Alþýðublaðið - 01.06.1960, Síða 11

Alþýðublaðið - 01.06.1960, Síða 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson. Belgía keppir VIÐ skýrðum frá því hér á síðunni fyrir nokkru, að Belgía myndi ekki verða í 4ra-Ianda keppninni á Bisl- et 20. og 21. júlí n. k. — vegna fjárhagsörðugleika, en nú hefur skyndilega ræst úr vandamálinu og Belgíumenn verða með eft- ir allt saman! Ungur Akureyringur kom mest á óvart... FORMAÐUR KR, Einar Sæ- mundsson, setti þetta 18. EÓP- mót með' nokkrum orðum. Mót- ið var fyrst haldið 1943 á 50 ára afmælisdegi fyrrverandi formanns KR, Erl. heitins Pét- urssonar og síðan hefur það farið fram árlega. ic ÓVÆNT í 110 M. GRINDAHL. í fyrstu greininni, 110 m. grindahlaupi komu úrslit á ó- vænt, Guðjón Guðmundsson, sem álitinn var sigurvænleg- astur, tapaði fyrir félaga sín- um Sigurði Björnssyni. Enda- sprettur Sigurðar var mun skarpari. Guðjón virðist ekki vera í góðri æfingu en hann dvaldi í Bandaríkjunum s. 1. vetur. if HILMAR ER LANGBEZTUR. Hilmar tók nú í fyrsta sinn þátt í keppni á sumrinu og sýndi að hann er okkar lang- bezti spretthlaupari. Hann náði ágætu viðbragði í 100 m. og hélt forystu allt hlaupið. Á MMMiMHMMMMMMUMMM Beztu afrek í 800 m. hl. GUÐMUNDUR Þorsteins- son skaut mörgum kappan- um aftur fyrir sig í afreka- skránni í 800 m. hlaupi EÓP-mótsins. — Hér eru beztu afrek á íslandi frá upphafi: Svavar Markússon, KR ’58, 1:50,5 mín. Þórir Þorsteinsson, Á, ’58, 1:52,0 mín. Óskar Jónsson, ÍR, ’48, 1:54,0 mín. Guðm. Þorsteinss., KA, ’60, 1:54,1 mín. Guðm. Lárusson, Á, ’51 1:54,6 mín. Magnús Jónsson, KR, ’50, 1:55,7 mín. Pétur Einarsson, ÍR, ’50, 1:56,0 mín. Kjartan Jóhannss., ÍR, ’46, 1:56,2 mín. Kristl. Guðbj.ss., KR, ’58, 1:56,3 mín. endasprettinum lengdi Hilmar bilið og var ca. þrem metrum á undan Valbirni. Hilmar æfði lítið í vetur og vor, en er nú byrjaður af fullum krafti. Er alveg ótrúlegt hvað hann er fljótur að ná sér á strik. Val- björn var ekki eins frískur nú og á Vormóti ÍR. + EFNILEGIR UNGLINGAR. Keppt var í 100 m. hlaupi unglinga og kvenna. Úlfar Teitsson varð fyrstur í ungl- ingahlaupinu eftir harða keppni við Grétar Þorsteinsson, hinn efnilega Ármenning. Þeir eiga áreiðanlega oft eftir að berjast á hlaupabrautinni í framtíðinni, Úlfar og Grétar, báðir harðskeyttir og snarpir. Rannveig vann yfirburðasigur í 100 m. en náði ekki eins góð- um tíma og síðast. * ÓVÆNT ÚRSLIT — ÁGÆTUR ÁRANGUR! Skemmtilegasta grein móts- ins var 800 m. hlaup, en þar voru aðeins tveir keppendur, Svavar Markússon, sem verið hefur okkar langbezti milli- vegahlaupari undanfarin ár og Guðmundur Þorsteinsson, KA Akureyri, mjög efnilegur hlaupari. Sumir héldu því fram fyrir lilaupið að Akur- eyringurinn myndi jafnvel veita Svavai'i keppni, en aðrir voru vantrúaðir. Flestir voru samt sanimála um að Guðm. myndi ná góðum tíma. Hlaupið hófst og Guðm. tekur forystuna og hleypur greitt, en nokkuð þungt. Stíll hans er góður. Þegar bjallan glymur við 400 m. eru kapp- arnir samhliða og klukkurnar sýna 55 sek. — ágætur milli- tími. Svavar bætir við og tek- ur forystuna og nær 2—3ja m. forskotj og nú bjuggust marg Framhald á 7. síðu. MHMHHtHMMMMUMMMM FRÁ endasprettinum í 800 m. hlaupi EÓP-mótsins á mánudaginn. Hinn efnilegi Guðmundur Þorsteinsson, KA, sigrar íslandsmetahf- ann Svavar Markússon, KR. (Ljósm.: J. Vilberg). FYRSTI leikur Moskvu- liðsins, sem hingað er að koma í heimsókn, í boði Fram, verður á fösudags- kvöldið kemur kl. 9.15 á Laugardalsvellinum. Mæta Rússarnir úrvali Suðvest- urlandsins, sem er dul- nefni á landsliðinu. Lands- liðsnefnd hefur þegar skip að liðið og tilkynnt það. Virðist nefndin hafa haft nokkra tilburði uppi við að breyta liðsskipaninni frá áralangri hefðbundinni reglu. Sumar þessar breyt- ingar eru til bóta, aðrar orka tvímælis og sumar eru út í loftið — „kiks“. Það er sjálfsagt að reyna Rúnar Guðmannsson í stöðu miðvarðar, og stand- ist hann vel þessa raun, verður fróðlegt að vita hvort landsliðsnefnd lætur hann halda stöðunni í landsliðinu áfram, og leika þá gegn Norðmönnum? Hreiðar Ársælsson hefði að ósekja mátt hvíla sig þenna leik og sleikja „sár sín“ eftir mistök undan- genginna leikja í vor, en lofa öðrum að reyna sig, og sjá hvort ekki tækist betur til, að minnsta kosti mundi ekki miklu hafa verið spillt. Arni Njálsson gat ekki leikið með félagi sínu Val, um sl. helgi vegna meiðsla, og því hefði átt að lofa honum að jafna sig betur, en senda hann ekki meiddan í harðan leik. Þá er Garðar Árnason látinn leika v. framvörð, þó hans staða sé h. framvarðar. Garðar er nógu svifaseinn og þungur, þó ekki sé ver- ið að rugla hann í ríminu með stöðuskiptingum, sem verða honum í óhag. Sveinn Teitsson, sá snjalli Akranesskappi, getur leik- ið hvorum megin sem er í framvarðarstöðu, nær væri því að láta hann leika v. framvörð. Rússnesku inn- herjarnir verða ábyggilega framvörðum vorum nægi- lega erfiðir, þó ekki sé ver- ið að gera þeim erfiðara fyrir með ástæðulausum stöðuskiptingum. Þá er framlínan með hinn unga Akurnesing Ingvar Elísson, sem miðherja, aðalmann og skipuleggjara. Ingvar hef- ur sýnt sig sem gott efni, svo vænta má af honum alls hins bezta, þó sjálfsagt eigi hann við erfiðann að etja, þar sem rússneski Framhald á 14. síðu. IIWMWMMMMIMMMHMWIWHMMMMUUIMMIMMUtmK! AUGLÝSING m innfíufning. i Bankarnir hafa ákveðið að nota heimild 4. gr. reglu- gerðar nr. 78 27. maí 1960, um gjaldeyris- og inn flutnings leyfi til að bindá fcaup eftirtaldra vara við opinber vörukaupalán (FL 480 og ICA lán), eftir því sem við verðum komið: Hveiti og hveitimjöl. Bygg og byggmjöl. Aðrar fóðurvörur. Hrísgrjón. Tóbak og tóbaksvörur. Soyuolíá og baðmullarfræsolía. Aðrar jurtaolíur. Sítrónur. Þurrkaðir ávextir (þar með taldar rúsínur). Epli og perur. Niðursoðnir ávextir. Kemikalíur. Ullargarn. Vefnaðarvörur. Trjáviður. Pappír og pappírsvörur. Olíuvörur., Járn og stál. Vélar. Landbúnaðarvélar og dráttarvélar. Bifreiðir og bifreiðavarahlutir. Gúmmívörur. ( : T 1 Reykjavík, 31. maí 1960. Landsbanki íslands, Viðskiptabanki. Útvegsbanki íslarsds. TQOOCT.-vr-<MOor--,r-vnojwm-oo-'Wr'-^TFT']rflrpo--------; w ■ AlþýðublaðiS — 1. júnf 1960 n

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.