Íslenzki good-templar - 02.01.1889, Blaðsíða 2

Íslenzki good-templar - 02.01.1889, Blaðsíða 2
26 ísl. Good-Templar. Jan. eigi þá vanvirðu spyrjast úr nokkrum flokki liðs vors, að nokkur einn einasti maður hafl gleymt svo skyldu sinni, að hann hafi dregið sig í hlje eða hlíft kröptum sínum. Brýnið það alvarlega fyrir með- limum stúku yðar, að undir þeim einum er pað komið, að petta málefni fái æskilegan framgang. Ef hver einasti meðlimur stúku yðar gjörir pað, sem honum er framast unnt til pess að fá fylgi allra peirra, er honum standa nærri og honum eru kunnugir, pá er eg viss um, að þessar áskoranir fá fjölmennara fylgi og par af leið- andi geta áorkað meiru, en nokkurn tíma hafa áður dæmi til verið hjer á landi. Leggjum kapp á petta mál og látum nú, hið fyrsta sinn, sem verklega er treyst á fjelagsbönd Good-Templarreglunuar hjer á landi, pað ásjá, að samheldni vor og fjelagsfylgi sje annað eu orðin tóm. Vjer berjumst hjer fyrir hinni pörfustu siðbót í landi voru; málefni vort er gott og sá vegur, sem vjer höfurn ráðið við oss að ganga, skýr og ljós. Fylgið honum með hugrekki, kappi og staðfestu og pá getum vjer verið pess öruggir, að vjer munurn innan skamms ná takmarki voru og vinna pann sigur fyrir málefni vort, sem nú er halinn hardagi fyrir. Að öðru leyti vil eg, eins og áður hiðja yður, að hafa vakandi auga á málum reglu vorrar, starfa með áhuga að pví, að efla stúku yðar, vekja rjettan samheldnis- og bróðuranda hjá meðlimunum og styðja af yðar fremsta megni stúkuna til allra góðra framfara og sjá um, að hún fylgi fram stefnufast málefni voru. — Eg bið yður að hafa vakandi auga á útbreiðslusjóði .reglunnar, sem nú, eins og mál vor horfa, er áríðandi að efljst sem mest, enda er pað mikilla pakka vert, hve vel meðlimir ‘ vorir alstaðar hafa styrkt hann. — Eins vil eg biðja yður að gjöra pað, sem þjer getið, fyrir útbreiðslu »ísienzka Good-Templars«. Bað er í marga stefnu áríðandi fyrir regluna, að geta haldið áfram útgáfu blaðsins; en eins og nú stendur hagur pess, er það pung byrði fyrir Stórstúkuna. Vjer vonum pví, að pjer og allir góðir meðlimir stúku yðar gjöri pað, sem þeir geta, til að styðja blaðið með pví að kaupa pað eða útvega því kaup- endur. Eg árna stúku yðar eflingar og góðra framfara á ári pví, er nú fer í hönd og sem lítur út fyrir að verða muni þýðingarmikið æfi-ár fyrir regluna hjer,—Eg vona að allir meðlimir yðar hafi ljóst fyrir augum starf pað, sem þeir hafa tekið sjer á herðar, og vakandi áhuga á að leysa petta starf af hendi með dugnaði og trúmennsku. J>að er nú undir þeirra fylgi komið, hve langt vjer komumst áfram

x

Íslenzki good-templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenzki good-templar
https://timarit.is/publication/130

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.