Heimskringla - 30.04.1958, Page 2
2. SÍÐA
HEIHSXRIMGLA
WINNIPEG, 30. APRÍL 1958
Blcimskriitpla
mntrnufi l»n
Kemur út á hverjum miðvikudegi
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
868 Arlim>ton St. Winnipeg 3, Man. Canada Phone SPruce 4-6251
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
Thr Viking Press Limited, 868 Arlington St., Winnipeg 3
Ritstjóri: STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 868 ArUngton St. Winnipeg 3, Man.
HEIMSKRINGLA is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
868 ArUngton St., Winnipeg 3, Man. Canada Phone SPruce -4-6251
Authorlaed gg Second Claag Mctll—Pogt Offlce Dept., Ottawq
WINNIPEG, 30. APRfL 1958
STÓRMERKILEGAR TILLÖGUR UM SAMSTAF
AUSTUR- OG VESTUR-ÍSLENDINGA
BsDklingur hefir Heimsklinglu borist, saminn af Árna Bjarn-
arsyni, er um sarfstarf Austur- og Vestur-íslendinga f jallar. Ger-
ir höfundur grein fyrir í 40 tillögum hvað gera þurfi. Ræðir hann
ekki aðeins hverja tillögu út af fyrir sig, heldur beinir þeim einn-
ig til stjórnar íslands og Þjóðræknisfélags Vestur-íslendinga sem
hann álítur aö nofnd ættu að skipa beggja megin hafsins og gang-
ast fyrir fr?mkvæmdum, og það sem allra fyrst. Skrifar Stein-
grímur Stei iþórsson fyrverandi forsætisráðherra inngang að bækl-
mgnum og líst vel á tiilögur Árna Bjarnarsonar og samstarf Aust-
ur og Vestur-íslendinga.
Tillögur sinar segir Árni, að komið hefðu sér í hug er hann
Jas um tvenn merkileg landnáms afmæli .hér vestra er haldin voru
fyrir tveim árum. Hið fyrra var aldar-afmæli Utah-bygðar. Hitt
var 80 ára afmæli Nýja-íslands-bygðar. Bæði þau afmæli og þjóð-
ræknisstarf Vestur-fslendinga síðan og fram til þessa tíma, beri
samhug þjóðarbrotsins og heima þjóðarinnar, fagurt vitni ættjarð-
arástar og megi ekki siitna. En eftir því, sem tímar líða, yrði með
hverju ári, erfiðara tim þjóðræknisstarfið, og Vestur-íslendingum
einum yrði ofraun, að halda samstarfi því, sem til þessa hefði átt
sér stað. Þeir hyrfn að vísu ekki eins og Grænlands-faramir forð-
um. Það geyrndust minningar sem hér hefðu skráðar verið um þá.
En yrði ekkert frekar aðhafst, fram yfir það sem nú væri gert, gæti
sagan endanlega orðið lík Grænlandsfaranna. En tilhugsunin ein
um það, væri ekki hin bezta.
En frá þessu skal nú hverfa, og birta hér tillögur Árna.
TILLÖGUR UM AUKIÐ SAMSTARF ÍSLENDINGA
VESTAN HAFS OG AUSTAN
GAGNKVÆM LAND-
KYNNING
1. Stofnuð verði íslenzk ferða-
og upplýsingaskrifstofa í Win-
nipeg.
2. Útvarpað verði frá Ríkisút-
varpinu einu sinni í viku fréttum
af íslendingum í Vesturheimi.
3. Ríkisútvarpið hafi 2 Vest-
mannadaga árlega.
4. Teknar verði upp á segulband
dagskrár til sendingar vestur um
haf, til flutnings þar í útvarp eða
á samkomum fslendinga.
5. Vestmannadagur verði hald-
inn árlega á Þingvöllum.
6. Unnið verði að stofnun deilda
Þjóðræknisfélagsins sem víðast
á fslandi.
7. Efnt verði til bréfaskipta
milli íslenzkra námsmanna í
skólum hér og í Ameríku.
8. Framkvæmdanefndir verði
stofnaðar, bæði á fslandi og með
al íslendinga í Vesturheimi, til
að vinna að aukinni samvinnu
milli íslendinga báðum megin
hafsins.
HEIMBOÐ OG MANNA-
SKIPTI
1. Árlegt heimiboð 40—50 vest-
ur-íslenzkra æskumanna til
dvalar á góðum íslenzkum sveita
heimilum 2—3 mánuði að sumr-
inu.
2. Ókeypis námsdvöl nokkurra
vestur-íslenzkra námsmanna í ís-
lenzkum skólum. Nemendaskipti
geta einnig komið til greina.
3. Skipti á starfsmönnum í ýms-
um atvinnugreinum.
4. Skipti á ferðamannahópum
með líkum hætti og verið hefur
við Norðurlönd.
5. Stofnað verði dvalarheimili
eða gestaheimili á íslandi fyrir
þá Vestur-íslendinga, sem kæmu
hingað til stuttrar dvalar.
6. Fulltrúar séu sendir héðan á
hvert Þjóðræknisþing í Win-
nipeg og öll hin stærri landnáms-
afmæli.
7. Unnið verði að því, að koma á
vinabæjasambandi milli íslenzkra
bæja og þeirra borga og bæja
vestan hafs, í Canada og Banda-
ríkjunum, þar sem flest fólk er
af íslenzkum ættum.
MENNINGARMÁL
1. Kennslustólar í íslenzkum
fræðum við háskóla vestan hafs
séu studdir héðan að heiman m.
a. með sendikennurum.
2. Kennslubók í íslenzku verði
gefin út til afnota fyrir íslend-
inga fædda í Ameríku.
3. Sendir verði fyrirlesarar vest-
ur um haf og vestur-íslenzkum
menningarfrömuðum boðið heim
árlega.
4. Gerð verði kvikmynd af ís-
landi nútímans, og hún send til
sýningar vestra.
5. Efnt verði til sögulegrar kvik
myndar af vesturferðum íslend
inga á s.l. öld.
6. Landnemar þeir, sem enn eru
á lífi vestan hafs, verði heimsótt
ir, og samtöl við þá tekin á segul
band.
7. Unnið verði að áframhaldi á
ýtarlegri landnámssögu íslend-
inga í Vesturheimi.
8. Hafist verði handa um að af-
rita eða mynda úr kirkjubókum
eða manntalsskrám vestra, allt
það, er snertir fslendinga eða
menn af íslenzkum ættum.
5. Hafin verði æviskrárritun fs-
iendinga í Vesturheimi, bæði
þeirra, er vestur fluttust og af-
komenda þeirra, með líku sniði
og íslenzkar æfiskrár. Safnað
verði myndum allra þeirra, er
til næst.
10. Gerð verði gangskör að því
að safna handritum Vestur-ís-
lendinga til varanlegrar geymslu.
11. Komið verði upp sýnishorni
af frumbýlingshúsi í einhverri
FURÐUSKEPNAN í FJóS-
INU
Fyrir nokkru gerðist það á
Frakklandi, að Coty forseti
heiðraði kú eina við opinbera
athöfn með því að kyssa hana á
báða kjamma fyrir frábæra mjólk
urlægni og afurðagæði. í Banda-
ríkjunum eru til kýr, sem hafa
hlotið fleiri) heiðursmerki en
margir þarlendir hershöfðingjar.
Slíkar viðurkenningar eru ekki
illa til fallnar. Engin skepna er
okkur nytsamari en mjólkurkýr-
ín.
meginbyggða Vestur-fslendinga,
og sögulegu minjasafni.
12. Stuðningur við vestur-ís-
lenzk blöð, tímarit og bókaút-
gáfu.
13. Ókeypis blaða- og bókasend-
ingar til menntastofnana, skóla,
elliheimila o.s.frv. í byggðum ís-
lendinga í Vesturheimi.
14. Send verði árlega jólakveðja
til vestur-íslenzkra barna frá ís-
lenzkum börnum.
15. Stutt verði að stofnun ís-
lenzkra leikflokka og söngflokka
í borgum og bæjum vestra, þar
sem Íslendingar búa.
16. Fréttaritari fyrir íslenzk
blöð og útvarp starfi vestan hafs.;
VIÐSKIFTI OG FLEIRA
1. Verzlunarfulltrúar og mark-
aðsleitarmenn verði sendir vest-
ur um haf og leitað samvinnu við
Vestur-íslendinga í þeim efnum.
2. Árleg heimilisiðnaðar- og iðn
sýning verði haldin í borgum og
bæjum vestan hafs, og í einhverri
af hinum stærstu íslendinga-
byggðum þar.
3. Árleg bóka- og blaðasýning
verði haldinn í Winnipeg og
stutt að íslenzkri bókaverzlun og
bókaútgáfu þar.
4. íslenzk verzlun verði stofn-
uð í Winnipeg og e.t.v. víðar, er
hafi íslenzkar framleiðsluvörur
til sölu og sýnis.
5. Leitað verði samstarfs og
stuðnings Vestur-íslendinga í
skógræktarmálum, t.d. um út-
vegun trjáfræs og trjáplanta, og
námsdvalir íslenzkra skógrækt-
armanna á skógræktarstöðvum
vestan hafs.
6. Þjóðræknisfélög íslendinga
vestan hafs og austan hafi for-
göngu að því, að greitt verði fyr
ir því að íslendingar báðum meg-
'i hafsins geti skipzt á gjafa-
ögglum, einkum fyrir jól og við
nnur hátíðleg tækifæri.
ÝMISLEGT
, Stutt verði að stofnun íslend-
ígahúss í Winnipeg.
, Auglýst verði eftir tillögum
íeðal íslendinga vestan hafs og
ustan, hvað gera skuli til auk-
ís samstarfs milli þjóðanna, og
vað af þessum tillögum þeir
slji brýnasta nauðsyn að fram-
væsna fyrst.
. Leitað verði upplýsinga um,
vað hinar Norðurlandaþjóðirn-
r hafa gert og gera til að halda
ið sambandi og samstarfi við
mda sína í Vesturheimi, og ef
il vill taka upp samvinu við þær,
f heppilegt reyndist og fram-
væmanlegt.
•
Útskýringar og greinargerð
yrir tillögum þessum, eru svo
;erð á 35 blaðsíðum í bæklingn-
im. Þær verða ef til vill síðar
irtar eða ræddar en verða þó
ð bíða fyrst um sinn, eða þar
il skriður er kominn á málið og
ieirra er brýnni þörf. Ágrip til-
aganna, sem hér er birt, vekur
thygli til að byrja með.
Höfundur þeirra á ómælt þakk
æti skilið fyrir að hreifa eins
rel og raun er á þessu þarfa máli,
•arfasta og hugljúfasta málinu
em í brjósti hvers góðs ís-
endings býr.
Mjólkurfræðingar hafa áætlað,
að væri ársframleiðslu af kúa-
mjólk hellt á pott-flöskur og
þeim raðað hlið við hlið, mundi
slík flöskufylking ná meira en
f jögur hundruð sinnum kringum
jörðina. Minna en helmingur
þessa óhemju magns fer til suðu
og drykkjar. Nokkur hluti fer
til framleiðslu á.um það bil fimm
billjón kg. af smjöri, hálfri
þriðju billjón kg. af osti og —í
Bandaríkjunum einum—tuttugu
og þrem milljónum lítra af rjóma
Heilbrigðisstjórn Bandaríkjanna
fullyrðir, að engin fæðutegund
taki mjólkinni fram.
Segja má, að fyrir tilverknað
mannanna sé kýr nútímans orð-
tn háþróuð mjólkurverksmiöja.
Frá náttúrunnar hendi er kúnni
ætlað að ala einn kálf á ári og
mjólka honum um 175 lítra alls.
Ennþá á hún aðeins einn kálf
á ári, en fyrir atbeina mannsins,
—með bættri fóðrum, hirðingu!
og ikynbótum, mjólkar hún nóg
handa 15 eða 20 kálfum og hún
mjólkar tíu mánuði ársins í stað
rtokkurra vikna.
Meðalkýr bandarísk gefur nú
af sér 2525 lítra á ári, næstum því
tvöfalda meðalnyt ársins 1910.
Kýr í California eru fremstar
með 3730 lítra meðalársnyt. Ein
kýr í Michigan mjólkaði hvorki
meira né minna en 18.664 lítra á
einu ári, En heimsins beztu kýr
eru í Hollandi, Belgíu og Dan-
mörku.
Kýrin er efnaverksmiðja og
vinnur furðuverk á því sviði.
Vömb hennar, hið fyrsta og
stærsta hinna fjögurra maga-
hólfa, tekur mannlegum maga
langt fram. í vömbinni hafast
við um 50 tegundir gerla, sem
breyta köfnunarefnasamböndum
grasanna sem hún étur, í eggja-
hvítuefni; þessir gerlar fram-
leiða B-vitamín, sem við og flest
ar skepnur verða að fá með fæð
unni; þeir breyta kornhýði og
öðrum ólíklegum fóðurefnum í
fyrirtaks orkugjafa.
Eftir að hin grófari fæða kýr-
innar hefur verið í þessari inn-
vortis efnasmiðju í eitt dægur,
snýr hún aftur í smátuggum upp
í munn hennar, blandast munn-
vatni og malast undir jöxlum,—
kýrin jórtrar og kyngir aftur.
Kýrin framleiðir um 45 lítra af
munnvatni daglega og auk þess
nálega pund af natríumtvíkar-
bónati til aðstoðar við melting-
una.
Annað magahólf kýrinnar,;
keppurinn, er poki með þykku
fóðri. Þetta hólf mætti kalla
ruslakistu, því að þar verða eftir
naglar og annað málmkyns, sem
kýrin gleypir í haganum eða úr
heyinu. Venjulega gengur kýrin
æviskeið sitt ótrufluð af þessu
járnarusli, þó að stundum sé upp;
skurður óhjákvæmilegur til að
bjarga lí-fi hennar.
Þriðja hólfið, lakinn, er vöðva
mikið og vindur mestu vætuna
úr fóðrinu. Fjórða hólfið, vinstr!
ið, gegnir svipuðu hlutverki og
magi í manni. í vinstrinu meltir!
kýrin þær billjónir gerla, sem
unnu úr köfunarefnasamböndun-]
um í vömibinni, sjálfum sér til
vaxtar og viðgangs. Grastuggan
cr alls fjóra sólarhringa á leið-
inni gegnum meltingarfæri kýr-
innar og næringarefnin úr henni
að komast inn í iblóðrásina.
Góð kýr skilar einum lítra
mjólkur fyrir hver tvö og hálft
kg. af fóðri, sem hún étur (Er þá
miðað við kraftfóður). En kýrin
hefur jafnan einþykk verið og
setur sjálf sín skilyrði fyrir því,
að þessu mjólkurmagni sé skilað
mjaltamanninnum. Hún á það til
að halda eftir hluta af nytinni
eða jafnvel henni allri ef illa
liggur á henni, hún er óánægð
með vistarveru sína eða hefur
horn í síðu þess, sem mjaltar
hana.
“Enginn skepna krefst eins
mikillar natni og kýrin”, segir
dr. William E. Petersen, próf.
í mjólkurvinnslufræðum við Bún
aðarháskóla Minnesotafylkis. —
“Sé talað vingjarnlega við hana
og henni sýnd nærgætni og alúð,
græðir hún sig ótrúlega. Jersey
kýr ein, sem eg þekkti, jók nyt-
ina um 60% við það að maður,
sem henni geðjaðist vel að, tók
við hirðingu hennar. Á örum
stað var geðstirðum fjósamanni,
sem hafði ýmugust á kúm, vikið
úr starfi og annar geðgóður og
rólyndur ráðinn í hans stað. Áó-
ur en vika var liðin, hafði hver
kýr í f jósinu grætt sig að meðal
tali um fimm potta á dag.”
Stundum geldast kýr við það
eitt, að sjá ókunnan hun*d eða
kött í fjósinu á mjaltatíma. —
Verði þær fyrirlangvarandi skap
raun, hverfa mjólkurefnin úrj
júgrinu aftur til blóðsins og kýr!
in tekur að þorna.
Nokkur ár eru síðan mjalta-
rnenn sem höfðu útvarpsviðtæki
sér til dægrastyttingar í f jósinu,
tóku að veita því eftirtekt, að
kýrnar græddus við að hlusta
á hljómlist. Nú eru margir bændl
ur farnir að hafa útvarps- eða
grammófóntónlist í fjósunum á
mjaltatímum. Sumir segja, að'
Vínarvalsar séu sérstaklega á-
hrifaríkir.
Rannsóknir á hegðun dýra,
sem gerðar hafa verið í Cornell-
háskóla, sýna, að svín eru greind
ust .tamdra grasbíta, en kýr í
fjórða sæti eftir múldýrum og
hestum. Þó fer því fjarri, að kýr
séu heimskar. Það er hægt að
kenna þeim að opna fóðurkassa
með því að ýta með höfðinu á á-
kveðnar fjalir og opna klinkur
með hornunum. Og þess eru
dæmi, að kýr hafi ratað heim eft-
ir að hafa verið seldar á annan
bæ, tugi kílómetra í burtu.
Fróðir menn segja, að kýr séu
jafn minnisgóðar og fílar. Þegar
kúahópur kemur í fjós á kvöldi,
finnur hver kýr sinn bás tafar-
laust. Ef kýr er flutt í annað f jós
og síðan í gamla fjósið ári síðar,
gengur hún rakleitt á sinn gamla
bás.
Áberandi sérkenni í fari kýr-
ínnar er tilfinning hennar fyrir
stöðu sinni í samfélaginu. Segja
má, að hver kúahópur hafi sína
forustukú, sem alltaf gengur
fyrst inn í fjósið eða á beit og
hefur óskoraðan og óumdeildan
rétt til að stugga öllum öðrum
kúm frá jötunni. Á eftir henni
ganga aðrah hefðarkýr eftir
stöðu sinni í samfélaginu. Á kúa
bui Comell-háskólans, sem eg
skoðaði, voru 12 “heldri” kýr í
100 kúa hóp. Almúgakýrnar
stóðuj lotningafullar álengdar
meðan heldri kýrnar gengu í f jós
íð. Bændur, sem vilja forða kúm
sínum frá geðtruflunum og van-
líðan, gæta þess að blanda sér
ekki í samfélagssskipan þeirra.
Venjulega tekur einhver kýr
íorustuna vegna þess, að engjiy>
keppinautur er þess umkornmn
að hrekja hana frá. Eftir að hún
er sezt að völdum, eru líkur til
að hún haldi þeim ævilangt. Þó
er hugsanlegt, að aðfengin kýr
berjist við hana um völdin.
Dr. Petersen segir sér hafa
orðið ógleymanleg metorðagirni
Jersey-kýr einnar. Hún var flutt
í hóp kúo, er ihön -vor ðktmnug,
þegar -hún var fjögurra vetra
gömul. Hún bauð öllum hinum
kúnum byrginn, missti bæði
hornin í viðureign við þær og lét
ekki staðar numið fyrr en hún
var orðin forustukýr. Hún gekk
alltaf síðan fyrst inn í fjósið,
tók munnfylli af heyi úr hverri
jötu á leiðinni að eigin jötu. Þótt
hún væri ósjálfbjarga af liða-
gigt síðustu tvö ár ævi sinnar og
gæti engan veginn variö sig,
sýndu hinar kýrnar henni fulla
lotningu unz hún féll í valinn
WHERE THERE ARE FIVE OR
MORE PERSOHS EMPLOYED
Samkvæmt vátryggingarlögum spítala, verða allir starfs-
menn, hvort sem fimm eru eða fleiri, að skrásetja sig hjá
vinnuveitenda. Þetta verður að gerast fyrir 10. júní 1958.
Skrásetningar eyðublöð eru þegar í höndum Mamtoba
Hospital Service Plan. Þau ættu nú að vera í höndum
vinnuveitenda.
THE MANITOBA HOSPITAL SERVICES PLAN
R. W. BEND, Minlstor
O. L PICKERING, Commiiilonw