Alþýðublaðið - 01.06.1960, Side 3

Alþýðublaðið - 01.06.1960, Side 3
iðleikum, sem hún sá fram- undan. Loks minnti Emil á, að Hermann Jónasson hefði tvisvar sinnum rofið samstarf við Alþýðuflokkinn til að setja á gerðardóm í launa- málum. Emil kvað langt síðan jafn verðlag — þegar að skuldaskil- um kom. Jón ræddi um skattamálin og rakti röksemdir fyrir því, að veltuútsvar hefur verið lagt á félagsmannaviðskipti kaupfé- laganna. Taldi hann, að þegar velia þyrfti á milli hagsmuna stjómgrand- stæöinga i eldhúsum- ræóum ÞVÍ VAR HALDIÐ FRAM, að ráðstafanir Al- þýðuf lokksstj órnarinnar 1959 þýddu 13% skerð- ingu á kaupi launamanna. Nú hefur komið í ljós í skýrslu, sem sjálfur Einar Olgeirsson hefur lagt fram á alþingi, að kaupmáttur tímakaups verkamanna hafi aldrei verið meiri síð astliðin 10 ár en hann var 1959. Þannig fórust Emil Jónssyni orð í útvarpsræðu frá alþingi í gærkvöldi. Hann hélt áfram: Nákvæmlega sama sagan er að endurtaka sig nú. Afleiðingar efnahagsaðgerðanna eru rang- túikaðar og affluttar, enda þótt ekkert hafi komið fram um að hækkun framfærslukostnaðar vegna gengisbreytingar — þeg- ar tekið er tillit til þeirra hlið- arráðstafana, sem gerðar hafa verið — fari nokkurn skapaðan hlut fram úr þeim 4—5 stigum, scm gert var ráð fyrir í upp- liafi. Og hvað er það samanbor- ið við hin ósköpin, sem komið hefðu ef ekkert hefði verið að gert? Auk þess eru líkur til að þetta þurfi ekki að standa nema stuttan tíma. Hér ber allt að sama brunni. Tilhneigingin til að gera póli- tískan andstæðing tortryggileg- an í augum fólksins, en ekki viðleitni til að leysa aðkallandi vanda, enda hefur ekki bólað á neinum tillögum í þá átt frá andstæðingum stjórnarinnar. Emil kvaðst ekki í vafa um að þær úrlausnir mála, sem nú hafa fengizt, séu hinar líkleg- ustu til að tryggja í framtíð- inni góða efnahagsafkomu og hinar léttbærustu, sem völ var á. Emil svaraði ádeilum Her- manns Jónassonar á Alþýðu- flokkinn og ásakaði hann um að hafa stjórnað för íslenzku þjóðarinnar fram á hengiflugs brúnina 1958 en síðan hlaup- izt á brott frá öllu saman. Kvað Emil þá hugsun hvarfla að mönnum, að Framsókn hafi viljað koma sér hjá þeim crf- iðulaus moldviðrisstórhríð hef- ur gengið yfir útvarpshlustend- ur sem ræður stjórnarandstæð- inga í þessum umræðum. Emil minnti á, að gengis- lækkunin hefði þurft að verða helmingi hærri, ef stöðvunin 1958 hefði ekki komið til skjal- anna. Þá var margyfirlýst af hálfu Albýðuflokksins, að vandi framtíðarinnar væri ó- leystur, þótt tækist að halda í horfinu. Það er því útúrsnún- ingur af versta tagi að segja, að Alþýðuflokkurinn hafi nokk ur loforð svikið. RÆÐA JÓNS ÞORSTEINSSONAR. Annar ræðumaður Alþýðu- flokksins í eldhúsumræðunum var Jón Þorsteinsson. Byrjaði hann á því að sýna með glöggu dæmi hvernig skuldasöfnun þjóðarinnar hefði haft þau ó- hjákvæmilegu áhrif að hækka kaupfélags eða bæjarfélags — yrði að velja bæjarfélagið — alla íbúana. Jón hrakti fullyrðingar stjórnarandstæðinga, og endaði á því að rekja þau hagsmuna- mál, sem Alþýðuflokkurinn hef ur komið fram. Taldi hann vafalaust, ag íslenzkur verka- lýður mundi brátt bæta kjör sín verulega og efnahagskerfi ríkisstjórnarinnar sýna kosti sína hér, eins og sambærileg kerfi hefðu gert í öðrum lönd- um. RÆÐA GUÐ- MUNDAR í. Þriðji ræðumaður Alþýðu- flokksins var Guðmundur í. Guðmundsson, og ræddi hann baráttu íslenzkra ríkisstjórna gegn verðbólgunni. Benti hann á, að síðustu tvo áratugi hefði allar stjórnir skilað af sér meiri dýrtíð en þær tóku við — Framhald á 5. síðu. Sigga Vigga ______________________________________________ »ÞÚ SKALT E.KKI LMA ÞER BFtEGÐA ÞÓ AÐ STRÁKARNIR SE.U MEÐ TILBURDI V/£> PIG FYRSTU DAGANA. PEIM FINMST ALLT NÝTT FALLEGT SÍDAN FJÖLSKVLDUBÆTURNAR KOMU TIL SÖGUNNAR" Greinagerð frá bönkunum VEGNA þeirra breytinga, sem orðið hafa á skipan inn- flutnings- og gjaldeyrismála með gildistöku laga nr. 30, hinn 1. júní 1960, þykir rétt að vekja athygli á eftirfarandi til leið- beiningar fyrir þá, sem sækja þurfa um gjaldeyri. Nýju lögin kveða svo á að Innflutningsskrifstofan hætti störfum 1. júní en Lands- banki íslands, 'Viðskiptabanki og Útvegsbanki íslands taki við veitingu leyfa fyrir þeim vör- um og öðrum gjaldeyrisgreiðsl- um, sem leyfi þarf fyrir, að höfðu samráði við viðskipta- málaráðuneytið. Allar umsóknir um gjald- eyri, hvort sem um er-að ræða greiðslu á vörum samkvæmt frílista, vörum háðum leyfum eða duldum greiðslum, svo sem námskostnaði, sjúkrakostnaði, ferðakostnaði o. s. frv. skulu lagðar inn í bönkunum á þar til gerðum eyðublöðum, sem bank arnir eða umboðsmenn þeirra munu láta í té. Sama gildir um umsóknir fyrir innflutning án gjaldeyris. Eyðublöð þessi eru númeruð eftir því um hvers konar gjaldeyrisumsókn og greiðslufyrirkomulag er að ræða. Starfsmenn bankanna munu leiðbeina fólki um val á viðeigandi umsóknarformi og aðstoða á annan hátt. Nauðsynlegt er, að allir sem um gjaldeyri sækja útfylli ít- arlega umsóknareyðublöðin, og sérstaklega skal brýnt fyrir inn flytjendum að geta nákvæm- lega um tollskrárnúmer þeirrar vöru sem sótt er um greiðslu á. FRÍLISTINN. Meginhluti innflutningsins hefur nú verið settur á frílista, og verður umsóknum um yfir- færslu fyrir vörum samkvæmt honum afgreiddar jafnóðum og þær berast. Allir, sem flytja inn vörur, hvort sem um er að ræða frílista- eða leyfisvörur, skulu semja um greiðslu þeirra í banka áður en innflutningur á sér stað. Bönkunum er heimilt að binda kaup einstakra vara við opinber vörukaupalán, ef þær eru fáanlegar samkvæmt slík- um lánum. Á þetta einnig við um vörur, sem ætlaðar eru til sams konar nota, og vörur, sem kaupa má samkvæmt slíkum lánssamningum. / ' LEYFISVÖRUR. Leyfisvörur falla í tvo flokka. Annars vegar vörur, sem flutt- ar eru inn frá jafnkeypislönd- um, er gert er ráð fyrir, að leyfi fyrir þeim verði gefin út viðstöðulaust, eftir því sem um þau er sótt. Hins vegar eru leyfi, sem gilda gagnvart öllum löndum. Verða þau gefin út innan kvóta, sem ákveðnir verða í upphafi hvers árs og skipt á vöruflokka. Nánari auglýsing- ar um kvóta þessa árs verða gefnar út síðar. NOTKUN GREIÐSLU- FRESTS ERLENDIS. Heimilt er að flytja inn vör- ur með allt að þriggja mánaða greiðslufresti hafi innflytjandi áður samið við bankana um greiðslufyrirkomulag vörunn- ar. Sérstakt samþykki þarf að fást af hálfu bankanna, samkv. nánari ákvörðun viðskipta- málaráðuneytisins, óski inn- flytjandi eftir lengri greiðslu- fresti. Ekki er þó heimilt að taka lán erlendis til lengri tíma en eins árs, nema með sam- þykki ríkisstjórnarinnar. Það sem að framan er sagt um lán og greiðslufrest vegna vörukaupa gildir að jöfnu um frílista- og leyfisvörur, svo og um lán eða greiðslufrest vegna annars en vörukaupa. GREIÐSLUR FYRIR ANNAÐ EN INNFLUTNING. Leyfisveitingar fyrir öðrum gjaldeyrisgreiðslum en til vöru kaupa munu fara eftir árlegri áætlun, sem ríkisstjórnin læt- ur semja og staðfestir. Svipað- ar reglur og verið hafa munu gilda um flestar gjaldeyris- greiðslur án innflutnings, svo sem um yfirfærslur fyrir náms- kostnað, sjúkrakostnað o. s. frv. Hins vegar verða nokkrar breyt ingar á reglum um greiðslur á ferðakostnaði. Þeim íslenzkum ríkisborgur- um er óska að kaupa erlendan gjaldeyri til utanfarar og hafa lagt fram farseðil til útlanda, Ftt'amhald á 2. síðu. HIÐ vinsæla leikrit Karde- mommttbærinn var sýndur í síff asta sinn s. 1. fimmtudag og var þaff 45. sýningin á leiknum. Ákveðið hefur verið. að sýna leikritið á næsta starfsári. Alþýðublaðiff — 1. júní 1960 J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.