
ur var fluttur bæði um borð í Eulalie og út í
Valkýrie. Þessi undirbúningur "vakti ihikið um-
tal og forvitni—en enginn þorði að leita upplýs
inga um hvað til stspði.
Professiona/ and Business
===== Directory==-
Office Phone
924 762
Res. Phone
726 115
Dr. L. A. SIGURDSON
528 MEÐICAL ARTS BLDG.
Consultations by
Appointment
Thorvaldson Eggertson
Bastin & Stringer
Lögtrœðingar
Bank of Nova Scotia Blde.
Portage og Garry SL
Sími 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLIN'IC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
Phone 926 441
H. J. PALMASON
CHAATERED ACCOUNTANT
505 Confederation Life Bldg.
Winnipeg, Man.
Phone 92-7025
Home 6-8182
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rentcd, Insurance and Financial
Agents
Simi 927 558
308 AVENUE Bldg. — Winnlpeg
CANADIAN FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fish
311 CHAMBERS ST.
Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-5917
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave. Ph. 932 954
Fresh Cut Flowerk Daily.
Plants in Season
We specialize in Wedding and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
A. S. BARDAL
LIMITED
selur líkkistur og annast um
útíarir. Allur útbúnaöur sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE ST.
Phone 74-7474 Winnipeg
M, Einarsson Motors Ltd.
Buying and Selling New and
Good Used Cars
Distributors for
FRAZER ROTOTILLER
and Parts Service
99' Osbome St. Phone 4-4395
1
Union Loan & Investment
COMPANY
RentaL Insurance and Finandol
Agents
Simi 92-5001
508 Toronto General Trusts Bl<tg.
1
Tfre BUSINESS CLINIC
(Anna Larusson)
306 AFELECK BLDG., (Opp. Eaton’s)
Office 92-7130 House 72-4315
Bookkeeping, Income Tax, Insurance
Mimeographing, Addressing, Typing
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Controctor & Bullder
•
526 ARLINGTON ST.
Sími 72-1272
MALLON OPTICAL
405 GRAHAM AVENUE
Opposite Medical Arts Bldg.
TELEPHONE 927 118
Winnipeg, Man.
FINKLEMAN
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
"1
Kensington Building
275
Portage Ave.
PHONE 92-2496
Winnipeg
COURTESY TRANSFER
& Messenger Service
Flytjum kistur, • töskur, húsgögn,
píanós og kæliskápa
önnumst allan umbúnað á smásend-
ingum, ef óskað eT.
Allur fltuningux ábyrgðstur
Simi 526 192 1096 Pritchard Ave.
Eric Erickson, eigandi
Vér verzlum aðeins með fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON, eigandi
714 EUice Ave. Winnipeg
TALSÍMI 3-3809
S..
BALDWINSON’S BAKERY
749 Ellice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Brúðhjóna- og afmæliskökur
gerðar samkvæmt pöntun
Sími 36-127
Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opp. New Maternity Hospital
NELL’S FLOWER SHOP
Wedding Bouquets, Cut Flowen
Funeral Designs, Corsages
Bedding Plants
Mrs. Albert J. Johnson
Res. Phone 74-6753
t"—
"S
GRAHAM BAIN & CO.
PUBLIC ACCOUNTANTS and
AUDITORS
874 ELLICE AVE.
Bus. Ph. 74-4558 Res. Ph. 3-7390
L
Office Ph. 92-5826
Res. 40-1252
DR H. J. SCOTT
Specialist in
EYE, EAR NOSE and THROAT
209 Medical Arts Bldg.
HOURS: 9.30 - 12.00 a.m.
2 — 4.30 p.m.
S,----------------—---—----------
J. WILFRID SWANSON
& CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate — Mortgages — Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
Hafið HÖFN í Huga
ICELANDIC OLD FOLKS
HOME SOCIETY
— 3498 Osler Street —
Vancouver 9, B. C,
1
r
gilbart funeral
HOME
- SELKIRK, MANITOBA -
J. Roy Gilbart, Licensed Embalmer
PHONE 3271 - Selkirk
L
<-—------------------—
GUARANTEED WATCH, & CLOCK
REPAIRS
SARGENT JEWELLERS
H. NEUFELD, Prop.
Watches, Diamonds, Rings, Clodu,
Silverware, C.hina
884 Sargent Ave. Phone 5-5170
—
JACK POWELL, B.A. LL.B
BARRISTER, SOUCITOR,
NOTARY PUBUC
Off. Ph. 927751 - Res Ph. 56-1015
L
206 Confederation Building,
Winnipeg, Mán.
HERE JOW!
ToastMaster
MIGHTY FINE BREAD!
At your grocers
J. S. FORREST, J. WALTON
Manager Sales Mgi.
PHONE 3-7144
—