Íslenzki good-templar - 01.04.1889, Blaðsíða 3

Íslenzki good-templar - 01.04.1889, Blaðsíða 3
1889 ísl. Good-Templar. 51 hinn mikli fjöldi áfram að vera eins og hann er, og það einkum af því að hin veraldlega stjórn gjörir ekkert til að betra hann. Ef guð ekki tekur í taumana og lætur refsidóm sinn ganga yfir landið fyrir þennan glæp, þá er jeg viss um, að hann heldur á- fram að grafa um sig, þangað til bæði konnr og börn eru orðin svín, og þegar dómsdagur kemur þá verða engir krisrnir menn meðal vor; en öllum drykkju- mönnum og óhófsmönnum mun verða varpað niður til neðsta helvítis. Stór-Stúka íslands. í International Good-Templar. í október heptinu af Internati- onal Good-Tempiar, sem ekki kom hingað fyrri enn með skip- inu 23. Marz, er Stór-Stúku vorr- ar getið eins og opt áður á bls. 590. Parker getur þess að hann hafi fengið myndirnar af Stór- Stúkumeðlimunum 1888, segir að nýjar stúkur hafi verið stofnaðar hjer síðan Stór-Stúkan hjelt fund sinn og endar smágrein þá sem hann heigar oss þannig. «Ef helm- ingurinn af þeini ákafa, og festn sem er í meðlimum þessar litlu Stór-Stúku, yrði blásið iun í nokkrar af hinum miklu Stór- Stúkum vorum, þá hefðum vjer vonandi eina miljóp nieðlima, þegar vjer finnumst í Chicago í Maímánuði í vor«. í Janúar heptinu af Internati- onal Good-Templar, er getið urn Stór-Stúku tiðindin hjeðan. Rit- stjóri tímaritsins hefur látið ein- hvern sem skilur íslenzku, enjafn- framt þekkir Good-Templar mál eða er G. T. sjálfur, fara í gegn- um þau, og gjöra útdrátt úr þeim. |>ess er þá fyrst getið að við höfum haft nóg að gjöra í þrjá daga, þó Stór-Stúka vor sje ein af hinum minnstu Stór-Stúkum, og að hjer um bil allar stúkur á landinu hafi sent fulltrúa. J>ess er getið að skýrslur bæði frá em- bættismönnum og nefndum sjeu ítarlegar og langar, eins og tíðkist í sumum gömlum Stór-Stúkum, einkum sjeu skýrslur Stór-Templ- ars og Stór-Ritara mjög nákvæm- ar, og fullkomnar. J>að er drepið á það hvað mjög vjer sjáum eptir Einch, og tekin upp úr skýrslu Jóns Ólafssonar orð hans um, að Reglan hafi aldrei staðið, á eins föstum fótum síðan hún kom til íslands, eius og um það leyti sem Stór-Stúkan kom saman. |>ess er getið útaf skýrslu Stór-Ritara að fjölgun meðlim'a hjer á landi þessi 2 ár hafi verið 122 meðlimir, það þykir ekki lítið, því örðugleikarn- ir sjeu mildir. J>að þykir eptir- tektavert hvað Stór-Ritari hefur skrifað mikið, (þeir hafa ef til viU

x

Íslenzki good-templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenzki good-templar
https://timarit.is/publication/130

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.