Alþýðublaðið - 01.06.1960, Page 8

Alþýðublaðið - 01.06.1960, Page 8
LOKSINS er að því komið, að Kim Novak ætlar að ganga í hið heilaga hjóna- band, segja einkamálasér- fræðingar Hollywood. Allir vinir hennar og vandamenn eru í sjöunda himni, því' að Kim- hafði í lengri tíma ver ið súr í skapi og lífsleið og jafnvel látið þau orð falla, að hún mundi aldrei finna sér neinn eiginmann, — og þótti það slæmt. Einn vina hennar lét svo ummælt fyrir nokkru, að „hún væri stórt, skelft barn og ekki mundi vel fara, ef engar breytingar yrðu á hög um hennar innan skamms“. Nú er sem sé útlit fyrir að breyting verði, — og að hin 27 ára gamla Kim sleppi við ævilangt piparstand. ★ Einn slúðurdálkahöfund- ur í Hollywood sagðis-t oft hafa verið uggandi um, að Kim léti lífið renna út úr höndúm sér, meðan hún væri að keppa með ofurefli eftir einhverri frægðarham- ingju, og öllum kemur sam- an um, að þessi ein síðasta „glæsistjarna" frá Holly- wood hafi lítið haft af ham- ingjunni að segja, þótt hún hafi verið auglýst út um allan heim, og þótt hún eigi glæsilega íbúð og bíla. ★ Frank Sinatra, sem eitt sinn átti vingott við Kim segir: „Kim Novak er eitt síðasta dæmið um stjörnu, „sem búin var til í Holly- wood. Með farða, myndum, glæsilegum klæðum og aug lýsingum var venjuleg stúlka gerð að draumadís, sem lagði hálft mannkynið að fótum sér.“ Kim hafði þó „heppnina" með sér frá upphafi. Hún hafði ekki fyrr ákveðið að freista gæfunnar í Holly- wood en hún rakst á mann, sem var fús til að kynna hana fyrir ikvikmyndakóngi, sem lokaði hana strax inni og lét hanaj ekkert fá að borða nema ruður og bein, af því að hann áleit, að hún þyrfti að horast. Öðru hvoru kom hann svo og leit á hana, hvort hún hefði ekki lagt af eins og vera bar. En Kim þótti súrt í broti að vera lokuð inni og eiga að breyta draumaprinshug- sjón sinni svo hún líktist sköllótta skarfinum með vindilinn, sem hafði hana í svelti. — Og sú litla fékk sér elskhuga. En þegar kvi-kmyndakóng urinn komst að þessu fór allt í háaloft. Hann sagði henni skýrt og skorinort, að hún yrði að velja á milli frægðarferilsins og stráks- ins. Kim valdi frægðarferil- inn. ★ Rita Hayworth hafði koin izt upp á kant við kvik- myndafélagið Kolumbía, og það þurfti að búa til nýja stjörnu. Kim Novak var upp lagt efni. Hún gekk Iíka fús út í hvað sem var, ef það mæti verða henni til frama og framdráttar. „En stundum finnst mér ég vera aðeins sápa í hönd- um þeirra, sem þeir blása upp í blæfagra kúlu, — en hún getur hjaðnað hvenær sem er,“ sagði hún. Þá varð hún ástfangin í Frank Sinatra, sem gert hef ur ótalmargar konur vitlaus ar í sér. En hann varð fyrr en varði leiður á henni og fór ekki dult með hvers vegna. „Þú ert einfaldlega ekki neitt neitt,“ sagði hann við hana. „Þú ert enginn per- sónuleiki, þú ert dauðhrædd og undirgefin. Gerðu eitt- .hvað! Hneykslaðu Iýðinn1 Ég væri heldur ekki neitt neitt, ef ég hefði ekki gert uppreisn gegn þessu öllu ...“ — Og Kim Novak gerði uppreisn á þann eina veg, sem hún sá. Til þess að „hneyksla lýðinn“ og sýna fram á kæruleysi sitt um, hvað fólk hugsaði, daðraði hún við alla, sem. hún gat. Hún var orðuð við fleiri en tekur upp að telja, trúlof un var spáð í hverjum mán- uði, en aldrei varð neitt úr neinu. Hún daðraði við Aly Khan, sem gaf henni dem- anta, hún daðraði við þýzk- an gæja, sem seinna kom í ljós að var bíræfinn banka- ræningi, hún daðraði við ít- alskan falsgreifa, Cary Grant og fleiri og fleiri. Loks kom stóra ástin og þá fyrst kastaði tólfunum. Öll Hollywood (það er að segja tibúar hennar) stóð á öndinni og í öllum sam- kvæmum var pískrað um hið mikla hneyksli. Kim No- vak hafði gerzt svo ófor- skömmuð oð verða ástfang- in af kolsvörtum söngvara. En þetta endaði með mestu skelfingu eins óg öll hennar fyrri ástarævintýri. Kvik- myndafélagið, sem hún var ráðin við, setti blát við þessum ráðahag, Nov-ak neyddist til ai við allt saman, n Sammy Davis, fór hr heirn til Las Vegas, j hann tók í flýti gle og giftist kolsvartr mey. ★ En nú segir, að hörmungar muni enda, Kim ætlar að kvikmyndast j órnand Richard Quine, sem er með efnilegustu myndastjórum vestri Og allir eru svo gl kátir fyrir Kim hö enginn kærir sig nen óttan, að hún tók I frá annarri konu, s situr eftir með sárt sorg og sút. g, 1. júní 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.