Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Page 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Page 4
88 Þjóbviljinn unoi. því strikinu, að þrœta fyrir verknaðinn; en hins vegar hafa borizt að honum eigi all-litlar líkur, hafði sézt halda fyrir brjóst G-uðm. á götunni, og verið þá heldur hávær; eins og líka næg vitni eru að því, að Guðm. var ómeiddur, þegar hann gekk út ur veitingahúsi S. Thorsteinsen um kvöldið, í sömu mund sem Lárus, og að hann strax á eptir, að þeir Lárus voru saman, sýndi Birni sýslumanni sig blóðugan, og beiddi hann og ýmsa fleiri að minnast þess, að yfirvaldið Lárus hefði leikið sig þannig; dettur og engum i hug, — enda ekki vinum og vildarmönn- um Lárusar —, að vefengja sögusógn Guðm., sem að mörgu leyti er einn í röð fremstu og merkustu bænda í þessu héraði. ísafirði 30. april '04. BEZTA vor-veðl’áita helzt enn hér vestra, og hefir að undan förnu verið nokkuð rigninga- samt. STRANDFERÐASKIPIÐ „Thyra“ kom hing- að að sunnan 26. þ. m., og fór aptur samdæg- urs norður um land; með skipinu kom hingað úr Reykjavik Árni leturgrafari Gíslason, í erindum Good-Templar-reglunnar. FISKISKIPIÐ „Áfram“, eign L. A. Snorra- sonar verzlunar, hafði. ný skeð komið inn á Önundarfjörð með lík tveggja hásetanna, er lát- izt höfðu úr „influenza“. HÖRMULEGT SLYS varð á hvalveiðistöð hr. H. Eilefsens k Flateyri 7. þ. m.; einn af verkmönnum hans, ungur norðmaður, var að athuga eitthvað í skurðar-vélinni, og varð nieð höfuðið undir hnífnum í vélinni, svo að höfuðið hlutaðist í tvennt um gagnaugun, og var mað- urinn samstundis örendur. KAUPFÖR. 18. þ. m. kom kaupfarið „The- mis“, skipstjóri I. P. Hansen, frá Khöfn með ýmis konar vörur til L. A. Snorrasonar verzlúnar. 22. þ. m. kom skipið „Alh'na“, skipstjóri T. Dirks, frá Englandi með saltfarm til „kaup- félags ísfirðinga11. GUFUSKIP, sem er á stærð við „Thyru“, eða alls 564 register-tons netto, hefir verzlun Á. Ásgeirssonar keypt í útlöndum í vetur, og kvað það vera væntanlegt hingað með salt og kol til verzlunarinnar innan skamms. DRUKKNUN. 31. f. m. varð bátstapi hér við Djúpið, og fórust þar tveir menn: Guð- m u n d u r snikkari Á r n a s o n, hróðir Jóhanns skósmiðs a. ísafirði og þeirra systkina, dugnað- ar-maður mesti, og smiður góður; hinn maður- inn, sem drukknaði, var Benóní, sonur fyrv. alþm. Þói’ðar Magnússonar frá Hattardal, sem nú er í Ameríku. Menn þessir voru á ferð, tveir á hát, frá Tröð í Álptafirði inn í Skötufjörð, og höfðu nær þóttu-fyllt bátinn af grjóti í seglfestu, en hæg- ur vestan-sláttur var, og er það ætlun manna, að þeir hafi fengið ágjafir, og báturinn sokkið. LÍK þeirra Ben. Gabr. Jónssonar frá Meiri- hlíð og sonar hans, sem fórust við skipskaðann úr Bolungarvík 7. dos. f. á., sbr. 5. nr. „Þjóðv. unga“ þ. á., hafa ný skeð komið upp á lóðum, og hafði lík hins síðar nefnda verið orðið mjög skaddað. Jeg hefi nú fengið mikið af alls kon- ar vörum frá Danmörk og Englandi, einn- ig af íslenzku feitmeti, sem jeg sel allt með vægara verði, en almennt gjörist hér á staðnum. — Einnig borga jeg meira fyrir fá-saltaðan blautan íisk, en almennt gjórist hér. ísafirði, 22. apríl 1894. Óli F. Asmundsson. Til kiiiips! nýlegur, eptir Norchnanna-rcikninr/i talinn 100 tn. bátur, er til solu. Báturinn er innan byggður með kössum, frá öptustu þöptu og fram á andöfs-þóptu; hann er me<í „Buff“ fram i, tneð 2 rnmum, hvoru fyrir 2 menn; þar að auki fgfjju honurn segl og reiði, sem allt er í gbðu standi, ágœtur „kompás“ og ;,kábyssa“ góð, stjórafceri, um 100 faðma, með góðum dreka. Peir, sem vildu ná í bátinn, semji við mig sem allra fyrst. ísafirði, í apríl 1894. Agúst Benedilrtsson. .Tör-ð til söln. Ekkjan Sigríður Helgadóttir frá Tröð í Bolungarvík, sem nú dvelur í Winn i- peg í Vesturheimi, hefir gefið undirrit- uðum umboð til að selja eign sína l'/2 hndr. að fornu inati í Meirihlíð í Hóls- lireppi. Þeir, sem hafa hug á því, að kaupa jarðarpart þennan, ættu því að snúa sér til mín sein fyrst. ísafirði, 30. apríl 1894. Skídi Thoroddsen. Hér ineð auglýsist, að 5. þ. m. ráku á Skarði á Snæfjallaströnd tvær rosknar ær, ónnur smáhyrnd horntekin, en hin stór- hyrnd. Mark á báðum þessum kindum var stýft hægra, tveir bitar framan vinstra. Eigendur þessara kinda geri Arnóri Kristjánssyni á Skarði að vart sem fyrst, III, 22. og borgi þessa auglýsingu og fyrirhöfn alla. Staddur á ísafirði, 24. apríl 1894. Arnór Kristjánsson. Vöruverð í vezlun CÍ>la Jt* *. A.smundssonai- á ísafirði 1894. Kaffi nr. 1.................kr. 1,15 do. nr. 2...................— 1,10 Kandís (rauður)...............— 0,35 Export-Kaffi (ineð kvörninni) . — 0,45 Maskínuskorið Hvíta-sykur . . — 0,35 Skonrog.......................— 0,22 Kringlur......................— 0,35 Tvíbókur......................— 0,45 Biscuits, 6 sortir, frá kr. 0,50 til — 1,20 Rulla (Nobels)................— 2,10 Rjól do.......................— 1,40 Reyktóbak, margar tegundir. Brennivín . . . potturinn á — 0,80 Cognac fínt, fleiri sortir Matvara, og óll kramvara, með vægara verði, en almennt mun vera hér á staðnum. Margt fleira, sem hér verður ekki talið, með vægu verði. Islenzkt feitmeti. Fáein eintöli eru enn til óseld af þessum árg. „Þjóðv. unga“ frá byrjun. Þeir, sem vilja ná íþau, verða að gefa sig fram sem allra fyrst. J"og undirritaður hefi haft óhraustan maga, og þar af leiðandi hefi jeg einn- gi haft liöfuð-þyngsli og aðra veiklun; en með því að nota „Kína-lifs-elixír“ þann, sem hr. Valdemar Petersen í Frede- ríkshöfn býr til, hefi jeg nú aptur feng- ið góða heilsu. Jeg ræð þess vegna óllum þeim, sem þjást af líkum sjúkdómi, að reyna þessa „bitter“-tegund. Eyrarbakka á Islandi, 23. nóv. 1893. Oddur Snorrason. Kina-lífs-elixírinn fæst hjá flestum kaup- mönnum á íslandi. Til þess að vera vissir um, að fá liinn ekta Kfna-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel eptir því, að ——" standi á fiöskunum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vöru- merki á flöskumiðanum: Kfnverji með glas í hendi, og firrna nafnið Valdemar Petersen. Frederikshavn, Danmark. PKENTSMIÐJA PJÓÐVILJANS UNGA.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.