Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.02.1890, Qupperneq 4
4
VIÐATTKABLAÐ við „fcjóðviljaim" 4. ár, nr. 10.
UNDIRTEKTIRNAR
í
STJÓRNARSKRÁRMÍLINU.
— o—'o:o-—o—
Víðsvegar af landinu liafa ritstjórn ,,^f>jóð-
viljans“ borizt fjöldamörg bréf, er lýsa á-
nægju yfir pví, að blað vort hafi tekið
„uppgjöfina“ og hennar fylgifiska alveg á
réttan máta:,|‘
„líkt og pá Grettir Gísla sleit
gjarðirnar dauss,
og strýkti’ liann beran“.
Vér kunnum hinum heiðruðu höfundum
vorar beztu þakkir. og pökkum þeim hér
með bréf þeirra öllum í einu; að vísu
finnum vér tíl þess, að vér verðskuldum
eigi þær þakkir, er menn færa oss, því að
vér höfum eigi annað gjört, en það er sann*
færingin bauð oss; en vissulega æ ti það
að vera oss uppörfun, að ýmsir betri menn
líta á málíð líkt og vér og að
„táp og fjör ög frískir menn
finnast hér k landi enn“.
Vinnum þá allir að því öfluglega, að
þjóð vor eigí missi móðinn, þrátt fyrir það
óheillaaðkast sem mætti oss á síðasta þingi,
og þá mun það sannast, sem skáldið
kvað, að
„. . . . Eyjan hvíta
á sér enn vor, ef fólkíð þorir
guði að treysta, hlekki að hrista
hlýða réttu, góðs að bíða“.
Ritstj.
LAGASKÓLAMÁLIÐ.
|>að hefir marga furðað á því, að þing-
ið síðasta skyldi ekki einu orði minnast á
lagaskólamálið, sem þó liefir verið vöggu-
barn þingsins í full 40 ár, og öllum auð-
ssætt, að þörfin á innlendri lagamenntun
vex ár frá ári, eptir því sem löggjöf vor
fjarlægist smám saman meir og meir lög-
gjöf Dana; það sá á, að Benedikt Sveins-
syni var í sumar varnað máls, er hann sat
*) Að vísu hafa oss einnig borizt nokk-
ur bréf, er bera, sumpart vott um
sorglegan misskilning á málii u, og
sumpart um hryggilegt vantraust á
því, að þjóðin liafi þrek og kjark til
að fylgja fram réttum málstað. En
væri þeim síðartöldu, sem sjá þó hið
rétta, eigi sæmra að örfa þá ístöðu-
litlu, en að rífa liár sitt og skegg
þeirra vegna?
í forsetasæti, því að öðrum kosti myndi
hann hafa barizt drengilega fyrir máli þessu,
eins og á undanfarandi þingum.
Getur ritstjórn „J>jóðviljans“ nokkuð
frætt mig um, hvað valdið hefir þessari
kynlegu þögn þingsins í sumar, er leið,
og það þvert ofan i ályktun J>ingVallafund»
arins 1888 ?
Forvitinn.
*
*
Eptir þeim fregnum, sem ritstjórn ,tí>jóð*
viljans“ hefir haft af máli þessu úr á*
reiðanlegri átt, var það almennur vilji
þjóðkjörinna þingmanna, að fylgja málinu
fram á síðasta þingi, og tókst alþm. Jón
Ólafsson með sinni vanalogtt framhleypní
á hendur að flytja málið inn i efri deild,
en hann hefir gleymt þessu loforði, eða
ekki hirt um að efna það, hvað sem til
þess hefir komið.
Ritstj.
Isafirði, 12. febr. ’90.
Tíðarfar. Einlægar hríðar ganga,
með fannfergju og skafmold ahnan daginn,
en hellirigning hinn daginn, og hefir svo
gengið optast frá {>orrabyrjun.
P ó s t u r komst af stað 8. þ. m. síðla
dags.
Kaupstaðirnir og amtsráðin.
Bæjarstjórnin á ísafirði ræddi á fundi 4.
þ, in. erindi frá landshöfðingja þess efnis,
hvort ástæða væri til að útvega með kon-
ungsúrskurði samkvæmt 60. gr. tilskipunar
4. maí 1872 heimild til þess, að ísafjarð-
arkaupstaður losaðist við jafnaðarsjóðs-
gjald, en tæki aptur að sér útgjöld þau,
er hingað til kynnu að hafa greidd verið
hans vegna úr jafnaðarsjóði. — I einu
hljóði fór bæjarstjórnin þess á leit, að
e k k i væri gerð nein breyting á sambandi
því. er verið hefir milli Isafjarðarkaupstað-
ar og Vesturamtsins að svo stöddu. —
Fjárhagur ísafjarðarkaup-
s t a ð a r. Samkvæmt brejarreikningnum
fyrir árið 1889, sem nú liggur frammi
bæjarbúum til sýnis, átti kaupstaðurinn við
áramótin í sjóði í peningum frekar 2000
kr. — |>ær 1350 kr., sem eptir standa af
bankaláni því, er bæjarfélagið fékk í hitt
eð fyrra, mun bæjarstjórnin því hafa í
hyggju að borga að fullu i ár, enda þótt
eigi sé áskilin nema 450 kr. afborgun.
Dómur séra Jóns Bjarnason-
ar um íslenzka presta. Á mál*
fundi þeim, er haldinn var í Reykjavík
út af fyriríestri hr. Gests Pálssonar um
„menntunarástandið“, kvað séra Jón
Bjarnason það yfir höfuð einkenni íslenzku
prestastéttarinnar, að „leita fyrst brauðs-
ins. og síðan guðsríkis“.
ATJGLÝSINGAR.
AÐALflJNDUR
sýsluneftidarínhar i ísafjarðarsýslu verður
haldinn á Ísafirðí þriðjudaginn 11. dag
marzmánaðar nrestkomandi, eða næsta virk-
an dag að fœru veðri, og hefst á hádegi,
Skrifstofu ísafjarðarsýslu,
22. dag janúarmán. 1890,
Nkftli Thoroddsen.
“ Erá miðjum ágústmánuði að sumrí
er barnaskólinh á ísafirði laus til íbúðar.
J>eir, sem kynnu að vilja fá hann leígðan,
snúi sér tíl skólanefndarinnar þar fyrir lok
næsta mánaðar (marzmánaðar).
öott íslenzkt smjör
fæst með góðu verði mót borgun út í höntl
hjá Hans A. Clausens Verzlua
hér á staðnum.
Mórauð töuskinn
borgast með liæðsta verði hjá H a n s A.
Clausens verzlun hér á staðnum.
Eins og fyrri, eru
reikningar
til sölu í prentsmiðju ísfirðinga
af ýmsri stærð og gæðum.
Hundrað reikningar í arkarbroti kósta
1 kr. 50 aura.
Hundrað reikningar í 4 blaða broti kosta
1 kr. 20 aura.
Hundrað reikningar í 8 blaða broti kosta
70 aura.
Prentsmiðja ísfirðinga.
Prenturi: Jöhannes Yigfússon.